Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Blaðsíða 17
16
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997
25
íþróttir
Iþróttir
rr#' ENGLAND
Manchester United er í
miklum vanda þessa dagana
því svo gæti farið að ekkert
í verði úr því að hinn brasilíski
jí Celio Silva spili með liðinu á
, næsta tímabili. Silva hefur
ekki enn fengið atvinnuleyfl í
|| Englandi og því gera menn á
Old Trafford lítið annað þessa
: ■ stundina en að bíða og vona
: það besta eins og Alex Fergu-
son, framkvæmdastjóri liðsins,
II orðaði það.
Ferguson er hins vegar bú-
jjj inn að finna sér varamann fyr-
ir Silva ef illa fer því í næstu
f viku mun Dante Poli, landsliðs-
• maður Chile, æfa með liðinu en
hann þykir öflugur vamarmað-
ur. Það verður ekkert mál að fá
;: atvinnuleyfi fyrir hann þar
É sem hann er á ítölsku vega-
bréfi.
Svíinn Tomas Brolin hjá
Leeds er nú loks mættur á æf-
ingar á Elland Road til að
standa við síðasta árið af samn-
ingi sínum við liðið. Brolin hef-
ur ekki átt sjö dagana sæla hjá
| Leeds frá þvi hann kom til liðs-
ins, fyrir metfé, frá Parma á
Ítalíu sem stórstjarna en
: frægðarsólin hefur farið ört
: hnignandi síðan.
Brolin hefur ekki verið í
náðinni hjá George Graham
íft framkvæmdastjóra og verið
j|| mjög óánægður með hlutskipti
( sitt undanfarið. Hann hótaði að
:; hætta í knattspyrnu fyrir fuUt
. og allt en úr því varð ekkert
eftir að forráðamenn Leeds hót-
uðu því að lögsækja hann þá
fyrir samningsrof.
Roy Keane, hinn nýi fyrir-
liði ensku meistaranna í Man-
chester United, virðist ekki
| ætla að ná að hemja skap sitt
þrátt fyrir að bera nú fyrirliða-
bandið. Hann var bókaður í æf-
íí: ingaleik liðsins gegn Inter Mil-
: an um helgina eftir að hafa
|j traðkað ofan á Fransmannin-
um markheppna, Youri Djorka-
eff.
„Ég ber engan kala til Kea-
ne eftir þetta en tel hann bara
ekki réttu týpuna sem fyrirliði
stórliðs. Hefði ég brugðist verr
við hefði hann lent í alvarlegri
■ málum,“ sagði Djorkaeff um
írann skapbráða.
Kenny Dalglish, fram-
kvæmdastóri Newcastle, ætlar
að veðja á hinn 21 árs gamla
Keith O'Neill, leikmann Nor-
wich, sem arftaka Alans Shear-
er á meðan Shearer er frá
vegna meiðsla. Búist var við
| stórlöxum á borð við Batistuta,
Ravanelli eða Ostenstad en
Dalglish borgaði þess í stað 480
milljónir króna fyrir O'Neill og
á svo hefur hann líka Bjarna
Guðjónsson tilbúinn í slaginn.
„Les Ferdinand er maður-
inn sem getur fyllt skarðið sem
Shearer skilur eftir sig i enska
landsliðinu," segir Gerry Fran-
cis, framkvæmdastjóri Totten-
: ham. Hann er líklega sá maður
| sem þekkir Ferdinand sem
knattspyrnumann hvað best
; eftir að þeir félagar voru í
nokkur ár saman hjá QPR og
P nú aftur hjá Tottenham.
® Blackburn Rovers hefur nú
geflst upp á því að halda enska
) landsliðsmanninum, Graeme
Le Saux sem verið hefur eftir-
sóttur af mörgum stórum félög-
um undanfarið.
„ Viö þurfum ekkert að selja
en við höfum engin not fyrir
leikmenn sem eru óánægðir
hjá félaginu,“ sagði Roy Hodg-
son, framkvæmdastjóri
j; Blackburn Rovers, í gær. -ÖB
Bönn og sektir
hjá Leiftursmönnum
Tveir leikmanna Leifturs, Hörður Már Magnússon
og Slobodan Milisic, voru í gær úrskurðaðir í eins
leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda. Þeir leika
því ekki með Ólafsfirðingum gegn Val i úrvalsdeild-
inni í knattspymu þann 7. ágúst.
Leiftur fékk að auki 14 þúsund króna sekt vegna
refsistiga og brottvísunar liðsstjóra í leiknum við
Skallagrím í síðustu viku.
Margir leikmenn úr neðri deildum fengu leikbönn.
Þrír þeirra voru úrskurðaðir i tveggja leikja bann,
þeir Zoran Micovic úr Fjölni, Grétar Þórsson frá Sel-
fossi og Stefán Ragnarsson úr Neista á Hofsósi.
-VS
Víkingar
sendu Sló-
venann heim
Kolar Bomt frá Slóveníu leik-
ur ekki meira með Víkingum í 1.
deildinni í knattspymu en þeir
hafa ákveðið að senda hann
heim.
Bomt kom til Víkinga í júní,
sem sóknarmaður. Hann skoraði
ekki mark en fékk hins vegar
fjögur gul spjöld í flmm leikjum
og var einmitt úrskurðaður í
leikbann í gær. -VS
ÍA með sterkara lið gegn
Kosice á Akranesi
Skagamenn mæta Kosice frá Slóvakíu í kvöld í síðari leik liðanna í for-
keppni meistaradeildar Evrópu í knattspymu. Leikið er á Akranesi og hefst
viðureignin kl. 18.30.
Kosice vann fyrri leikinn, 3-0, þannig að ólíklegt er að ÍA nái að komast
áfram. Lið Kosice er fimasterkt, langbesta lið Slóvakíu, og með sex landsliðs-
menn í sínum röðum.
Þeir Ólafin- Adolfsson, Aleksandar Linta og Haraldur Ingólfsson, sem misstu
af fyrri leiknum, verða með í dag. Hins vegar verður Sigursteinn Gíslason ekki
með vegna nárameiðsla og útlit er fyrir að hann verði frá keppni enn um sinn.
Lið Kosice kom til landsins meö leiguflugi í gær og vora um 50 manns með
í fór. -VS
Knattspyrnudeild BÍ gjaldþrota
- Flugleiðir fóru fram á gjaldþrotaskipti vegna mikilla skulda - kröfur um 4 milljónir
Knattspymudeild BI á Isafirði hefur
verið lýst gjaldþrota. Það voru Flugleið-
ir sem fóru fram á gjaldþrotaskiptin en
BÍ skuldaði fyrirtækinu umtalsverðar
fjárhæðir vegna ferðalaga liðsins. Sam-
kvæmt heimildum DV voru kröfur í bú
BÍ um fjórar milljónir króna.
Knattspyrnufélög á ísafirði hafa löng-
um átt erfitt uppdráttar fjárhagslega en
knattspyrnudeild ÍBÍ var lýst gjaldþrota
árið 1988. Þá var Bl stofnað og fljótlega
fóru skuldirnar að hrannast upp. Þegar
ný stjórn tók við deildinni árið 1994 námu
skuldirnar um 4-5 milljónum króna.
Stjórninni tókst að saxa nokkuð á þann
skuldahala en áfram var reksturinn
þungur.
í fyrrasumar freistuðu BÍ-menn þess
að koma liðinu upp úr 4. deild og fengnir
vora tveir leikmenn frá Júgóslavíu og
kunnur þjálfari auk fjölda aðkomu-
manna. Liðið komst í úrslitakeppni 4.
deildar en náði ekki að vinna sér sæti í
3. deild. Rekstrarkostnaður, sem aðallega
fólst í dýram ferðalögum, reyndist það
mikill að ekki varð komist hjá gjaldþroti.
Þrátt fyrir gjaldþrot knattspyrnudeild-
ar BÍ er aðalstjórn félagsins, BÍ 88, enn til
svo og unglingaráð sem er sérdeild inn-
an félagsins. Sú deild sendir fjölda flokka
til keppni í sumar á Islandsmótið.
Framtíð meistaraflokksliðs á ísafirði
er nokkuð óljós en samkvæmt heimildum
DV eru uppi hugmyndir um að sameina
þau félög sem nú senda meistaraflokkslið
til keppni, Erni og Reyni i Hnífsdal, í
eitt sterkt knattspyrnufélag.
-BL
Valur rauf
varnarmúr KR
- og mætir Breiðabliki í úrslitaleik
Flestir hafa eflaust tippað á sigur
KR-stúlkna fyrir bikarleikinn gegn
Val á Hliðarenda í gærkvöld þar
sem þær höfðu ekki fengið svo mik-
ið sem eitt mark á sig í allt sumar.
Á því varð hins vegar breyting í
þessum leik, Valur sigraði, 2-1, og
mætir Breiðabliki í úrslitáleiknum.
Leikurinn var nokkuð rólegur á
upphafsmínútunum en þau róleg-
heit reyndust aðeins vera lognið á
undan storminum þar sem leikur-
inn varð síðar bráðfjörugur og vel
leikinn. Eftir að Valsstúlkur
komust yfir með góðu marki Lauf-
eyjar Ólafsdóttur tóku þær öll völd
á vellinum, spiluðu mjög skemmti-
lega saman og Ásgerður H. Ingi-
bergsdóttir náði að bæta við öðra
marki fyrir leikhlé.
Til síðari hálfleiks mættu heima-
menn með varamarkvörð sinn,
Ragnheiði Jónsdóttur, í markinu
þar sem Bima M. Bjömsdóttir varð
að fara af leikvelli vegna meiðsla.
Það kom hins vegar berlega í ljós að
Ragnheiður er engu minni skörung-
ur í markinu en Bima og sýndi frá-
bær tilþrif sem áttu stóran þátt í því
að KR-stúlkur náðu aðeins að klóra
í bakkann með einu marki Guðlaug-
ar Jónsdóttur í síðari hálfleik þrátt
fyrir urmul af góðum færum.
„Niðurstaðan hræðileg"
„Það var erfitt að fá tvö mörk á
sig svona snemma og það eiginlega
sló okkur út af laginu. Þetta voru
klaufamörk, sérstaklega annað
markið, en þetta er nú bara boltinn
og niðurstaðan er hræðileg," sagði
Ásdís Þorgilsdóttir, leikmaður KR,
vonsvikin eftir leikinn.
„Það er auðvitað toppurinn að
komast í úrslitaleikinn og kannski
bara við sjálfar sem höfðum trú á
þvi að við gætum þetta. Þær
kannski mættu of sigurvissar en við
spiluðum mjög vel, baráttan var frá-
bær og mörkin falleg. Það er alveg á
hreinu að við ætlum ekki að láta
leikinn endurtaka sig frá því í bik-
arnum í fyrra,“ sagði Laufey Ólafs-
dóttir, einn besti maður Vals í
leiknum, sigurreif í lokin.
Blikastúlkur í basli
Breiðablik vann ÍBV, 4-1, á Kópa-
vogsvellinum en var þó í basli lengi
vel. Fanný Yngvadóttir kom ÍBV
yfir en Ásthildur Helgadóttir jafn-
aði með fallegu skallamarki fyrir
hlé. í síðari hálfleik skoraði Ásthild-
ur tvö mörk til viðbótar og Katrín
Jónsdóttir eitt.
-ÖB /VS
Sterar í norskum görpum:
Norðmenn bannfærðir?
Alþjóða frjálsíþróttasambandið, IAAF, hefur nú hótað norska frjálsí-
þróttasambandinu því að setja allt norskt frjálsíþróttafólk í bann á al-
þjóða vettvangi skili sambandið ekki skýrslum úr jákvæðum lyfjaprófum
til höfuðstöðvanna innan tilskilinna tímamarka. IAAF er mjög óánægt
með að Norðmenn voru aðeins nýlega að skila inn nöfirum íþróttafólks
sem greindist meö ólögleg lyf í blóöi sínu þann 14. maí sl.
Talsmaður IAAF, Giorgio Reineri, sagði á mánudaginn að stjórn sam-
bandsins hefði sent Norðmönnum mjög harðort viðvörunarbréf þess efn-
is að ef þeir bættu ekki ráö sitt umsvifalaust gætu þeir átt bann yfir höfði
sér. Hugsanlegt keppnisbann myndi meina öllu norsku frjálsíþróttafólki
aðgang að öllum hlaupakeppnum á vegum LAAF, þ.m.t. heimsmeistara-
keppninni. Nöfn þeirra sem féllu á lyfjaprófinu hafa ekki verið gerð op-
inber en talið er að í þeim hópi sé ekki neinn af fremstu afreksmönnum
Norðmanna á þessu sviði. Þeir seku eiga yfir höfði sér allt að fjögurra
ára keppnisbann. -ÖB
Margrét Jónsdóttir og íris B. Eysteinsdóttir, varnarmenn Vals, í baráttu við Olgu Færseth, sóknarmann KR, í gær. Valur varð
fyrsta liðið til að skora hjá og sigra KR og mætir Breiðabliki í úrslitaleik bikarkeppninnar. DV-mynd Pjetur
Flokkast sem hneyksli
ef Dinamo fellur út
- leggjum allt í sölurnar, segir Kristján Finnbogason
KR-ingar freista þess í dag að verja
2-0 forskot sitt gegn Dinamo Búkarest.
Félögin leika síðari leik sinn í for-
keppni UEFA-bikarsins kl. 14 að ís-
lenskum tíma á Dinamo-leikvanginum
í Búkarest.
Úrslitin í fyrri leiknum era eitt
mesta áfallið í sögu Dinamo. Eins og
fram hefur komið var þjálfarinn settur
af og forseti félagsins stýrir liðinu sjálf-
ur gegn KR í dag.
Þorsteinn ekki meö
KR-ingar komu til Búkarest í gær-
morgun eftir sólarhringsdvöl í Amster-
dam. Þeir æfðu á velli Dinamo á leik-
tíma í gær. Þorsteinn Jónsson getur að
öllum líkindum ekki spilað með KR í
dag vegna meiðsla í læri og þar er
skarð fyrir skildi. Á móti kemur að
Heimir Guðjónsson og Andri Sigþórs-
son eru orðnir leikfærir eftir meiðsli.
„Þetta verður örugglega erfitt og við
erum með gott veganesti og leggjum
allt í sölurnar til að komast áfram,“
sagði Kristján Finnbogason, markvörð-
ur og fyrirliði KR, við DV í gærkvöld.
„Við munum spila sömu leikaðferð
og heima, með Óskar Hrafn fyrir fram-
an vömina og reynum að halda þeim
sem lengst í núilinu. Þeir verða að
sækja og þá opnast eflaust vömin hjá
þeim og það reynum við að nýta okk-
ur,“ sagði Kristján.
Búist er við 12-15 þúsund áhorfend-
um á leikinn en völlur Dinamo rúmar
18 þúsund manns. Rúmenskir fjölmiðl-
ar hafa fjallað mikið um viðureign lið-
anna og þar er tónninn sá að það flokk-
ist undir algert hneyksli ef Dinamo
fellur úr keppni fyrir áhugamönnun-
um frá íslandi. -VS
Langþráð
hola í höggi
Hannes Ingibergsson, 75 ára
gamall kylfingur, fór holu í
höggi á öldungamóti sem haldið
var að Flúöum um síðustu helgi.
Draumahöggið kom á 8. braut
vallarins.
Hannes, sem er fyrram
íþróttakennari, hefur stundað
golf í áraraðir en aldrei náð þess-
um merka áfanga áður. -VS
3. DEiLD KARLA
A-riðill;
Léttir-Framherjar 3-2
Haukar 11 9 2 0 39-13 29
Léttir 11 6 2 3 25-15 20
Framherjar 11 6 2 3 35-28 20
Ármann 11 6 1 4 28-23 19
Smástund 11 5 1 5 24-25 16
ÍH 11 2 3 6 18-29 9
KFR 11 1 3 7 17-32 6
Hamar 11 2 0 9 19-40 6
Samvinna milli
Hauka og ÍH
Handknattleiksdeildir Hauka og ÍH hafa
gert með sér samkomulag um nána sam-
vinnu um meistaraflokka hjá félögunum á
komandi tímabili. Petr Baumrak, leikmaður
Hauka, verður þjálfari ÍH, sem leikur í 2.
deild, og sama meistaraflokksráð starfar fyr-
ir bæði félögin. Markmiðið er að auka styrk
og breidd beggja félaga og gefa fleiri leik-
mönnum tækifæri á að spreyta sig. -VS
Alsírbúi til KA
- örvhenta skyttan Karim Yala samdi við KA í gærkvöld
Islandsmeistarar KA í hand-
knattleik sömdu í gærkvöld við al-
sírska landsliðsmanninn Karim
Yala um að leika með liðinu í vet-
ur.
Karim Yala er örvhent skytta og
geysilega öflugur leikmaður. Hann
er þrítugur að aldri og gerði íslend-
ingum heldur betur skráveifu á
heimsmeistaramótinu í Kumamoto
i vor. Hann skoraði átta mörk þeg-
ar ísland og Alsír skildu jöfn, 27-27,
í riðlakeppni HM.
Þar með hefur KA náð í tvo öfl-
uga erlenda leikmenn fyrir vetur-
inn. Hinn er Vladimir Goldin, rétt-
hent skytta frá Hvíta-Rússlandi,
sem væntanlegur er til Akureyrar
nú á næstu dögum.
KA hefur sem kunnugt er misst
marga lykilmenn frá síðasta tíma-
bili, svo sem Róbert Julian Dura-
nona, Sergei Ziza og Heiðmar Felix-
son og Erling Kristjánsson, að
ógleymdum þjálfaranum Alfreð
Gíslasyni. Þessi liösstyrkur er
þeim þvi afar kærkominn.
-BL/VS
Hibs greiddi 23
milljónir fyrir Ólaf
- kurr í aödáendum félagsins vegna kaupanna
Skoskir fjölmiðlar greindu frá þvi
í gær að Hibernian hefði keypt Ólaf
Gottskálksson frá Keflavík fyrir 200
þúsund pund eða tæpar 23 milljónir
króna.
Þetta er hærri upphæð en flestir
reiknuðu með og ljóst að bæði
Keflavík og Ólafur geta verið mjög
sátt við sinn hlut. Samkvæmt reglu-
gerð KSÍ er hlutdeild leikmanns i
greiðslunni tíu prósent, eða 2,3
milljónir króna.
Þegar er kominn upp kurr meðal
stuðningsmanna Hibernian vegna
fregna um að Ólafur verði í marki
Hibs gegn Celtic í fyrstu umferð úr-
valsdeildarinnar á sunnudaginn
kemur. Chris Reid hefur verið vara-
markvörður liðsins í mörg ár og
flestir töldu að núna væri röðin
loksins komin að honum. Ólafur
þarf því að sýna sig strax og sanna
til að verða tekinn i sátt hjá mörg-
um aðdáenda félagsins.
Skotarnir eru þegar búnir að ein-
falda hið erfiða eftirnafn Ólafs.
Stungið hefur verið upp á að Gott-
skálksson verð breytt í „Got-
Kicks-Son“.
-VS
ÍA fær ekki
útlending
Ólíklegt er að Skagamenn nái
að verða sér úti um sterkan er-
lendan framherja áður en frestur
um félagaskipti í knattspyrn-
unni rennur út á miðnætti ann-
að kvöld.
Gylfi Þórðarson, formaður
Knattspyrnufélags ÍA, sagði við
DV í gærkvöld að leit að nægi-
lega öflugum leikmanni hefði
engan árangur borið.
„Þeir sem eru nógu góðir eru
of dýrir til þess að við fórum að
sækja þá fyrir sjö leiki. Það
bendir allt til þess að við látum
þann leikmannahóp sem nú er
til staðar nægja út tímabilið,"
sagði Gylfi. -VS
Júgóslavnesk
skytta til ÍBV
- og landsliösmarkvörður kvenna frá Litháen
Körfubolti:
Grindavík
fær sterk-
DV Eyjum:
Karlalið ÍBV í handbolta fær júgóslavneska skyttu, Anton Bukilic, til
reynslu um miðjan ágúst.
Bukilic hefur leikið 18 landsleiki fyrir Júgóslavíu. Síðasta vetur lék
hann með Lugi í Svíþjóð og skoraði 7 mörk að meðaltali í leik. Hann er
28 ára og hefur áður leikið með Rauðu stjörnunni í Júgóslavíu og með
félögum á Spáni og í Portúgal.
Þá hefur kvennalið ÍBV fengið góðan liðsstyrk. Eglé Plegiene, 26 ára
landsliðsmarkvörður frá Litháen, hefur gengið til liðs við ÍBV og var
skrifaö undir samning i síðustu viku.
Plegiene á 322 leiki að baki meö félagsliði sínu, Vilnius, og hefur spil-
að 26 Evrópuleiki og 32 landsleiki. Mjög gott orð fer af henni og bindur
ÍBV miklar vonir við hana.
Þá er ljóst að Andrea Atladóttir leikur með ÍBV næsta vetur. Hins veg-
ar missir liðið Söru Guðjónsdóttur, sem er flutt til Danmerkur, og Lauf-
eyju Jörgensdóttur. Verið er að leita að frekari liðsstyrk í útlöndum.
-ÞoGu
Meistaradeild Evrópu
ÍA-Kosice ..................18.30
UEFA-bikarinn:
Dinamo Búkarest-KR .........14.00
Úrvalsdeildin í knattspymu:
iBV-Leiftur.................20.00
2. deild karla:
Þróttur, N.-HK .............20.00
íkvöld
Stórsigur Celtic
Glasgow Celtic vann auð-
veldan sigur á Inter Cardiff
frá Wales, 5-0, í forkeppni
UEFA-bikarsins í knatt-
spyrnu í gærkvöld. Celtic
vann 8-0 samanlagt.
Ferencvaros vann Boh-
emians frá írlandi, 5-0, í
Ungverjalandi og samanlagt
6-0. KR-ingar geta dregist
gegn Ferencvaros ef þeir
komast áfram í dag. -VS
an bakvörð
- lék í 4-liða úrslitum háskólakeppninnar
Grindvíkingar hafa fengiö öflug-
an bandarískan bakvörð til liðs við
úrvalsdeildarlið sitt í körfubolta. Sá
heitir Darryl Wilson og er 1,84 m
hár bakvörður. Wilson lék með
Missisippi State-háskóla sem komst
í 4-liða úrslit NCCA-háskólakeppn-
innar 1996. Þar beið liðið lægri hlut
gegn Syracuse sem síðan tapaði fyr-
ir Kentucky í úrslitaleik. Wilson,
sem var fastur maður í byrjunarliði
Missisippi, lék mjög vel i þessum
leik og skoraði 27 stig.
Það kom því mjög á óvart að Wil-
son skyldi ekki vera valinn í nýliða-
vali NBA-deildarinnar eftir góða
frammistöðu í háskóla en almennt
var hann talinn í hópi bestu bak-
varða Bandaríkjanna. í fyrra reyndi
Wilson fyrir sér á Ítalíu en fékk
ekki samning þcir og sneri því heim
til Bandaríkjanna.
Bevis til ísafjarðar
Fleiri félög í úrvalsdeildinni hafa
gengið frá málum hvað varðar er-
lenda leikmenn. ísfirðingar fá til
liös við sig bandarískan framherja,
David Bevis frá Arkansas Tech-há-
skóla í 2. deild.
Bevis er 1,98 m á hæð og skoraði
22,3 stig að meðatali í leik fyrir
skóla sinn, auk þess sem hann tók
11,7 fráköst. Hann er væntanlegur
til ísafjarðar um helgina.
Þá er allar líkur á því að miðherj-
inn Friðrik Stefánsson leiki áfram
með liðinu, en til stóð að hann færi
til Bandaríkjanna í háskóla.
Þórsarar bíða eftir Williams
Þórsarar á Akureyri eru með
bandarískan leikmann, Jo Jo
Chamber, 1,98 m háan framherja frá
Christopher Newport-háskóla í
sigtinu.
Ekki er ljóst hvort af komu
Chambers til Akureyrar verður en
samkvæmt heimildum DV gera
menn þar á bæ sér enn vonir um að
Fred Williams snúi aftur til Akur-
eyrar. Hann er að reyna að komast
að á meginlandi Evrópu en er enn
samningslaus. -BL