Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997 Tískutöskur Jónína Bjartmarz, lögmaður og formaður Heimilis og skóla: Perluskreyttar handtöskur er nýjasti stíllinn, hvort sem perl- urnar eru úr plasti, gleri eða öðrum gljáandi gerviefhum. Flottastar og auðvitað dýrastar eru þær sem eru úr ein hverju fínna. Til eru töskur úr Swarovski kristal frá Aust- urriki með áferð eins og litlu krist- alhlutirnir sem margar konur hafa safnað hérlendis. Sagt er að Emma Thompson hafi haldið fastar um perlutöskuna sína en óskarinn í fyrra og Naomi Campbell fer vart út úr húsi án sinnar. Tískuspámenn hafa sagt að svona taska sé eitthvað sem allir verða að eiga í sumar. Klassískur Dior Handtöskurn- ar í sumar eru allar í stíl 7. áratugarins en það á við um fleiri hluti svo sem dragtir. Sumir hafa kallað það Jackie-stílinn eftir fyrrver- andi forsetafrú í Bandarikjun- um, Jacqueline Kennedy, en hún leiddi tískuna á sínum tíma. Þessi rauða og glannalega er frá Dior. Saman úr frum skóginum Skór og taska eiga að vera í stíl. Hér er dæmi slíkt og útlitið sótt til frum skógardýranna. Ekki skiptir máli hvort skór og taska eru eftirlík- ing sitt af hvoru dýrinu. Svo getur maöur labbaö inn í partí- iö og sungiö. „I’m a tiger, I’m a tiger." Antik- áferð Tonnatak og Ijosmynd af skólabræðrunum um eg „Skjalataskan min ber þess oft vitni aö ég er 2ja bama móðir, ásamt því að vera útivinnandi. Það er lán að ég er nýbúin að taka til í henni,“ sagði Jónína Bjartmarz, lögmaður og formaður Heimilis og skóla, þegar hún var beðin um að opna skjalatöskuna sína. Eig- inmaður Jónínu gaf henni töskuna fyrir 15 árum, rétt eftir að hún hafði lokið lögfræðiprófinu. Task- an er af vandaðri gerð frá Etienne Aigner, vínrauð og kostaði lík- lega sitt en hefur reynst peninganna virði því hún hefur enst og elst vel. „Við vorum næstum í tiíhugalifinu og ætli það hafi ekki haft áhrif á kaupin,” segir Jónina og hlær. „Þetta er ekta stresstaska með fínum talnaiás sem ég hef reyndar aldrei notað. Hún hef- ur staðið með mér í gegnum þykkt og þunnt og aldrei brugðist mér, nema þegar ég hef gleymt að smella henni aftur. í þeim tilfellum, sem hafa sem betur fer verið fá, sturtar hún öllu úr sér og afhjúpar persónuleika minn.“ Mataruppskriftir úr blöðum Jónína tekur fyrst fram dagbókina ómissandi úr töskunni og síðan ýmsa pappíra sem tengjast starfi og félags- lífi. „Hér eru gleraugu og sólgleraugu sem ég þarf ekki að nota núna,“ seg- ir hún. „Tölvudisklingar sem ég nota til að flytja gögn á mifli heimilis og vinnustaðar, uppiýsingar um Vildar- kort Flugleiða og nokkrar matarupp- skriftir úr dagblöðum. Ég hef klippt þær út til að ljósrita hér í vinnunni en ekki framkvæmt ennþá." Perlufesti og saumasnið í þessu hlær Jónína því nú er kom- ið að ljósmyndinni. Þetta er hópmynd af nokkrum skólabræðrum hennar í Kennaraskólanum. „Ég setti hana I töskuna eftir að ég rakst á hana í tiltekt. Ég ætla að gefa hana fyrrum skólabróður og einum úr hópnum á myndinni, Einari Gylfa Jónssyni, formanni Barnaheilla, næst þegar ég rekst á hann. Svo eru hér nokk- ur eintök af nafhspjöld- unum mínum, snið að dragt, sem ég geri mér vonir um að hafa tíma til að sauna, sundlauga- miðar og perlufesti sem á að fara í viðgerð. í tös- kunni er líka reglustika og fleiri pennar, að ógleymdu tonnataki sem stendur af sér stór- hreinsanir í töskunni en hefur verið hér síðan við hjónin vorum að innrétta. Að lokum finn ég tvo norska bæklinga, mjög áhugaverða, ann- ar er um lausnir í ágreiningsmálum í skólastarfi og hinn um kærur og meðhöndlun þeirra í grunnskóla. Þá er það upptalið því ég nota veski undir snyrti- vörur og þess háttar," segir Jónína Bjartmarz. -jáhj Ragna Bergmann, formaður Verkakvennafálagsins Framsóknar: Saumabox og kjarasamningar Eins og dýrin eiga vel saman á höndum og fótum verð- ur brennda áferðin að vera í stíl. Hér er dæmi um axlartösku og leðurstígvél í anda 7. áratugarins. Tiskan hennar mömmu eða ömmu Þegar þessi taska er skoðuð dettur manni mamma eða amma í hug þegar þær voru upp á sitt besta á sjöunda ára- t u g n u m . Kannski er h æ g t a ð finna s vona inn, allavega eitt- hvað í Líkingu við þennan stíl. -jáhj Ég á tvær skjalatöskur sem hef aldrei komist upp á lag með að nota. Aðra þeirra nota ég núna undir skattframtalið og gögn varðandi það. Ég prófaði að nota skjalatöskuna um tíma og hlið- arveski með en líkaði það ekki. Núna nota ég hins vegar fína A-4 tösku undir allt sem tengist mínu daglega amstri, fundargögn, bréf og annað til persónulegra þarfa,“ segir Ragna Bergmann, formaður Verka- kvennafélagsins Framsóknar. Þessa þarflegu tösku fékk Ragna í afmæl- isgjöf frá vinnufélögum á skrif- stofú Framsóknar fyrir átta árum. Hún er af gerðinni La Moda úr svörtu leðri og brydduð með brúnu leðri. Miðað við notkun sér lítið á töskunni en lásinn hefur bilað einu sinni. Eftir viögerð er hann sem nýr. Töskunni fylgdi axlaról en Ragna segist hafa tekið hana af strax. í töskunni eru fimm mismunandi stór hólf. Síðustu vikur hefur staðið yfir löng samn- ingahrina og ber innihaldið í tösku Rögnu þess vitni. Tékkhefti og aðgerðar- áætlun „Utan á töskunni er hólf með rennilás og þar hef ég tékkhefti fé- lagsins, reikninga, kvittanir frá lækni og kvittanir fyrir þvi sem ég hef keypt. í hólfi innan í töskunni hef ég spegil, vasareikni, skjöl til stjórnar Atvinnuleysistrygginga- sjóðs og saumabox sem ég keypti einu sinni í útlöndum með nálum, tvinna og tölum. Það er aldrei að vita nema að maður þurfi að gera við saumsprettu i snatri,” segir Ragna. Síðan telur Ragna upp samn- inga um vinnufot, gleraugnahylki, aðgerðaáætlun Framsóknar og Dagsbrúnar, kjarasamninga Iðju, taxtabréf Framsóknar, samningstil- lögu frá VSÍ, bréf varðandi fisk- vinnslustöðvar, drög frá þingi Bandalags kvenna í Reykjavík, frá Sjálfsbjörgu og vinnudeilasjóði Framsóknar. Tiltekt á kvöldin „í minnsta hólfinu hef ég peninga- budduna, snyrtibuddu, sykursýkis- prófin og sykursýkislyfin sem ég nota í vinnunni,” segir Ragna og hefur þá tínt allt upp. „Á kvöldin fer ég yfir plöggin í töskunni, les og raða í möppur. Annars myndi hún fyllast fljótt af pappírum. Mér hefur reynst vel að nota aðeins þessa tösku og þegar ég fer á samninga- fundi tek ég kröfugerðina með í sér möppu sem kemst auðvitað ekki ofan í töskuna og held því bara á henni," segir Ragna Bergmann. -jáhj Laufey Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Plúsferða: Hvað er í flugmannstöskunum? „Ég nota handtösku undir allt mitt hafúrtask. Eina skjalatask- an sem ég hef átt er gömul skólataska bamanna minna en mér finnst hún of þung,“ segir Laufey Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Plúsferða. „Þegar ég mæti á fundi og þarf að hafa gögn tek ég með mér létta möppu. Ég verð alltaf undrandi þegar kallamir koma með stóru flugtösk- umar sínar og skella þeim á fúndar- borðið. Mig hefur oft langað að kíkja ofan í hjá þeim og kanna hvað þeir hafa í þessum töskum sem rúma á við ferðatösku. Kannski bara kaffibrúsa og Moggann?" segir Laufey og hlær. Laufey keypti töskuna í Seoul í Suður-Kóreu fyrir tveimur árum. Hún er úr leðri, svört og brún. Hún segir að þessi taska hafi dugað vel undir allt sem þarf. Sími og plástur Laufey er fjölumdæmisstjóri Lions en svo kallast yfirmaðm- Lionshreyf- ingarinnar á íslandi. Þess utan er hún forseti bæjarstjómar í Garðabæ. Af þessu leiðir að i töskunni hennar leynast skjöl varðandi vinnu og félags- störf. „Það fyrsta sem ég finn hér í tös- kunni er farsíminn en hann skil ég aldrei við mig. Hann er vinnutækið mitt fyrir Plúsferðir. Annað sem teng- ist ferðalögunum eru plástur og verkjatöflur, eins og allir fararstjórar þurfa að hafa, og pennar. Minnisbókin er hér líka en hún er helmingurinn af lífi mínu. Hún geymir allt sem ég er og þarf að gera og oft hripa ég í hana stuttar fundargerðir og bókanir í ferð- ir,“ segir Laufey. Naglaþjöl og vegabréf Laufey heldur áfram að kanna inni- hald töskunnar og fmnur gleraugna- hreinsibúnað, nalhspjöld í bunkum, hennar eigin og annarra, fundar- boð og fundargerðir ýmissa félaga. „Hér er líka vegabréfið mitt sem ég hef alltaf tiltækt, naglaþjöl, hár- greiða, fullt af bréfaklemmum og minnismiðar i litlu hólfi,” segir Laufey og heldur áfram: „Stór lyklakippa með lyklum að helgustu véum sjálfstæðis- manna í Garðabænum og Lions- hreyfingunni. Afsláttarkort í einkaklúbbi, peningaveski, fleiri pennar, skæri, naglaklippur og hár- greiða. Aö lokum finn ég snyrtiveski og peningaveski," segir Laufey. „Þessi taska hefúr flækst víða um heim. Alltaf fúllnægt þörfúm mínum fyrir pláss og staðið sig vel.“ -jáhj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.