Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997 Fréttir Framkvæmdirnar í Stjórnarráöshúsinu: Hófust í leyfisleysi - ekki til eftirbreytni segir byggingafulltrúi „Þetta er yflrleitt slæmt og ekki samkvæmt þeim leikreglum sem settar hafa verið í þjóöfélaginu af hinu háa Alþingi og af ráðuneyt- unum með reglugerðum," segir Vikartindur að hverfa DV, Hvolsvelli: í gær, 29. júlí, var haf- ist handa við að taka aft- ari krana skipsins niður og á því verki að verða lokið á fimmtudag ef að- stæður leyfa. Þá er eftir að hluta í sundur þá skipshluta sem liggja í fjörunni og flytja þá af strandstað. Blokk aðalvélar verður sprengd í tætlur því hún er of þung til að hægt sé að ná henni upp með þeim tækjum sem eru á staðnum. Hvenær lokið verður við að flytja skipshluta af staðnum fékkst ekki upp- gefið hjá þeim mönnum sem voru að störfum sl. laugardag. En sögu þessa flutningaskips er að ljúka. JBen Lokin hjá Vikartindi. Magnús Sædal Svavarsson bygg- ingafulltrúi í Reykjavík um þann framgangsmáta að hefja fram- kvæmdir við byggingar og húsa- breytingar án þess að skila fyrst inn teikningum og áætlunum til byggingar- nefnda og bygg- ingarfulltrúa og stilla þeim síð- an upp frammi fyrir gerðum hlut. Þjófstartaö Framkvæmd- ir við Stjórn- arráðshúsið hófust í apríl í vor án þess að teikningar og önnur gögn um framkvæmdirn- ar hefðu verið lagðar fyrir byggingamefnd og byggingafull- trúa Reykjavík- urborgar. Þessi gögn fengu byggingaryfir- völd borgarinn- ar ekki í hend- ur til umfjöllun- ar fyrr en fyrir skemmstu og bárust bygging- arfulltrúa sam- þykkt og tilbúin fyrst í þessari viku, rúmum þremur mánuð- tun eftir að framkvæmdir hófust. Bygg- ingafulltrúinn segir í samtali við DV að þegar þessi háttiu- er hafður á hjá sjálfu rikisvald- inu þá megi segja að þar höggvi sá sem hlífa skyldi. DV-mynd JBen Búið er að rífa allar innréttingar og lausa milliveggi innan úr Stjórnarráðinu. Tilboð í endurbyggingu innanhúss verða opnuð á morgun. Áætlað er aö Ijúka framkvæmdum um miðjan október. DV-mynd Hilmar Þór Að sögn Ólafs Davíðssonar ráðu- neytisstjóra í forsætisráðuneytinu er áætlað að framkvæmdum ljúki um miðjan október í haust og ráðu- neytið flytji þá aftur inn i nýupp- gerð heimkynni sín. Ólafúr segir að ekki hafi verið unnt að fara í útboð á endurbyggingunni innandyra fyrr en eftir að eftir að bæði húsaff iðun- arnefnd og byggingamefnd borgar- innar hafði samþykkt framkvæmd- imar. Nauðsynlegt hafi því verið að rífa fyrst innan úr húsinu og rann- saka það hátt og lágt áður en raun- veruleg endurbygging hæfist. Fyrr en því verki væri lokið hefði ekki verið tímabært að ganga endanlega frá framkvæmdaáætlunum. Nú sé þessum undirbúningi lokið og hægt að hefjast handa strax eftir verslun- armannahelgina. í blóra viö reglur „Það er því miður of mikið um það að byrjað sé á framkvæmdum án þess að leyfi sé fyrir þeim, sér- staklega þegar um er að ræða breyt- ingar á þegar byggðum húsum,“ segir Magnús Sædal Svavarsson byggingafulltrúi í Reykjavík í sam- tali við DV. Hann segir að sérsiak- lega þegar um breytingar á innrétt- ingum og innri húsaskipan er að ræða, finnist fólki sem um sé að ræða þeirra einkamál. Svo sé hins vegar ekki að öllu leyti, því að allar breytingar verði að samþykkja í bygginganefnd og teikningar að liggja fyrir og höfuðástæða þess varði öryggi fólks, bæði hvað varö- ar brunavarnir auk annarskonar slysahættu. Einnig beri bygginga- fulltrúa lögum samkvæmt að veita Fasteignamati ríkisins réttar upp- lýsingar um fasteignir, sem sé ómögulegt ef byggingayfirvöld sveitastjórna eru sniðgengin. -SÁ Dagfari__________________________ Þegi þú, húsbóndinn talar Enn eru menn aö tala um vestur- för forseta Islands. Og ekki að ósekju. Ólafur Ragnar, Guðrún Katrín og þau bæði hjónin tóku Vesturheim með trompi. Fyrst varaforseta og forseta Bandaríkj- anna, síðan blaðamenn þar vestra á fjölmennum og frægum blaða- mannafundi og næst fóru þau til Utah og í Spænska fork, þar sem forseti íslands og Guðrún Katrín og þau bæði hjónin urðu afar snortin af þeirri tilfinninga- reynslu, sem fólst í því að sjá svip- mót og ættartengsl Vestur-íslend- inga og afkomenda þeirra birtast þeim hjónum í fjölmennu hófi sem þar var haldið. Þetta snart forsetann, Guðrúnu Katrínu og þau bæði hjónin, enda þótt Vestur-íslendingar hafi ekki kosningarétt hér upp á íslandi. Það segir hins vegar mikið um það hvers forsetinn er megnugur og þau bæði hjónin og hvílíkrar virðingar við njótum í Vestur- heimi. Þökk sé Ólafi Ragnari. Vandamálið við þessa frægðar- fór felst aftur á móti í því að það er ekki sama hvaö forsetinn segir. Eða hvemig hann segir það. Hann mætti vanda sig betur að mati ut- anríkisráðherra. Ekki það aö Guðrún Katrín hafi talað af sér, enda hafði Ólafur Ragnar orðyrir þeim hjónum báð- um þegar því var að skipta og þá sérstaklega á blaðamannafundin- um i Washington, þótt hann talaði að sjálfsögðu fyrir hönd þeirra beggja hjónanna og léti vel af heim- sókn sinni. En Ólafi forseta Grímssyni varð á í orðavali sínu. Ekki það að utan- ríkisráðherra ætli að gera veður út af því, en forsetinn verður auðvit- að að muna að hann talar ekki fyr- ir sig og konu sína og þau bæði hjónin og hann er heldur ekki að tala fyrir hönd þjóðarinnar, heldur er hann talsmaður utanríkisráð- herra, sem stjórnar því hvað menn segja á vegum hins opinberra þeg- ar þeir eru í útlöndum. Nú er það löngu vitað að Ólafur talar aldrei einn og sér eftir að hann er orðinn forseti. Hann talar fyrir munn þeirra hjóna beggja, Guðrúnar Katrínar og sín. En í þetta skipti, þegar hann er staddur í Washington, er hann ekki að tjá sig prívat og persónulega. Hann er málpípa, nokkurs konar búktalari fyrir ríkisstjómina og Davíð og Halldór og verður að gjöra svo vel að sitja og standa eins og ráðherr- amir segja honum, enda er Ólafur Ragnar nú kominn í það hlutverk að túlka stefnu Atlantshafsbanda- lagsins og íhaldsins á íslandi þegar hann ferðast um og þau bæði hjón- in. Ólafur Ragnar er auðvitað vanur því úr pólitikinni hér heima að tala bara fyrir sjálfan sig og nú upp á síðkastið fyrir sig, Guðrúnu Katrínu og þau hjónin bæði, en hann vildi verða forseti og hann er orðinn forseti og þá gehir hann ekki sagt neitt, akkúrat ekki neitt, nema fá grænt ljós frá Halldóri og Davíð um það sem hann á að segja og hvemig hann á að segja það. Það var þetta sem klikkaði í Washington og setur skugga á ann- ars ágæta forsetaferð vestur, því Halldór utanríkisráðherra hefur lesið vandlega yfir það sem Ólafur Ragnar, Guðrún Katrín og þau hjónin sögðu öll, þegar Ólafur svar- aði spurningum á blaðamanna- fundinum og það er eitt og annað athugavert við þau ummæli sem hefði mátt vanda betur. En Halldór hefur lofað að laga þetta til og lagfæra spóluna uppi í forsetanum, svo þessi mistök for- setans, Guðrúnar Katrínar og þeirra hjóna beggja endurtaki sig ekki. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.