Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997
Afmæli
Guðmunda Hjálmarsdóttir
Guðmunda Hjálmarsdóttir, list-
málari og húsmóðir, Laufrima 4 í
Reykjavík, er fimmtug í dag.
Starfsferill
Guðmunda fæddist í Reykjavík
og ólst upp hjá foreldrum sínum að
Skúlagötu 74 og síðar í Skálagerði
17. Hún stundaði nám í Austurbæj-
arskólanum og Gagnfræðaskólanum
við Lindargötu. Hún stundaði nám í
hárgreiðslu við Iðnskólann í
Reykjavik á árunum 1967- 1969.
^ Hún sótti einkatíma í myndlist hjá
Sveinbimi Þór Einarssyni mynd-
listarmanni frá 1986-1993 og hélt
fyrstu myndlistarsýningu sina í
Listhúsinu í Laugardal í
mars 1995. Hún hefur
fengist við myndlist og
listsköpun með húsmóö-
urstarfinu síðustu árin.
Fjölskylda
Guðmimda giftist 9.
júlí 1976 Birgi Jónssyni,
bókbindara hjá Kassa-
gerð Reykjavikur, f. 1.8.
1938. Birgir er sonur
Jóns Á.B. Þorsteinssonar
frá Djúpalæk í N-Múla-
sýslu og eiginkonu hans,
Jóhönnu Eysteinsdóttur
frá Tjamarkoti í A- Landeyjum, sem
Guömunda
Hjálmarsdóttir.
1963,
bæði era látin.
Dóttir Guðmundu og Birg-
is er Ása Birgisdóttir,
starfsstúlka í ritfanga-
deild Kassagerðar Reykja-
víkur. Fyrir hjónaband
átti Guðmunda soninn
Hjálmar Rögnvaldsson, f.
18.2. 1969, d. 6.5. 1990
Böm Birgis frá fyrra
hjónabandi era Gréta, f.
23.4. 1961, d. 10.1. 1988, Ár-
mann f. 15.4. 1962 og
Svava f. 1.5. 1966.
Systkini Guðmundu era
Garðar, f. 15.8. 1937, d. 8.7.
Sigurður, f. 5.11.1943, Margrét
f. 29.11. 1944. Hálfbróðir Guðmimdu
sammæðra er Sigurður Markússon,
f. 16.9. 1929.
Foreldrar Guðmundu era Hjálm-
ar Sigurðsson bílaviðgerðarmaöur,
fæddur að Görðum við Ægisíðu í
Reykjavík, og kona hans, Ása Guð-
brandsdóttir húsmóðir, f. 28.10.1903,
d. 30.10. 1972, frá Spágilsstöðum í
Laxárdal I Dalasýslu.
Þau Guðmunda og Birgir era
stödd á Kanaríeyjum.
Fréttir
Akureyri:
Ráðstefna um áfengis- og
vímuefnanotkun unglinga
DV, Akureyri:
Ráðstefna um áfengis- og vímu-
efnanotkun unglinga verður háð á
Hótel KEA á Akureyri nk. fimmtu-
dag og fostudag. Ráðstefiian er hald-
in að frumkvæði Akureyrarbæjar í
samstarfi við SÁÁ, heilbrigðisráðu-
neytið og fleiri aðila en segja má að
kveikjan að ráðstefnunni sé sú um-
ræða sem varð í kjölfar útihátíð-
anna sem haldnar vora um síðustu
verslunarmannahelgi og þá einkinn
„Halló Akureyri".
Ráöstefnan stendur yfir í um 11
klukkustundir samtals og þar verða
fjölmargir framsögumenn sem
koma víða að en eiga það um leið
sameiginlegt að fást við áfengis- og
vímuefnanotkun unglinga, hver á
sínum vettvangi. Á ráöstefnunni
verður fjallað um þau hlutverk sem
þessir ólíku aðilar gegna, m.a. þeir
sem vinna að beinu forvama- og
meðferðarstarfi, íþróttahreyfingin,
foreldrasamtök, sveitarfélög, lög-
regla, félagsmálayfirvöld og ekki
síst unga fólkið sjálft.
Þá verður einnig fjallað um hlut-
verk og stefnu sveitaífélaga í áfeng-
is- og vímuefhavömum, útihátíðir
og aðrar hópsamkomur unglinga,
umgjörð, undirbúning og fram-
kvæmd slíkra viöburða meö sér-
stakri hliðsjón af „Halló Akureyri"
sem haldin var sl. sumar. Einnig
verður fiallað um hlutverk foreldra
og foreldrasamtaka í forvarnarstarfi
og hlutverk ungs fólks í forvömum.
Sérstakir gestir ráðstefnunnar
era Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri sem báðar
flytja ávarp. Af öðram frummælend-
um má nefna Jakob Bjömsson, bæj-
arsfióra á Akureyri, Þórarin Tyrf-
ingsson frá SÁÁ, Bjöm Jósef Ám-
viðarson, sýslumann á Akureyri,
Ellert B. Schram, forseta ÍSÍ, Val-
gerði Magnúsdóttur, félagsmála-
sfióra Akureyrarbæjar, Ólaf Odds-
son héraðslækni, Elsu Wium, fram-
kvæmdasfióra Vímulausrar æsku,
Jóhannes Bergsveinsson, yfirlækni
á geðdeild Landspítalans, Unni Hall-
dórsdóttur, framkvæmdasfióra
landsamtakanna Heimili og skóli,
og Steinþór Einarsson, formann
Samtaka félagsmiðstöðva, svo að
einhverjir séu nefndir.
-gk
staögreiöslu- '
og greiöslukorta-
afsláttur og
stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
550 5000
VÍRUBÍUR
M VMNIWÍUR
Miðvikudaginn 9. apríl mun aukablað
um vörubíla og vinnuvélar fylgja DV.
BlaSiS verSur fjölbreytt og efnismikið en í því
verður fjallað um flest það er viÖkemur vörubílum
og vinnuvélum. Meöal efnis verða kynningar á
nýjungum í greininni. Þeir auglýsendur sem hafa
áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði vinsam-
lega hafi samband við Gústaf Kristinsson í síma
550 5731. Umsjón efnis er í höndum Jóhannesar
Reykdal og SigurSar Hreiöars í síma 550 5000.
Vinsamlegast athugiS aS síSasti skiladagur aug-
lýsinga er fimmtudagurinn 4. apríl.
••903 • 5670«»
Aöeins 25 kr. mínútan. Sama verö fyrir alla landsmenn.
Til hamingju með afmælið 18. mars
85 ára
Arnbjörg Magnúsdóttir, Eyjahrauni 3, Vestmannaeyjum.
80 ára
Guðjón Guðmundsson, Hamraborg 26, Kópavogi.
75 ára
Alfreð Eymundsson, Miðvangi 22, Egilsstöðum. Elna Bárðarson, Fellaskjóli, Borgarbyggð. Óskar Hallgrímsson, Dalatanga 13, Mosfellsbæ.
70 ára
Jóhannes Kristinsson, Hraunbæ 102d Árni Guðmundur Andrésson, Sólheimum 8, Reykjavík.
60 ára
Ingibjörg Þorkelsdóttir, Grandartúni 6, Akranesi. Helga Guðmundsdóttir, Hólavegi 30, Siglufirði. Ingvar Herbertsson, Fellsmúla 5, Reykjavík.
50 ára
Ólafur Lárusson, Mávahlíð 42, Reykjavík. Anna Aradóttir, Rauðarárstíg 33, Reykjavík. Kristján Ingvarsson, Móaflöt 51, Garðabæ. Valgerður Þorsteinsdóttir, Hólmgarði 2a, Reykjanesbæ. Ketilríður Benediktsdóttir, Hraunbergi 17, Reykjavík. Jakobfna B. Sveinsdóttir, Hamraborg 26, Kópavogi. Aðalsteinn Hermannsson, Aðalbraut 45, Raufarhöfn. Bjami Axelsson, Engjaseli 74, Reykjavík.
40 ára
Josip Veceric, Suðurgötu 22, Reykjanesbæ. Hans Pétur Blomsterberg, Skeljatanga 14, Mosfellsbæ. Hafdls Hallsdóttir, Sólbrekku 13, Húsavík. Ágúst Sigurlaugm- Haraldsson, Álfhólsvegi 108, Kópavogi. Guðbjörg Elsie Einarsdóttir, Gónhóli 25, Reykjanesbæ. Hákon Henriksen, Gránufélagsgötu 33, Akureyri. Egill Grétar Stefánsson, Móasíðu 6c, Akureyri. Kristinn Frimann Kristinsson, Suðurgötu 49, Hafnarfirði. Kristín Aðalbjörg Árnadóttir, Heiðarseli 4, Reykjavík. Jörundur R. Kristjánsson, Garðbraut 54, Gerðahreppi. Helgi Harðarson, Króktúni 1, Hvolsvelli. Margrét Sigurðardóttir, Laugalæk 30, Reykjavík. Stefán Gíslason, Borgarbraut 3, Hólmavík. Stefán Stefánsson, Barmahlíð 35, Reykjavik. Sigurður Magnús Jónsson, Tjaldanesi 3, Garðabæ.
a\tt mil// hiry)in ' Smáauglýsingar