Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1997
Neytendur
Tími viðarvarnar upprunninn:
KVH afftur með
besta verðið
Samkvæmt samanburði á verði
nokkurra viðarvarnarefna dagana
27.-30. maí kom í ljós að Kaupfélag
Vestur-Húnvetninga býöur lægsta
verðið af þeim sem leitað var til.
Fyrri hluti verðkönnunarinnar var
birtur á neytendasíðu DV síðastlið-
inn fostudag. Þar kom fram að ódýr-
asti málningarlítrinn fékkst einnig
á Hvammstanga.
Texolín frá Sjöfn kostaði 600 kr.
lítrinn af vo.furu en þ.kaffibrúnt
kostaði 755 kr. á Hvammstanga. í
fjögurra lítra fötu kostaði lítrinn af
vo.furu 517 kr. og 666 kr. af þ.kaffi-
brúnu. Kaupfélag Héraðsbúa á Eg-
ilsstöðum var með næstlægsta verð-
ið á vo.furu, 615 kr., en þ.kaffibrúnt
var 36% dýrara en furuliturinn á
839 kr.
SG á Selfossi var meö hæsta verð-
ið á Texolín-viðarvöminni. Vo.fura
kostaði 824 kr. og þ.kaffíbrúnt var á
979 kr.
Kjörvari frá Hörpu var ódýrastur
hjá KASK, þar fæst hann í 4 lítra
fótu með 25% sumarafslætti á 2.112
í viðarlitum en í þekjandi litum
2871 kr.
1.000 kr.
800
600
400
200
Viðarvörn, 1 lítri
_ * io
Litaver Bykó SG Húsasmiójari KHB KVH KEA KASK
Reykjavík Reykjavík Selfossi Reykjavík Egilsstöðum Hvammstanga Akureyri Höfn
ED Texolín, Sjöfn
vo.fura
C3 Texolín, Sjöfn
þ.kaffibrúnt
B* Kjörvari
Viöarlitir
□ Kjörvari
Þekjukjörvari
1—1 Trebitt
Trebitt DB
Viðarvörn, 4 lítrar
4.000 kr.
3.000
2.000
1.000
£39
O
ir>
n-cm10.
'SÚ?”
oooi,
CNI
LD
r-
oco
r-
c4|
H00(on r^-n
m 1
Litaver
Reykjavík
Bykó
SG
KHB
KVH
KEA
Reykjavík Selfossi Egilsstöðum Hvammstanga Akureyri
KASK
Höfn
CH Texolín
vo.fura
CH Texolín,
þ.kaffibrún
m Kjörvari
Viðarlitir
CU Kjörvari
Þekjukjörvari
Málun á
tréverk
Áður en viðurinn er málaður
þarf að gæta þess aö hann sé vel
þurr. Rakastig viðarins þarf að
vera fyrir neðan 20% og pússa
þarf alla lausa málningu burtu.
Einnig þarf að fjarlægja allan
gránaðan (feyskinn) við, en
hann er óbundinn og laus í sér.
Því tollir málning ekki við hann.
Gæta þarf vel að því að bera
viðarvöm vel á alla enda. Gagn-
varinn við er best að láta standa
í 2-3 mánuði áður en á hann er
borin viðarvöm. Varast ber að
veija viðinn eingöngu með glær-
um viðarvamarefnum því að þá
á niðurbrot sólarljóssins greiða
leið að viðnum.
Ófúavarinn viður
Þekjandi áferö:
1. Hreinsa vel og þurrka.
2. Dýfa viönum í eða bera vel á
hann gmnnfúavöm.
3. Mála 1 umferð með glærri
viðarolíu, þynntri 5-10% með
terpentínu.
4. Mála 1 umferð með þekjandi
viðarvöm.
5. Mála 1 umferð með akrylhúð.
Hálfþekjandi áferö:
1. Hreinsa vel og þurrka.
2. Dýfa viðnum í eða bera vel á
hann grunnfúavöm.
3. Mála 2 umferðir með viðarolíu
litaðri, þynntri 5-10% með
terpentínu.
4. Mála 1 umferð með akrylhúð.
Húsasmiðjan var ekki með ís-
lensku vömmerkin Texolín og Kjör-
vara í sinni verslun en bauð upp á
Trebitt-vöm á 793 kr. í viðarlitum
og þekjandi á 995 kr. lítrann.
Flestar verslanirnar em með við-
arvamarefnin á tilboði sem stendur
eitthvað fram eftir sumri. KVH,
KHB og KASK bjóða 25% sumaraf-
slátt, KEA er með tilboðsafslátt og
Litaver býður 15% afslátt. Aðru
þátttakendur í verðkönnuninni
bjóða lægri afslátt af viðarvöm.
Framkvæmd könnunarinnar
Viö framkvæmd verðkönnunar-
innar var verslununum sendur
vörulisti þar sem viðkomandi versl-
unarstjóri var beðinn að fylla inn
rétt verð vörunnar eins og við-
skiptaviniu'inn fær hana og undir-
rita síðan vörulistcmn til staðfest-
ingar.
Á markaðnum eru mun fleiri teg-
undir af fúavörn en neytendasíða
DV kannaði. Eingöngu var spurt
um verð, ekki efni, umhverfisvæni
eða gæði. -ST
Veöraöur viður:
1. Hreinsa vel og þurrka.
2. Væta viðinn með grannfúa-
vöm.
3. Grunna með viðarolíu glærri
þynntri 5-10% með terpentínu.
4. Mála 1 umferð með viðarolíu
litaðri eða þekjandi viðarvörn.
5. Mála 1 umferð með akrylhúð.
Málaöur viöur:
1. Skafa alla lausa málningu og
láta þoma.
2. Gmnna með glærri viðarolíu,
þynntri 5-10% með terpentínu.
3. Mála 2 umferðir með akryl-
húð.
Sólpalla og lárétta fleti skal
metta með litaðri viðarolíu,
þynntri til helminga með
terpentínu. Oftast er nægjanlegt
að bera 2-3 umferðir á flötinn.
Varast ber að láta svo mikið á
flötinn að málningarhúð mynd-
ist ofan á honum. Viðhaldið síð-
an vörninni með því að bera á
flötinn einu sinni til tvisvar á
sumri.
Virkt verölagseftirlit
Neytendasamtökin, ASÍ og BSRB
hafa undirritað samkomulag um
verðlagseftirlit á öllu landinu.
„Með þessu er stefnt að því að
veita framleiðendum, innflytjend-
um og smásölum í landinu aukið
aðhald í verðlagsmálum og veita
neytendum upplýsingar um verð,
verðmismun og auka verðskyn
þeirra. Þá eru neytendur hvattir til
að fylgjast með verðlagi og gefst
þeim kostur á að leita á ákveðinn
stað vegna kvartana á verði og/eða
þjónustu," segir Grétar Þorsteins-
son, forseti ASÍ.
Verðlagseftirlitið verður með
síma fyrir neytendur, 562 5000 og
800 6250, grænt númer, þar sem tek-
ið verður við ábendingum um verð-
hækkanir og óeðlilega álagningu.
„Samstarfsaðilar verðlagseftir-
litsins setja markið hátt,“ segir Jó-
hannes Gunnarsson, framkvæmda-
Viö undirritun samkomulags ASÍ, BSRB og Neytendasamtakanna. Grétar
Þorsteinsson, forseti ASÍ, Drífa Sigfúsdóttir, formaöur Neytendasamtak-
anna, Ögmundur Jónasson, formaöur BSRB, og Jóhannes Gunnarsson,
framvæmdastjóri Neytendasamtakanna. DV-mynd JAK
stjóri Neytendasamtakanna. Meðal
þess sem eftirlitið mun undirbúa
eru verðkannanir á dagvörum,
einkum á svæðum þar sem fá-
keppni er, sérvörum, þjónustu
einkaaðila og opinberra aðila.
Samningsaðilar munu skipa sex
manna starfshóp til að stýra verk-
efninu, tveimur fulltrúum frá hverj-
um aðila. Hópurinn mun bera
ábyrgð á daglegum rekstri, ákveða
helstu verkefni og halda utan um
fjárhagslega hlið rekstursins. Starfs-
hópurinn mun ráða starfsmann sem
verður á skrifstofu Neytendasam-
takanna.
Samstarfið nær til eins árs og er
ætlað að vera virkt á öllu landinu.
Neytendasamtökin munu hýsa
starfsemina en ASÍ og BSRB munu
leitast við að afla fjár, meðal annars
frá aðildarfélögum sínum, til verk-
efnisins. -ST
(Birt með leyfi frá Sjöfn úr
bæklingnum Vorið kallar)
-ST
KASK með
25% afslátt
Eftir að verðkönnun neyt-
endasíðunnar var birt síðastlið-
inn föstudag, hafði Elvar Grét-
arsson, aðstoðarverslunEirstjóri
hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfell-
inga, samband við blaðið. I ljós
kom að hjá KASK er í gildi 25%
afsláttartilboð á allri útimáln-
ingu. Þannig er lítrinn af
Hörpusilki, hvítir litir og stofn
2, á 654 kr. í stað 872 kr. áður.
Útitex frá Sjöfn kostar 725 kr.
lítrinn í stað 966 kr. áður, allir
stofnar.
4 lítra fatan af Hörpusilki
kostar nú 2.539 og sama stærð
af Útitex kostar 2.699 krónur.