Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1997 Tilveran í reiðskóla: Hott Feðgarnir Bjarni E. Sigurðsson og Daði Bjarnason keyptu nú í vor reiðskóla afFáki og ÍTR og reka hann á eigin vegum í Reiðhöllinni í Víðidal. Þeir auglýstu í smáauglýsingum DV eftir hestum og fengu mjög góðar viðtökur. Bjarni segir greinilegt að allir vilji hjálpa til og sama kvöld og auglýsingin hirtist voru þeim gefnir þrír hnakkar og hoðnir átta hestar að láni. Fyrsta námskeiðið hófst 2. júní og höfðu þeir þá fengið 25 hesta að láni. Krökkunum í reiðskólanum Þyrli finnst öllum mjög gaman. DV-myndir S Isumar verða námskeiðin sjö talsins og stend- ur hvert í tvær vikur. 60 krakkar á barnaskólaaldri eru á hverju nám- skeiði og bæði byrjenda- og framhaldsnámskeið eru í boði. Hverju námskeiði er skipt í sex hópa. Þrír hópar eru fyrir hádegi og þrir síðdegis. Námskeið- ið er haldið í samvinnu við kirkjuna þannig að þeir sem vilja eru á reiðnámskeiðinu annan hluta dags- ins og á leikjanámskeiði í Árbæjarkirkju hinn hlut- ann. Á reiðnámskeiðinu er krökkunum kennd almenn umhirða hesta, s.s að kemba þá og leggja á en einnig læra þeir bókleg fræði um gangtegundir, hestaliti o.fl. Aðalatriðið og það sem krökkunum þykir mest spennandi er náttúrlega að fá að fara á hestbak og eftirvæntingin í augum krakkanna leyndi sér ekki er blaðamann DV bar að garði. -me Langar að eignast Stjörnu Erna Ósk, 8 ára, ætlar að eignast hest þegar hún verður stór. r n a Ó s k e r ein þeirra sem eru á r e i ð n á m - skeiðinu í Víðidal. Hún er átta ára gömul og í Ártúnsskóla. Þetta er í fyrsta skipti sem Ema fer á reiðnám- skeið en hún hefur komið n o k k r u m sinnum á hestbak þar sem mamma hennar átti einu sinni hest. Ema er með Berglindi vin- konu sinni á námskeiðinu og þeim finnst báðum ofsalega gaman. Þegar Erna verður eldri langar hana til þess að eignast hest og nefna hann Stjörnu. Þegar námskeiðinu lýkur fer Erna á myndlistarnámskeið og einnig ætlar hún að fara í heimsókn til Hríseyjar. -me Kátir krakkar á hestbaki og enginn er hræddur. Islenski hesturinn ennistoppur snoppa ílipí kjálkabarð kverk háls bógur bringa olnbogi sperrileg framhné framfólarleggur kjúkuliður kjúka hófur makki heröakambur spjaid- hryggur lend læri stertur (lær)hné Heiraild: ÍSLENSKA ALFRÆÐIORÐABÓKIN. Öm og Örlygur tagl konungsnef ----hækill afturfótarleggur hófskegg kjúkubót hófbrún Reynir Viðarsson, 6 ára, með hestinn Stjörnu. Ætlar að verða lögga Reynir Viðar, sem er sex ára, er með systur sinni, írisi Ósk, átta ára, á reið- námskeiðinu. Reynir segist ekki vera vanur hestamaður en hann hefur þó komið tvisvar sinnum áður á hestbak. Reynir er í ísaks- skóla og þrátt fyrir að það sé gaman í skólanum fmnst honum mjög gott að vera kominn í sumarfri. Þegar Reynir er búinn á nám- skeiðinu ætlar hann að fara að æfa karate og þegar hann verður stór ætlar hann að verða lögga og hesta- maður. -me

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.