Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1997, Page 36
K
L«TT«
■|il iHÍÍW/s ^rfg’tflö
r- *
Vinningstölur
10.2/97
0).C0M@
®@®
KIN
> C3 O FRÉTTASKOTIÐ
DC f—s LU ^ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
-=) S LT3 <C oo <=> 1— LTD i— Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
Frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997
Kröfur VR:
Oflangur
"samningstími
- segir Halldór Björnsson
„Ég þarf að skoða þessar kröfur
betur því ég átta mig ekki alveg á
þeim. Þeir höfðu áður talað um 70
þúsund króna lágmarkslaun á mán-
uði en að öðru leyti færu samning-
amir fram í fyrirtækjunum. Það er
þó alveg ljóst í minum huga að
samningstíminn er of langur því
hann nær fram yfir næstu þing-
kosningar og það tel ég ekki gott,“
sagði Halldór Bjömsson, formaður
Dagshrúnar, spurður álits á kröfum
VR sem lagðar voru fram i gær.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, hefur sagt að
Kröfurnar séu of háar og úr takt við
vilja manna til að viðhalda stöðug-
leikanum. -S.dór
Blint á
Hellisheiði
Mjög hlint var á Hellisheiði og
Sandskeiðinu, í kringum Litlu-
Kaffistofuna í gærdag. Fjöldi bíl-
stjóra lenti í erfiðleikum þar sem
þeir sáu ekki út úr augum og
keyrðu á endanum út af. Að sögn
lögreglu fóru menn sér hægt og ekki
var tilkynnt um nein óhöpp, hvorki
slys á fólki né skemmdir á bílum.
^Þvkir mönnum það nokkuð óvenju-
legt miðað við veður og þau vand-
ræði sem af hlutust. -sv
Sprengidagur er í dag og saltkjöt og baunir á boröum flestra. Það er Róbert Jónsson sem hér sýnir girnilegt salt-
kjötiö. Þaö má því búast viö því aö menn taki hraustlega til matar síns. DV-mynd GVA
Ölvaöur Grænlendingur á bilaleigubíl gerir usla:
Ok niöur umferð-
arvita, rekkverk
og tvö skilti
Ökumaður jeppabifreiðar
skildi eftir sig ófagra slóð eftir
akstur frá Hringbraut og niður í
bæ í nótt. Eitthvað var ökuleikn-
in bjöguð því á mótum Hring-
brautar og Hofsvallagötu byijaði
hann á því að aka niður rekkverk
á 12 metra kafla. Það hafði þaö
hlutverk að skiija akreinamar að.
Til þess að kóróna skemmdimar
á þessum gatnamótum sá öku-
maðurinn ekki ástæðu til að
beygja framhjá umferðarvita sem
varð á vegi hans og braut hann
niöur.
Ekki lét ökumaðurinn þetta
stöðva for sína heldur hélt eins og
ekkert hefði í skorist niður í bæ
en bíllinn fannst síðan mannlaus í
Aðalstræti við Bröttugötu. Ekki
reyndist erfitt að fylgja eftir slóð-
inni því í valnum lágu tvo umferð-
arskilti í Tryggvagötu.
Þegar lögreglan fann bílinn var
hann mannlaus en á vettvangi var
ölvaður Grænlendingur með
bíllykla í vasanum. Hann hafði
tekið jeppann á leigu og ekki verð-
ur annað séð en að hann hafi vilj-
að prófa drifkraft bifreiðarinnar.
Maðurinn þurfti ekki að hafa
áhyg'jur af því að kaupa sér gist-
ingu því hana fékk hann ókeypis
hjá lögreglunni í Reykjavik í nótt.
Skýrsla verður tekin af mannin-
um þegar hann hefur sofið úr sér
og síðan fer hann líklega út í um-
ferðina á ný. -sv
Árekstur loðnubáta:
Mikil mildi
-að ekki fór
verr
„Þetta var töluvert högg. Stýri-
maðurinn hjá okkur sá Atlanúpinn
koma á fullri ferð í átt að okkur og
hann dró okkur uppi. Þeim tókst að
stýra frá á síðustu stundu en skipið
fór með rassinn í okkur. Það fór
betur en á horfðist og vélarrúmið
hjá okkur rétt slapp,“ segir skip-
verji á loðnubátnum Bergi Vigfúsi
úr Garðinum sem lenti í árekstri
við loðnuskipið Atlanúp nokkrar
sjómílur fyrir utan Breiðdalsvík í
fyrrakvöld.
Að sögn skipverja á Bergi Vigfúsi
■s* kom mikið högg á bátinn við árekst-
urinn og kom gat ofan við sjólínu.
Einnig urðu skemmdir á innrétting-
um. Að sögn skipverja var mikil
mildi að ekki fór verr. Báturinn,
sem var með fullfermi af loðnu, gat
siglt til hafnar á Fáskrúðsfirði eins
og ekkert hefði ískorist. -RR
Á miönætti rann út frestur til aö
skila skattaskýrsiunni. Aö vanda
skiluðu margir á síöustu stundu.
Fjölmargir fengu þó frest og eiga
því enn eftir aö sinna þessari árlegu
en lítt vinsælu skyldu.
DV-mynd Hiimar Þór
Bræðslusamningur:
Samþykktur
með átta at-
kvæða mun
I gær voru á Eskifirði talin at-
kvæði í kosningu um nýjan kjara-
samning í fjórum loðnubræðslum á
Austurlandi. Atkvæði voru talin sam-
eiginlega og var samningurinn sam-
þykktur með 35 atkvæðum gegn 27.
Loðnubræðslumar sem samning-
urinn nær til eru á Höfn, Eskifirði,
í Neskaupstað og á Vopnafirði.
„Þessi úrslit eru svipuð því sem ég
átti von á,“ sagði Sigurður Ingvars-
son, formaður Alþýðusambands Aust-
urlands. Hann vildi ekki svara því
hvort hann væri ánægður með þessa
samninga. Hann sagðist gera tugi
kjarasamninga og þetta væri bara
einn slíkur. Það væri starfsmanna
verksmiðjanna að meta hvort samn-
ingamir væru góðir eða slæmir.
I þessum samningi er ákvæði þess
efnis að ef til alls heijarverkfalls
kemur í landinu eða ef verkalýðsfé-
lögin á þessum stöðum boða verkfall
nær það ekki til starfsmanna loðnu-
verksmiðjanna. -S.dór
Lögregla rakti
spor þjófanna
Lögregla handtók tvo unga inn-
brotsþjófa í Grafarvogi á sunnu-
dagsmorgun.
Lögregla fékk tilkynningu um inn-
brot í nokkra bíla og fann fljótlega
spor í snjónum. Þau voru rakin að
húsi þar sem piltamir fundust með
þýfi. Þeir hafa báðir komið við sögu
lögreglu áður vegna innbrota. -RR
L O K I
Opel Vectra
Caravan
ífyntasinn
Bflheimar ehf.
W
qm. Tijo-m ■■■I vjr
Sœvarhöfba 2a Stmi:S2S 9000