Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997 DV Menntaskólanemar eru í öllum hlutverkum í Andorra. Andorra Herranótt Menntaskólans í Reykjavík verður með sýningu á Andorra í Tjamarbíói í kvöld. í Andorra tekur höfundurinn Max Frisch á fordómum og þá sérstaklega fordómum sem rekja má til skeytingarleysis. Leikritið gerist í hinu ímyndaða ríki Andorra og fjallar um ung- an gyðingadreng sem elst upp hjá fósturforeldrum og verður Tónleikar ástfanginn af stjúpsystur sinni. Á fyndinn og mannlegan hátt er deilt á ýmislegt sem miður fer í samfélagi mannanna. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson sem í fyrra leikstýrði Sjálfsmorðingjunum fyrir Herranótt og einnig hinni vin- sælu sýningu Stone Free. Höf- undur tónlistar og hljóðmynda er Ólafur Björn Ólafsson en hann er nemandi í MR og meðal verka hans má nefna tónlistina í Skara skrípó. Með stærstu hlutverkin í Andorru fara Ólaf- ur Egill Egilsson, sem margir kannast viö úr einu aðalhlut- verkinu í kvikmyndinni Einka- lifi, Sveinn Kjarval og Sunna Mímisdóttir. Sýningar á And- orra verða tíu og eru næstu sýn- ingar á fimmtudag og föstudag. Fundur um Evr- ópusambandið Félag íslenskra háskóla- kvenna og Kvenstúdentafélag ís- lands halda fund í Lögbergi Há- skóla íslands, stofu 101, mið- vikudaginn 19. mars kl. 17. Val- gerður Bjamadóttir, forstöðu- maður EFTA í Brassel, ræðir um Evrópusambandið. Mun hún svara fyrirspumum aö loknu erindinu. Samkomur Kvenréttindafélag íslands Aðalfundur Kvenréttindafé- lags íslands 1997 verður haldinn í kvöld kl. 17.30 í kjallara Hail- veigarstaða. Kyrrðardagar í Skálhotti Kyrrðardagar verða í Skál- holti á hefðbundnum tíma um bænadaga í dymbilviku 26.-29. mars. Að venju eru þátttakend- ur velkomnir í Skálholt frá há- degi á miðvikudag. Dr. Sigur- bjöm Einarsson biskup annast íhuganir en auk hans verða kyrrðardagamir i umsjá Jóns Pálssonar rektors og sr. Guð- rúnar Eddu Guðmundsdóttur. Frá þjóðsögu til skáldsögu María Anna Þorsteinsdóttir heldur erindi á vegum Félags ís- lenskra fræöa í Skólabæ við Suðurgötu í kvöld kl. 20.30. Quarashi á Gauknum Rappsveitin Quarashi leikur fyrir gesti á Gauki á Stöng í kvöld. M- fflli'; .V'ifiii ■ WmiMffiöR í flUBRI REKKR vn Íjj, - fPflS'r > 1 IIWi HROSIMIMR fflDSVöm ® DJfiLFSðMUffM BD RDL6RBM - Hbpp . nðtöm4i, ^ |tveb<r k-uSt'OgsK'')! K C' Háskólakórinn í Norræna húsinu: Islensk og erlend kórverk Á Há- skólatónleik- um i Norræna húsinu í há- deginu á morg- un flytur Há- skólakórinn verk eftir Jo- hannes Brahms, Leif Þórarinsson, Paul Hindemith og Carl Orff. Með- al þeirra verka sem Háskóla- kórinn flytur er Maríumúsík eftir Leif Þór- arinsson, en Háskólakórinn frumflutti verkið árið 1993. Flokkurinn er saminn við texta Stefáns frá Hvítadal, Vilborgar Dagbjartsdóttur og hinn foma og sígilda Ave Mar- íu- texta kaþólsku kirkjunnar. Þá flytm- kórinn lagaflokkinn Six Chansons eftir Paul Hindemith, en lagaflokkur þessi er meðal fjölmörgu verka Hin- demiths sem hlotiö hafa náð fyrir eyrum tónleikagesta. Von edler Ar, er lag eftir Jo- hannes Brahms og að síðustu mun kórinn flytja eitt lag eftir Carl Orff úr ljóðum Katúllusar. í ár verður Há- skólakórinn tuttugu og fimm ára og hefur kórinn ferðast víða og fór síöast í söngferð til Wales á síðasta ári. Stjómandi kórsins nú er Hákon Leifsson og hefur hann gegnt því starfi frá 1993. Tónleikam- ir hefjast kl. 12.30 og era um hálftíma langir. Emilíana Torrini syngur í íslensku óperunni í kvöld. Skemmtaiúr Þungfært í Borgarfirði Um vestanvert landið er skaf- renningur og slæmt ferðaveður. Þungfært er um vegi í uppsveitum Borgarfjarðar, ófært er um heiðar á Snæfellsnesi. Þungfært er um Heyd- al og Laxárdalsheiði. Ófært er frá Brú til Hólmavíkur og um Stein- grímsfjarðarheiði. Norðurleiðin er Færð á vegum fær til Skagastrandar, Sauðárkróks, Akureyrar og Húsavíkur. Ófært er úr Fljótum til Siglufjarðar. Þung- fært er frá Kópaskeri til Raufar- hafhar og ófært til Þórshafnar. Á Austurlandi er verið að moka helstu leiðir. Ástand vega m Hálka og snjór án fyrirstööu Lokaö 0 Vegavinna-aögát m Þungfært 0 Öxulþungatakmarkanir © Fært fjallabílum Hulda og Tryggvi eignast dóttur Myndar- lega stúlk- an á mynd- inni fædd- ist á fæðingardeild Land- spítalans 11. mars kl. 4.10. Hún var við fæðingu 3815 grömm að þyngd og mældist 50 sentímetra löng. For- eldrar hennar eru Hulda Björt Magnúsdóttir og Tryggvi R. Sigurðsson og er hún þeirra fyrsta barn. Barn dagsins Michael Palin leikur Adrian „Bugsy“ Malone. Kostuleg kvikindi Bíóborgin frumsýndi um helg- ina gamanmyndina Kostuleg kvikindi (Fierce Creatures) sem gerist í breska dýragaröinum Marwood Zoo sem berst í bökk- um. Nýr stjórnandi er þó með ráð sem á að duga, það er að aug- lýsa dýragarðinn sem hættu- svæði með dýrum sem eru grimm og jafnvel mannætur. Þetta er það sem fólkið vill, gera dýragarðinn að spennandi vett- Kvikmyndir vangi. Vandamálin hrannast upp, einkum þar sem dýrin era hin mestu gæðablóð og hænd að manninum. Aðalleikarar myndarinnar ' eru fjórir, John Cleese, Jamie Lee Cmtis, Kevin Kline og Mich- ael Palin, en það eru sömu leik- arar og fóra á kostum í A Fish Called Wanda og leggja þau sitt af mörkum til að skemmta áhorf- endum í þessari nýju grínmynd sem á margt sameiginlegt með A Fish Called Wanda þótt ekki sé um framhald að ræða. Nýjar myndir Háskólabió: Kolya Laugarásbíó: The Crow 2: Borg englanna Kringlubíó: Auðuga ekkjan Saga-bíó: Space Jam Bíóhöllin: Innrásin frá Mars Bíóborgin: Kostuleg kvikindi Regnboginn: Rómeó og Júlía Krossgátan feður, 10 röngu, 12 fnykurinn, 14 líf- færi, 16 reima, 16 hestsnafn, 19 skóli, 20 visni. Lóðrétt: 1 áköfum, 2 fár 3 vínhneigð- ur, 4 grátur,5 samtök, 6 hest, 7 borg- aði, 11 flík, 13 lengdarmál, 15 fiskur, 18 þröng. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 skýlaus, 7 ver, 8 jurt, 10 fróðir, 12 klæði, 13 sá, 14 bik, 15 urta, 17 ró, 19 trúir, 21 kapal. Lóðrétt: 1 svik, 2 kefli, 3 ýr, 4 ljóður, 5 auðir, 6 strá, 9 ristil, 11 rækta, 14 brá, 16 arm, 18 ók, 20 úa. Gengið Almennt gengi Ll nr. 85 18.03.1997 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollqenqi Dollar 71,020 71,380 70,940 Pund 112,860 113,430 115,430 Kan. doltar 51,820 52,140 51,840 Dönsk kr. 10,9910 11,0500 10,9930 Norsk kr 10,3630 10,4200 10,5210 Sænsk kr. 9,1790 9,2300 9,4570 Fi. mark 13,9480 14,0300 14,0820 Fra. franki 12,4420 12,5130 12,4330 Belg. franki 2,0342 2,0464 2,0338 Sviss. franki 48,6900 48,9600 48,0200 Holl. gyllini 37,3000 37,5200 37,3200 r Þýskt mark 41,9800 42,2000 41,9500 ít. lira 0,04188 0,04214 0,04206 Aust sch. 5,9620 5,9990 5,9620 Port. escudo 0,4158 0,4184 0,4177 Spá. peseti 0,4944 0,4974 0,4952 Jap. yen 0,57700 0,58050 0,58860 írskt pund 110,600 111,290 112,210 SDR 97,08000 97,66000 98,26000 ECU 81,3000 81,7900 81,4700 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.