Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1997 7 Fréttir Bifreiðastjórafélagið Sleipnir: Verkfall hefst á miðvikudagskvöld f - takist samningar ekki á sáttafundi sem hefst í dag „Ég tel að það komi í ljós á fundinum á morgun (í dag) hvort samningar takast fyrir miðvikudagskvöld en þá hefur verkfall verið boðað, takist ekki samningar fyrir þann tíma. Þeg- ar síðasta fundi var slitið, fyrir tæpum hálfum mánuði, bar mjög mikið í milli, enda kröfur þeirra talsvert háar,“ sagði Bolli Árnason hjá Vinnuveit- endasambandinu um kjaradeilu Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis og viðsemjenda þeirra. „Því er ekki að neita að það bar töluvert á milli þegar sið- asta samningafundi var slitið. Við höfum fært fram rök fyrir okkar kröfum vegna skerts vinnutima bifreiðastjóra í Nokkur átök uröu í síðasta verkfalli Sleipnismanna fyrir tveimur árum. Myndin var tek- in er rúta var stöðvuö á Rauðarárstíg í Reykjavík. tengslum við hvíldartímaá- kvæði EES-samningsins en það er eitt erfiðasta atriðið í samn- ingunum," sagði Óskar Stefáns- son, formaður Bifreiðastjórafé- lagsins Sleipnis, í samtali við DV. Félagar í Sleipni aka áætlun- arrútum, strætisvögnum í Kópavogi, Mosfellsbæ og Hafii- arfirði og hópferðabifreiðum landsins. Nú er ferðamanna- straumurinn tekinn að þyngj- ast og því myndi verkfall bif- reiðastjóra setja margt úr skorðum. Aðalágreiningsmálið í þess- um samningum er, eins og Óskar og Bolli segja, þær launabætiur sem bifreiðastjór- Starfsfólk í veitingahúsum samdi í gær: Enn eru óafgreidd 28 mál hjá ríkissáttasemjara ar vilja fá vegna þess að nú mega þeir ekki vinna ótakmarkaða yfir- vinnu eins og áður. Þegar ferða- mannastrarunm-inn er mestin- hef- ur verið mikil vinna hjá rútubíl- stjórum, eins konar vertíð. Þar sem ekki er leyfilegt lengur að vinna ótakmarkað er fyrirsjáan- legt töluvert tekjutap hjá bifreiða- stjórunum. -S.dór Gott úrval af KfjjliJMgU - óslitin törn hjá embættinu frá því um áramót, segir sáttasemjari Cortina Sport Skólavörðustíg 20 „Það eru enn óafgreidd 28 mál hjá okkur og ég efast um að það hafi nokkru sinni staðið yfir jafn löng samningatöm hjá ríkissáttasemj- araembættinu og verið hefur í ár. Sú töm hefur varað alveg frá ára- mótum. Þær em ekki margar helg- arnar sem starfsfólkið hér hefur átt frí það sem af er árinu,“ sagði Þórir Einarsson ríkisstáttasemjari í sam- tali við DV í gær. Þegar rætt var við sáttasemjara var nýbúið að semja við starfsfólk í veitingahúsum og Þórir sagðist von- góður um að samningar væru að takast við háskólakennara og hjúkr- unarfræðinga. Meðal félaga og hópa sem enn er eftir að semja viö má nefna sjó- menn, lögreglumenn, sálfræðinga, náttúrufræðinga, háskólamenn í Út- garði, félagsvísindamenn, félagsráð- gjafa, meinatækna, sjómenn á Vest- fjörðum, röntgentækna, múrara, bókasafnsfræðinga, flugfreyjur, starfsfólk á Sólheimum, sjúkraliða, hágreiðslufólk, iðnaðarmenn hjá garðyrkjubændum, Sleipni, starfs- fólk á sjúkahúsinu í Keflavík, leik- skólakennara, sem hafa þegar boðað verkfall, ljósmæður, flugmenn, sem eru í samningum við Flugfélag ís- lands, póstmenn og símamenn, sem voru áður opinberir starfsmenn, starfsfólk á sjúkrahúsinu á Húsa- vík, leiðsögumenn og nokkra aðila á Fáskrúðsfirði. Þórir Einarsson segist efast um að það takist að ljúka öllum þess- um málum fyrir mitt sumar og því gætu einhver þeirra þurft að bíða haustsins vegna sumarfría. Hann Kjarasamningar HÍK og KÍ undirritaðir: Nýtt vinnutímakerfi „Mestu nýmæli samningsins eru endurskilgreining vinnutím- ans, sem við höfum kallað nýtt vinnutímakerfi. Þar er bæði brugðist við fjölgun kennsludaga og breyttum aðstæðum vegna framhaldsskólalaganna. Með samningnum er margt auk þess fært í nútímalegra horf,“ segir Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Hins íslenska kennarafélags, um nýja kjarasamninga HÍK og Kemiarasambands íslands við rík- ið, sem undirritaðir voru hjá ríkis- sáttasemjara um klukkan 5 á laug- ardagsmorgun. Störf betur skilgreind „Allt vinnutímakerfi samning- anna .er nýtt. Launakerfið hefur fram að þessu veriö grundvallað á kennslunni einni en með þessum kjarasamningi eru störf kennara betur skilgreind og skiptast nú skýrar en áður í kennslu, próf og önnur störf, þar sem hver starfs- þáttur er metinn fyrir sig. Störf umsjónarkennara eru auk þess betur metin og nokkur bót ráðin á endurmenntun kennara," segir Elna Katrín. Taxtar hækka almennt um 16% á samningstímanum en samning- urinn gildir frá 1. maí til loka nóv- ember árið 2000. „Við lögðum að vísu upp með kröfu um mun styttri samningstíma en á móti kemur að með þessum samningi fylgja bókanir um árlega endur- skoðun á þessu nýja vinnutíma- kerfi og áhrifum þess. Eins er brugðist við breytingum sem við vitrun að eru í uppsiglingu í skóla- kerfinu, t.d. breytinginn á nám- skrá framhaldsskólans og breyt- ingum í þá átt að stytta framhalds- skólann og bjóða sumamám. Verði slíkar breytingar innan samnings- tímans kallar það á sérstakt sam- komulag við kennarafélögin,“ seg- ir Elna Katrín enn fremur. Samningurinn gerir kennurum auðveldara að mæta breytingum í skólastarfinu, t.d. á samspili kennslu og prófa. Fjölgun kennslu- daga hefur valdið því að vorönnin er nokkuð lengri en haustönnin. Til að ráða bót á því er í samningnum veitt heimild til að hliðra skólaár- inu. Heimilt verður að hefja skóla- árið 20. ágúst og ljúka í kringum 20. maí. Eftir sem áður er skólaárið níu mánuðir. Aukin áhersla verður lögð á sí- mat í námi, þar sem með fjölgun kennsludaga er þrengt að prófum í lok annar. sagði það hins vegar afar æskilegt ingum áður en sumarfríatíminn að geta lokið öllum þessum samn- hæfist. -S.dór Sími 552 1555 2-13 júní seljum við silkiblómin og trén okkar á hreint frábœru verði. Falleg silki- blómfegra og lífga upp á umhverfið hvaða tíma árs sem er. Mikið og fjölbreytt úrval. Komið og gerið góð kaup Opið : Má til Fi 9-18 Föstudaga 9-19 Bíldshöfða 20-112 Reykjavík - Sími 510 8020 -VÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.