Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997 Útlönd i>v John Major boðar til kosninga í Bretlandi 1. maí: Tony Blair fær stuðn- ing helsta æsiblaðsins John Major, forsætisráðherra Bretlands, hvatti kjósendur til að „hoppa ekki út í sortann" í kosning- unum sem hann hefur boðað til þann 1. maí með því að kjósa Verka- mannaflokkinn undir forustu Tonys Blairs. Kosningabaráttan byrjaði hins vegar ekki vel hjá Major því út- breiddasta æsiblað Bretlands, Sun, lýsti yfír stuðningi sinum við Tony Blair. Blaðið sagði hins vegar um íhaldsflokk Majors að hann væri „þreyttur, klofinn og stjórnlaus". „Þjóðin þarfnast leiðtoga sem hef- ur framtiðarsýn og hugrekki og get- ur veitt henni innblástur og kynt Israelsmenn hefja fram- kvæmdir í dag Blaðafulltrúi Benjamins Net- anyahus, forsætisráðherra ísra- els, tilkynnti í morgun að jarð- ýtuvinna vegna smíði íbúða fyr- ir gyðinga í arabíska hluta Jer- úsalem hæfist í dag. Yasser Arafat, forseti Palest- ínu, hafnaði í gær beiðni Net- anyahus um viðræður. „Ef Palestínumenn vilja deilur þá erum við búnir undir það,“ sagði ísraelskur embættismað- ur í morgun um neitun Arafats. Palestínumenn sögðu Arafat hafa hafnað viðræðunum til að forðast að menn drægju þá ályktun að Frelsissamtök Palestínu hefðu á einhvern hátt samþykkt byggingaframkvæmd- irnar. ísraelsmenn tilkynntu í gær að þeir hefðu eflt varnir sínar á Vesturbakkanum og á Gasa- svæðinu til að koma í veg fyrir ofbeldi Palestínumanna vegna framkvæmdanna. Mál landflótta hugmynda- fræðings leyst Kínversk yflrvöld tilkynntu í morgun að mál Hwangs Jang- yops, hugmyndafræðingsins frá N-Kóreu sem leitaði hælis í sendiráði S-Kóreu í Peking, væri leyst. Greint var frá því að kínversk yfírvöld myndu gefa út nánari yfirlýsingu síðar. Hátt- settur embættismaður í her Fil- ippseyja sagði að Hwang hefði verið meðal fíögurra farþega sem komu til Clark-herstöðvar- innar frá Xiamen í Kína.Reuter undir ímyndunarafli hennar. Sun telur að sá maður sé Tony Blair,“ sagði í blaðinu í morgun. Ritstjórar Sun, sem selst í fíórum milljónum eintaka á degi hverjum, gortuðu af því á sínum tíma að stuðningur þeirra við John Major í kosningunum 1992 hefði ráöið úr- slitum en íhaldsflokkurinn naut minni stuðnings í könnunum en Verkamannaflokkurinn skömmu fyrir kosningamar. Ihaldsmenn voru borubrattir í gær, þrátt fyrir umskiptin hjá Sun, og sögðust vissir um að flokkurinn mundi fara með sigur af hólmi í vor, í fimmta sinn í röð. Slíkt hefur Sali Berisha, forseti Albaníu, tjáði í gær sendifulltrúum frá Evrópusam- bandinu að land sitt þyrfti matvæli, lyf og lögregluaðstoð til að koma aft- ur á lögum og reglu. Sendinefndin hitti einnig Bashkim Fino forsætis- ráðherra við komuna til Albaníu. Nefndin á að meta hvernig hægt verður að aðstoða ráðamenn lands- ins við að binda enda á óeirðirnar. aldrei gerst áður. Skoðana- kannanir að undanfómu benda hins veg- ar til annars og í könnun sem birtist í blað- inu Daily Tel- egraph í morg- un hefur Verkamanna- flokkurinn 28 prósentustiga forskot. Enginn flokk- ur hefur haft jafn mikið forskot við upphaf kosningabaráttunnar. Utanrikisráðherrar Evrópusam- bandsins hafa hafnað beiðni Berisha um hernaðaríhlutun. ítalska strandgæslan bjargaði í gær yfír 800 Albönum úr skipi sem haföi strandað. Alls komu rnn 1500 flóttamenn frá Albaníu til ítölsku hafnarborganna Brindisi og Otranto í gær og fleiri em á leiðinni. Banda- ríski sjóherinn bjargaði 85 Albönum Bill Clinton Bandaríkjaforseti mætti til vinnu i hjólastól í gær en hann gekkst undir aðgerð á hné á föstudag vegna slitinnar sinar. Tals- maður Hvíta hússins sagði forset- ann ekki mikiö þjáðan. Hins vegar hefði hann verið með strengi í efri hluta líkamans eftir æfingar á sunnudaginn. Ekki er ljóst hvort forsetinn þarf að styðjast við hækjur þegar hann hittir Borís Jeltsín Rússlandsforseta í Helsinki í Finnlandi síðar í vik- unni. Jeltsín stríddi í gær Clinton vegna meiðslanna og sagði að hlut- imir hefðu snúist við, nú væri það Bandaríkjaforseti sem væri veikur en ekki hann sjálfur. Jeltsín gat Major er þekktur baráttujaxl og hann hafði ekki fyrr tilkynnt kosn- ingadaginn en hann fór að reyna að vinna kjósendur á sitt band. Forveri hans í embætti, Margaret Thatcher, lýsti einnig yfir heils hugar stuðningi við Major en oft hefur andað köldu á milli þeirra. „Verið með okkur og John Major þar til við komum í mark,“ sagði Thatcher við fréttamenn fyrir utan skrifstofu sína í Lundúnum. Ýmislegt bendir til að kosningabar- áttan muni einkum snúast um per- sónuleika leiðtoga stóru flokkanna tveggja og að stefna þeirra verði látin liggja milli hluta. Reuter af tveimur strönduðum skipum á Adríahafi á sunnudaginn. Alls hafa 6000 Albanar flúið til Ítalíu í þessum mánuði. Verslanir í Tirana, höfuðborg Al- baníu, voru opnaðar á ný í gær en þær hafa verið lokaðar í næstum viku vegna óeirða. Opinberir starfs- menn hlýddu kalli yfirvalda og snem til vinnu í gær. Reuter þess jafnframt að ekki stæði til að gefa eftir á leiðtogafundinum. Þó svo að Clinton taki það fremur rólega núna hitti hann Jevgení Primakov, utanríkisráðherra Rúss- lands, síðdegis í gær og ræddu þeir nokkur atriði til rmdirbúnings fund- inum í Helsinki. William Cohen, vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna, hitti Prima- kov um helgina og ræddu þeir stækkun Atlantshafsbandalagsins. Að sögn Cohens vora viðræðurnar jákvæðar þrátt fyrir að Jeltsín hafi lýst yfir andstöðu sinni við áætlan- imar um stækkun Atlantshafs- bandalagsins í austur. Reuter Úrgangur kominn Breskt flutningaskip með kjarnorkuúrgang frá Frakklandi lagðist að bryggju í norðurhluta Japans í morgun. Kjarnorkuand- stæðingar voru á hafnarbakkan- um og létu óánægju sína í ljós. Ekkert gengur enn Gíslatakan í sendiherrabústað Japans í Perú hefur nú staðið i þrjá mánuði og er enn langt í að lausn finnist. Gíslarnir eru 72. Hillary í Afríku Hillary Rod- ham Clinton, forsetafrú í Bandaríkjun- um, fór frá Senegal til Suð- ur-Afríku í gær en hún og Chel- sea, dóttir hennar, eru á sex landa ferðalagi um Afriku. Mæögurnar heimsóttu m.a. gamla þrælaeyju í gær. Sprengt í París Lögreglan í Paris hefur engar vísbendingar til að fara eftir i leit sinni aö þeim sem komu fyr- ir sprengju við mosku frjáls- lynds múslímaklerks í gær. Tilnefning afturkölluð Clinton Bandaríkjaforseti féllst á að afturkalla tilnefningu Anthonys Lakes í embætti for- sfíóra leyniþjónustunnar CIA. Díana hjá Mandela Díana prinsessa hitti Nelson Mand- ela, forseta Suð- ur-Afriku, í gær og að sögn hennar ræddu þau einkum um alnæmi. Díana lýsti þvi yfir eftir fundinn að það hefði verið mjög gaman að hitta Mandela. Limur á flugi Afbrýðisöm eiginkona í Taílandi sneið af lim eiginmanns- ins og batt við helíumfyllta blöðru sem hún sleppti síðan.' Chirac í Argentínu Jacques Chirac Frakklandsfor- seti er í Argentinu til að reyna að auka viðskipti milli landanna. í ilmvatnsfarmi Ellefu ólöglegir innflytjendur frá N-Afríku létu lífið og sjö slös- uðust þegar vörubíl hvolfdi á Spáni. Innflyfiendurnir fóldu sig innan um ilmvatnsfarm. Einræktun bjargar pöndu Kínverskir erfðafræöingar telja aö einræktun geti orðið til að bjarga pandabirninum sem er í útrýmingarhættu. Varar við silkitjaldi Poul Nyrup Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, hvatti í gær Evrópusam- bandið til að bjóða öllum þeim löndum sem óska aðild- ar að hefía við- ræður samtím- is og forðast „silkitjald" sem myndi valda því að sum ríki yrðu út undan. Fylgi Mobutus minnkar Fylgi Mobutus Saírforseta minnkar hratt. Sfíómin vísar þó á bug orðrómi um hættu á valdaráni. Mikil spenna ríkir í höfuðborg Saír og þora íbúar vart út á kvöldin. Mafíósar handteknir ítalska lögreglan handtók nokkra rússneska mafiósa á hót- eli á skíðastaðnum Madonna di Campiglio og fleiri stöðum. Auglýsing frá samgönguráðuneytinu vegna þess að ferðaskrifstofan GCI á íslandi ehf. hefur iagt inn leyll sitt til ferðaskrifstofureksturs. Ferðaskrifstofan GCI á íslandi ehf., kt. 670996-2129, hefur lagt inn leyfi sitt til ferðaskrifstofureksturs. Vegna þeirrar starfsemi var lögð fram trygging að upphæð 1 milljón króna, en samkvæmt lögum um skipulag ferðamála nr. 117/1994 er trygging ætluð til endurgreiðslu fjár sem greitt hefur verið ef til rekstrarstöðvunar kemur. Þeir sem telja sig eiga kröfur á hendur fyrirtækinu eiga þess kost að lýsa kröfum sínum vegna þessara viðskipta fyrir 17. apríl nk. Kröfulýsing skal send Samgönguráðuneytinu, Hafnarhúsi við Tryggvagötu, 150 Reykjavík. Með kröfulýsingu skal fylgja frumrit greiðslukvittunar og farmiði auk upplýsinga um kröfuhafa. Samgönguráðuneytið 17. mars 1997. Uppreisnarmaður reynir aö stöðva albanska móður sem reynir að flýja land meö barn sitt. Hundruö Albana reyndu í gær aö komast um borð í litla báta til aö komast úr landi en án árangurs. Albanska mafían er sögð krefjast nálægt 18 þúsundum íslenskra króna fyrir farið til Ítalíu. símamynd Reuter Berisha biður um matvæli, lyf og lögregluaðstoð Tony Blair í góðum málum. Jeltsín stríðir Clinton og hyggst ekki gefa neitt eftir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.