Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 36
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997 DV-mynd S Maður féll fjóra metra Maður slapp mun betur en á horfðist þegar hann féll fjóra metra ofan af þaki á bensínstöð í Norður- felli í Breiðholti í gær. Maðurinn var að vinna við þak stöðvarinnar þegar slysið varð. Maðurinn slapp mjög vel því meiðsl htms reyndust ekki alvarleg. Hann verður þó áfram í rannsókn á , j* Sjúkrahúsi Reykjavíkur. -RR Herranótt: Dauð hæna veldur fjaðrafoki „Dýraverndunarfélaginu barst víst kvörtun frá einhverjum áhorf- andanum og fulltrúi þess kom á sýningu hjá okkur til þess að sjá hvernig þetta færi fram. Konan sem *-ikom sagði að ekkert í meðferðinni á hænunni varði við lög,“ segir einn leikenda í Andorra, leikriti sem Herranótt, Leikfélag Menntaskólans í Reykjavík, sýnir þessa dagana. Leikarinn sagði að hænan kæmi dauð til skjalanna, beint úr slátur- húsi og síðan væri hún eitthvað reytt á sviðinu. „Það er ekkert ógeðslegt i þessu annað en lyktin af hænunni því við notum hverja hænu í fleiri en einni sýningu." Leikarinn sagði þetta fjaðrafok því algerlega ástæðulaust. -sv Tryggðarkort: Tilræði við sam- keppni „Það alvarlegasta við þetta er að það er tilræði við samkeppni og brýt- ur í bága við 17. grein samkeppn- islaga," segir Jóhannes Gunnarsson, framkvæmdastjóri Neytendasamtak- anna, um hið nýja tryggðarkort sem Hagkaup, Flugleiðir, Skeljungur, is- landsbanki og Húsasmiðjan standa sameiginlega að. Jóhannes segir að þessi fyrirtæki séu öll sterk, en þar af þrjú til fjögur á fákeppnismarkaði. í jafn litlu við- skiptasamfélagi og hér er sé augljós- lega verið að draga úr möguleikum samkeppnisaðila og fækka þeim og einnig að draga úr möguleikum nýrra aðila á markaðnum. „Við gerum kröfu um að samkeppnisyfirvöld grípi inn í málið,“ segir Jóhannes. -SÁ L O K I Staöan breytt í Karphúsinu í morgun: Kjarasamningarnir voru sagðir vera komnir á lokastig - samið um svipaða samninga og Iðja gerði „Það er verið að semja. Ég á von á því að skrifað verði undir nýja kjarasamninga siðar í dag, samninga á sömu nótum og Iðja gerði fyrir rúmri viku. Menn eru ekki ánægðir en það verður ekki lengra komist nema þá með stór- felldum átökum á vinnumarkaði. Menn virðast ekki tilbúnir til þess,“ sagði einn samningamanna sem DV ræddi við í Karphúsinu í morgun. Þá höfðu samningamenn verið að linnulítið í tvo sólarhringa. Þess vegna eru þeir orðnir mjög þreyttir og var ríkjandi óánægja hjá samningamönnum í morgun með þá ákvörðun ríkissáttasemj- ara að leyfa þeim ekki að fara úr húsi til að hvíla sig. Það var tvennt í samningum Iðju sem samningamenn verka- lýðsfélaganna voru í morgun að reyna að fá breytt. Annars vegar hinn svokallaði fleytitími. í Iðju- samningnum var samið um að skila megi 8 stunda dagvinnu á tímabilinu 7.00 til klukkan 19.00. Þetta vilja landssamböndin og Dagsbrún/Framsókn ekki sam- þykkja. Gert var ráð fyrir að ein- hverjar breytingar yrðu þama á. í annan stað er verið að reyna að fá tryggingar, rauð strik, inn i samningana. Það þýðir að verði samið um meiri kjarabætur í öðr- um samningum, fari verðbólga úr böndum eða aðrar stórvægilegar breytingar verði á markaðnum séu samningar uppsegjanlegir. Gildistíminn í Iðjusamningun- um er fram í október 1999 og launahækkunin er 12,7 prósent. Gert var ráð fyrir því í morgun að samið yrði við landssambönd ASl og Dagsbrún/Framsókn um þessi atriði lítt eða ekki breytt. Þá virtust samningar Rafiðnað- arsambandsins og ríkisins vegna starfsmanna RARIK einnig vera á lokastigi. -S.dór blíöunni Félagarnir Þorsteinn Þorsteinsson og Daníel Þór Hafsteinsson, 12 ára, voru aö veiöa við Hafnarfjarðarhöfn þegar Ijosmyndari DV fór þar hjá. Þeir félagarnir sögðust hafa fengið 30 fiska einn daginn, aðaliega kola, marhnút og ufsa, en þeir beita m.a. rækju. Þeir sögöu að það væri mun skemmtilegra að veiða en lesa undir próf. DV-mynd ÞÖK Kamtsjatka: Ástarsam- bandiö ekki ástæðan - segir verkefnisstjóri ÍS „Þetta var mjög óvænt að þeir skyldu ganga þetta langt og segja upp samningnum. Það er ómögulegt að segja hvað gerist í framhaldinu en við erum að minnsta kosti enn inni á skrifstofum fyrirtækisins hér í borginni. Það eru erfíðar aðstæður hér á margan hátt og langt frá þvi sem við eigum að venjast heima á íslandi,“ sagði Ólafur Magnússon, verkefnisstóri ÍS í Petropavlovsk í Kamtsjatka í morgun. Rússneska útgerðarfyrirtækið UTRF hefur sagt upp samstarfs- samningi sínum við ÍS. 24 íslending- ar eru í Kamtsjatka á vegum ÍS. Ólafur hefur undanfarið átt í ást- arsambandi við rússneska konu sem er hátt sett innan UTRF. Ólafur segir að það komi þessu máli ekkert við og sé ekki ástæðan fyrir samn- ingsslitum. „Okkar samband er þessu alger- lega óviðkomandi," segir Ólafur. Sjá nánar á bls. 2 -RR „Límbandsmálið“: Rannsakað sem barna- verndarmál „Það var lesið upp á fundinum bréf frá Verkakvennafélaginu Fram- tíðinni þar sem þess er óskað að leikskólanefnd og skólaskrifstofa Hafnarfjarðar taki við faglegri yfír- stjórn leikskólans," segir Sigurlaug Einarsdóttir, leikskólafulltrúi skóla- skrifstofu Hafnarfjarðar, en í gær var haldinn fjölmennur foreldra- fundur vegna atviksins á leikskól- anum á Hörðuvöllum þegar límt var fyrir munn tveggja ára drengs. Eins og kunnugt er var þremur leiðbeinendum við leikskólann sagt upp störfum í kjölfarið. í dag mun þjónustudeild skólaskrifstofu og Fé- lagsmálastofnun Hafnarfjarðar hefja formlega rannsókn á atvikinu á leikskólanum og einnig hvort um fleiri sambærileg atvik hafi verið að ræða og hvort börnin hafi hlotið skaða af. Með atbeina félagsmála- stofnunar er málið orðið að bama- vemdarmáli. -RR Flóð í Þjórsá Vegurinn fyrir neðan Egilsstaða- kot fór í sundur á þremur stuttum köflum eftir að flæddi yfir bakka Þjórsár í Villingaholtshreppi í gær. Flætt hefur inn á lönd kartöflu- bænda og í gegnum varnargarða sem reistir voru til að verjast flóð- um. -RR MERKILEGA MERKIVELIN brother PT-2po_ íslenskir stafir 5 leturstæröir 8 leturgerðir 6, 9 og 12 mm prentboröar Prentar í tvær linur Verð kr. 6.995 Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 \ SNDIQlll_AOXÖ« 533-1000 l Kvöld- og helgarþjónusta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.