Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Qupperneq 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 10. JUNI 1997
Stutt öfganna
Óhætt er að segja að hártískan hafi tekið nokkrar dýf-
ur ígegnum árin. Það sem þykir flottast eitt árið er e.t.v.
það sama og engin manneskja með tískuvitund myndi
láta sjá sig með nokkrum árum síðar. Sé litið til baka
um 20 ár eða svo má sjá hversu örar breytingarnar
á milli
hafa orðið, auk þess sem
augljóst er að hártískan, eins
og önnur tíska, fer í ótal
hringi.
Oftar en ekki hafa það
verið þekkt nöfn sem komið
hafa afstað tískubylgjum og
hér má sjá nokkrar hár-
greiðslur sem öðluðust vin-
sældir í hinum vestræna
heimi.
1976
sannaðisöngkonan
með englaröddina, Barbra
Streisand, að hvítar konur gætu
verið með afró-hár. Barbra skartaði
þessu hári í kvikmyndinni A Star
Is Born og í kjölfarið kættust
permanentframleiðendur mjög,
enda varð greiðslan mjög vinsæl.
1979 dáleiddi kynbomb-
an Bo Derek karlpeninginn þegar
hún hljóp um á ströndinni í kvik-
myndinni 10 ásamt Dudley Moore. í
dag eru þessar sömu afrófléttur aft-
ur orðnar vinsælar og eru þær oft
gerðar með aðstoð gervihárs.
12
var líkamsræktar-
og eróbikkæðið í hámarki. Lykilat-
riðið það árið voru hárbönd af öll-
um stærðum og gerðum, til nota
jafnt i leikfíminni sem utan dyra.
Muna ekki allir eftir Jane Fonda og
Oliviu Newton-John?
1985 ákvað Madonna að
líkja eftir Marylin Monroe í mynd-
bandinu við lagið Material Girl.
Þessi kvenlega og gamaldags
Þu Qðð'fcit8 unmð Q|lð9sII©Q|3i vmnmQðí hjð
Skátabúðinni sem dregnir verða út
vikulega eða Caiii|íi,*IpBet,“i^.pi|ioIlo Lux -
tjaldvagn frá Gísla jónssyiui hf
Scarpa Advance
Vandaðir teðurgönguskór
með Gore-Tex vatnsvöm
og vettísóta aö verðmæti
15.990 kr.
Rikulega búinn tTm2 Camp-Let Apollo tjaídvagn með stóru áföstu
fortialdi. að verðmætí 454.000 kr.
Það borgar sig að vera áskrifandi að
Áskriftarsfmi
550 5000
greiðsla öðlaðist þó nokkrar vin-
sældir og síðar meir tóku ljóskur
eins og Anne Nicole Smith og Eva
Herzigova upp sama stíl.
1989 komst stutt hár aft-
ur í tísku. Ofurfyrirsæturnar voru
að verða æ meira áberandi á kostn-
að söng- og leikkvenna og það var
einmitt ein úr þeirra hópi, Linda
Evangilista, sem tók af skarið með
góðum árangri.
1991 var ár hins mjúka
og kvenlega. Rykið var dustað af
gömlu Carmenrúllunum hennar
mömmu til að ná þessum stóru
bylgjum. Þetta ár var stutt hár
bannorð.
1995 öðluðust nýir sjón-
varpsþættir, Friends, eða Vinir,
eins og þeir hafa verið þýddir, gíf-
urlegar vinsældir. Sérstaklega þótti
hárið á leikkonunni Jennifer Ani-
ston glæsilegt og varð klippingin
sem hún skartaði í þáttunum mjög
vinsæl.
1997 virðist stutta hárið
aftur vera að festa sig í sessi. Mjúk-
ar línur sjöunda áratugarins eru
komnar aftur í vindblásinni nú-
tímaútgáfu.
Hvað um næsta ár? Enginn veit -
enda eru leiðir tískunnar óútreikn-
anlegar.
-ggá
í