Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997 3 DV Fréttir PHILIPS Smákaupmenn selja mjólk: Sel aðeins gömlu konun- um í hverfinu - segir Þorvarður Björnsson Ýmsir smákaupmenn á höfuð- borgarsvæðinu hafa farið austur yflr fjall og keypt þar mjólk til að selja í verslunum sínum. Dagsbrún- armenn hafa ekki gert athugasemd við það þó að smákaupmenn kaupi mjólkina í nágrannasveitarfélög- unum. Þorvarður Bjömsson, kaup- maður og fyrrverandi knattspymu- dómari, náði sér í 30 lítra af mjólk frá Selfossi á sunnudagskvöldið. „Það er mikil eftirspum eftir mjólk og hún er gulls ígildi. Ég sel hana bara gömlu konunum héma í hverfinu sem eru mínir aðalvið- skiptavinir," sagði Þorvarður en að- eins nokkrir lítrar voru eftir hjá Þorvarði í hádeginu í gær. -RR Þorvaröur Björnsson, kaupmaður á Rauöarárstíg, meö mjólkina dýrmætu en hann segist aöeins selja hana gömlu konunum í hverfinu. DV-mynd BG Oddviti vanhæfur að áliti SÓLar: Öll hans jörð seld ríkinu ef álverið mengar um of Stjórn samtakanna SÓL í Hvaifirði ákvað um helgina að fela lögmanni sínum, fyrir hönd Lindu Samúels- dóttur í Tungu, að kæra mat á um- hverfisáhrifum vegna fyrirhugaðs ál- vers á Grundartanga til félagsmála- ráðuneytisins. Forsenda kæmnnar er meint vanhæfi Jóns Valgarðsson- ar á Eystra-Miðfelli, oddvita Hval- fjaröarstrandarhrepps, til að taka þátt í afgreiðslu umsagnar hreppsins um málið þar sem nokkmm dögmn seinna hefði hann selt ríkinu hluta af jörð sinni, um 90 hektara, fyrir 18 milljónir króna. í áliti Andra Áma- sonar hæstaréttarlögmanns kemur fram að salan geri Jón vanhæfan í málinu vegna persónulegra hags- muna hans af álverinu. Ólafur M. Magnússon, formaður Sólar, sagði í samtali við DV að samtökin hefðu að auki þær upplýs- ingar undir höndum um kaupsamn- ing Jóns við ríkið að kæmu einhver vandkvæði upp með álverið vegna of mikillar mengunar eða af öðmm toga þá væri ríkissjóður skuldbund- inn til að kaupa alla jörðina af Jóni á hlutfallslega sama verði og skikinn var keyptxu- á. Ólafur sagði að miðað við 18 milljónir fyrir 90 hektara þá væri þama um gífurleg- ar fjárhæðir að ræða. Hann sagði jörð Jóns vera um 500-600 hektarar að stærð þannig að mögulegt verð fyrir hana alla yrði í kringum 100 milljónir Stjóm Sólar hefur jafnframt ákveðið að höfða ógildingarmál fyr- ir dómstólum vegna mnrædds mats á umhverfisáhrifum enda telur hún að álit hreppsnefndarinnar hafi veg- ið þungt þegar matið var staðfest. „Mín viðbrögð eru engin eins og er þar sem hvorki ég né hrepps- nefndin höfum fengið erindið form- lega í hendur,“ sagði Jón Valgarðs- son við DV. Þá ætla Sólarmenn að beina ákveðnum þáttum málsins til um- boðsmanns Alþingis þar sem aðal- skipulagi svæðisins var breytt úr smáfyrirtækjasvæði með 10-15 starfsmönnum í stærsta stóriðju- svæði lands. Einnig vilja samtökin að umboðsmaður fari yfir starfsemi Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneyt- isins þar sem hún sé bæði orku- kaupi og -sali og vinni fyrir hönd orkukaupa. -DVÓ/bjb Löggan tók bílinn og pítsurnar Pítsusendiil frá Pizzahúsinu var frekar seinheppinn sl. fóstudag þeg- ar hann var að sendast með pítsu í hús við Bergstaðastræti. Sendillinn stökk inn með pítsuna en skildi bílinn eftir í gangi fyrir ut- an. í bílnum voru tvær pítsur sem áttu að fara annað. Þegar hann kom aftur út var bíllinn horfinn. Sendill- inn hringdi þá á lögregluna og til- kynnti að bílnum hefði verið stolið. Kom þá í ljós að laganna verðir höfðu tekið bílinn til að veita hon- um áminningu fyrir að skilja bílinn eftir í gangi. Sendillinn sótti bílinn síðan nið- ur á lögreglustöð og fékk pítsumar einnig til baka. 14“ Sjónvarp m/innbyggðu myndbandstæki • ACI sjálfvirk innstilling rása • Textavarp • Barnalæsing • ShowView™/ Videoplus™ PhÍlÍpS AZ1508 24.985 kr. FERÐATÆKI MEÐ GEISLASPILARA • 100 W PMPO magnari • Hátalarakerfi m/bassaendurvarpi • Fjarstýring • Slembival • Stafræn hljóðstjórn: Jazz, DBB o.a. • Incredible Sound - ofurhljómurinn frá Philips Sanyo mcdz? 15.900 kr.aft . •' FERÐATÆKI MEÐ GEISLASPILARA • 20 W PMPO • Tónjafnari • Lagaminni á geislaspilara AZIOÖÖ 16.900 kr. ÚTVARPS-OG KASSETTUTÆKI MEÐ GEISLASPILARA • 30 W PMPO • Forritanlegur geislaspilari 7/jmiiim ejtir ji L erminaaroornunum ! Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO http.//www.ht.is umboðsmenn um land allt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.