Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1997, Blaðsíða 28
32
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997
Sviðsljós
Lét taka
silíkonið úr
brjóstimum
Angie Everhart, sem er nýgift
Ashley Hamilton, er búin að láta
fjarlægja silíkonið úr brjóstun-
um. Hún lét á sínum tíma
stækka brjóstin fyrir fyrmm
ástmann sinn, Sylvester
Stallone, sem var vanur hinni
brjóstastóru Gitte Nielsen.
Clooney að
verða pabbi?
Orðrómur er á kreiki um að
George Clooney, barnalæknir-
inn í Bráðavaktinni sem ekki
vill eignast böm, sé búinn að
bama frönsku kæmstuna sína,
Céline Balidran. Nicole Kidman
fúllyrðir þetta að minnsta kosti
og hefur veðjað hálfri milijón
króna um að svo sé.
Örvæntingarfullur eiginmaður:
Linda Hamilton stal
konunni minni frá mér
Vöðvabúntið Linda Hamilton,
sem þekkt er fyrir leik sinn í Ter-
minator-kvikmyndunum, hefur ver-
iö sökuð um að stela konu frá
manni, að því er fram kemur í
breskum slúðurblöðum. Konan sem
um ræðir heitir Cindy Deerheim og
er hún staðgengill Lindu í nýjustu
mynd hennar, Dante’s Peak, sem
Pierce Brosnan leikur einnig í.
Eiginmaður Cindy, sem heitir
Mike, er i rúst. Þau höfðu verið gift
í 13 ár. „Ég hélt að við hefðum ver-
ið hamingjusöm og við lifðum æðis-
legu kynlífi. Nú er hún farin frá
mér og flutt til Lindu.“
Linda er nýskilin við kærastann
sinn, James Cameron, sem leik-
stýrði Terminator-kvikmyndunum.
Linda og James eiga þriggja ára
dóttur saman sem heitir Josephine.
Linda á einnig son, Dalton, sem tók
þátt í lokasenunum í Terminator 2.
Linda Hamilton ásamt meintri ástkonu sinni, Cindy Deerheim.
Það þykir svolítið kaldhæðnislegt
að Cameron yfirgaf eiginkonu sína,
Kathryn Bigelow, eftir að hafa orðið
ástfanginn af Lindu þegar tökur á
Terminator 2 fóru fram.
Mike er að vonum ákaflega óham-
ingjusamur yfir að Cindy skuli hafa
tekið konu fram yfir hann. „Ég skil
ekki að þetta skuli hafa gerst. Linda
Hamilton hefur stolið konunni
minni. Þetta er hræðilegt. Linda var
meira að segja svo frökk að hringja
í mig og segja mér að Cindy ætlaði
ekki að koma heim. Hún skipaði
mér að senda dótið hennar heim til
sín. Konan min hringdi svo seinna í
mig og sagði mér að hún elskaði
mig ennþá en að hún væri ekki
lengur ástfangin af mér, hvað sem
það þýðir nú.“
Að sögn Mike á Cindy að hafa
sagt honum að Linda væri mikil-
vægasta persónan í lífi hennar. „Ég
get ekki fyrirgefið Lindu það sem
hún er búin að gera. Hún hefúr lagt
líf mitt í rúst,“ segir Mike.
Linda, sem segir að hún hafi yfir-
gefið Cameron í vinsémd fyrir tveim-
ur árrnn, neitar að tjá sig mn málið.
Fyrrum eigin-
maður Camillu
vill að hún gift-
ist Karli prinsi
Fyrrum eiginmaður Camillu
Parker Bowles hefúr tjáð vinum sín-
um að hann vonist til að Camilla fái
náð fyrir augum almennings og gift-
ist Karli prinsi, að því er breska
blaðið Sunday Express greinir frá.
Andrew Parker Bowles, sem á sín-
um tíma var frægasti kokkáll Bret-
lands, lét þessi orð falla í kvöldverð-
arveislu og sagði jafnframt að
Camilla og prinsinn fengju blessun
hans.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur
húsbréfa í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
1. flokki 1994
1. flokki 1995
1. flokki 1996
2. flokki 1996
3. flokki 1996
21. útdráttur
18. útdráttur
17. útdráttur
16. útdráttur
' 12. útdráttur
10. útdráttur
' 9. útdráttur
6. útdráttur
' 3. útdráttur
' 3. útdráttur
' 3. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. apríl 1997.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum
birt hér í blaðinu í dag. Upplýsingar um útdregin
húsbréf liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins,
á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
K83 HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 6900
Breska ofurfyrirsætan Naomi Campbell tók þátt í Gaudi-tískusýningunni í Barcelona um helgina. Naomi sýnir hér
hversdagsfatnaö fyrir sumariö. Slmamynd Reuter