Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 30. JULI 1997 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum pn endurgjalds. Börnin á biðlistunum Skammt er síðan harkalegar deilur urðu um þá tak- mörkuðu þjónustu sem bömum með geðræn vandamál er veitt hér á landi. Þau átök urðu meðal annars til þess að yfirlæknir bama- og unglingageðdeildar Landspítal- ans sagði af sér störfum. Nýr maður hefur nú tekið við stjórn deildarinnar, en hún er enn sem fyrr verulega undirmönnuð. Biðlistar barna sem þurfa á meðferð að halda eru því mjög langir. Það eykur að sjálfsögðu enn á vanda bamanna að nú standa yfir lokanir deilda hér og þar í heilbrigðiskerf- inu, - að sögn í spamaðarskyni þótt öllum sé ljóst að sú aðferð skilar yfirleitt engum spamaði þegar dæmið er gert upp í heild. Lokanir deilda hafa þar að auki almennt séð mjög neikvæð áhrif jafnt á starfsfólk sem sjúklinga. Stjómendur með mikla reynslu hafa bent á að slíkar lok- anir riðli löngu starfi og uppbyggingu og að þegar deild- ir opni á ný taki oft langan tíma að vinna upp aftur það sem glatast hefur. Á slík aðvörunarorð er hins vegar ekki hlustað. Margir hafa orðið til að vekja athygli á því ófremdar- ástandi sem ríkir í geðheilbrigðismálum bama og ungl- inga. Þeirra á meðal er umboðsmaður bama sem hefur sent stjórnvöldum erindi þar að lútandi. Helga Hannesdóttir, bama- og unglingageðlæknir, hef- ur einnig fjallað um þessi mál í Læknablaðinu og í við- tölum við fjölmiðla. Að hennar mati er vandinn mikill og alvarlegur hér á landi eins og greinilegast megi sjá í misnotkun unglinga á áfengi og öðrum vímuefhum. Vandamál barnanna komi yfirleitt fyrst í ljós um sex ára aldur og brjótist síðan út á unglingsárum í áfengis- og fíkniefnaneyslu sé ekkert að gert. Þörfum þessara bama sé alls ekki sinnt hér á landi. Hún bendir á að það muni taka nokkur ár að byggja upp þjónustu fyrir böm og unglinga með geðræn vandamál og telur að stofnun pró- fessorstöðu í bama- og unglingageðlækningum við læknadeild Háskóla íslands gæti verið mikilvægur liðin- í skipulegri uppbyggingu þessara mála. Ólafur Ó. Guðmundsson, sem tekið hefur við störfum sem yfirlæknir á bama- og unglingageðdeild Landspítal- ans, segir í blaðaviðtali að nauðsynlegt sé að fjölga starfsmönnum. Göngudeildin sé ekki nógu vel mönnuð til að geta sinnt vaxandi fjölda tilvísana. Þess vegna hafi orðið til þessir löngu biðlistar. Heilbrigðisráðherra hefur vísað til þess að nú sé starf- andi nefnd á vegum ráðuneytisins til að móta stefnu í geðheilbrigðismálum almennt í landinu. Mun stefnt að því að helstu niðurstöður liggi fyrir eftir um tvo mánuði eða svo, en ætlunin er að þetta nefndarstarf skili sér síð- ar meir í breyttum lögum frá Alþingi. Það vekur hins vegar sérstaka athygli að i þessari nefnd er enginn bama- og unglingageðlæknir, þótt allir viðurkenni að einstaklega brýnt sé að taka á þeim málum sérstaklega. Allir sem að þessum málum koma og til þeirra þekkja em sammála um að mikið skorti á að böm og unglingar með geðræn vandamál fái þá meðferð og umönnun sem þeim ber. Það veldur að sjálfsögðu miklum erfiðleikum í lífi þessara bama og aðstandenda þeirra. En um leið kostar það þjóðfélagið vafalaust miklu meira seinna meir en þyrfti núna til að sinna þessum málaflokki sómasamlega. Tímabær meðferð getur í mörgum tilvik- um hjálpað þessum bömum að feta sig inn á réttar brautir og þar með komið í veg fyrir að þau leiðist síðar út í áfengis- og fikniefnaneyslu. Úrbætur í þessum efh- um eru því einnig liður í skynsamlegu forvarnastarfi. Elías Snæland Jónsson s § 1 /•' t u VI 1 V f 1 M \ 1 i K K 3 1 u s» Í.S I M fl f 1 íf ll 111 \ 1 í greininni segir frá breytingum sem boðaöar hafa verið á félagslega húsnæðislánakerfinu. Áhættulán sveitarfélaga Hugmyndafræðingar hallast að veitingu tveggja lána. Bygging- arsjóður láni 70% kaupverðs gegn 1. veð- rétti. Viðkomandi sveitarfélög láni að auki 20% út á 2. veð- rétt. Þetta fyrirkomulag er vanhugsað. Það felur í sér of mikla áhættu fyrir sveitarfélögin. Kostnaður gæti víða orðið meiri en fylgir kaupskyldunni í dag. Veðstaða lána í kerf- inu verður slök. Lán sveitarfélaganna „Sveitarfélögin bera megnið af áhættunni. Vandinn kemur í Ijós ef ganga þarf að íbúðum vegna van- skila. / almennri nauðungarsölu fæst oft innan við 70% af mark- aðsverði.u Kjallarinn Stefán Ingólfsson verkfræðingur í hugmyndum að nýju félagslegu hús- næðislánakerfi felst áhætta fyrir sveitar- félögin. Þeim er ætl- að að veita áhættu- lán til íbúðakaupa. Við vanskil verða lán þeirra nánast verðlaus. Útfærsl- unni þarf að breyta. Endurskoða á úrelt- ar hugmyndir um tegundir lána og veð- töku. Nútímalegt lánakerfi verður að byggja á bestu þekk- ingu. Lánveiting í staö kaupskyldu Breytingar hafa verið boðaðar á fé- lagslega húsnæðis- lánakerfinu. Aðstoð verður fólgin í lán- veitingum á hag- stæðum kjörum. Lántakendur þurfa ekki að kaupa íbúðir í „eigu“ kerfisins. Núverandi kerfi leggur kvaðir á sveitarfélög um kaupskyldu íbúða. Nýja kerfið verður eingöngu lánakerfi eða fjár- mögnunarkerfi. Sveitarfélögunum verður ekki lengur gert skylt að kaupa íbúðir sem lánað er til. Þátttaka sveitarfélaga í félags- lega húsnæðislánakerfinu hefur reynst þeim kostnaðarsöm. Miklar skuldbindingar hvíla á mörgum þeirra. Menn telja mikilvægt að losa sveitarfélögin við byrðar sem kerfið leggur á þau. í staðinn eru uppi hugmyndir um að sveitarfélögin taki þátt í lán- veitingum nýja kerfisins. Ætlunin er að félagsleg húsnæðislán verði 90% af kaupverði eins og verið hef- ur. Samkvæmt hefð verða líklega veitt svonefnd verðtryggð jafn- greiðslulán, annuitet, til 40 ára. eru nánast verðlaus ef vanskil verða innan áratugar frá kaupum. Við vanskil fær Byggingarsjóður hugsanlega kröfur sínar greiddar en sveitarfélögin bera tapið. Áhættulán Áhætta sveitarfélaganna skap- ast vegna gerðar lána og fyrir- komulags veðtöku. Jafngreiðslu- lán greiðast hægar upp en önnur húsnæðislán. Þess vegna reynir mjög lengi á veðin. Lán sveitarfélaganna koma á eftir 70% veðmörkum. Þau eru hrein áhættulán. Fyrstu 10 árin eftir kaup mun höfuðstóll lánanna aðeins lækka um 12-15%. Á sama tíma minnkar verðmæti veðsins vegna aldurs, sennilega um 5%. Þannig hvíla yfir 80% á íbúðunum. Veðstaða lánanna verður því slök lengi eftir kaup. Sveitarfélögin bera megnið af áhættunni. Vandinn kemur í ljós ef ganga þarf að íbúðum vegna vanskila. í almennri nauðungar- sölu fæst oft innan við 70% af markaðsverði. Þar sem íbúðar- verð er stöðugt eins og á höfuð- borgarsvæðinu geta sveitarfélögin minnkað tap sitt með því að kaupa eignimar og endurselja á markaðsverði. Á landsbyggðinni er fasteigna- verð óstöðugra og markaðsverð hefur í mörgum þéttbýlisstöðum fallið á skömmum tíma um 10-20%. Verðlækkanir geta varað í mörg ár. 90% veð í fasteignum eru við þessar aðstæður mjög lé- leg. Veð frá 70% upp í 90% sölu- verðs eru vonlaus komi til van- skila. Útfærslu hugmynda áfátt Áform um breytingar á félags- lega húsnæðislánakerfinu eru athyglisverð. Þau boða brott- hvarf frá úreltum hugmyndum. Miðstýringu er hætt og fólk fær frelsi til að velja. Fjölskyldur standa ekki lengur frammi fyrir því að taka annað hvort íbúð sem kerfið úthlutar eða færast aftast i langa biðröð. Nýju hugmyndimar era í sam- ræmi við sjónarmið sem ríkja í þjóðfélaginu. Tæknilegri útfærslu er hins vegar enn áfátt og þarf að laga. Hingað til hafa opinber lán til kaupa á almennum markaði tak- markast við 70% af kaupverði. Engu að síður tapast fé við van- skil. Ef hækka á lánin upp í 90% verður að nota aðrar gerðir lána en nú tíðkast. Þá má ekki heldur skipta láninu eins og hugmyndir era um. Óverjandi er að láta sveitarfé- lögin sitja uppi með mestalla áhættuna. Stefán Ingólfsson Skoðanir annarra Afturhald „Um áratuga skeið unnust stórkostlegir sigrar, þar sem kjörum alþýðunnar var gerbylt, örbirgð svo gott sem afmáð og velferðarkerfi byggt upp og þróað. íhalds- og afturhaldsöflin hafa sagt; hingað og ekki lengra. Þessi öfl vilja ekki bara auka launamuninn í þjóðfélaginu heldur svipta alþýðu manna vinnu, réttindum og möguleikum." Úr forystugrein Vikublaðsins 28. júli. Spennandi Tími „Allt bendir til þess að í hönd fari Tími þar sem í fyrsta sinn í sögunni skapist möguleiki á að byggja upp öflugt dagblað, með slagsíðu „félagshyggju", blaðs sem þó er á engan hátt málsvari tiltekinna pólitískra flokka, heldur vettvangur skoðana sem ekki hafa átt of greiðan aðgang að útbreiddum fjöl- miðlum um alllangt skeið.“ Jóhannes í Degi-Timanum 29. júlí. Aldraðir „Sem betur fer stækkar sá hópur aldraðra sem hefur eignatekjur til viðbótar lífeyrissjóðsgreiðslum og þarf ekki á greiðslum að halda úr almannatrygg- ingum. í framtíðinni mun lífeyrissjóðskerfið tryggja landsmönnum lífeyri í ellinni í stað almannatrygg- inga. Þær munu þó áfram annast þá verst settu. Því má segja, að um einskonar millibilsástand sé að ræða nú og því skiptir miklu meðan það varir, að ríkisvaldið sjái til þess, að aldraðir verið ekki af- skiptir við úthlutun efnislegra gæða.“ Úr forystgrein Mbl. 29. júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.