Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1997, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997
27
íþróttir
Frjálsar iþróttir - karlar:
Stangarstökk
1. Christos Adamides, Kýpur .. . 4,90
2. Bemard Felten, Lúx ......4,80
3. Sigurður T. Sigurðsson, ísl. . . 4,40
100 metra hlaup
1. Georgis Skender, Kýpur .... 10,51
2. Jóhannes Már Marteinss., ís 10,64
3. Martin Frick, Liecht....10.70
Kringlukast
1. Pétur Guðmundsson, ísl. . . . 55,34
2. Lambros Iacovou, Kýpur . .. 49,86
3. Carlo Bartolucci, Lúx...46,84
10 km hlaup
1. George Loucaides, Kýp. . . 30:35,06
2. Juan Ramon Moya, And. . 30:36,27
3. Manel Femandez, And . . . 30:46,68
Frjálsar iþróttir - konur:
Langstökk
1. Irini Charalambous, Kýpur . . 6,00
2. Sigríður A. Guöjónsd., ísl. . . . 5,85
3. Sandra Frisch, Lúxemborg . . 5,77
Kúluvarp
1. Antri Kasapi, Kýpur .....13,96
2. Christina Strovolidou, Kýp. . 13,91
3. Berglind Bjarnadóttir, tsl. . . 13,14
100 metra hlaup
1. Guðný Eyþórsdóttir, ísl..12,15
2. Marilia Gregoriou, Kýp...12,30
3. Deirdre Camana, Möltu .... 12,38
Kringlukast
1. Kyriaki Pilia, Kýpur ....41,44
2. Guðbjörg Viðarsdóttir, ísl. .. 41,18
3. Anne-Marie Wirtz, Lúx....40,70
Blak karla:
Lichtenstein-Andorra........0-3
San Marínó-Ísland...........3-2
Blak kvenna:
Kýpur-Lichtenstein..........3-0
Malta-San Marínó............0-3
ísland á góða möguleika á silfri.
Körfuknattleikur karla:
Ísland-Lúxemborg ..........80-74
Kýpur-San Marino ..........67-65
Körfuknattleikur kvenna:
Malta-Lúxemborg............26-71
Ísland-Kýpur ..............70-52
Sund karla:
100 metra baksund
1. Öm Amarson, ísl.........59,09
2. Logi Jes Kristjánsson, ísl. . . 59,80
3. Eric Rottinger, Mónakó . . . 1:01,89
400 metra skriðsund
1. Tom Stoltz, Lúxemb.....4:06,16
2. Öm Arnarson, ísl......4:10,08
3. Matteo Cesarini, S. Marínó 4:16,24
100 metra flugsund
1. Rikaröur Ríkarðsson, ísl. . . . 56,75
2. Nicolas Job, Mónakó.....56,95
3. Luc Decker, Lúxemb......57,06
100 metra bringusund
1. Hjalti Guðmundsson, tsl. .. 1:04,99
2. Michel Amoux, Mónakó . . 1:05,40
3. Magnús Konráðsson, ísl. . . 1:05,45
4x200 metra skriðsund
1. ísland ...............7:50,50
2. Lúxemborg ............8:00,06
3. Kýpur.................8:06,63
Sund kvenna:
100 metra baksund
1. Kolbrún Ýr Kristjánsd. . . . 1:06,61
2. Eydís Konráösdóttir, tsl. . . 1:07,13
3. L. Boucquillon, Mónakó . . . 1:08,45
400 metra skriðsund
1. Lára H. Bjargardóttir, fsl. . 4:34,42
2. N. Michaelidou, Kýpur . . . 4:37,68
3. Sunna Dís Ingibjargard, tsl 4:37,68
100 metra flugsund
1. M. Papadopoulon, Kýpur . . 1:05,67
2. Eydís Konráðsdóttir, ísl. . . 1:06,25
3. Manon Zeig, Lúxemb.....1:06,83
100 metra bringusund
1. Halldóra Þorgeirsdóttir, fsl. 1.16,50
2. Anna Kafkalia, Kýpur .... 1:17,17
3. Carine Oberweis, Lúxemb. 1:17,86
4x200 metra skriðsund
1. ísland ...............é:47,25
2. Lúxemborg ............8:50,84
3. Mónakó................9:20,06
Smáþjóðaleikar - körfubolti:
Basl gegn
Lúxemborg
„Þeir léku svæðisvöm allan leik-
tímann og við vorum nokkuð lengi
að átta okkur á hlutunum. í síðari
hálfleik small þetta síðan saman hjá
okkur og sigurinn var aldrei í
neinni verulegri hættu,“ sagði Guð-
jón Skúlason, landsliðsmaður í
körfuknattleik, eftir sigur íslands
gegn Lúxemborg á Smáþjóðaleikun-
um í gærkvöld, 80-74.
Lúxemborg hafði forystu í leik-
hléi, 33-36. „Lið þeirra er skipað
stóram og sterkum leikmönnum.
Við hittum illa framan af en síðan
fór þetta að ganga betur og það var
aðalatriðið að sigra,“ sagði Guðjón.
ísland mætir Kýpur i undanúrslit-
um í kvöld.
Stig fslands: Herbert Amarson 20,
Guðjón Skúlason 14, Alexander Ermol-
inski 14, Falur Harðarson 12, Jónatan
Bow, 11, Guðmundur Bragason 5, Her-
mann Hauksson 3, Teitur Örlygsson 1.
Áhorfendur sem lögðu leið sína á
leikinn fengu ekkert fyrir aurana
sína því ókeypis var á leikinn.
Stúlkurnar unnu Kýpur
íslenska kvennalandsliðið heldur
sínu striki á leikunum og í gær-
kvöld vann það sinn annan sigur.
ísland sigraði þá lið Kýpur með 70
stigum gegn 52. Staðan í hálfleik var
40-25.
Stig Islands: Anna María Sveinsdóttir
20, Guðbjörg Norðfjörð 12, Erla Reynis-
dóttir 9, Linda Stefánsdóttir 8, Björg Haf-
steinsdóttir 6, Helga Þorvaldsdóttir 5,
Bima Valgarðsdóttir 4, Hanna Kjart-
ansdóttir 4, Kristín Blöndal 2.
-SK/VS
Rúnar með 3 gull
- í keppni á einstökum áhöldum fimleika
í gær var keppt til úrslita á ein-
stökum áhöldum í fimleikakeppni
Smáþjóðaleikanna. Átta stigahæstu
stúlkurnar kepptu á hverju áhaldi
og sex stigahæstu piltamir.
Keppnin var mjög spennandi og
úrslitin réðust ekki fýrr en á síð-
ustu sekúndum mótsins.
Rúnar Alexanderson náði öðru
sæti í gólfæfmgum karla. Hann
sýndi síöan stórkostlegar æfingar á
bogahesti, sigraði með yfirburðum
og hlaut hæstu einkunn sem gefin
var á mótinu, 9,00. Rúnar varð ann-
ar í æfingum í hringjum. Birgir
Bjömsson kom verulega á óvart og
varð þriðji í keppni á slá. Á tvíslá
sigraði Rúnar en Jón Trausti Sæ-
mundsson varð þriðji.
Rúnar Alexanderson vann þvi til
þrennra gullverðlauna i keppninni
á áhöldunum.
Þrjú brons hjá stúlkunum
Elín Gunnlaugsdóttir náði í
bronsverðlaun fyrir keppnina í gólf-
æfingum. Elva Rut Jónsdóttir varð í
6. sæti í stökki og Elín Gunnlaugs-
Borötennis karla:
Island-Liechtenstein ..........3-1
Ísland-Malta ..................1-3
Ísland-San Marínó..............0-3
Ísland-Kýpur...................3-0
Ísland-Lúxemborg...............2-3
Lúxemborg 15 stig, San Marínó 12,
Malta 11, ísland 9, Kýpur 5, Liechten-
stein 1.
Borótennis kvenna:
Ísland-Liechtenstein ..........3-0
Ísland-Malta ..................0-3
Ísland-San Marínó..............0-3
Ísland-Kýpur...................3-0
Ísland-Lúxemborg...............0-3
Lúxemborg 15 stig, Malta 14, San
Marínó 10, ísland 6, Kýpur 3, Liecht-
enstein 0.
Verðlaunin:
fsland Gull 19 Silfur 16 Brons 16
Kýpur 15 15 9
Lúxemborg 6 10 10
Mónakó 4 4 9
Malta 3 6 3
Liechtensteln 1 2 3
Andorra 1 1 6
San Marínó 1 0 4
Tvenn bronsverðlaun eru veitt í
nokkrum flokkum I júdó og þvi eru
þau fleiri en önnur verðlaun.
dóttir í 7. sæti. Elva Rut náði síðan
að vinna bronsverðlaun á tvíslánni.
Elva Rut varð einnig í þriðja sæti í
keppninni á slá og Eva Þrastardótt-
ir í 8. sæti.
Eftir mótið voru íslensku kepp-
endurnir ánægðir með árangur sinn
og þá kannski sérlega á síðari degi
mótsins.
Það má með sanni segja að ís-
lenska fimleikafólkið hafi staðið sig
mjög vel á þessum Smáþjóðaleikum
og sankað að sér verðlaunum. Alls
unnu íslendingar fjögur gullverð-
laun, tvenn silfurverðlaun og ellefu
bronsverðlaun. Verður ekki annað
sagt en það sé stórglæsilegur árang-
ur. íslenski fáninn var því dreginn
sautján sinnum að húni og fjórum
sinnum hlýddu áhorfendur á ís-
lenska þjóðsönginn og þá var kátt í
Höllinni.
Að endingu skal minnt á hátíðar-
sýningu Fimleikasambandsins í
Laugardalshöll í kvöld klukkan
átta. Þar sýnir aflt besta fimleika-
fólk leikanna listir sínar.
-AIÞ/-SGP
Rúnar Alexanderson náði frábærum
árangri í fimleikakeppni Smáþjóða-
leikanna í gær og vann til gullverð-
launa í þrígang. DV-mynd Pjetur
<■
María Sigurðardóttir og Ríkarður Sigfússon fylgdust að vonum grannt með syni sínum, Ríkarði Ríkarðssyni, í sundkeppninni í gær. Pau hvöttu sinn mann dyggilega
og fögnuðu vel þegar gullverðlaun og glæsilegt íslandsmet voru í höfn. Á litlu myndinni er Ríkarður með gullverðlaunin á pallinum. DV-myndir Pjetur
íslendingar eru sem fyrr sigursælir í sundi á Smáþjóðaleikum:
- glæsilegt íslandsmet hjá Ríkarði Ríkarðssyni í 100 metra flugsundi
íslenska sundfólkið á Smá-
þjóðaleikunum gerði það ekki
endasleppt á öðram keppnis-
degi í Laugardalslaug í gær.
íslendingar unnu átta gull-
verðlaun í þeim tíu sund-
greinum sem keppt var í,
fimm silfurverðlaun og tvenn
bronsverðlauna. Eitt glæsi-
legt íslandsmet leit dagsins
ljós, sex smáþjóðamet og tvö
landssveitarmet. íslenska
sundliðið stal senunni í
sólskini og blíðu, betra gat
það varla verið.
Ríkarður Ríkarðsson synti
100 metra flugsundið mjög vel
og uppskeran var eftir því,
nýtt íslandsmet sem Magnús
Ólafsson átti frá árinu 1993.
Ríkarð synti vegalengdina á
56,75 sekúndum og setti að
auki smáþjóðamet.
Sextán próf á undirbún-
ingstímabilinu
„Ég leyni því ekki að ég
stefndi að þessu. Eftir undan-
rásirnar fyrr um daginn fann
ég að ég átti möguleika á
þessu. Á hitt ber aö líta að
miðað við æfingar að undan-
fómu kemur þetta mér á
óvart. Ég var að ljúka stúd-
entsprófi sem stóðu yfir í sex
vikur og á þeim tíma tók ég 16
próf. Prófin komu óneitanlega
niður á æfingum og fyrir vik-
ið var þetta enn glæsilegra.
Þetta var alveg meiri háttrar
og stemningin í sundhópnum
og frábær," sagði Ríkarður
Ríkarðsson í samtali við DV
eftir sundið í gær.
Kolbrún Kristjánsdóttir
sigraði í 100 metra baksundi
og bætti gamla smáþjóðamet-
ið um 0,13 sekúndur.
Næ vonandi
lágmörkunum síðar
„Ég er i sjöunda himni með
þennan árangur. Ég var alltaf
ákveðin að vinna sigur og í
leiðinni reyndi ég við lág-
mörkin fyrir heimsmeistara-
mótið. Þau áform gengu því
miður ekki eftir í þetta skipt-
ið en það kemur vonandi síð-
ar,“ sagði Kolbrún Kristjáns-
dóttir við DV eftir sundið.
Öm Amarson sigraði 100
metra baksundi og bætti smá-
þjóðametið um 0,57 sekúndur.
Lára Hrund Bjargardóttir
sigraði í 400 metra skriðsundi
og bætti Smáþjóðametið um
1,85 sekúndur.
Þetta var alveg
yndislegt
„Þetta var alveg yndislegt.
Þetta var allan tíman tak-
mark hjá mér og það gekk eft-
ir. Ég er búin aðd æfa vel frá
miðjum apríl og sú vinna er
að skila sér núna,“ sagði Lára
Hrund við DV eftir sundið.
í 400 metra skriðsundi
karla vora Sigurgeir Hregg-
viðsson og Örn Arnarson
voru að synda nálægt sínum
bestu tímum.
Halldóra Þorgeirsdóttir
sigraði í 100 metra bringu-
sundi á ágætum tíma.
Hjalti Guðmundsson synti
100 metra bringusund vel og
sigraði að lokum sannfær-
andi.
í boðsundunum, þar sem
synt var 4x200 metra fjór-
sund, vann íslenska liðið tvö-
faldan sigur. Karlaliðið sigr-
aði með yfirburðum og setti
landssveitcU’met, bætti gamla
metið um 2,05 sekúndur.
Kvennaliðið setti einnig
landssveitarmet og ' bætti
gamla metið um 6,81 sekúndu.
Árangur sundfólksins ber
glöggt merki um mikinn upp-
gang í sundinu nú um stund-
ir. Sundið hefur að vísu ávallt
skóflað til sín verðlaunum á
Smáþjóðaleikum og svo ætlar
einnig að verða á heimavelli.
-JKS
íþróttir
Lúkas Kostic sagt upp störfum hjá KR:
n JIIJ I.
rm I mai t k-
mi 5 ei nfa 1 t“
- segir Haraldur Haraldsson, nýr þjálfari KR
Haraldur Haraldsson var i gær
í ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs
KR í knattspymu, um leið og Lúk-
1 asi Kostic var sagt upp störfum.
Uppsögn Lúkasar hafði legið í
| loftinu undanfarna daga þegar
Ijóst var að byrjun KR á íslands-
mótinu var langt frá því að vera í
I samræmi við væntingar. Guðjón
Þórðarson hafði verið sterkiega
| orðaður við starfið og ráðning Har-
alds kom því flestum mjög á óvart.
Bkvæmt heimildum DV var
rætt við Guðjón og ákveðið
iljóða af stjórn knattspymu-
iar að ráða Harald.
iraldur hefur aldrei þjálfað
taraflokk karla áður. Hann
r hins vegar þjálfað hjá KR í
r, meistaraflokk kvenna í tvö
; síðan 3. og 2. flokk karla.
að var ekki langur aðdragandi
;ssu og ég fékk skamman tíma
5 svara því boði sem ég fékk
um að taka við liðinu. Ég ákvað
strax að slá til og geri mér grein
fyrir því að ég tek á mig mikla
ábyrgð. Liðið er með sex stig eftir
fimm leiki, staðan er ekki eins góð
og vonast hafði verið eftir. Mitt
markmið er einfalt, það er að
vinna næsta leik sem er gegn
Keflavík. Lengra nær þaö ekki í
bili, við munum einbeita okkur að
einum leik í einu,“ sagði Haraldur
í samtali viö DV í gærkvöld.
Fjórir sigrar í fjórtán
leikjum
Lúkas Kostic tók við liði KR fyr-
ir tímabilið 1996. Þá gekk því allt í
haginn framan af sumri og var
með mjög góða stöðu, hafði unnið
átta leiki og gert eitt jafhtefli. En
frá þeim tima hefur lítið gengið,
KR tapaði kapphlaupinu við ÍA um
meistaratitilinn, og hefur byrjað
mjög iila á þessu tímabili. Af síð-
ustu 14 deildaleikjunum, frá miðju
síðasta sumri, hefur KR aðeins
unnið 4, gert 6 jafntefli en tapað 4
sinnum. Þetta er árangur sem
stjóm KR taldi óásættanlegan.
í fréttatilkynningu frá KR í gær-
kvöld sagði að mikil virðing væri
borin fyrir Lúkasi og þar færi góð-
ur drengur og hæfur þjálfari. Ár-
angurinn hefði hins vegar ekki
verið sem skyldi og því hefði veriö
ákveðið að gera þessar breytingar.
í sömu tilkynningu segir Lúkas
að hann hefði ekki gefist upp og
gjarnan viljað takst á við að.koma
KR á sigurbraut. Hann styðji KR
áfram og þegar stíflan í leik liðsins
bresti muni það springa út og
vinna flesta sína leiki.
Samkvæmt heimiidum DV var
talsverður kurr hjá leikmönnum
KR vegna þjálfaraskiptanna. Þeir
sátu á fundi langt frameftir í gær-
kvöld og ræddu málin. -VS/GH
Frjálsíþróttakeppnin á Smáþjóðaleikunum:
Óvæntur sigur
hjá Guðnýju
- og Pétur vann auðveldlega í aukabúgreininni
Það var frekar napurt á Laugar-
dcdsvellinum seinni partinn í gær
þegar frjálsíþróttafólkið gat loks
hafið keppni eftir að henni hafði
verið frestað á miðvikudaginn
vegna hvassviðris. Sólin reyndi þó
sitt ýtrasta til að hita keppendur og
gesti en mátti sín lítils gegn norð-
angolunni.
Fyrsta greinin á dagskrá var
stangarstökk karla þar sem íslend-
ingar áttu tvo keppendur, þá Sigurð
T. Sigurðsson, sem náði 3. sæti, og
Kristján Gissurarson sem varð
fjórði. Keppendur í stangarstökkinu
voru hins vegar allir nokkuð frá
sínu besta.
Pétur Guðmundsson átti ekki í
vandræðum með að innbyrða sigur-
inn í kringlukasti sem er þó í raun
hálfgerð aukabúgrein hjá honum
þar sem hann er nú mun þekktari
fyrir að kasta kúlunni. „Ég bjóst nú
við að þetta yrði erfiðari keppni. Ég
var um metra frá mínu besta enda
kannski ekki alveg kominn í topp-
form enn þá,“ sagði kappinn eftir að
hafa tekið við gullverðlaunum sín-
um.
Sigríður og Jóhannes fengu
silfur
í langstökki kvenna náði Sigríður
Anna Guðjónsdóttir öðru sætinu
með því að stökkva 5,85 m og bæta
þar með eigið met um 9 sm en vind-
urinn mældist líklega helst til of
mikill.
Báðir íslensku keppendumir í 100
m hlaupi karla, þeir Bjami Þór
Traustason og Jóhannes Már Mart-
einsson, komust í úrslit og þar náði
Jóhannes Már öðru sæti. „Já, ég er
alveg þokkalega sáttur. Það var
svona smá stífleiki í hlaupinu en
annað í lagi,“ sagði Jóhannes Már
um leið og hann kastaði mæðinni
eftir góðan sprett.
Guðný Eyþórsdóttir var samt sú
sem kom hvað mest á óvart íslensku
keppendanna í gær með því að sigra
í 100 m hlaupi kvenna. Keppt var
aðeins í einum riðli í þessari grein
og því aðeins eitt hlaup. Guðný, sem
átti fiórða besta tíma keppenda fyr-
ir hlaupið, hljóp geysilega vel og
kom nokkuð örugglega fyrst í mark
á tímanum 12,15 sek. sem er besti
tími hennar.
Lét mig dreyma um þriöja
sætiö
„Ég bjóst nú alls ekki við aö ná
fyrsta sætinu, lét mig svona dreyma
um það þriðja en þetta var æðislegt.
Það kannski hjálpaði mér að vera 4,
vanari að hlaupa í þessum kulda en
hinar en timinn var engu að síður
góður“ sagði Guðný brosandi út að
eyrum með gullið sitt um hálsinn
sem hún má svo sannarlega vera
stolt af.
Gamla brýnið Helga Halldórsdótt-
ir var einnig meðal keppenda en
náði ekki að skáka þeim yngri og
náði því ekki á verðlaunapall að
þessu sinni.
-ÖB
Iþróttir eru
einnig á
bls. 28
Knattspyrnuþjálfarar
óskast
Okkur vantar þjálfara strax fyrir 5. flokk karla og fyrir 8. flokk
(börn 5-6 ára). Nánari upplýsingar gefur Víðir í síma 898-8009.
Unglingaráö knattspyrnudeildar HK