Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1997
5
DV
Fréttir
Taka Sigurðar VE í Noregi:
Efast um skýring
ar stjórnvalda
DV, Ósló:
Norskir fjölmiðlamenn vita ekki
hverju þeir eiga að trúa í máli
skipstjórans á Sigurði VE. Þarf öll
þessi læti ef eitthvert vafamál er
með sendingu á einni pappirsörk?
Flestum þykir nóg um þvergirð-
ingsháttinn í strandgæslumönn-
unum norsku og norsk stjórnvöld
hafa átt fullt í fangi með að út-
skýra að viðbrögð Norðmanna séu
bara samkvæmt reglum.
„Venjulegir Norðmenn kalla
svona vinnubrögð smámuna-
semi,“ hefur Nordlands Fremtid í
Bodö eftir Helga Ágústssyni ráðu-
neytisstjóra. Þar er tekið svo til
orða að óveðursský hafi verið yfir
Helga þótt annars staðar í bænum
hafi verið heitasti dagur sumars-
ins.
í Nordlandsposten, hinu staðar-
blaðinu í Bodö, er talað um „grófa
valdsbeitingu" af hálfu Norð-
manna. Þar fær Helgi Ágústsson
einnig að útskýra málið frá sjónar-
hóli íslendinga.
Með fylgja svo skýringar nor-
skra embættismanna um að í einu
og öllu hafi verið farið að norsk-
um reglum.
í Norðurljósinu í Tromsö er sagt
að harka sé nú að hlaupa í gömlu
deiluna um fiskveiðar við Jan
Mayen. „Það stefnir í fiskveiði-
stríö við íslendinga," segir í blað-
inu og málið er síðan rakið í smá-
atriðum. M.a. kemur fram að allt
velti á hvort ákveðnir pappírar
hafi verið sendir norsku strand-
gæslunni eða ekki.
í Óslóarblöðimum hefur Sigurð-
armálið litla athygli hlotið. Morg-
unblöðin Arbeiderbladet og Aften-
posten nefna það bæði en ekki síð-
degisblöðin tvö, Verdens Gang og
Dagbladet. í sjónvarpsfréttum hef-
ur aðeins verið minnst á að „ís-
lenskur togari hafi verið færður
til hafnar í Bodö vegna gruns um
brot á fiskveiðireglugerð".
Norskir ráðamenn eru þögulir
um togaratökuna og láta tals-
mönnum sínum eftir að útskýra
það. Öll áhersla er lögð á að um
hefðbundið eftirlit sé að ræða en í
norður-norsku blöðunum kemur
skýrt fram að margir efist um að
svo sé. -GK
Skeytasendingar Siguröar VE náöu ekki til Norðmanna:
Fiskimenn hræddir vegna
komandi loðnuvertíðar
- segir Siguröur Einarsson, útgeröarmaöur Sigurðar VE
„Við rannsókn okkar á þessu kom
í ljós að skeytin höfðu verið send úr
tölvu skipsins en fyrir mistök höfðu
tvö þeirra ekki borist Norðmönn-
um,“ sagði Sigurður Einarsson, út-
gerðarmaður nótaskipsins Sigurðar
VE, í samtali við DV þar sem hann
var staddur i Bodö í gær. Hann segir
að eitt þeirra þriggja skeyta sem
Norðmenn sögðu ekki hafa borist
vera komið tO skOa. Hin tvö skeytin
hafi aldrei farið frá tölvu skipsins
þar sem rangt símanúmer hefði ver-
ið stimplað inn í forritið og skeytið
sent með 00 á undan sem á aðeins við
þegar hringt er frá íslandi. Sigurður
segir skipstjórann geta sýnt fram á
að reynt hafi verið að senda skeytin
og gervihnattafyrirtækið hafi gögn
sem sýni að reynt hafi verið að senda
tilkynningarskylduna. Kristbjörn
Árnason skipstjóri var í yfirheyrsl-
um hjá lögreglunni í Bodö í 5 klukku-
stundir í fyrrakvöld. Þá voru stýri-
menn skipsins yfirheyrðir i gærdag.
Sigurður segir að norskir fiski-
menn í Bodö séu mjög undrandi á
framgöngu strandgæslunnar í mál-
inu og meðal þeirra gæti kvíða vegna
Árni Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, og Helgi Ágústsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu-
neytinu, eru í Noregi vegna Sigurðarmálsins. íslensk stjórnvöld eru ævareið vegna málsins sem ber öll merki þess
að vera stórmál af litlu tilefni. Hér eru þeir á höfninni í Bödö. DV-mynd NTB
loðnuvertíðar sem hefjist þann 1. þessu máli. Þetta truflar þá mikið vegna. Þeim finnst þetta aUt mjög
júlí. þar sem þeir eru að hefja loðnuveið- ósanngjamt og viðbrögðin harkaleg,"
„Fiskimenn hér eru mjög hissa á ar þann 1. júlí og eru hræddir þess segir Sigurður. -rt
Sigurðarmálið:
Gæti haft
afleið-
ingar
fyrir norsk
skip
- segir utanríkisráðherra
„Við viljum hafa þessi sam-
skipti í eðlOegu formi og höfum
enga löngun tO þess að vera aö
gera mönnum sem stunda sjó lífið
leitt. Það hefur verið afstaða ís-
lenskra stjórnvalda aUa tíð. Ef
Norðmenn ætla að innleiða nýjar
samskiptareglur fer ekki hjá því
að það hafi afleiðingar fyrir
þeirra eigin skip,“ segir HaUdór
Ásgrímsson utanríkisráðherra
vegna töku nótaskipsins Sigurðar
í lögsögu Jan Mayen.
HaUdór segir að beðið sé skýr-
inga Norðmanna á töku skipsins.
„Það skiptir miklu máli hvaða
útskýringar við fáum á þessu frá
Norðmönnum," segir hann.
HaUdór segist hafa rætt viö
Bjorn Tore Godal starfsbróður
sinn í Noregi um málið.
„Viö erum alltaf vanir að tala
saman þegar eitthvað kemur upp
á og gerðum það á laugardaginn.
Við bíðum úrskurðar lögregluyf-
irvalda," segir Halldór Ásgrims-
son. -rt
Ungur drengur í sjávarháska:
Bjargað úr þyrlu á síðustu stundu
Hjalti Már Brynjarsson, 17 ára Njarövíkingur. Honum var bjargaö í þyrlu
Landhelgisgæslunnar á sföustu stundu. DV mynd Ægir Már.
DV, Suðurnesjum:
„Ég var orðinn rosalega þreyttur
og kaldur, fann ekki fyrir höndum og
tám. Þá var búningurinn farinn að
leka og fótin orðin rennandi blaut.
Ég var farinn að halda að mér yrði
ekki bjargað. Farinn að hugsa um
dauðann og um leið það góða í lífi
mínu,“ sagði Hjalti Már Brynjarsson,
17 ára Njarðvíkingur, sem lenti í
sjávarháska þegar drapst á sjósleöa
hans við Keflavík 7. júní.
Atvikið átti sér stað í slæmu veðri,
7 vindstigum og miklum öldugangi
við Vatnsnesið, þar sem stórir klettar
eru. Fjöldi manns, björgunarsveitar-
menn, lögregla og vinir Hjalta horfðu
á án þess að geta veitt honum aðstoð.
Hjalti var í þurrbúningi og björgun-
arvesti. Hann rak hratt að landi og
það sem gerði það að verkum að
hann fór ekki upp í klettana var ffá-
kast sem myndaðist frá þeim. Hjalti
barðist fyrir lífi sínu. Lögreglan kall-
aði á aðstoð þyrlu Landhelgisgæslu
sem var eina vonin í stöðunni.
„Sigmaðurinn lagði sig í hættu við
að bjarga mér. Hann fór í kaf þrisvar
og alda fór yfir hann. Ég er afar
þakklátur honum og áhöfninni á
þyrlunni. Vinur minn segir að ég
hafi verið í 90 mínútur í sjónum,"
sagði Hjalti. Áður hafði Ólafur
Björnsson, trillukarl í Keflavík, reynt
björgun. Hann lagði sig og bátinn í
mikla hættu og mátti ekki tæpara
standa. Hann reyndi að koma taug til
Hjalta en vantaði herslmmminn. Þá
reyndu björgunarsveitarmenn að
koma taug í bátinn en án árangurs.
Björgunarbátur Björgunarsveitar-
innar Suðumes í Reykjanesbæ var
bilaður.
„Við hringdum í sveitina og þá var
okkur tjáð að bátur þeira væri bilaö-
ur. Við hringdum um allt til að fá bát
og við það tafðist björgun Hjalta. Við
náðum í Ólaf en vegna misskilnings
fór hann einn út. Hann reyndi allt til
að bjarga Hjaita og lagði sig i mikla
hættu. Þyrlusveitin sannaði enn og
aftur ágæti sitt. Það var það eina í
stöðunni til að bjarga Hjalta og mátti
ekki tæpara standa. Lögreglumaður
klifraði niður klettana til að láta
hann vita að þyrlan væri á leiðinni.
Mikilvægt var að koma þeim boðum
til Hjalta," sagði John Hill, lögreglu-
fulltrúi í Keflavík.
„Ég fór frá smábátahöfninni Gróf og
ætlaði á sjósleðanum yfir í Njarðvík.
Vinur minn fylgdi mér eftir í landi
alla leið. Þegar hann sá hvað gerðist
bað hann um aðstoð. Veðrið versnaði
og var komið slæmt veður þegar sjór
fór inn á blöndunginn og drapst á sleð-
anum. Ég kom honum ekki í gang. Ég
var um 30 metra frá landi og hélt
dauðataki í sleðann. Þannig gat ég
haldið höfðinu upp úr sjó en öldumar
veltu sleðanum oft. Ég fékk þungt
högg í andlitið þegar stýrið fór í mig
og fékk högg í fæturna þegar sleðan-
um hvolfdi. Ég fór nokkrum sinnum i
kaf,“ sagði Hjalti. Hann var fluttur á
Sjúkrahús Reykjavíkur en fékk að fara
heim um kvöldið.
Foreldrar Hjalta vora í sumarbú-
stað í Borgarfirði þegar óhappið
varð. „Þegar við fréttum hvað gerðist
urðum við skelfingu lostin. Við ruk-
um af stað strax suður og hjörtun
slógu hraðar en venjulega," sögðu
foreldrar Hjalta, Brynjar Ragnarsson
og Elísabet Þóröardóttir. -ÆMK