Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1997
„Konur stóðu jyrir gerð þessarar fyrstu götu á Króknum
1897-1905, skemmtistíg suður úr bænum, sem nefndur var
Frúarstígur. Karlafélög á Króknum gáfu kvennafélögum
þennan stein í tilefni afmælishaldsins árið 1997. Steinninn
var afhjúpaður 19. júní 1997," stendur á skilti sem prýða
mun stuðlabergsstrang, sem karlafélög á Sauðárkróki hyggj-
ast gefa kvennafélögum bæjarins á kvennadaginn 19. júní.
Með afhjúpun þessa minnisvarða um Frúarstíginn opnar
sýningfimm kvennafélaga á Sauðárkróki, sem kallast Konur
á Króknum. Tilveran fór á Sauðárkrók og grennslaðist fyrir
um þessa sýningu.
lannlíf
Sauðárkróki
Konur á Króknum
ýningin Konur á Króknum
fjallar um sögu húsmæðra
á Sauðárkróki í gegnum
tíðina og er þema hennar þvotta-
störf kvennanna. Básar verða settir
upp í gamla íþróttahúsinu þar sem
gefin verða sýnishorn af þvottaað-
stöðu kvenna í bænum á um 20 ára
bili, frá stofnári bæjarins 1871 til
ársins 1971. í hverjum bás hanga
snúrur með þvotti sem á er húið að
prenta myndir af konum úr blöðum,
gamlar auglýsingar sem beint er til
kvenna og annað í þeim dúr.
Básamir eiga að sýna þróunina
sem verður á þvottaaðstöðu frá bala
og þvottabretti til handknúinna
þvottavéla, rulla, saumavéla og loks
rafknúinna heimilistækja. Fyrsti
básinn er merktu árinu 1871, þegar
byggð hófst á Sauðárkróki. Þá
þvoðu konumar í bala og fóru þvott-
amir jafnt fram úti sem inni. Síð-
asti básinn sýnir svo þvottaaðstöð-
una hundrað ámm síðar þegar
tækjamenningin er í algleymi. Aðr-
ir básar sýna t.d. breytingamar sem
verða þegar vatn kemur inn í húsin
1912, rafmagn til ljósa 1922 og þegar
almenn notkun rafmagns verður
1949.
Á efri hæð hússins verða konum-
ar með kafflstofu sem þær nefna
Guðrúnarlund eftir Guörúnu frá
Lundi. Þar verður selt kaffi og
lummur að hætti Guðrúnar frá
Aö undanförnu hefur veriö unnið sleitulaust aö undirbúningi sýningarinnar Konur á Króknum. Helga
Sigurbjörnsdóttir fyrir Kvenfélag Sauöárkróks, Jón Þórisson, hönnuður sýningarinnar, Sigurlaug
Magnúsdóttir fyrir Ifur, menningar- og framfarafélag kvenna á Sauöárkróki og Aðalheiöur Arnarsdótt-
ir fyrir Lionsklúbbinn Björk standa hér fyrir framan líkan af sýningunni en þau vinna aö undirbúningi
hennar. Á myndina vantar Maríu Lóu Friöjónsdóttur fyrir Soroptimistaklúbb Skagafjarðar og Önnu
Halldórsdóttur fyrir Verkakvennafélagið Ölduna.
Sauökrækingurinn Guörún frá Lundi skrifaöi
ódauölegar bækur. Minningu hennar veröur haldiö
á lofti á sýningunni Konur á Króknum.
Lundi. Auk
þess verða
þar hengdir
upp ýmsir
hlutir sem
t e n g j a s t
henni og
þar fer
einnig fram
kynning á
þeim klúbb-
um og félög-
um sem
standa að
sýningunni.
Fyrir utan kaffistofuna verða sýnd-
ir listmunir eftir konur frá Krókn-
um.
Opnunarhelgina verða ýmsar
uppákomur á kvöldin. Aðalheiður
Ormsdóttir flytur erindi um upphaf
kvennahreyfingar í Skagafirði,
Helga Kress segir frá skáldkonum á
Sauðárkróki, Ásdís Guðmundsdótt-
ir verður með fyrirlestur um verka-
lýðsfélög og verkalýðsmál og loks
mun Vanda Sigurgeirsdóttir flytja
erindi um konur og íþróttir. Inn i
þessa dagskrá verður fléttað söng og
hljóðfæraleik. -VÁ
„Altmuligmand
Jf
Ég fæddist hér á Króknum
M áriö 1971 þegar Sauðárkrók-
ÉMur varð hundrað ára. Ég er
hálfúr Handavatnamaður og hálfúr
Sauðkrækingur. Það er mjög góður
kokkteill - hagyrðingarnir og hesta-
mennimir," segir Jón Oddur Þór-
hallsson sem kallar sig „alt-
muligmand" á nafnspjaldi sínu en
Tilveran hitti hann á Kaffi-Krók á
dögunum. Jón Oddur er fiskeldis-
fræðingur frá Bændaskólanum á
Hólum.
Hann er í
björgun-
arsveit
og starfar
sem um-
sjónar-
m a ð u r
unglinga-
deildar
Skagfirð-
ingasveit-
ar. Auk
þess hef-
ur hann
u n n i ð
sem meðferðar- og uppeldisfulltrúi
hjá svæðisskrifstofu fatlaðra á
Norðurlandi vestra og segir það
starf mjög gefandi en kannski ein-
um of krefjandi.
„Ég hef ort í leynum ef svo má
segja. Mest yrki ég ferskeytlur, sem
fjalla um líf mitt. Ég er um þessar
mundir að gefa út ljóðabók en fyrsta
ljóðið í bókinni heitir Lífsmottó."
Lífsmottó
Að eiga lipran Landrover er gott
og lífsglaða konu þá betra,
tölvu undir Ijððin sín ogjlott
°g fjórgangshest sjö vetra.
Eigir þú svo óðalsjörð,
arin, gítar, speki og hund,
fógur böm og frjóan svörð,
fullnuð er þín óskastund.
í ljóðahók Jóns Odds verða eink-
um ferskeytlur og óhefðbundnar
þulur.
Jón Oddur Þórhallsson „altmuligmand"
Netto
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
Danskar baðinnréttingar í'
miklu úrvali. Falleg og
vönduð vara á vægu verði.
tFOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420