Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997 Fréttir Borgnesingar, sem fengu dóm í október, sátu ekki auöum höndum meðan á málsmeöferö stóð: Röð afbrota bæði fýrir og eftir dóm - eru nú sakaðir um fleiri líkamsárásir, nauðung, húsbrot, þjófnaði og fleiri afbrot Réttarhöld hófust í gær yfír tveimur liðlega tvítugum Borgnes- ingum sem fengu fangelsisdóma í október síðastliðnum, þar af annar fyrir að valda tólf manns likams- meiðingum í sex aðskildum saka- málum, en þeir hafa nú verið ákærðir á ný fyrir líkamsárásir, nauðung, húsbrot, þjófnaði og fleira - flest brotin sem mönnunum eru nú gefin að sök frömdu þeir á með- an októbermálið var í meðferð og dóms var beðið eða nánast í beinu framhaldi af því að hann var kveð- inn upp. Mennirnir fengu báðir þriggja mánaða óskilorðsbundnar refsingar i október en annar þeirra fékk að auki níu mánaða skilorðsrefsingu en himi sex mánaða. Þeir hófu hins vegar ekki að afplána refsingu októ- berdómsins fyrr en eftir áramót og eru því refsifangar á meðan réttar- höldin standa yfir í „nýju“ málun- um. Annar mannanna, Björgvin Sig- ursteinsson, var í október dæmdur í 12 mánaða fangelsi en 9 skilorðs- bundna, fyrir að hafa valdið samtals tólf manns líkamsmeiðingum á árunum 1995 og 1996. Hann var einnig dæmdur fyrir að hafa nef- brotið tvo unga menn en í þriðja lagi fyrir að hafa valdið því að 7 ungmenni slösuðust í bílslysi, flest alvarlega. Þá var Björgvin fundinn sekur um að hafa í félagi við hinn manninn, Kjartan Hauksson, og þriðja aðila, svipt ungan mann frelsi sínu og veitt honum likams- meiðingar á niðurlægjandi hátt. Auk þess var Björgvin dæmdur fyr- ir að hafa ógnað og veitt tveimur mönnum áverka með riffílskefti og ölvunarakstur. í október fékk Kjartan 9 mánaða fangelsi, þar af 6 skilorðsbundna, fyrir nytjastuld, líkamsárás, hús- brot, þjófnað, framangreinda frelsis- sviptingu með Björgvini, eignaspjöll og ölvunarakstur. Ákærurnar nú Björgvini er nú gefið að sök að hafa, á meðan dóms var beðið í októbermánuði, margsinnis veitt rúmlega fertugum manni hnefahögg í andlit. Afleiðingamar urðu þær að hann hlaut mar, glóðarauga og skurð auk þess sem kvamaðist út úr tönnum. Björgvin er einnig ákærður fyrir eignaspjöll með því að hafa lamið með barefli í þak bils. Kjartan er nú ákærður fýrir hús- brot og þjófnað, brot sem framin voru rétt eftir að októberdómurinn var kveðinn upp. Þannig er honum gefið að sök að hafa ruðst í tvígang í heimildarleysi inn í íbúð í Borgar- nesi og stolið þaðan peningum. Hann er auk þess ákærður fyrir að hafa rétt fyrir áramót ekið ölvaður og réttindalaus á allt að 140 km hraða á klukkustund í og fyrir utan Borgarnes. Auk þessa er Kjartan nú ákærður fyrir brot sem framið var í ársbyrj- un 1996. Samkvæmt sakargiftum sat hann þá í félagi við annan mann fyrir tveimur 14 ára piltum í kyrr- stæðri ljóslausri bifreið í Borgar- nesi og er gefið að sök að hafa tekið annan þeirra föstum tökum og neytt hann inn í bil og skipað hinum sömu leið, ekið með þá upp fyrir byggð að grjótnámi og síðan haft í hótunum við annan þeirra um lík- amsmeiðingar. Búist er við að dóm- ur verði upp kveðinn innan þriggja vikna. -Ótt/-RR UTRF á Kamtsjatka hefur sagt upp samningi viö ÍS: Mikið áfall en munum leita réttar okkar - segir Benedikt Sveinsson, forstjóri ÍS, og telur uppsögnina ólöglega „Þetta er auðvitað mikið áfall fyr- ir okkur ef við missum þetta verk- efni en gerir engan gæfumun fyrir ÍS. Þarna er um að ræða stórt verk- efni, veltu og tekjur. Við teljum þetta brot á samningnum og mun- um leita réttar okkar í þessu máli,“ segir Benedikt Sveinsson, forstjóri íslenskra sjávarafurða, en rúss- neska sjávarútvegsfyrirtækið UTRF á Kamtsjatka í Rússlandi hefur sagt upp samstarfssamningi sínum við ÍS einhliða og án fyrirvara. Samstarf fyrirtækjanna hefur staðið í tæp fjögur ár en þau gerðu með sér nýjan tveggja ára samning sl. haust. Alexander Abramov, for- stjóri UTRF, lýsti því yfir á sjón- varpsstöð í Rússlandi á sunnudag að samkomulagið við íslenska sjáv- arafurðir gengi ekki upp vegna sam- starfsörðugleika og því væri ekki um annað að ræða en að segja því upp. Benedikt segir að ástæða þess að UTRF segir samningnum upp sé fyrst og fremst ágreiningur um rekstur og stjómun verkefhisins og sú krafa ÍS að hafa fulla stjóm á því eins og samningurinn hljóðar upp á. Hafa verið átök „Þaö er spuming hvort þeir eru að reyna að knýja fram breytingar á samningnum með þessu sem við höf- Frá vinnslu um borð í togara rússneska fyrirtækisins UTRF á Kamtsjatka. Þar hafa unniö bæöi íslendingar og Rússar í samstarfsverkefni UTRF og ÍS. um ekki viljað. Ég veit að það er ekki samstaða innan stjómar rúss- rödd FÖLKSINS 904 1600 Eru nýju kjarasamningar VR viðunandi? neska fyrirtæksins um að rifta samningnum. Við munum skoða þessi mál vandlega og reyna aö frnna lausn á því ef mögulegt er. Það var alltaf vitað að þetta yrði erfitt og áhyggjufúllt verkefni sem það hefur og verið. Þarna er um að ræða óhemjuerfitt starfsumhverfi og Rússamir hafa á margan hátt verið mjög erfiðir í samskiptmn. Það er ekkert launungarmál að það hafa verið átök við þá og við höfúm þurft að sýna mikla festu," segir Benedikt. Að sögn Benedikts em 24 íslend- ingai á vegum ÍS á Kamtsjatka og munu þeir halda áfram störfum sín- um þar til annað kemur í ljós. Bene- dikt segir að verið sé að kanna for- sendur fyrir annarri starfsemi í eig- in nafhi fyrirtækisins á þessum slóð- um. Benedikt Sveinsson forstjóri ÍS, tel- ur uppsögnina brot á samningnum. „Þetta hefúr að sjálfsögðu mikil áhrif á rekstur okkar. Þetta verk- efni á Kamtsjatka skilaði okkm-18% veltu í fyrra eða tæplega 4 milljörð- um. Það var þó gert ráð fyrir að það yrði heldur minna í ár m.a. í kjölfar þess að rússneska fyrirtækið tapaði tveimur togurum,“ segir Benedikt. -RR Stuttar fréttir Fíknó í rannsókn Dómsmálaráðherra ákveður í dag hvort sérstök rannsókn fari fram á samskiptum Fíkniefha- lögreglunnar við þekktan, marg- dæmdan eitursala, Franklín Steiner að nafiii. Stöð 2 sagði frá. ÍS í vanda UTRF-fyrirtækið á Kamtsjatka hefur sagt upp samstarfssamn- ingi við íslenskar sjávarafúrðir. Stjómendur ÍS telja uppsögnina ólöglega. Fhnmtungur veltu ÍS er bundinn í samningnum. Ólöglegt fríkort Neytendasamtökin telja að nýtt fríkort Hagkaups og fleiri versl- ana brjóti í bága við samkeppn- islög og gera harðorðar athuga- semdir við skilmála kortsins. Vöruskiptin hagstæð Vöruskiptin við útlönd vora hagstæð í janúar. Flutt var út fyrir 11,9 milljarða en inn fyrir 10,7. Verðmæti vöruútflutnings var 49% hærra í janúar sl. en á sama tíma í fyrra. Kynslódaskipti illmöguleg Stjóm Sambands sunnlenskra sveitarfélaga hefúr áhyggjur af mjólkurframleiðslu í héraðinu og kynslóðaskipti og endumýj- un sé illmöguleg þar sem rekst- ur búanna standi ekki undir kaupum nýrra eigenda. Gleriö burt Glerbyggingin utan á Iðnó verð- ur fjarlægð, segir fonnaður byggingamefndar Iðnó í Al- þýðublaðinu. Verður að hætta 75 ára gamall leigubílstjóri, sem ekki hefur viljað hætta akstri, er tilneyddur til þess samkvæmt dómi. Heimilt er að framlengja atvinnuleyfi leigubílstjóra til 75 ára aldurs en ekki lengur. Mjólkin flæöir Mjólk flæðir til Reykjavíkur og fær Dagsbrún lltið að gert í mál- inu sagði Stöð 2. Enga Fljótsdalsvirkjun Samtök sem stofiiuð hafa veriö á Austurlandi vilja enga Fljóts- dalsvirkjun og krefjast þess að lög um hana verið felld úr gildi. Stöð 2 sagði frá. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.