Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997
23
íþróttir
íþróttir
Knattspyrna:
Bröndby steinlá
Danska knattspyrnan hófst á
ný á sunnudag eftir vetrarfríið.
Topplið Bröndby fékk óvæntan
skeíl i Vejle en úrslit urðu þessi:
Vejle-Bröndby............3-0
AGF-OB ..................2-2
Herfólge-Silkeborg.......1-1
Hvidovre-Köbenhavn........ 0-2
Lyngby-AaB ..............0-2
Viborg-AB................0-1
Bröndby er efst með 37 stig,
AaB er með 35, AGF 31 og OB 29
stig. -VS
Stórsigur Kana
Bandaríkjamenn sigi'uðu
Kanada, 3-0, í fyrrinótt í úrslita-
keppni HM í Norður- og Mið-
Ameríku. Kosta Rika og Mexíkó
geröu 0-0 jafhtefli. Áður hafði
Mexíkó unnið Kanada, 4-0, og
Jamaíka og Bandaríkin gert 0-0
jafntefli. Sjötta þjóðin í úrslitun-
um er E1 Salvador og þrjár þær
efstu komast í lokakeppnina í
Frakklandi.
-VS
Bochum vann
Bochum vann góðan sigur á
Bremen, 3-2, í þýsku 1. deildinni
í knattspymu 1 fyrrakvöld og
komst meö því í 6. sætið. Þórður
Guðjónsson lék ekki með Boch-
um. -VS
Ekki launalaus
Leifur Helgason, fyrrum þjálf-
ari knattspyrnuliðs Reynis úr
Sandgerði, hafði samband við
blaðið vegna fréttar í gær um að
hann hefði verið launalaus hjá
félaginu í fjóra mánuði. „Þaö
rétta er að ég vann án samnings
í fjóra mánuði og hætti af þeim
sökum en ég hef fengið greitt fyr-
ir hluta þess timabils," sagði
Leifur.
Körfubolti:
Engir aukaleikir
Rangt var farið með tvö atriði
varðandi íslandsmótið í körfu-
bolta í blaöinu í gær.
Ekki er lengur leikið um sæti
í úrvalsdeild karla milli næst-
neðsta liðs úrvalsdeildar og
næstefsta liðs 1. deildar. Aðeins
sigurliðið í 1. deild kemst upp.
Sigurliöiö í 2. deild kvenna
leikur ekki endilega í 1. deild að
ári. Liðum er fijálst að tilkynna
þátttöku í hvorri deildinni sem
er. Skallagrimur var t.d. að
vinna 2. deildina annað árið í
röð.
Handbolti:
Veszprém með
vænlega stöðu
Fotex Veszprém frá Ungveija-
landi, sem sló KA út í 8 liða úr-
slitum Evrópukeppni bikarhafa í
handbolta, á nokkuð víst sæti í
úrslitum keppninnar eftir góðan
útisigur á USd’Ivry frá Frakk-
landi í undanúrslitunum.
Fyrri leikir undanúrslitanna
fóru fram um helgina og úrslit
urðu þessi:
Evrópukeppni meistaraliða:
Celje Pivovama-Barcelona ... 24-29
Kiel-Badel Zagreb.........23-23
Evrópukeppni bikarhafa:
US d’Ivry-Fotex Veszprém . .. 29-31
Magdeburg-Bidasoa ...........26-23
EHF-bikarinn:
Granollers-Flensburg......23-25
Academica Vigo-Virum ..........30-27
Borgakeppni Evrópu:
Nettelstedt-Sandefjord ......26-24
Kolding-Drammen ..........31-26
Eins og sjá má gæti farið svo
að tvö norsk lið lékju til úrslita í
borgakeppninni, Sandefjord og
Drammen, og eins gæti Kolding
frá Danmörku komist í úrslita-
leikinn á kostnað Drammen.
-VS
Sund:
Landsliðið valið
á Smáþjóðaleika
DV, Eyjum:
í lokahófi innanhússmeistara-
mótsins í sundi í Eyjum í fyrra-
kvöld var landsliðið valið sem kepp-
ir fyrir höns íslands á Smáþjóða-
leikunum í Reykjavík í júní. Lands-
liðið skipa eftirtaldir sundmenn:
Amar Freyr Ólafsson, Þór, Davið
Freyr Þórunnarson, SH, Hjalti Guð-
mundsson, SH, Logi Jes Kristjáns-
son, ÍBV, Magnús Konráðsson,
Keflavík, Ómar Snævar Friðriks-
son, SH, Richard Kristinsson, Ægi,
Ríkharður Ríkharðsson, Ægi, Sigur-
geir Hreggviðsson, Ægi, Örn Arnar-
son, SH, Anna Lára Ármannsdóttir,
ÍA, Anna Valborg Gunnaradóttir,
UMFN, Elín Sigurðardóttir, SH, Ey-
dís Kornráðsdóttir, Keflavik,
Halldóra Þorgeirsdóttir, Ægi, Kol-
brún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA, Lára
Hrund Bjargardóttir, Þór, Ragnheið-
ur Möller, UMFN, Sigurlín Garðars-
dóttir, Selfossi, Sunna Dís Ingibjarg-
ardóttir, Keflavík, Klara Sveinsdótt-
ir, SH.
I lokahófínu voru Anna Lára Ár-
mannsdóttir, ÍA, og Friðfinnur
Kristmannsson, Selfossi, valin efni-
legasta sundfólkið. Stigahæst á inn-
anhússmeistaramótinu voru Eydís
Konráðsdóttir, Keflavík, fýrir 100
metra baksund kvenna sem gaf sam-
tals 839 stig og Öm Amarson, SH,
fyrir 200 metra baksund sem gaf 891
stig.
-ÞoGu
Körfuknattleikur kvenna:
Grindavík sló
meistarana út
- og mætir KR í úrslitum
Nýir íslandsmeistarar í 1. deild
kvenna í körfúknattleik verða krýnd-
ir í vor því íslands- og bikarmeistar-
ar Keflvíkinga töpuðu öðru sinni fyr-
ir Grindvikingum í undanúrslitum 1.
deildar kvenna í Grindavík í gær.
Keflavik, sem orðið hefur íslands-
meistari fjórum sinnum á síðustu
fimm árum, mátti þola tap, 61-55, eft-
ir að hafa verið 30-20 undir í hálfleik.
Sýnir að við erum með
betra lið
„Þetta var alveg fiábært Að vinna
þær í tveimur leikjum sýnir að við
erum með betra lið. Þetta var fyrst og
fremst sigur hðsheildarinnar. Við
völdum erfiðu leiðina í úrshtin og þá
var bara að standa sig,“ sagði Anna
Dís Sveinbjömsdóttir, Grindvíking-
ur, við DV eftir leikinn.
Þetta er í fyrsta skiph í sögunni
sem Grindavík á hð í úrshtum í
kvennaflokki og komu þessi úrsht
mjög á óvart Fyrri hálfleikurinn var
lengi vel í jámum en undir lok hans
náði Grindavík 10 shga forskoh og
þann mun náði Keflavík aldrei að
brúa. Keflavíkurstúlkur vom þó
aldrei langt undan en tvær 3ja shga
körfur frá Rósu Ragnarsdóttur
skömmu fyrir leikslok slökktu endan-
lega vonir meistaranna um að sigra í
leiknum.
Alltof bráðar
„Það var góð barátta í hðinu en
stelpumar vora ailtof bráðar, þveröf-
ugt við það sem ég lagði upp fyrir
leikinn. Ég tek það ekki fiá Grinda-
víkurstúlkum að þær léku mjög vel,“
sagði Jón Guðmundsson, þjálfari
Keflvfldnga, efhr leikinn.
Grindavík lék grimma vöm og
sóknarleikur þeirra var vel útfærður.
Liðshefldin var jöfn en þær Penni
Peppas og Anna Dís stóðu upp úr í
skemmtilegu hði sem á fiamhðina
fyrir sér.
Keflavíkurstúlkur léku sem ein-
staklingar en ekki sem hð eins og
þær hafa gert í vetur. Þær ætiuðu sér
að skora mörg stig í hverri sókn og
þannig spilamennska kann aldrei
góðri lukku að stýra. Anna María
Sveinsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir
léku best í liðinu.
Stig Grindavíkur: Penni Peppas 23,
Anna D. Sveinbjömsdóttir 20, Rósa
Ragnarsdóttir 10, Sólveig Gunnlaugs-
dóttir 6, Stefanía Ásmundsdóttir 2.
Stig Keflavikur: Anna María 18,
Erla Þorsteinsdóttir 17, Bima Val-
garðsdóttir 8, Erla Reynisdóttir 8, Mar-
grét Sturlaugsdóttir 4.
KR gerði út um leikinn í
fyrri hálfleik
KR hafði betur gegn ÍS, 61-50,
og vann því báðar viðureignir lið-
anna. KR-ingar gerðu út um leik-
inn í fyrri hálfleik en staðan í
leikhléi var 31-19.
Stig ÍS: Alda Jónsdóttir 21, María
Leifsdóttir 15, Signý Hermannsdóttir
12, Hafdís Helgadóttir 2.
Stig KR: Guðbjörg Norðfjörð 18,
Helga Þorvaldsdóttir 16, Linda Stefáns-
dóttir 9, Kristín Jónsdóttir 8, Kristin
Magnúsdóttir 6, Sóveig Sigurþórsdóttir
2. -ÆMK/GH
Bergur úti í
kuldanum
Bergur Steingrímsson,
körfuknattleiksdómari, dæmir
ekki í úrslitakeppni úrvalsdeild-
arinnar og má rekja það til þess
þegar hann neitaði að fara til
Sauðárkróks og dæma fyrr í vet-
ur vegna slæms veðurútlits.
Stjóm KKÍ beindi þeim til-
mælum til dómaranefndar sam-
bandsins fyrir skömmu að Berg-
ur yrði ekki settur á fleiri leiki í
deildinni vegna umrædds atviks
og hann dæmdi af þeim sökum
ekki í lokaumferðunum. Hann
er síðan ekki í hópi þeirra átta
dómara sem dæma í úrslita-
keppninni en heldur þó áfram að
dæma í neðri deildunum. -VS
ÍR (11) 22
Selfoss (6)19
2-0, 3-2, 7-2, 9-3, 10-5, (11-6), 15-7,
15-11, 17-13, 10-17, 20-18, 22-19.
Mörk ÍR: Ragnar Óskarsson 7/2,
Ólafur Gylfason 4, Magnús M. Þórðar-
son 4, Jóhann Ásgeirsson 3, Hans Guð-
mundsson 3, Ingimundur Ingimundar-
son 1.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 16.
Mörk Selfoss: Björgvin Rúnarsson
8/3, Alexei Demidov 4, Hjörtur L. Pét-
ursson 2, Gylfi Ágústsson 2, Valdimar
Þórsson 2, Sigfús Sigurðsson 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson
1, Gísli Guðmundsson 8.
Brottvísanir: ÍR 8 mín., Selfoss 4
mínútur.
Dómarar: Einar Sveinsson og Þor-
lákur Kjartansson, slakir og Þorlákur
sýnu verri.
Áhorfendur: Um 500, fullt hús og
mikil stemning.
Maður leiksins: Hrafn Margeirs-
son, markvörður ÍR-inga.
Haukamaðurinn ungi og efnilegi, Þorvarður Tjörvi Olafsson, átti mjög góðan leik gegn Val í gær og hér er hann að skora eitt af mörkum sínum án þess að
Valsmaðurinn Ingi Rafn Jónsson nái að koma nokkrum vörnum við. DV-mynd Brynjar Gauti
Handknattleikur- 8 liöa úrslit
Góður endasprettur Hauka
- lögðu íslandsmeistara Vals aö velli í Strandgötu í gærkvöldi
Fyrsta leiks Hauka og Valsmanna í 8
liða úrslitunum, sem fram fór i
Strandgötunni í gærkvöldi, verður
ekki minnst fyrir góðan og fahegan
handknattleik. Hans verður þó
örugglega minnst fyrir fyrir mikinn
hraða ahan tímann og mistök á báða
bóga. Heimemenn gerðu fyrsta mark
leiksins en Valsmenn komust yfir í
stöðunni, 3-4. Haukamir komust þó
strax yfir aftur en gestirnir voru aldrei
langt undan og munaði þar
mikið um frábæra
markvörslu Guðmundar
Hrafhkelssonar í marki Vals
en hann varði 15 skot í
hálfleiknum. Staðan í hálfleik 11-9.
Valsmenn byrjuðu vel í seinni
háfleik
Liðsstjórar gestanna höfðu
greinilega nóg að segja í leikhléi því
Valsmenn tóku langt og greinilega gott
leikhlé. Þeir hófu seinni hálfleikinn af
miklum krafti, juku hraðann og
jöfnuðu leikinn í 11-11 og skoruðu úr
fyrstu 6 sóknum sínum. Heimamenn
voru þó síður á þeim buxunum að gefa
eitthvað eftir og eftir að hafa verið
tveimur mörkum undir sögðu þeir
hingað og ekki lengra í stöðunni 20-20.
Valsmenn héldu ekki út á þeim hraða
sem þeir hófu hálfleikinn með og
virtust hreinlega fara á taugum á
síðustu mínútunum. Haukamir tóku
öh völd á vellinum, gerðu 5 mörk í röð
og Bjarni hrökk í gang í markinu og
varði nánast aht sem á markið kom. í
Haukar-Valur
lokin var hraðinn á leikmönnum
orðinn svo mikih að þeir virtust varla
vita hvort þeir væru að koma eða fara
og leikurinn leystist upp í hálfgerða
vitleysu.
Þetta var aö sjálfsögöu strögl
„Þetta hafðist í lokin og við erum
ánægðir með þetta. Þetta var að
sjálfsögðu strögl eins og handboltinn er
og nú fórum við bara á Hlíðarenda til
að gera okkar besta og reyna að klára
þetta í tveimur leikjum," sagði
Sigurður Gunnarsson, þjálfari Hauka,
við DV eftir sigur sinna manna.
Haukar léku án tveggja af sínum
sterkustu mönnum, þeirra Arons
Kristjánssonar og Petr Baumruks, og
virtist það helst há þeim í
varnarleiknum. Atkvæðamestir
heimamanna voru Gústaf Bjarnason,
Þorvarður Tjörvi Ólafsson og Þorkeh
Magnússon og svo munaði
auðvitað mikið um það fyrir
Haukana að Bjarni Frostason
hrökk í gang í markinu í síðari
hálfleik.
Hjá Valsmönnum var Guðmundur
Hrafnkelsson langbestur og sýndi
frábæra markvörslu, sér í lagi i fyrri
hálfleik. Miðað við baráttuna og
hraðann sem var í þessum leik ætti
næsta viðureign liðanna á Hlíðarenda
á morgun að verða æsispennandi og
ómögulegt að segja fyrir um hvort liðið
mun komast áfi'am í undanúrslitin.
-ÖB
Fallslagurinn:
„Viö verðum að bæta okkur“
„Það var fyrir öhu að vinna sigur í
þessum mikilvæga leik. Ég var mjög
ánægður með vömina í 45 mínútur.
Um tíma misstum við einbeitinguna
og fyrir vikið gengu Selfyssingar á
lagið og minnkuðu muninn. Við
verðum að bæta okkur á vissum
sviðum fyrir næsta leik th aö klára
þetta dæmi,“ sagði Matthías
Matthíasson, þjálfari í R, eftir sigur á
Selfyssingum, 22-19, í fyrsta leik
liðanna um áframhaldandi veru í 1.
deildinni á næstu leiktíð.
ÍR-ingar réðu ferðiimi lengstum í
Seljaskóla í gærkvöldi. Vörnin var
mjög beitt og Hrafn mjög sterkur
fyrir aftan hana i markinu. Sókn
Selfyssinga var algjörlega bitlaus og
ekki bætti úr skák að Demidov var
tekinn úr umferð. íupphafi síðari
hálfleiks virtist stefna í
Selfoss
0
yfirburðasigur ÍR-inga sem náðu 8
marka forystu. Þá var eins og ÍR-
ingar misstu taktinn, gerðust
kæralausir og sóknir liðsins voru
stuttar og ómarkvissar. Selfsyssingar
minnkuðu muninn mest niður í 2
mörk en nær komust þeir ekki.
Hrafn stóð upp úr í ÍR-liðinu og eins
átti Ragnar Óskarsson góðan leik. Hjá
Selfyssingum var Björgvin
Rúnarsson langatkvæðamestur og
Gísli Guðmundsson, sem kom inn á í
markið, varði oft vel. Aörir voru
slakir.
-JKS
Haukar (11) 27
Valur (9)22
1-0,1-1,34, 6-4, 8-6,9-9, (11-9), 11-11,
13-15, 15-17, 20-20, 25-20, 25-21, 27-22.
Mörk Hauka: Gústaf Bjamason
7/2, Þorvarður Tjörvi Ólafsson 5,
Þorkell Magnússon 5, Rúnar
Sigtryggsson 4, Halldór Ingólfsson
3/1, Óskar Sigurðsson 2, Jón Freyr
Egilsson 1.
Varin skot: Bjami Frostason 11/3.
Mörk Vals: Valgarð Thoroddsen
6/2, Jón Kristjánsson 4, Ari
Allansson 4, Súli Gunnsteinsson 3,
Sveinn Sigfinnsson 2, Ingi Rafn
Jónsson 2, Daníel Ragnarsson 1.
Varin skot: Guðmundur
Hrafhkelsson 20/1.
Brottvísanir: Haukar 8 min.,
Valur 8 min.
Dómarar: Bjami Viggósson og
Valgeir Ómarsson, sæmilegir.
Áhorfendur: 700.
Maður leiksins: Guðmundur
Hrafhkelsson, Val.
Aganefndin stóö fast á
sínu.
Haukar léku án tveggja
lykilmanna gegn Val í gær en
þeir Aron Kristjánsson og Petr
Baumruk vora báðir í leikbanni.
Aganefnd HSÍ úskurðaði Aron í
3ja leikja bann og Baumruk í
einn fyrir helgina. Haukar voru
mjög ósáttir við niðurstöðu
agnafnefndar varðandi mál
Arons og kærðu úrskurðinn.
Aganefndin kom saman th
fundar í gærdag og breytti hún
ekki fyrri ákvörðun sinni.
Haukar hafa ekki sagt sitt
síðasta í þessu máli.
ÍBV (9)20
Fram (7)18
0-1, 4-1, 4-3, 6-3, 7-5, (9-7), 11-9,11-11,
13-11, 14-14, 17-14, 18-15, 19-18, 20-18.
Mörk ÍBV: Zoltan Belnaýi 7/3,
Gunnar Berg Viktorsson 5, Svavar
Vignisson 2, Ingólfur Jóhannesson 2,
Erlingur Richardsson 2, Amar Pét-
ursson 1, Guðfinnur Kristmannsson
1.
Varin skot: Sigmar Þröstur 18.
Mörk Fram: Daði Hafþórsson
10/5, Páll Beck 4, Oleg Titov 2, Njörð-
ur Ámason 1, Sigurpáll Á. Aðal-
steinsson 1.
Varin skot: Reynir Þ. Reynisson
11/1.
Brottvísanir: ÍBV 6 mín., Fram 8
mín.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og
Hlynur Leifsson, afspymuslakir. Það
setti svartan blett á frábæran leik
hversu dómgæslan var slök og ámæl-
isvert af hálfu dómaranefndar HSl að
senda svona óreynda dómara á mikil-
vægan leik.
Ahorfendur: 365.
Maður leiksins: Erlingur Ric-
hardsson, ÍBV.
KA (6)14
Stjarnan L2, 3-3, 3-5, 6-6, (7)17 (6-7), 6-11, 7-12,
10-12, 10-14, 11-15, 14-15, 14-17.
Mörk KA: Sergei Ziza 4/1, Sævar
Árnason 3, Leó Ö. Þorleifsson 2,
Duranona 2, Jakob Jónsson 1, Heiö-
mar Felixson 1, Björgvin Björgvins-
son 1/1.
Varin skot: Guðmundur A. Jóns-
son 12, Hermann Karlsson 4.
Mörk Stjömunnar: Hilmar Þór-
lindsson 7/2, Konráð Olavsson 5, Sæ-
þór Ólafss. 2, Viðar Erlingsson 1, Sig-
urður Viðarsson 1, Jón Þórðarson 1.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson
26/3.
Brottvísanir: KA 6 mín. (Árni
liðsstjóri rautt spjald), Stjaman 6
mín.
Dómarar: Hafsteinn Ingibergsson
og Gísli Jóhannsson, Gísli ágætur en
Hafsteinn slakur.
Áhorfendur: 812.
Maður leiksins: Ingvar Ragnars-
son, Stjömunni.
Hilmar Þórlindsson stórskytta
Stjörnunnar meiddist um miðjan
seinni hálfleik. Hann missteig sig
illa og gat ekki stigið í fótinn í
gærkvöldi. Hann gæti þvi misst af
leik liðanna annað kvöld
Isiandá
titilaövena
Guðni Kjartansson hetúr vahð 18
leikmenn til að spila fyrir íslands
hönd á alþjóðlegu móti unglinga-
landsliða í knattspymu sem fram
fer á ítahu um páskana.
ísland á titil að veija eftir fræki-
legan sigur á þessu móti í fýrra en
þar keppa jaftian 16 sterkar knatt-
spymuþjóðir.
ísland er í riðh með Belgíu,
Bandaríkjunum og Rúmeníu og eitt
hð kemst áfram í undanúrsht móts-
ins.
1 hópnum hjá Guðna era 10 leik-
menn sem haia spilað i 1. deild og
fjórir til viðbótar eiga að baki leiki í
2. deild.
Hópurinn er þannig skipaður.
Markverðir:
Stefan Logi Magnússon, Fram
Guðjón Skúli Jónsson, ÍA
Aðrir leikmenn:
Arnar Hrafii Jóhannsson, Val
Amar Jón Sigurgeirsson, KR
Ámi Ingi Pjetursson, Fram
Bjami Guðjónsson, lA
Bjöm Jakobsson, ÍBV
Edilon Hreinsson, KR
Egill Skúli Þórólfsson KR
Freyr Karlsson, Fram
Gylfi Einarsson, Fylki
Haukur Ingi Guðnason, Keflavík
Haukur S. Hauksson, Fram
Kristján Jóhannsson, Keflavik
Óðirrn Ámason, Þór A.
Reynir Leésson, ÍA
Stefan Gíslason, Arsenal
Sæmundur Friðjónsson, Stjömunni
-VS
Varnarleikurinn
heppnaðist
- sagði Erlingur Richardsson eftir sigur ÍBV
DV, Eyjum:
„Þetta var meiri háttar sigur. Við
breyttum varnarleiknum og það
heppnaðist fullkomlega. Við spiluð-
um mjög skynsamlega og fengum
frábæran stuðning hér á heimvehi.
En þetta er aðeins fyrri hálfleikur.
Ég ber mikla virðingu fyrir Fram og
þeir eiga erfiðasta heimavöh lands-
ins. Það verður ekkert grín fyrir
okkur að fara þangað,” sagði Erling-
ur
Ric-
skoraði 5 fyrstu mörk Fram og hélt
liðinu á floti í sókninni. Gunnar
Berg komst hvorki lönd né strönd í
sókninni hjá ÍBV fyrr en undir lok-
in þegar hann tók af skarið og skor-
aði hvert markið á fætur öðru með
glæsilegum uppstökum. Það var svo
Ingólfur sem innsiglaði sigur ÍBV
með faUegu marki úr bláhominu.
Erlingur og Sigmar Þröstur voru
bestir hjá ÍBV og þeir Gunnar Berg
og Svavar voru sterkir. Hjá Fram
var
Daði í
IBV-Fram
hards-
son,
línu-
maður ÍBV, eftir sigur ÍBV á Fram,
20-18, í fyrsta leik liðanna í 8 liða
úrslitunum.
Varnarleikur beggja liða var eins
og hann gerist bestur. Erlingur fór
fyrir Eyjamönnum í vöminni og
hélt Eyjamanninum í Framliðinu og
stórskyttunni Magnúsi Arngríms-
syni algjörlega niðri. Magnús komst
ekki einu sinni á blað. Einnig gætti
Erlingur Olegs Titovs vel á línunni
auk þess að eiga frábæra spretti í
sókninni. Hjá Fram var Titov frá-
bær í vöminni. Daði Hafþórsson
sérflokki, Reynir varði vel á köflum
og PáU Beck var drjúgur.
„Þetta var hörkuleikur. Við átt-
um í töluverðum vandræðum í
sókninni. Vömin var góð en samt
sváfum við á verðinum á köflum.
Þeir höfðu heimavöUinn og Sigmar
Þröst í banastuði og þá er efitt að
eiga við þá. Það er gaman að hand-
boltinn í Eyjum skuli verða á upp-
leið. Hér er erfitt að spfla og áhorf-
endur mjög sérstakir. Ætli það sé
ekki út af einangruninni,” sagði
Reynir, markvörður Fram. -ÞoGu
Stórkostlegur leikur
Ingvars í KA-heimilinu
- varði 26 skot þegar Stjarnan lagði KA
DV, Akureyri:
Ingvari Ragnarssyni, markverði
Stjörnunnar, var fagnað með mikl-
um látum er hann kom í búnings-
klefa Stjömumanna eftir 14-17 sigur
Stjörnunnar á KA í fyrra eða fyrsta
leik liðanna í 8 liða úrslitum Niss-
an-detidarinnar í gærkvöldi. Ingvar
stal svo sannarlega senunni, varði
26 skot, þar af 3 vítaskot, og var tví-
mælalaust maður leiksins.
Sigur Stjörnunnar var verðskuld-
aður þegar upp er staðið og KA-
menn þurfa heldur betur að skoða
sóknarleik sinn fyrir viðureign lið-
anna annað kvöld. Liðið skoraði
ekki tímunum saman og glutraði
boltanum hvað eftir annað. Vörn
Stjörnunnar var hins vegar
geysiöflug og Ingvar eins og veggur
á marklínunni.
KA komst aldrei yfir í leiknum,
en jafnt var 3-3 og 6-6 í fyrri hálf-
leik og staðan 6-7 í leikhléi segir
meira en mörg orð hvað gekk á. Það
tók KA-menn 8 mínútur að skora í
síðari hálfleik og staðan var þá orð-
in 6-11. Tvö mörk Sævars Árnason-
ar þegar 34 mínútur voru eftir
brpyttu stöðunni í 14-15 og hleyptu
spennu í leikinn að nýju en Stjarn-
an skoraði tvö síðustu mörkin og
leikmenn liðsins fógnuðu geysilega.
„Þetta var frábært, að vinna á erf-
iðasta útivelli landsins. Leiðin í
undanúrslitin er þó aðeins hálfnuð
og nú stólum við í og með á okkar
áhorféndur í Garðahænum,” sagði
Valdimar Grímsson, þjálfari Stjörn-
unnar, kampakátur eftir leikinn.
„Sóknarleikur okkar var skelfi-
legur en vörn og markvarsla ágæt.
Við höfum engu að tapa i síðari
leiknum, en ef við leikum ekki betri
sóknarleik höfum við bara ekkert
að gera með að að komast áfram í
þessari keppni," sagði Alfreð Gísla-
son, þjálfari KA.
Ingvar var langbesti maður vall-
arins. Hilmar Þórlindsson var góð-
ur framan af, Konráð átti góða kafla
en liðsheild Stjömunnar var sterk
og vann sigurinn saman. Áhangend-
ur KA voru hins vegar niðurbrotnir
vegna sóknarleiks sinna manna sem
var undurslakur en þar lék hver
fyrir sig. Sævar Ámason stóð sig
vel þann tíma sem hann var með í
síðari hálfleik. í vöminni léku flest-
ir vel og markvarslan betri en í
mörgum leikjum að undanförnu.
-gk
Konráð Olavsson er hér aö brjóta sér leiö fram hjá Jóhanni G. Jóhannssyni
og skora eitt af timm mörkum Stjörnunnar gegn KA í gærkvöldi.
NBA i nótt og fleiri íþróttafréttir á bls. 24