Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 11
JLJ\Í' ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997 ‘ Himneskur hljómur 1 i i i t i i i i i t i „Maður kemst nær himnaríki," sagði kona við mig eftir að hafa hlustað á söng Mótettukórs Hallgríms- kirkju og Schola cantorum á tónleikum í Hallgrímskirkju á sunnudag. Það var boð- unardagur Maríu, og voru tónleikamir helg- aðir henni og nefndir María og krossinn. Schola Cantorum söng þrjú responsoria eftir Carlo Gesualdo. Gesualdo hefur í seinni tíð fengið mikla athygli fyrir sjúkt sálarlíf og morð á eiginkonu sinni, en það sem mestu skipt- ir er að tónlist hans er mögnuð og ótrúlega ný- stárleg miðað við aldur. Ómstríðir hljómar og skemmtilega kryddaðar kadensur eru einkenni þessarar tónlistar, með spennu og togstreitu sem á endanum fær þó lausn og frið. Móðir horflr á bam sitt deyja. Getur tónlist endurspeglað svo nötur- legan harm? í Stabat mater segir skáldið frá Maríu við krossinn og ávarpar hana svo í líkn- arbæn. Ótal tónskáld hafa samið tónlist við Stabat mater en Schola cantorum flutti verk eftir endurreisnarmeistarann Giovanni Pi- erluigi da Palestrina. Tónlist Palestrina leið fram unaðslega áreynslulaust; hljómræn og friðsæl. Himneskur hljómur tveggja kóra Schola cantorum ómaði um kirkjuna, tær, hreinn og fagur. Það var spennandi að heyra tvö verk eftir eistneska tónskáldið Arvo Párt; sjö antifóna, eða andstef um Magnificat, og svo Lofsöng Maríu, Magnificat. Andstefin eru afar erfið í flutningi, krefjast mikils af kómum; og sjald- gæft er að heyra svo vítt raddsvið í einu verki. Tvíundir em áberandi tónbil í þessu verki, og er ein rödd gjarnan látin liggja á Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld. Tónlist Bergþóra Jónsdóttir sama tóni, meðan hinar raddimar máta hljóma við. Uppbygging verksins var áhrifa- mikil; í fyrstu er kyrrðin ríkjandi og djúpur bassi; ffamvinda verksins er hljómræn og mild, en þvi lýkur á sterkum hljómi þar sem sópraninn er á tóni einhvers staðar langt yfir velsæmismörkum. Lofsöngur Maríu, Magnificat, er þekktara verk; ákaflega fallegt. Einfaldleikinn ræður ríkjum, og sem fyrr einkennist framvindan af hljómrænu ferli. Mestallt verkið er sungið mezzo- piano, meðalveikt, í þétt- um hljómum. Eins og með Stabat mater er þetta verk eitt ótal- margra við sama texta. Margir þekkja Magnific- at Bachs, en hér er ólíku saman að jafha; verkin eins og svart og hvítt þótt textinn sé sá sami. Part er eiginlega fornari en Bach og sækir í smiðju endurreisnartónskáld- anna. Lokaverk tónleikanna var Te deum, nýtt verk eftir Hjálmar H. Ragnars- son, pantað af Norræna tónlistarráðinu, Nomus, og samið fyrir sænska kammerkórinn Hagerstens Motettkör. Hér er enn eitt dæmi um verk sem samið er við texta sem mörg tónskáld hafa nýtt sér. Verk Hjálmars stendur á göml- um merg eins og verk Párts, þótt segja megi að Hjálmar sæki meira í smiðju barokktónskáld- anna en Part. Það er líka meira að gerast i verki Hjálmars og margvíslegri stílbrögðum beitt. Þar skiptast á hljómrænir kaflar og pólýfónískir með fúgiun í anda barokkmeistaranna. Hjálmar þekkir hljóðfærið kór og semur vel sönghæfa tónlist sem hljómar fallega. Te deum er hljómfagurt og afar þýtt verk sem á án efa eftir að hljóma víða. Kóramir í Hallgrímskirkju eru með bestu kórum sem við eigum; ef ekki þeir allra bestu. Mótettukórinn hefur lengi verið þekkt- ur að fáguðum og fallegum söng, og nú hefur kammerkórinn Schola cantorum bæst við, öflugur og öruggur. Kóramir hafa á að skipa fyrsta flokks söngfólki og með jafn vönduðum undirbúningi af hálfu kórstjórans, Harðar Áskelssonar, og góðu efnisvali, verða þessir kórar áfram í fararbroddi. DV-mynd ÞÖK > > 5 > I > > i I I > I Það hefur verið hálf- tristur tónn í þjóðinni að undanfömu og ekk- ert skrýtið við það. Stórsjóslys, illviðri og verkföll í undirbún- ingi. Ekkert bólar á vori, mjólkur- og bens- ínleysi fram undan. Það gæti verið fróð- legt fyrir fólk að sjá í sjónvarpi dálitla upp- rifjun á síðasta alls- herjarverkfaili. Nú er kynslóðin að verða fullorðin sem þá var litlir krakkar. Ríkisút- varpið fékk að senda út veðurspá fjórum eða fimm sinnum á dag, annað var ekki að hafa. Fjölmiðlaleysið í stóra verkfallinu hér um árið fór ákaflega illa i fólk, mig minnir að það hafi verið verst. Það var setið um þess- ar veðurfréttir og þeg- ar þær vora búnar þá horfði maður á radíóið og bað það að halda áfram, „gerðu það, haltu áfram, bcira smá eitthvað, allt nema þessi þögn“. Svo man ég eftir eldfiöruga harmón- ikkulaginu sem útvarpið spilaði þegar verk- falli var loksins aflýst. Það er eiginlega full ástæða til þess að rifia þær einkennilegu vik- ur upp! Það sem mér þótti skemmtilegast í íslenska fiölmiðlaheiminum í vikunni sem leið var eintak af timaritinu Mannlífi. Segja má að það hafi verið lesið upp til agna og átti það líka skilið. Þama er á ferðinni „nýtt“ rit und- ir gamla, góða nafninu. Blaðið er vel skrifað, skemmtilega upp sett og fullt af góðu og áhugaverðu lesefni, laust við að vera tilgerð- Vörubílstjórar bíöa eftir að verkfall leysist 1974. Fjölmiðlar Sigríður Halldórsdóttir arlegt og ekki verið að herma eftir einhveij- um víðlesnum, útlenskum metsölublöðum. Og það fylgdi meira að segja vellyktandiprufa með. Ég hef heyrt að margir fagni nýju blóði í tímaritaútgáfúnni. Af öðra góðu og gæfulegu í fiölmiðlunum er nýr viðtalsþáttur Jóns Baldvins Hannibalssonar við hina og þessa mektarmenn á Stöð 2. Þetta em ansi fróðleg- ir þættir og auðvitað stjómað af kunnáttu- manni í faginu; fyrir vikið er þetta bráðá- heyrilegt. Stundum er dálítið pirrandi þegar sjón- vörpin tilkynna ekki dagskrárbreytingar. Eiginlega er það sjálfsögð kurteisi við kúnn- ana. Hvar em til dæmis heimildarmyndimar um ísland sem var hald manna að ættu að vera á dagskrá síðastliðna sunnudaga á RÚV? Og afhverju skellti Stöð 2 þættinum „Sixty Minutes" á allt annan dag og tíma hérna um daginn? Fólki hættir nefnilega til að vera fýlugjarnara út í sjónvarpsstöðvar og þeirra dagskrá en flest annað og særist oft óeðlilega djúpt út í þessa miðla. irifenning •k ~k 11 Ólafur átti greinina Greinin Hugmyndafræði formsins á menn- ingarsíðum DV í gær - um myndlistarsýn- ingar Sólveigar Aðalsteinsdóttur í Listasafni ASÍ og Sigrúnar Ólafsdóttur í Gerðarsafiii - var ómerkt. Hún er að sjálfsögðu eftir mynd- listargagnrýnanda blaðsins, Ólaf Gíslason, og er beðist velvirðingar á þessari klaufsku. Oft vex leikur af litlu Við náðum í fúnandi spennta Kfnafara á Leifsstöð í gærmorgun, rétt ófama upp í flug- vél. Alls eru um tuttugu manns í ferðinni - listamenn, blaðamenn og kvikmyndagerðar- menn - „Ég held að við séum akkúrat tutt- ugu með sellóinu hans Gunn- ars Kvaran“, segir Guðmund- ur EmUsson hljómsveitar- stjóri, „gríðarlega fallegur „ flokkur manna.“ s^m Þetta verður íslensk w m menningarinnrás. Atli Heimir Sveinsson mun leiða Kinverja í aUan sannleika um íslenska tónlist, Sigurður Páls- son heldur fyrirlestur um íslenskar bókmenntir, Stefán Baldursson um islenska leiklist og Kristín Jóhannesdóttir um íslenskar kvikmyndir. En stærsti viðburðurinn er frumsýning á ís- lenskri óperu, eins og áður hefur verið getið hér á síðunni, Tunglskinseyjunni eftir Atla Heimi Sveinsson. Það er einsdæmi að ís- lenskt verk sé frumflutt svona langt að heim- an, en líka er mál manna að ekki hafi það oft gerst áður að vestræn ópera sé frumsýnd í Kína. „Oft vex leikur af litlu, hugs- aði ég i morgun þegar ég svip- aðist um í fullri rútu af fólki og tækjum," sagði Guðmund- ur. „Ég fór í könnunarleið- angur til Kína fyrir réttu ári, skoðaði aðstöðu og tal- aði við alla helstu menn- ingarforkólfa í Peking ^. með milligöngu sendi- aátt/ln ráðsins. Ég sagði þeim n að mig langaði til að frumflytja þessa ópem á sviði hjá þeim - og þetta er árangurinn!" Kínverjar taka á móti hópnum og eru gest- gjafar hans, leggja til rútu og túlk og aðstöðu i splunkunýju húsi, Leikhúsi hinna mörgu torga, sem sagt er að sé glæsilegasta leikhús í borginni. Þar verður Tunglskinseyjan sýnd laugardaginn 22. mars. Gamaldags ástarsaga „Ég er mátulega spenntur en það er mjög gaman að þessu,“ segir Atli Heimir sem nú kemur i gemsann, og flugvélin að hita sig upp á bak við hann. „Þetta hefur verið lengi í bígerð og við emm búin að fara um Þýska- land með þetta verk í konsertuppfærslu. Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir og Sigurð- ur Pálsson sem samdi librettóið er sögumaður á sviðinu. Guð- mundur Emilsson hefur verið ljósmóðir verksins og fæðing- arlæknir og nú stýrir hann hljómsveitinni og er list- rænn umsjónarmaður fyr- irtækisins." Sviðsuppfærsla óper- unnar er frumsýnd í Kina en í vor verða á henni fimm sýningar í Þjóðleikhúsinu. „Svo er ég að ljúka við næstu ópera,“ bæt- ir Atli Heimir við. „Hún er við norskan texta og fiallar um listmálarann Hestervik, þeirra Kjarval. Þeir vissu aldrei hvort hann var snillingur eða klikkaður og vissu aldrei hvort hann var fúskari eða brautryðjandi. Það er ekki komið á hreint hvar hún veröur frumsýnd, en það gæti vel orðið í Nor- j egi.“ Hestervik verður fiórða ópera Atla Heimis. Fyrst var Silkitromman, þá Vikivaki sem var fram- Atn , 'elris. sýndur samtímis í sjón- son. Heln>lr varpi á öllum Norðurlönd- um og nú Tunglskinseyjan sem er „gamaldags ástarsaga“ með orðum Atla, frá því fyrir landnám. Hún gerist á hafi úti og í I Breiðafiarðareyjum og það eru miklar sjávar- | myndir í tónlistinni. Á mUli kom Tíminn og vatnið, þriggja tíma tónverk við ljóöaflokk Steins Steinars, sem var flutt á listahátíð fyr- ir þrem áram. (Jmsjón Silja Aðalsteinsdótdr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.