Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1997, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997
Utlönd
Stuttar fréttir x>v
Óttast átök
Hinn róttæki armur Irska lýð-
veldishersins, INLA, hótaði í gær
að ráðast til atlögu gegn meðlim-
um Óraniureglunnar, láti þeir
verða af áformum sínum um að
marsera niður Lower Ormeau-veg
í Belfast nk. sunnudag. Þeir lýstu
einnig yfir ábyrgð sinni á
nokkrum skotárásum á breska
lögregluþjóna og hermenn. Tveir
lögreglumenn hafa særst en eng-
inn hefur látist.
Ráðherra írlandsmála, Mo
Mowlam, sætti í gær mikilli gagn-
rýni kaþólikka eftir að upplýsing-
um úr skjali frá ráðuneytinu vai-
lekið í Qölmiðla. Reuter
YAMAHA
Leiðtogar nýrra Nato-ríkja fagna:
Akvörðun sem
stuðlar að öryggi
Leiðtogar fyrrum þriggja Varsjár-
bandalagsríkja, Póllands, Tékklands
og Ungverjalands, brostu breitt í
gær þegar það var tilkynnt á leið-
togafundi Atlantshafsbandalagsins,
Nato, í Madrid í gær að þeim hefðu
verið boðnar viðræður um aðild.
„Við lýsum yfir ánægju okkar
með boðið. Þetta er söguleg ákvörð-
un sem stuðlar að meiri stöðugleika
og öryggi í Evrópu," sagði Vaclav
Havel, forseti Tékklands. Havel,
Hom, forsætisráðherra Ungverja-
lands, og Kwasniewski, forseti Pól-
lands, kváðust vera stoltir yfir því
að breytingar í löndum þeirra hefðu
gert þau hæf til inngöngu í Atlants-
hafsbandalagið.
Pólska stjórnin, sem var ánægð
með að hafa fengið boð um aðild að
Atlantshafsbandalaginu, Nato, á
leiðtogafundi þess í Madrid í gær,
hvatti í gær til að dyrnar stæðu
áfram opnar.
Leiðtogar þriggja nýrra Nato-ríkja, Kwasneswski, forseti Póllands, Havel,
forseti Tékklands, og Horn, forseti Ungverjalands. Símamynd Reuter
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, simi
567-1800
Löggild bílasala
Nissan Terrano 2,4 SLX ‘95,
blágrænn, 5 g., ek. 43 þús. km,
álfelgur, rafdr. rúður. Bílalán getur
fylgt. Sem nýr bíll. V. 2.050 þús.
Toyota Corolla XLi hatchback
‘95, rauður, 5 g., ek. 29 þús. km.
V. 1.090 þús.
Nissan Sunny 2,0 GTi ‘92,
rauður, 5 g., ek. 84 þús. km. sól-
lúga, allt rafdrifið, ABS bremsur,
álf. o.fl. V. 990 þús.
Grand Cherokee V-8 ‘95, rauð-
ur, ssk., m/öllu, ek aðeins 24 þús.
km. V. 3.3 millj.
Nissan Micra LX ‘96, 3 d., 5 g.,
ek. 20 þús. km. V. 940 þús.
VW Golf 1,4i station ‘96, blár,
ek. 27 þús. km. V. 1.240 þús.
Dodge Daytona V-6 IROC ‘92,
rauður, 5 g., ek. 100 þús. km, sól-
lúga, spoiler, álf. hraðastillir, loft-
púöar o.fl. V. 1.290 þús.
Suzuki Vitara JLXi ‘92, ssk., 3
d., blár, ek. 95 þús. km. Fallegur
jeppi. V. 1.090 þús.
Toyota Corolla XLi 1,6 sedan
‘94, vínrauður, 5 g., ek. 40 þús.
km, álfelgur, loftpúðar, nýryðvar-
inn. V. 1.050 þús.
Opel Astra 1,4i station ‘95, ssk.,
ek. 39 þús. km, rafdr. rúður, o.fl.
V. 1.260 þús.
Fjórhjóladrifinn sportbíll! AMC
Eagle Taion Doch turbo ‘90,
16v. 4x4, svartur, 2000 vél, 5 g.,
ek. 100 þús. mílur, álfelgur, allt
rafdrifið. V. 1.350 þús.
Þýskur eðalvagn, BMW 735 iA
‘92, ssk., ek. 142 þús. km. allt
rafdrifið, sóllúga, álfelgur, spól-
vörn, ABS o.fl. V. 2.850 þús.
Ford Econoline 150 dísil turbo
‘87,4x4, ssk., ek. 160 þús. km. (vél
nýupþt.). Vel innréttaður húsbíll
m/leðurinnr. gást. o.fl. V. 1.780 þús.
Subaru Legacy 2,2 sedan ‘96,
ssk., ek. aðeins 5 þús. km. rafdr. í
öllu, álfelgur o.fl. V. 2.090 þús.
Viöskiptavinir: lltvegum ástands-
skoðun á mjög hagstæðu verði.
Suzuki Sidekick JLX Sport ‘96,
rauður/grár, ssk., ek. 22 þús. km,
ABS, rafdr. rúður o.fl.
V. 2.080 þús.
Ford Escort 1,4 CLX station ‘96,
5 g., ek. 42 þús. km.
V. 1.190 þús. (Góð lán geta fylgt.)
Fiat Uno 45 arctic ‘93, 5 d.,
grænn, 5 g., ek. 79 þús. km. Ný
tímareim, kúpling o.fl. V. 460 þús.
Plymouth Grand Voyager ‘93, 7
manna, ssk., V-6 (3,3 I), sérhann-
aöir barnastólar i aftursætum o.fl.
V. 1.790 þús. Sk. áód.
VW Golf GT ‘92, 5 d., rauður, 5
g., ek. 46 þús. km, álfelgur, spoil-
ero.fl.V. 1.150 þús.
Leiðtogar Nato-ríkjanna gátu þess
í gær að Rúmenía og Slóvenía auk
Eystrasaltsríkjanna kæmu til
greina þegar frekari stækkun yrði í
austur.
Framkvæmdastjóri Nato, Solana,
sagði það takmark samtakanna að
nýju aðildarríkin fengju formlega
inngöngu 1999 þegar samtökin
verða 50 ára.
Búist hafði verið við að ekki
fengju fleiri en þrjú ríki inngöngu i
fyrstu lotu. Þar með fékk Clinton
Bandaríkjaforseti eins og hann
vildi. Hann fékk stuðning frá Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
og flórum öðrum Nato-leiðtogum
sem töldu að of hröð stækkun gæti
veikt samtökin.
Rússnesk yfirvöld fordæmdu í
gær stækkunina og sögðu hana
mestu mistök sem gerð hefðu verið
í Evrópu síðan síðari heimsstyrjöld-
inni lauk. Reuter
Nýr héraösstjóri Hong Kong, Tung Chee-hwa, þurfti aö fá aöstoö er hann fór
um borð í kínverskan eftirlitsbát í morgun. Sfmamynd Reuter
Kambódía:
Konungssinnar
óttaslegnir
Nokkrir af forvígismönnum kon-
ungssinna í Kambódíu fóru í felur i
gær eftir að kollegi þeirra var tekinn
af lífi af hermönnum sem styðja Hun
Sen, sem nú sljómar höfuðborg
landsins, Phnom Penh.
Allt hefur verið með kyrrum kjör-
um síðan valdarán Hun Sen átti sér
stað um helgina en óttast fréttaskýr-
endur að það sé aðeins lognið á undan
storminum. Segja þeir að mikið vanti
upp á að valdaránið verði til þess að
koma á lýðræði í landinu og að um
mikil mistök hafi verið að ræða.
Ranariddh prins, sem flúði til
Frakklands sl. föstudag, hvatti þjóðir
heims til að viðurkenna ekki Hun
Sen sem forsætisráðherra landsins
en Ranariddh gegndi því embætti.
Hann sagði að miklar líkur væru á
því að borgarastyrjöld brytist út ef
Hun Sen féllist ekki á að hann tæki
við embætti sínu aftur.
Yfir 800 manns, aðallega Taílend-
ingar, voru fluttir frá höfuðborg
Kambódíu í gær en 200 ferðamenn og
starfsmenr hjálparstofnana tepptust
í bænura Siem Reap vegna bardag-
anna un helgina og bíða enn eftir að
jitthvað verði hægt að gera í þeirra
málum.
Talið er að 58 manns hafi látist í
átökunum um helgina og 200 manns
særst. Reuter
Flugverkfall í Bretlandi
Ferðir þúsunda flugfarþega
raskast í dag vegna verkfalls flug-
liða hjá British Airways. Er þetta
fyrsta verkfallið af nokkrum boð-
uðum þriggja daga verkföllum.
Lögregla afvopnuð
Friðargæsluliðar frá Bandaríkj-
unum hafa gert upptækan fjölda
vopna, skotfæra og og sprengju-
efna hjá sérsveitum lögreglu Bosn-
íuserba.
Jeltsín veiðir vel
Borís Jeltín Rússlandsforseti
hefur veitt vel í fríinu sínu i Kar-
elíu, að sögn
Nainu konu
hans. „Fyrsta
daginn veiddum
við næstum ekk-
ert. En í gær
fengum við um
20 fiska. Sumir
voru litlir en samt mjög bragðgóð-
ir,“ sagði forsetafrúin í gær.
43 þúsund ára jurt
Grasafræðingar í Ástralíu kváð-
ust í gær hafa fundið jurt sem þeir
telja vera 43 þúsund ára gamla.
Kampavín í hafi
Kafarar hafa bragðað á 90 ára
gömlu kampavíni sem þeir náðu
úr skipsflaki í Eystrasalti. Sögðu
þeir vínið bragðast ágætlega.
Sprengjuárás á lest
Að minnsta kosti 33 létu lífið og
66 særðust þegar sprengja sprakk
um borð í farþegalest i Punjap á
Indlandi í gær.
Bosníuferð
Rauði krossinn í Bretlandi vis-
aði í gær á bug fréttum frá Sara-
jevo um að
Díana prinsessa
væri hætt við
ferð til Bosníu
þar sem hún
kynni mögulega
að hitta eigin-
konu stríðs-
glæpamannsins Radovans Kar-
adzics. Sagði Rauði krossinn að
ekki væri búið að taka endanlega
ákvörðun um ferðina.
Le Pen fyrir rétt
Jean-Marie Le Pen, leiðtogi
Þjóðfylkingarinnar i Frakklandi,
kemur fyrir rétt í nóvember fyrir
meinta árás í kosningabaráttunni
á frambjóðanda Sósíalistaflokks-
ins.
Fangauppreisn
Átta manns létu lífið i fanga-
uppreisn í Tyrklandi í gær. Fang-
arnir mótmæltu slæmu ástandi og
meðferð.
Mótmæli í Kina
Tugir Pekingbúa efhdu í morg-
un til mótmæla vegna sorpstöðvar
sem þeir segja menga andrúms-
loftið.
Ekki ákærður
Saksóknari ákvað í gær að
fella niður ákærur á hendur
Michael Kenn-
edy fyrir að hafa
haft mök við
barnapíu fjöl-
skyldunnar.
Meint fórnar-
lamb neitaði að
bera vitni. Mich-
ael er sonur Ro-
berts Kennedys öldungadeildar-
þingmanns.
Framkvæmd viðunandi
Önnur umferð kosninganna í
Albaníu fór fram sl. sunnudag.
Sögðu eftirlitsmenn Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu að
framkvæmd þeirra hefði verið
viðunandi en fjarri því að vera
fullkomin.
Njósnað um herinn
Fyrrum innanríkisráðherra
Tyrklands, Meral Aksener, við-
urkenndi í gær að lögreglan
hefði njósnað um herinn til að
komast að undirbúningi þeirra
um mögulegt valdarán. Reuter