Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997 Útlönd Stuttar fréttir i>v Þýskaland: Líklegt þykir að flóðin séu í rénun Embættismaöur, sem stjórnar björgunaraögerðum í Brandenburg í Þýskalandi, segist vongóður um að flóðin, sem riðið hafa þar yfir, séu í rénun. Þúsundir hermanna, björgunar- manna og bæjarbúa hafa lagt nótt við dag undanfarið við að styrkja varnargarða með sandpokum til að hefta framgang flóðsins í ánni Oder á landamærum Þýskalands og Pól- lands. Flóðbylgja, sem búist hafði verið við í gær, kom ekki og vonast menn nú til þess að vatnshæðin lækki til muna í dag og á morgun. Enn verð- ur þó haldið áfram að styrkja varn- argarða árinnar með sandpokum til að verja þorp í austurhluta landsins. Engin dauðsföll hafa verið til- kynnt vegna flóöanna í Þýskalandi en yfir 100 manns fórust í miklum flóðum sem riðu yfir Pólland og Tékkland fyrir stuttu. Mikil úrkoma hefur valdið flóðum í Rúmeníu og vestast í Úkraínu undanfarna sólar- hringa og hafa hundruð manna þurft að yfirgefa heimili sin. Áin Oder flæddi síðast yfir bakka sína fyrir 50 árum og eyðilagði fjöl- mörg heimili auk þess sem nokkrir létust. Minnugir þess hefur fólk lagt sitt af mörkum síðustu daga. Skemmdir vegna flóðanna eru mikl- ar og tjón á heimilum og fyrirtækj- um mikið. Reuter • Starfsmannapartý • Brúðkaupsveislur • Fermingarveislur • Útskriftarveislur • Afmaelisveislur j • Erfidrykkjur • Ráðstefnur J XfOKDIMALUK Glæsilegir salir fyrir öll tilefni • Fundahöld • Kynningar • Árshátíðir • Þorrablót Leitið nánari upplýsinga hjá söludeild! sImi 568 7111 fax 5689934 HÓmjjOAND - Iieflu' (uuKiiiitu Ibúi bæjarins Ziltendorf kemur á báti aö heimili sínu til aö freista þess aö bjarga einhverju af eigum sínum. Miklar skemmdir hafa oröiö vegna flóö- anna í Þýskalandi undanfariö. Símamynd Reuter Pol Pot búinn að vera Útvarpsstöð Rauðu kmeranna í Kambódíu sagði í morgun að ill- ræmdur leiðtogi þeirra, Pol Pot, væri búinn að vera og að Hun Sen forsætisráðherra væri helsta Ijónið í vegi friðar. Palestínumaður drepinn ísraelskur hermaður skaut pal- estínskan ungling til bana á Vest- urbakkanum. Ungmennið hafði áður stungið annan dáta með hnífi. Jagland vinsælastur Torbjöm Jagland, forsætisráð- herra Noregs, er vinsælasti stjóm- málamaðurinn þar í landi. Kosið verður til þings í september. Flóð í Svíþjóð Flóð skemmdu vegi og skoluðu burt tveimur brúm i noröurhluta Svíþjóðar i gær. Mikið úrfelli hef- ur verið á svæðinu. Áfram barist Samtök bókstafstrúarmanna í Alsír segjast ætla að berjast áfram gegn stjórnvöldum. Sjötíu manns hafa verið myrtir í land- inu síðustu daga. Áfram með smjörið Lögræðingar Paulu Jones, sem hefur sakað Clinton Banda- ríkjaforseta um kynferðis- lega áreitni, hvöttu dómara til að taka mál- iö fyrir þrátt fyrir beiðni forsetans um hið gagnstæða. Smokkar á strönd Ungar konur ætla að dreifa smokkum til unglinga á breskum baðströndum í sumar. Reuter Filtn From The Brothers 1 Höfum opnað nyja 09 glæsilega mynd- bandaleigu á i Suðurlandsbraut I Komdu og tryggðu þér eintak af magnaðasta trylli Svía The Hunters eða rómantísku gamanmyndinni She's The One.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.