Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Page 36
FRÉTTASKOTI0 SI'MINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö ! hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Flugvél Lindu Finch, bandarískrar flugkonu sem nýlega lauk hnatt- flugi. Hún kom við á Reykjavíkur- flugvelli í gær á leið sinni til flugsýn- ingar í París. DV-mynd E.ÓI. Mannbjörg er Haförn MB 13 brann Hafóm MB 13 brann og sökk í nótt nálægt Hvalseyjum vestur af Mýrum. Báðir skipverjar björguðust. Klukkan 2.25 hafði Unna HF 229 samband við Reykjavíkurradíó og til- kynnti að sést hefði neyðarblys og reykjarmökkur. Hélt báturinn í átt að staðnum. Sysavamafélaginu og Land- helgisgæslunni var gert viðvart og varðskip sent á staðinn. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig kölluð út. Unna tilkynnti stuttu siðan að eldur og reykur sæist nálægt Hvalseyjum. Skipverjar Unnu sáu síðan björgunar- bát og stefhdu á hann. Björgunarbát- urinn var þá ekki nálægt eldi og reyk frá Hafemi. Háiftíma eftir að neyðarblysið sást eða kl. 2.45 tiikynnti Unna síðan að tveimur mönnum hefði verið bjargað úr björgunarbáti og væra þeir óslas- aðir. Aðstoð þyrlu var afþökkuð eftir þetta. Hafóm var alelda og ekkert hægt að gera. Skipið sökk stuttu síðar. Ákveðið var að varðskip tæki mennina tvo um borð og flytti þá til Akraness en þangað vom þeir komnir um sjöleytið í morgun. -sf Bíll alelda DV, Húnaþingi: Sendibíll varð alelda á þjóðvegin- um skammt frá bænum á Sveins- stöðum um miðjan dag í gær. Bílstjórinn varð var við bruna- lykt og stöðvaði bílinn. Skipti þá engum togum að upp gaus mikill eldur svo hann rétt náði að bjarga sér út og grípa lítils háttar af far- angri. Vegurinn var lokaður f um klukkustund af þessum sökum því um tíma óttuðust menn mikla sprengingu þegar eldurinn kæmist í eldsneytisgeyminn. Þeg£ur slökkvilið Blönduóss hafði ráðið niðurlögum eldsins var ekkert nýtilegt eftir af bílnum. Bíllinn var á norðurleið, nýkominn af verkstæði. -MÓ Formaður samtaka norskra útgerðarmanna logandi hræddur: Við treystum á fagmennsku íslendinga - segir Audun Marok og óttast átök á loðnuvertíð í haust DV, Noregi: „Við treystum á fagmennsku ís- lenskra stjórnvalda. Það á að leysa svona smámál eins og með Sigurð á miðunum og viðbrögð stjórn- valda verða að vera í samræmi við meint brot,“ segir Audun Marok, formaður norskra útgerðarmanna, í samtali við DV. DV spurði Marok þá hvort honum fyndist að norsk stjórnvöld hefðu ekki komið fram af fagmennsku við töku Sigurðar VE. Formaðurinn sagðist þá bara vona fyrir hönd norskra stjórn- valda aö málið væri það alvarlegt að þau gætu réttlætt gerðir sínar. í samtökum Maroks eru alir út- gerðarmenn loðnubáta í Noregi. Formaðurinn sagði að þeir yrðu að treysta á íslensk stjórnvöld að þau færu að settum reglum og lýsti áhyggjum sínum með að harkaleg viðbrögð vegna smámála yrðu reglan í framtíðinni. „Ég trúi ekki að það gerist. Það vita allir að það á ekki að leysa smámál á þennan hátt og ég vona að það verði ekki reglan í framtíöinni. Hvað varðar loðnuveiðar Norð- manna við ísland í haust þá treyst- um við á skynsamlega framkomu íslendinga," sagði Audun Marok. „Ég hef talað við strandgæsluna um töku Sigurðar VE og þeir segja að málið sé mjög alvarlegt. Það er ekki i samræmi við aðrar fréttir sem benda til að brotið hafi verið hlægilega smávægilegt. Ég vona bara strandgæslunnar vegna að fjölmiðlamir hafi rangt fyrir sér,“ sagði Marok. -GK Allt brann sem brunniö gat í sendibílnum. Pjóðvegurinn lokaöist vegna þessa í klukkutíma. DV-mynd Magnús PAÐ TRAUST ER EKKI GAGNKVÆMT. Veðrið á morgun: Þurrt víðast hvar Á morgun verður hæg vest- læg átt. Sums staðar skúrir vestanlands en annars þurrt. Veðrið í dag er á bls. 36 Norðmenn vissir um sekt: Kristbjörn bað ekki um stað- festingu DV, Noregi: „Kristbjöm skipstjóri átti að biðja um staðfestingu á því að tilkynning hans um afla hefði borist norsku fiski- stoftmni. Lögreglan tekur í sjálfu sér ekki afstöðu til þess hvort hann reyndi að senda tilkynninguna. Það sem fyrir liggur er að fiskistofan fékk hana ekki,“ sagði Maren-Elisabeth Nielsen-Nygaard lögreglufulltrúi í samtali við DV um rannsóknina á meintum afbrotum Kristbjamar Áma- sonar, skipstjóra á Sigurði VE. Eftir sólarhringsrannsókn lá fyrir í gærkvöldi að Kristbjöm hefði brotið reglur um síldveiðar við Jan Mayen. Lögreglan gerði að tillögu sinni að hann greiddi jafnvirði 300 þúsunda ís- lenskra króna sekt og útgerðin 3,7 milljónir. Hvorutveggja var hafhað samstundis og ákveðið að höfða mál á hendur norska ríkinu. Þeir á Sigurði fengu að fara frá Bodö í gærkvöldi gegn tryggingu. Fyrir ligg- ur að umrædd tilkynning frá Krist- bimi var send frá skipinu á réttum Halldór Ásgrímsson: Fara þarf yfir allar reglur „Það er ljóst að fara þarf yflr þær reglur sem settar hafa verið varðandi gagnkvæmar veiðiheimildir íslend- inga og Norðmanna, eftir þetta mál Sigurðar VE. Hugmyndin er að veiðar geti farið fram með eðlilegmn hætti án þess að skapa sjómönnum sérstök vandræði. En á þessari stundu bíðum við eftir viðbrögðum norskra stjóm- valda. Þau hafa engin verið,“ sagði Halldór Ásgrimsson utanríkisráð- herra í morgun. Hann sagði menn ekki fama að ræða það hvort segja eigi upp loðnu- samningnum við Norðmenn þegar hann rennur út á næsta ári. -S.dór Norska utanríkisráðuneytið: Harmar þróun Sigurðarmálsins DV, Ósló: Talsmaður norska utanrikisráðu- neytisins sagði í morgun að menn þar hörmuðu hvemig mál loðnuskipsins Sigurðar VE hefði orðið að utanríkis- pólitísku máli. Það væri hins vegar ekki í valdi ráðuneytisins að hafa afskipti af því. Málið væri alfarið á höndum norsku strandgæslunnar og lögreglunnar í Bodö. Búist er við því að Bjöm Tore Godal, utanríkisráðherra Noregs, og Halldór Ásgrimsson ræðist við í dag, en sá fyrmeöidi hefur verið frá störf- um að undanfómu vegna veikinda.-GK Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aðstæður CR-V Sjáifskiptur með tveimur loftpúðum kostar frá 2.270.000,- (0 HONDA S: 568 9900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.