Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Qupperneq 19
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1997 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1997 23 íþróttir Souness til Toríno? Skoski framkvæmdastjórinn Graeme Souness er aö öllum lík- indum á leið í framkvæmda- stjórastólinn hjá ítalska 2. deild- ar liðinu Torino Souness fund- aði um helgina með Massimo Vidulich, forseta Torino, um hugsanlegan samning. Souness var framkvæmda- stjóri hjá Southampton í ensku úrvalsdeildinni i vetur sem leið en sagði upp starfi sínu þar á dögunum aðeins ári eftir að hann kom frá Galatasaray í Tyrklandi þaðan sem hann var rekinn. Tékkar úr leik Evrópumeistarar Tékka kom- ast ekki í úrslitakeppni HM í knattspyrnu í Frakklandi á næsta ári. Þetta varö ljóst eftir tap þeirra um helgina fyrir Spánverjum í Valladolid á Spáni. Með sigrinum náðu Spánverj- ar eins stigs forskoti á Júgóslava í 6. riðli keppninnar og nánast tryggðu sér sæti í úrslitakeppn- inni en Tékkar sitja eftir heima. Þeir eru í fjóröa sæti riðilsins, tveimur stígum á eftir Færeyj- ingum! Stoichkov mættur Hinn skapbráði framherji þeirra Búlgara, Hristo Stoiclikov, er aftur mættur til leiks með landsliði Búlgariu eft- ir að hafa beðið þjálfara liðsins afsökunar á miður fallegum um- mælum sinum í hans garð. Stoichkov, sem ekki hefur spilað með liðinu í eitt ár, byrj- aði strax að hreila markvörð andstæðínganna með marki úr vítaspyrnu í leik Búlgaríu og Lúxemborgar í undankeppni HM á sunnudaginn. Pele spáir í spilin Brasilíska knattspyrnugoð- sögnin Pele segir sína menn lík- lega til að vex-ja heimsmeistara- titilinn í Frakklandi á næsta ári. Pele nefnir þó einnig Frakka sem líklega sigurvegara og minnir á að aldrei megi heldur afskrifa lið eins og Þýskaiand og England. . Montgomeríe vann Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie vann sinn 13. sigm- á 10 árum á Evrópsku mótaröð- inni nú um helgina en spilað var i Hexam í Englandi. Montgomerie, sem spilaði síð- ustu niu holumar á 30 höggum, endaði á 65 höggum og jafnaði þai- með vallarmetið. Retief Goosen frá S-Afríku varð annar á 69 höggum og Lee Westwood þriðji á 70 höggum. -ÖB Gunnar sigraði Gunnar Þór Jóhannsson, GS, sigraði í stigamóti til landsliðs í flokki pilta 18 ára og yngri i Leirarmi um helgina. Gunnar lék 36 holurnar á 164 höggum. Haraldur Heimisson, GR, lék á sama högga- fjölda en tapaöi i bráðabana í 3. sæti var Kristirm Árnason, GR, á 163 höggum Ilalla Erlendsdóttir, GSS, sigraöi í stúlknaflokki með 83 högg en þær léku 18 holur. Alda Ægisdóttir, GR, varð önnur með 90 högg og í 3. sæti var Katrín D. Hílm- arsdóttir, GKJ, á 91 höggi. -ÆMK Golfhandbokin Golfhandbókin 1997 er komin út og er hin gLæsílegasta. Auk hefð- bimdirma upplýsinga um golf- klúbbana i landinu og mót sumars- nxs er í henni að finna nákvæm kort af öllum golfvöllura landsins. Bókin er 256 síður. Nesútgáfan gefúr bók- ina út, ritsfjóm skipa Einar Matthí- asson, Ámi Sörensen og Ema Sör- ensen, og Páll Júlíusson sá um efn- is-ogauglýsingaöflun. Iþróttir Bikarkeppnin - 32-liöa úrslit: KR-ingar fara til Siglufjarðar - ÍA mætir eigin 23 ára liði KS frá Siglufirði, annað tveggja 3. deildarliða sem komst í 32-liða úr- slit bikarkeppninnar í knattspymu, datt i lukkupottinn í gær. Siglfirð- ingar fá KR-inga í heimsókn næsta sunnudag. Hitt 3. deildarliðið, Afturelding, mætir Þór frá Akureyri í Mosfells- bænum á laugardaginn. Fáránleikinn með 23-ára lið- in Bikarmeistarar ÍA þurfa ekki að fara langt. Þeir drógust gegn eigin 23 ára liði. Þessi dráttur sýnir kannski best fáránleika þess að vera með 23-ára liðin í bikarkeppn- inni í stað þess að skapa þeim ald- urshópi almennileg verkefni sem ná yfir sumarið í heild. Þessi lið leika saman i 32-liða úr- slitum bikarkeppninnar sem nú er kennd við Coca-Cola. Leikimir fara fram um næstu helgi: Laugardagur: Dalvík-FH...................14.00 KR23-Fram........... 1A23-ÍA............. Leiknir R.-ÍBV ..... Viðir-Grindavík . . . . Þróttur N.-Þróttur R. Afturelding-Þór A. . . ÍR-Keflavík......... . 14.00 . 14.00 . 14.00 . 14.00 . 14.00 . 14.00 .........16.00 Sunnudagur: HK-Leiftur ............. Sindri-Breiðablik ...... Völsungur-Fylkir ....... Fjölnir-KA ............. Keflavík23-Valur........ Víkingur R.-Skallagrímur Reynir S.-Stjaman ...... KS-KR................... . 14.00 . 14.00 . 14.00 . 14.00 . 16.00 . 20.00 . 20.00 . 20.00 Topplið úrvalsdeildarinnar, Keflavík, gæti átt snúinn leik fyrir höndum gegn ÍR, sem hefur komið mjög á óvart í 1. deildinni. Þau sextán lið sem komust áfram úr forkeppninni leika öll á heima- völlum gegn þeim sextán liðum sem sátu hjá. -VS Siglfirðingar duttu í lukkupottinn: Þetta er toppurinn - Skagamenn öruggir áfram „Þetta er alveg toppurinn að fá KR-inga í heimsókn. Þjálfarinn okkar, Sigurður Helgason, sem er gamall KR-ingur, var búinn aö spá þessu og þetta ætti að trekkja að áhorfendur en líklega verður þessi leikur spilaður á möl. Við stefnum sjálfsögðu á 16-liða úrslit- in“ sagði Hörðm- Bjamason, leik- maður KS, hvergi banginn þegar ljóst var að þeir Siglflrðingar fengju Vestubæjarstórveldið KR í heimsókn í 32-liða úrslitum bikar- keppninnar. KR-ingar em ekki óvanir því að þurfa aö leggja land undir fót í bikarkeppninni og hafa oft lent í kröppum dansi meö minni spá- menn. „Hlökkum til aö heimsækja Siglfiröinga“ „Það vill nú svo til að þjálfari þeirra Siglfirðinga hringdi i mig um daginn og var að falast eftir strákum I knattspyrnuskóla til sín. Hann er líklega skyggn og hefur þegar verið farinn að safna liði,“ sagði Jónas Kristinsson, framkvæmdastjóri knattspyrnu- deildar KR, eftir útdráttinn. „Við hlökkum til aö heimsækja Siglfirðinga, ekki síst til að hitta fyrir þjálfara þeirra. „Við höfum farið viða KR-ingar síðustu árin í bikarkeppninni og lent í hörku- leikjum og við vonumst að sjálf- sögðu til að vinna leikinn en mað- ur veit aldrei hvað getm* gerst í svona bikarleikjum," sagði Jónas. „Viö erum öruggir áfram í keppninni' Eftir að lið ÍA U23 hafði veriö dregið upp úr flöskunni mætti tU leiks Gylfi Þórðarson, formaður Knattspyrnufélags ÍA, og dró sjálfa bikarmeistarana, Skaga- menn, tU leiks gegn yngri félögum sinum. „Þetta var fínt. Við erum a.m.k. öruggir áfram og það veröur gam- an að þessu og fjölmennt á veUin- um. Við vorum svo sem tilbúnir til þess aö fara hvert sem er og bjuggumst ekki við að yngra liðið næði þetta langt en þetta verður sannkaUaöur Derby-leikur,“ sagði Gylfi við DV. Það er þvi öruggt að Skaga- menn koma tU með aö eiga lið i 16-liöa úrslitum keppninnar. -ÖB Ástandiö í herbúöum KR-inga: Öldurnar teknar að lægja - leikmenn mættu á æfingu í gær Haraldur Haraldsson stjórnaði sinni fyrstu æfingu hjá KR-ingum í gærkvöldi. Hér er hann að Þormóöur Egilsson fyrirliöi, og Þorsteinn Jónsson. koma bendingum til sinna manna og meö honum á myndinni eru DV-myndir Hilmar Þór Svo virðist sem öldumar hafi lægt að mestu í herbúðum knatt- spyrnuliðs KR-inga en talsvert upp- lausnarástand hefur ríkt í félaginu í kjölfar brottvikningar Lúkasar Kostics þjálfara fyrir helgina. Leikmenn mættu á fyrstu æfing- una í gærkvöldi undir stjóm Har- alds Haraldssonar en þeir höfðu sleppt tveimur æfingum sem áttu að vera um helgina undir hans stjóm. DV hefur heimildir fyrir því að leik- mönnum hafi verið nauðugur kost- ur að mæta á æfinguna í gær enda hefði stjórnin litið svo á að um samningsrof hefði verið að ræða af hálfu leikmanna ef þeir hefðu ekki mætt þar sem þeir eru allir á samn- ingi við félagið. Ekki gengiö aö skilyrðum leikmanna Leikmennirnir tóku þann kostinn að sleppa æfinguimi á sunnudags- kvöldið og sendu stjórn knatt- spymudeildar bréf þar sem þeir vildu að stjórnin gengi að nokkrum skilyrðum þeirra. Meðal þeirra skil- yrða sem leikmenn settu fram sam- kvæmt heimildum DV voru þau að meistaraflokksráöið segði af sér og að leikmenn yrðu lausir allra mála ef þeir yrðu ekki sáttir við nýja þjálfarann. Ekki gekk stjómin að þessum skilyrðum leikmannanna sam- kvæmt heimildum blaðsins en leik- menn voru kallaðir á fund stjórnar- innar einn í einu í fyrrakvöld þar sem skilaboðin voru skýr og einföld til þeirra: „Þú átt að mæta á æfingu á morgun." Þá hljóp mikil kergja í leikmenn- ina vegna ummæla Björgólfs Guð- mundssonar, formanns knatt- spyrnudeildar KR, sem fram komu í Morgunblaðinu á sunnudaginn og ekki er vitað hver eftirmál þeirra ummæla verða. „Áfram KR“ „Ég vona að þetta sé yfirstaðið og við getum farið að einbeita okkur að fótboltanum. Það eru búin að eiga sér stað ákveðin skoðanaskipti en núna ætlum við alfarið að ein- beita okkur að næsta leik sem er á Siglufirði um næstu helgi. Leik- mennirnir eru samstiga um að standa sig inni á vellinum og ég vil að endingu bara segja áfram KR,“ sagði Þormóður Egilsson, fyrirliði KR, við DV í gærkvöldi. -GH Island gegn Litháen í undankeppni HM annaö kvöld: Stuðningur áhorfenda skiptir máli - fyrsti leikurinn á nýuppgerðum Laugardalsvelli Höröur Felixson og Sveinn Jónsson, gallharðir KR-ingar, fylgdust aö sjálfsögðu meö sínum mönnum á æfingunni á KR-vellinum í gærkvöldi. „Hef aldrei séð otta i augum leikmanna Utah“ - frábær tilþrif Stocktons tryggðu Utah sigur, 78-73, og staðan er 2-2 Keppnin um meistaratitil NBA er orðin hörkuspennandi eftir annan sigur Utah á meisturum Chicago í fyrrinótt, 78-73, á heimavelli Utah í Salt Lake City. Þar með jafnaði Utah metin, 2-2, og á tækifæri á að ná forystunni í þriðja heimaleik sín- um aðfaranótt fimmtudagsins. Þetta var næstlægsta skor í úr- slitaleik frá upphafi en leikurirm var hörkuspennandi allan tímann og liðin yfir til skiptis. Chicago var með góða stöðu, 71-66, þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. En þá tók John Stockton völdin, þriggja stiga karfa hans og stórkostleg sending á Karl Malone yfir allan völlinn geröu útslagið og fögnuðurinn í Delta Center-höllinni var gífurlegur. „Ég hef aldrei séð neinn ótta í augum leikmanna Utah. Við vissum vel að þetta væri langt frá því að vera búið eftir tvo fyrstu leikina í Chicago. Við gerðum okkur grein fyrir því hve vel lið Utah spilar á sínum heimavelli," sagði Scottie Pippen, besti maður Chicago lengst af, en hann tók 12 fráköst. Félagi hans, Michael Jordan, hitti mjög illa lengst af en var öflugur í fjórða leikhluta og skoraði þá 12 stig. „John Stockton sýndi á köflum ótrúleg tilþrif, hreint stórbrotin," sagði Jerry Sloan, þjálfari Utah. Á lokakaflanum skoraði Stockton 6 stig og átti 6 stoðsendingar, auk þess sem hann hirti boltann úr höndunum á Michael Jordan á mik- ilvægu augnabliki. Dennis Rodman var enn einu sinni langt frá sínu besta og munar um minna fyrir Chicago. Hann tók aðeins 6 fráköst, skoraði ekki stig og fékk á sig tæknivíti fyrir að grípa í fótinn á Malone sem hreinlega óð yfir hann. Stig Utah: Malone 23, Stockton 17, Homacek 13, Russell 8, Eisley 6, Ostertag 5, Foster 4, Carr 2. Stig Chicago: Jordan 22, Pippen 16, Longley 11, Williams 10, Kukoc 9, Harper 3, Kerr 2. -VS Það er skammt stórra högga á milli hjá íslenska landsliðinu í knattspyrnu þessa dagana. Lands- liðið lék ytra gegn Makedóníumönn- um á laugardaginn var í und- ankeppni heimsmeistaramótsins og annað kvöld mætir liðið Litháum á nýuppgerðum Laugardalsvelli í sömu keppni. Islenska liðið hefur leikið fimm leiki í riðlinum og ekki unnið leik fram að þessu. Uppsker- an er þrjú töp og tvö jafntefli og er liðið í næstneðsta sæti í 8. riðli keppninnar. Kjöriö tækifæri til aö breyta gangi mála Menn höfðu vonast eftir því að árangurinn yrði betri en raun ber vitni. I leiknum annað kvöld er kjörið tækifæri til að breyta í gangi mála og koma í hús þremur stigum til viðbótar. íslenska liðinu veitir því ekki af öllum stuðningi í leikn- um gegn Litháum. Rúnar inn í hópinn Rúnar Kristinsson, sem var í leik- banni gegn Makedóníu, kemur inn í hópinn að nýju en að öðru leyti er hópurinn óbreyttur frá leiknum við Makedóníu. Líklegt má telja að liðið leiki sóknarleik frá fyrstu mínútu því ekkert annað en sigur kemur til greina í þessum leik. Leikurinn hefur mikla þýöingu fyrir Litháa Fyrri leikur þjóðanna, sem fram fór í Vilnius í október sl., lyktaði með sigri Litháa, 2-0. Þegar staðan liðanna er skoðuð heyja Litháar mikla baráttu um annað sætið í riðlinum við íra og Makedóníu- menn en það sæti gæti gefið réttinn í úrslitum keppninnar sem verður í Frakklandi næsta sumar. Litháar gera sér fulla grein fyrir mikilvægi leiksins og mæta til Reykjavíkur með sitt allra sterkasta lið. Þeir hafa verið í æfingabúðum heima fyrir leikinn og kölluðu þeir til leiks flesta þá leikmenn sem leika með erlendum félagsliðum. Með sigri í leiknum myndu Litháar flytjast upp í þriðja sætið í riðlin- um, eða með jafn mörg stig og Makedónía en lakara markahlutfall. Sæti fyrir sjö þúsund áhorfendur íslenska liðið á því erfitt verkefni fyrir höndum annað kvöld. Liðið hefur í gegnum tíðina innbyrt góða sigra á heimavelli og með beittum leik og góðum stuðningi áhorfenda eru möguleikar að leggja Litháa svo sannarlega fyrir hendi. Leikurinn annað kvöld verður fyrsti leikurinn á glæsilegum Laugardalsvelli og þar er búið að koma fyrir nýju sætum fyrir sjö þúsund áhorfendur. Um- gjörð vallarins er orðin öll hin glæsilegasta. Knattspyrnuáhugamenn ættu því ekki að liggja á liði sínu heldur fjöl- menna á leikinn og styðja vel við bakið á íslensku strákunum. -JKS Blöðin í Makedóníu eftir landsleikinn: „Island sterkara en ■ ■ ■■ ^ DV. Skopje: Þótt allir í Makedóníu hafi reiknað meö sigri gegn íslandi á laugardag var greinilegt að al- menningi í landinu létti mjög við það að 1-0 sigur vannst. í fyrsta lagi vegna þess að fólk óttast alltaf undir niðri hið óvænta, sem íþróttamenn frá fyrrum Júgóslavíu verða svo oft fyrir. Og í öðru lagi vegna þess að leikur- inn var mjög tvísýnn. Dagblaðiö Makedonija sagði í Makedóníu. gær í fyrirsögn: „Stolinn gullfisk- Viktor Trenevski, leikmaður ur - enn von“ (Makedóníumenn Partizan Belgrad sem lék síðari kalia íslendinga gjarnan fiski- hálfleikinn og lék þá stórt hlut- mennina). verk, segir i samtali við blaðið Frammistaða Makedóniu í Vecer: fyrri hálfleik er gagnrýnd og blað- „Ég er mjög ánægður meö minn ið spyr hvenær brottrekstrum fyr- leik en það mikilvægasta er að við irliöanna linni eiginlega. Toni höfum sigrað ísland, sem er með Micevski, sem fékk rauða spjaldið miklu sterkara liö en nokkur hér á laugardag, er nefnilega þriðji í Makedóníu reiknaði með.“ fyi-irliöinn á skömmum tíma sem er rekinn af velli í landsleik Vladimir Novak Körfuknattleikur: Emar afram ineð Haukana Einar Einarsson hefur verið endurráðinn þjálfari úrvalsdeild- arliðs Hauka í körfuknattleik. Einar tók við liðinu seinni pai't vetrar á síðasta keppnis- tímabili eftir að Reynir Krist- jánsson sagði starfi sínu lausu. Jón Arnar í Grindavík? Jón Arnar Ingvarsson, einn besti leikmaður Hauka, hefur ekki gert upp hug sinn hvar hann leikur á næsta tímabili en Grindvikingar hafa borið víum- ar í þennan snjalla leikmann. „Ég er laus allra mála hjá Haukum og er þessa dagana að skoöa mín mál. Það er rétt að Grindvíkingar hafa rætt við mig og ég reikna með að taka ákvörð- un fljótlega í þessu máli,“ sagði Jón við DV í gær. -GH Gunnar þjálfar lid Þórsara Gunnar Sverrisson hefur ver- ið ráðinn þjálfari úrvalsdeildar- liðs Þórs í köifuknattleik. Gunnar er öllum hnútum kunnugur hjá Akureyrarliðinu en hann var aðstoðarmaður Fred Williams, þjálfara Þórsara, á síð- asta vetri. -GH Opna SV-mótinu Reynir Sigurbjörnsson (GL) vai'ð í fyi-sta sæti án forgjafar á Opna SV-mótinu sem Golfklúbb- urinn Leynir á Akranesi hélt á laugardaginn var. Reynir lék á 84 höggum en í öðru sæti varð Guðmundur Valdimarsson (GL) á 87 höggum og þriðji varð Gísli Gíslason (GL) einnig á 87 högg- um. Gísli sigraöi hins vegax- í keppni með forgjöf. Opna Þorgeirs og EUerts öld- ungamótíð var síðan haldið á sunnudeginum. Þar sigraði Skúli Ágústsson (GA) án forgj. á 78 höggum en Karl Bjarnason með forgj. á 65 höggum. -ÖB Laudrup til Man. Utd? Forráðamenn ensku meistar- anna í Manchester United eru nú í óðaönn að reyna að fylla það skarð sem Eric Cantona kemur til með að skilja eftir sig i liðinu. Þeir bítast nú viö Ajax frá Hollandi um danska lands- liðsmanninn Brian Laudrup hjá Glasgow Rangers og haft er eftir Alex Ferguson framkvæmda- stjóra að þeir muni koma til með að gera allt sem 1 þeirra valdi stendur til að næla í kappann. United hefur einnig borið víurnar í þýska landsliðsmann- inn Markus Babbel hjá Bayern Múnchen og sagði Uli Hoeness, framkvæmdastjói-i Bayern, að tUboð lægi á borðinu. Viðræður væru i gangi og málín myndu skýrast á allra næstu dögum. -ÖB I kvöld Úrvalsdeild kvenna í knattspymu: ÍA-Breiöablik ..............20.00 ÍBA-Haukar ................ . 20.00 KR-ÍBV......................20.00 Stjaman-Valur ..............20.00 2. deild karla: KVA-Leiknir R...............20.00 Viöir-Ægir .................20.00 Selfoss-Þróttur N...........20.00 3. deild karla: Bolungarvik-Emir Is.........20.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.