Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1997, Blaðsíða 15
14
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ1997
3ffr-
Iþróttir
Iþróttir
ENGLAND
Gianluca Vialli, ítalski fram-
herjinn hjá Chelsea, er nú að öll-
um líkindum á leið til Glasgow
Celtic í Skotlandi og eru félögin
mjög nálægt því að ná samning-
um.
„Ég vil fara til Celtic. Ef ég
fer frá London þá er þetta eina
annað breska félagiö sem ég vil
fara til,“ sagði Vialli.
Liverpool hefur unnið barátt-
una um hinn unga og bráöefni-
lega leikmann Danny Murphy
sem leikiö hefur með Crew.
Murphy, sem er aðeins 20 ára,
hefur skrifað undir samning um
að koma til Anfield en mörg
stóru liðanna í Englandi börðust
um að fá hann í sínar raöir.
Norwich City hefur keypt
framherjann Iwan Roberts frá
Úlfunum fyrir 1 milljón punda.
Nottingham Forest á nú í
stappi viö vamarmann sinn, Col-
in Cooper, um að hann skrifi
undir nýjan þriggja ára samning
við félagið. Cooper sem á tvö ár
eftir að núgildandi samningi sin-
um hefur ekki viljað framlengja
hann hingað til.
Jim Smith, framkvæmda-
stjóri Derby County, bíður nú
átekta með að gera tilboð í Ro-
berto Baggio hjá AC Milan en út-
sendari Derby er nú mættur til
Ítalíu til að kanna áhuga Baggio
á að koma til Englands.
Paul Merson, leikmaður
Arsenal og enska landsliðsins til
margra ára, hefur nú gengið í
raðir Middlesbrough þrátt fyrir
fyrri yfirlýsingar um að hann
myndi aldrei yfirgefa Highbury.
Merson hefur viðurkennt að
hann tefli landsliðssæti sínu í
tvisýnu með því að fara úr úr-
valsdeildinni i 1. deildina en að
hann hafi óskaplega gott af því
að skipta um umhverfi en eins
og margir muna eftir hefur hann
átt í ýmsum erfiðleikum með
einkalif sitt.
David Pleat, framkvæmda-
stjóri Sheffield Wednesday, er
nú að reyna að krækja i kant-
manninn ítalska, Paolo Di
Canio, sem leikur meö Celtic í
Skotlandi.
Peter Ndlovu, framherji
Coventry, er nú líklega á forum
til Birmingham City fyrir 1,7
milljónir punda. Hann kostaði
Coventry aðeins 20 þús. pund
þegar hann kom til liðsins en
þeir óttast nú að fá lítið sem ekk-
ert til baka þar sem hann er laus
undan samningi við félagið
næsta sumar.
Tottenham Hotspur mun
ekki ná að krækja í Juninho frá
Middlesbrough þrátt fyrir að lið-
in hafi veriö búin að ná sam-
komulagi þar um. Juninho sagði
þvert nei og vill fara til Atletico
Madrid á Spáni.
Chris Waddle, sem lék með
Sunderland á síðustu leiktíð, hef-
ur veriö ráðinn spilandi fram-
kvæmdastjóri hjá Burnley. Hann
tekur við af Adrian Heath sem
geröist aðstoðarmaður Howards
Kendall hjá Everton.
Tore Andre Flo, leikmaður
Brann, getur nú loks farið að
pakka niður og komið sér til
Englands þar sem Chelsea hefur
nú náð endanlegu samkomulagi
við Brann um kaupverðið á hon-
um.
Flo mun spila sinn síöasta
leik með Brann í norsku deild-
inni gegn Strömgodset á sunnu-
daginn.
-ÖB
Fjórír dæmdir
í leikbann
Fjórir leikmenn í úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu voru dæmdir í
eins leiks bann á fúndi aganefhd-
ar KSÍ í gær.
Þetta eru þeir Ásgeir Hall-
dórsson, Fram, Gunnlaugur
Jónsson, Akranesi,
Brynjar Bjöm Gunn-
arsson, KR og Stefán
Metúsalem Ómars-
son, Val.
-SK
Alþjóölegt golfmót í Eyjum:
Mjög mikil
þátttaka
Alþjóðlegt golfmót, Opna Volcano-mót-
ið, verður haldið á golfvellinmn í
Vestmannaeyjum um næstu helgi.
Leiknar verða 36 holur í þremur
flokkum, forgjöf 0-12, 13-24 og 25-36.
Þátttaka á mótinu er þegar orðin
mjög góð og hafa um 40 erlendir
kylfingar tilkynnt þátttöku. Flestir
þeirra koma frá Lúxemborg og
Þýskalandi.
Eftir að leik lýkur á laugardag verð-
ur öllum þátttakendum boðið til
grillveislu í golfskálanum og um
miðnæturbil verða leiknar fjórar hol-
ur með forgjöf.
Enn er hægt að skrá sig í mótið í
síma 481-2363 en skráningu lýkur
kl. 20 á morgun. Mótsgjald með mat
er krónur 5.000.
-SK
Stórskyttur
til liðs við KA
- hávaxnir landsliðsmenn frá Ungverjalandi og
Hvíta-Rússlandi hafa samið við KA í handboltanum
DV, Akureyri:
Tveir mjög sterkir hand-
knattleiksmenn hafa geng-
ið frá samkomulagi við ís-
landsmeistara KA frá Ak-
ureyri og munu leika með
liðinu á næstu leiktíð.
Hér er um að ræða ung-
verska landsliðsmanninn
Zoltán Bergendi. Hann er
1,96 metrar á hæð og er af
mörgum talinn einn af
þremur bestu vinstrihand-
ar skyttum í heiminum.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum DV á aöeins eft-
ir að skrifa undir samning
en gengið hefur verið frá
málinu að öðru leyti.
Hin hávaxna skyttan
sem KA-menn hafa samið
við kemur frá Hvíta-Rúss-
landi. Sá heitir Vladimir
Golding og lék í Austurríki
í fyrra.
Tæpir tveir metrar
Golding er fæddur í
Minsk og er 1,97 metrar á
hæð og leikmaður með
landsliði Hvíta-Rússlands.
Golding er hægrihandar
skytta, mjög öflugur leik-
maður sem KA-menn vona
að muni fylla skarð Ró-
berts Duranona.
„Bara eftir aö skrifa
undir“
„Það er frágengið að
Bergendi leiki með okkur á
næsta leiktímabili og að-
eins eftir að skrifa undir
samninginn. Koma þessara
tveggja sterku leikmanna
styrkir liðið auðvitað mjög
mikið og ég er þeirrar
skoðunar að við verðum
með sterkara lið næsta
vetur en á síðasta leiktíma-
bili,“ sagði Pétur Bjama-
son, stjórnarmaður hjá
handknattleiksdeild KA, í
samtali við DV. -SK/ -gk
Mun fleiri áhorfendur
- hafa séð heimaleiki Keflavíkur en á sama tíma í fyrra
Niu a Olafsfirði
- þegar Leiftur komst í undanúrslit bikarsins með 6-3 sigri gegn Þrótti R.
Leiftur frá Ólafsfirði tryggði sér í gærkvöld
réttinn til að leika í undanúrslitum bikar-
keppni Knattspymusambandsins í annað sinn
í sögu félagsins.
Leiftur sigraði Þrótt Reykjavík í miklum
markaleik á Ólafsfirði. Davíð Garðarsson
skoraði fyrsta mark leiksins með góðum skalla
á 24. mínútu. Þróttarar jöfnuðu skömmu siðar.
Sigurður Eyjólfsson skoraði eftir sendingu frá
Ingvari Ólasyni. Leiftur komst aftur yfir er
knötturinn hrökk í netið af fótum Sigurðar
Eyjólfssonar eftir skot Harðar Más Magnús-
sonar.
Þróttumm tókst að jafna leikinn aftur er
Sigurður Eyjólfsson skoraði stórglæsilegt
mark með frábæra langskoti.
Leiftursmenn komust yfir, 3-2, er um sjö
mínútur vora til loka fyrri hálfleiks.
Markið skoraði Þorvaldur Makan Sigur-
bjömsson. Heimamenn gerðu nánast út um
leikinn er þeir komust í 4-2 með marki sem
Pétur Bjöm Jónsson skoraði af miklu harð-
fyigí-
Fimmta mark heimamanna kom úr víta-
spymu sem Þorvaldur Makan Sigbjömsson
tók eftir að brotið var á Herði Má Magnússyni.
Hér vora úrslitin endanlega ráðin en Þróttar-
ar neituðu þó að gefast upp. Einar Öm Birgis-
son minnkaði muninn í 5-3 með ágætu marki.
Sjötta og síðasta mark leiksins kom skömmu
fyrir lok leiksins. Daði Dervic átti þá mjög
góða sendingu fram völlinn inn fyrir vöm
Þróttara. Þar var Þorvaldur Makan Sigbjöms-
son á auðum sjó og átti ekki í vandræðum með
að skora framhjá markverði Þróttar.
-HJ
DV; Suðurnesjum:
„Mikil fjölgun
áhorfenda stafar fyrst
og fremst af vel-
gengni liðsins það
sem af er, að vera í
toppbaráttunni. Liðið
er ungt og leikur
skemmtilega knatt-
spymu sem fólk kann
að meta,“ sagði Birg-
ir Runólfsson, gjald-
keri knattspymu-
deildar Keflavíkur, í
samtali við DV í gær.
Eftir fjóra heima-
leiki á yfirstandandi
leiktíð hafa 3.659
áhorfendur séð leik-
ina á móti 2.024 í
fyrra, einnig eftir
fjóra heimaleiki. f
fyrra mættu aðeins
4.194 áhorfendur á
alla níu heimaleik-
ina.
„Það að fólk skuli
hafa gaman af að
koma á völlinn til að
sjá okkar lið spila er
mikU tilbreyting frá
því sem var í fyrra.
Þá var liðið í faÚbar-
áttu og endaði með 19
stig eftir 18 leiki. f
dag er liðið með 19
stig eftir 7 leiki. Liðið
hefur alla burði tU að
halda áfram á sömu
braut. Það er mikU
stemning í bæjarfé-
laginu og vonandi
gengur þetta vel
áfram," sagði Birgir
enn ffernur.
Lið Keflvíkinga
hefúr komið mest á ó-
vart hingað tU. Kefl-
víkingar eiga eftir að
leika á heimaveUi
gegn þeim þremur
liðum sem spáð var
þremur efstu sætun-
um í vor.
„Þessi árangur
skapar að sjálfsögðu
meiri tekjur fyrir fé-
lagið. Þaö skiptir
strákana líka miklu
máli að fólkið hér
skuli vUja koma á
vöUinn tU að sjá þá
leika. Þetta er já-
kvætt á allan hátt,
ekki bara fjárhags-
lega,“ sagði Birgir.
-ÆMK
Súpa að hætti hússins
- þegar ÍBV gersigraði 1. deildarlið Breiðabliks i 8-liða úrslitum bikarsins, 8-1
tölur því 8-1.
DV, Eyjum:
Eyjamenn buðu upp á
bikarmarkasúpu að hætti
hússins þegar Breiðabliks-
menn voru eldaðir á glóð-
volgri EyjaheUu. Átta skeið-
ar fóra í að tæma Blikasúp-
una. Aðeins ein fluga reynd-
ist vera í súpunni og loka-
Súpugerðarmeistarinn
var Sigurvin Ólafsson sem
galdraði ffarn sex stoðsend-
ingar sem gáfu mörk og
skoraði að auki eitt mark.
Ingi Sigurðsson skoraði
fyrstu þrennu sína á ævinni
en brenndi að auki af víti.
Hlynur Stefánsson, Sverrir
Sverrisson (2) og Bjamólf-
ur Lárasson skoraðu hin
mörkin fyrir ÍBV. ívar Sig-
urjónsson reyndist vera
flugan i súpu Eyjamanna en
hann skoraði mark Blika.
„Er það ekki sama gamla
klisjan? Það skiptir ekki
máli hveija við fáum í und-
anúrslitunum, bara að leik-
urinn verði hér í Eyjum.
Það var góð stemning í lið-
inu en ég bjóst við Blikun-
um mun sterkari. Eftir að
við bratum ísinn fengum
við meðbyr og aðeins spum-
ing hve stór sigurinn yrði,“
sagöi Bjami Jóhannsson,
þjálfari ÍBV. -ÞoGu
Erla Hendriksdóttir skoraði 2.
Valur, KR og
Blikar unnu
Breiðablik, KR og Valur
tryggðu sér sæti í undanúrslit-
um Coca Cola-bikarkeppni
kvenna í gær.
Valur vann Hauka í Hafhar-
firði, 0-1, með marki Hjördísar
Símonardóttur. Haukar fengu
nokkur góð færi til að jafna en
inn vildi boltinn ekki.
KR vann ÍA 0-4 á Akranesi.
Ásdís Þorgilsdóttir skoraði tvö
mörk og þær Guðlaug Jónsdótt-
ir og Olga Færseth sitt markið
hvor.
Breiðablik vann ÍBA 5-0 í
Kópavogi. Erla Hendriksdóttir
og Katrín Jónsdóttir skoraðu
tvö mörk hvor og Kristrún L.
Daðadóttir eitt mark.
í kvöld mætir ÍBV KVA í Eyj-
um kl. 20.00.
Undanúrslitakeppni EM í körfu:
ísland í sterkum riðli
- landsliðið í fyrsta skiptið í undanúrslitum
Búið er að draga í riðla í undanúr- lakara taginu. Auk íslands drógust í D- Eistland - fsland .29. nóv. '97
slitakeppni næsta Evrópumóts lands- riðil lið Litháens, Króatíu, Bosníu, Island - Króatía .3. des. '97
liða í körfuknattleik en keppninni lýk- Eistlands og Hollands og því engir Bosnía - fsland .........25. feb. '98
ur 1999 með úrslitakeppni 16 þjóða. aukvisar í körfubolta þar á ferðinni en Litháen - ísland .28. feb. '98
íslendingar eiga nú lið í fyrsta skipt- lið Litháens, Króatíu og Bosníu vora í Holland - ísland.25. nóv. '98
ið í undanúrslitakeppninni en landslið- úrslitum síðasta EM sem nýlega er lok- fsland - Eistland .28. nóv. '98
ið tryggði sér þar sæti með góðri ið. Króatia - ísland.2. des. '98
ffammistöðu sinni í undankeppninni ísland - Bosnía.24. feb. '99
sem fram fór hér á landi í fyrra. HOllendingar fyrst ísland - Litháen .27. feb.'99
Fyrsti leikur íslenska liðsins verður Þijár efstu þjóðimar í hvetjum riðli
Sterkur rioioill hér heima gegnHollendingumþann26. munu síðan komast í úrslitakeppnina
Það má gera ráð fyrir að róður ís- nóvember nk. en annars er leikjaskrá sem lýkur árið 1999 en nýkrýndir Evr-
lenska liðsins verði nokkuð þungur liðsins þessi: ópumeistarar Júgóslava sleppa við
þar sem mótherjar þess verða ekki af ísland - Holland.26. nóv. '97 undanúrslitakeppnina. -ÖB
Frjálsar íþróttir:
Enn er óvíst
með Johnson
Enn er óvíst hvort heims-
meistarinn í 200 og 400 metra
hlaupum, Bandaríkjamaðurinn-
Michael Johnson, getur varið
titla sína á HM í ffjálsum 1
næsta mánuði í Aþenu.
Johnson hefur verið meiddur
og gat ekki tekið þátt í úrtöku-
móti Bandaríkjamanna fyrir
mótið. Alþjóða frjálsíþróttasam-
bandið er hins vegar að bræða
með sér hvort sambandið bjóði
ekki öllum heimsmeisturunum
frá 1995 til keppninnar. Ef af því
verður munu GailDevers og Dan
O’Brien keppa á mótinu. -SK
Golf:
Norman vill
meira öryggi
Ástralski kylfingurinn Greg
Norman hefur látið í ljós ótta
sinn við litla öryggisgæslu á
golfmótum atvinnumanna.
„Þetta er orðið vandamál.
Áhorfendur þekkja okkur orðið
mjög vel og allt mögulegt er sagt
við okkur, af fólki sem líkar vel
við okkur og öfúgt. Eftir að Tiger
Woods kom fram á sjónarsviðið
hefur aldur áhorfenda lækkað
mjög og þá eykst notkun áfengis.
Kannski er rétt að loka börun-
um kl. 15 á daginn eins og gert er
í homaboltanum,“ sagði Norm-
an í gær. -SK
Hnefaleikar:
Tyson settur
útaflistanum
Reiknað er með að tíma-
bundnu keppnisbanni hnefa-
leikarans Mikes Tysons ljúki í
dag og dómur verði kveðinn upp
í máli hans eftir að hann beit í
bæði eyra Evanders Holyfields á
dögunum sem ffægt er orðið.
Tyson hefur hins vegar verið
settur út af áskorendalistanum
en þar var hann í fyrsta sæti.
í fyrsta sæti nú er Frans Botha
ffá Suður-Affíku.
Verði niðurstaðan að Tyson
missi efsta sætiö reikna flestir
með auðveldum sigri Holyfields
gegn Botha. -SK
Knattspyrna:
Bjami i góðum
félagsskap
DV, Akranesi
Bjami Guðjónsson, marka-
skorarinn mikli frá Akranesi,
fór síðastliðinn fimmtudag til
Newcastle til að gangast undir
læknisskoðun og skrifa undir
samning við liðið.
Það virðist hafa gengið eftir
þvi að á fyrstu æfingu aðalliðs-
ins vora þeir myndaöir saman
þeir fimm leikmenn sem Kenny
Dalglish framkvæmdastjóri hef-
ur keypt fyrir komandi tímabil.
Það eru, auk Bjama, þeir Shay
Given, Jan Dahl Thomasson,
Paddy Kelly og Temur Ketsbaia.
Ekki hefur enn verið gefið upp
kaupverðið á Bjama en breskir
fjölmiðlar sögðu frá því í vor að
kaupverðið væri um 50 milljónir
ísL króna.
-DVÓ
Rútur úr leik
DV, Vestmannaeyjum
Það á ekki af leikmanni ÍBV,
Rúti Snorrasyni, að ganga.
í ljós hefur komið að meiðslin
sem hann hlaut í leik gegn
Skallagrími í síðustu viku eru
mun alvarlegri en í fyrstu var
talið. Krossband í hné er slitið
auk þess sem fleiri áverkar eru á
hnénu.
Rútur er því úr leik það sem
eftir er sumars en hann var ný-
stiginn upp úr meiðslum þegar
þetta gerðist.
Rútur hefur átt við þrálát
meiðsli að striða undanfarin ár
og verið sérlega óheppinn.
-ÞoGu
Atletico náði
loks í Juninho
í gærkvöldi var loksins ljóst
hvar Brasiiíumaðurinn Juninho
leikur á næstu leiktið í knatt-
spymunni.
Það var spænska liðið Atletico
Madrid sem keypti Juninho í
gær frá Middlesborough á 12
milljónir punda. „Þaö er mikill
metnaður hjá Atletico og félagið
er eitt það stærsta á Spáni. Svo
er spænski boltinn sýndur beint
í sjónvarpinu í Brasilíu," sagði
Juninho í gær. -SK
Hermann fór utan
Hermann Hreiðarsson hélt
utan í morgun til að ganga ffá
samningi sínum við enska úr-
valsdeildarliðiö Crystal Palace.
Hermann leikur með ÍBV
gegn ÍA á sunnudaginn en síð-
asti leikur hans verður gegn
Fram í Eyjum á miövikudag í
næstu viku. -ÞoGu
Guðjón í Eyjum
Guðjón Þórðarson, nýráðinn
landsliðsþjálfai’i, var á leik ÍBV ‘
og Breiöabliks í gærkvöld.
Guðjón var sérstaklega að
fylgjast með þeim Hermanni
Hreiðarssyni, Sigurvin Ólafs-
syni, Guðna Rúnari Helgasyni
og Tryggva Guðmundssyni sem
fór meiddur út af í leikhléi.
-ÞoGu
Leiðrétting
Sú villa slæddist með í um-
fjöllun blaðsins um úrslitaleik
karla í knattspymu á Landsmóti
ungmennafélaganna í Borgar-
nesi um helgina að Fjölnir í
Grafarvogi hafi keppt fyrir hönd
UMSK en það er auðvitað ekki
rétt. Þeir kepptu fyrir engan
annan en sjálfan sig enda sjálf-
stætt ungmennafélag í Reykja-
vik. -ÖB