Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Blaðsíða 10
io mennmg MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997 JLlV Straumar mætast ast viö sýninguna var innkoma Grænlending- anna tveggja sem miðluðu dulmögnuðu and- rúmslofti til áhorfenda meö dansi sínum, tali og tónum í tvískiptu hlutverki þjónustuand- ans. Aðstaðan í Norræna húsinu býður ekki upp Samvinnuverkefni Dana, Grænlendinga og ís- lendinga í Norræna húsinu: Stormen i Nord - Ofviðrið á norðurslóð. Sýning unnin upp úr Ofviðri Shakespeares. Hugmynd og verkefnisstjórn: Svend-Erik Engh. Leikstjóri: Kári Halldór. Búningar: Hannah Stahr-Christensen. Blandaður hópur leik- ara og áhugamanna frá fjórum Norðurlöndum sýnir um þessar mundir leikverk byggt á Ofviðri Shakespeares i Norræna húsinu. Þar takast á „dönsk siðmenning, grænlenskur andaheimur og íslensk galdratrú" eftir því sem segir í kynningu. Vissulega er algengt að leikhópar taki sér bessa- leyfi og leiki sér svolítið með Ofviðrið en hér er óvenjulega frjédslega farið með efniviðinn og lítið eftir af Shakespeare í anda og uppsetningu verksins. Svo lítið að það er spuming hvort ekki hefði verið nær að frum- semja verkið alveg frá grunni og sleppa þvi að vera að blanda þessum klassíska texta í málið yf- irleitt. Svo mikið er víst að ekki þarf lengi að leita íTilraun leikhópsins með tungumálin á eftir að geymast lengst í minni og óþrjðtandi bókmennataarfi sérstöðu. íslendinga til að finna spenn- andi söguefni og minni sem ekki hefðu síður hentað til þess að spinna út frá í sýningu sem þessari. Hópurinn með leikstjórann Kára Halldór í fararbroddi framdi seið sinn í Norræna hús- inu í gærkvöld. Það sem var einna nýstárleg- Leiklist Auður Eydal á miklar tilfæringar, enda er sýningin við það miðuð að hægt sé að færa hana upp sem víð- ast. Aðaláherslan er á leik og tjáningu en sviðsbúnaður er svo til enginn. Leikararnir eru ekki allir jafn sviðsvanir þannig að atriðin vildu vera misvæg og fram- vindan svolítið skrykkj- ótt. Það veldur líka ákveðnu uppbroti að hér „syngur hver með sinu nefi“ þannig að tungumál- in blandast saman. Setn- ingu á einu tungumáli er svarað á öðru. íslenska og danska, norska og jafnvel persneska heyrast í sýn- ingunni að ógleymdri grænlenskunni sem hljómar eins og framandi músík í meðförum leik- endanna. En það er einmitt þessi tilraun með tungumálin sem á eftir að geymast lengst í minni og skapar sýningunni sérstöðu. Þetta reyndist spennandi og sérkennilegt því að ekki einasta þurrkast landamæri tungumálanna út heldur skiptist þarna á texti sem áhorfandinn skilur og svo kaflar þar skapar sýningunni sem orðin skiljast ekki og þá þarf að lesa likamstjáningu og treysta á annars konar skilning á því sem verið er að segja. Sýningin er um margt nýstárleg og þó að ekki takist fullkomlega að halda samfellu í framvindunni er þetta athyglisverð tilraun til að leiða saman fólk frá mörgum þjóðum og tvinna saman ólíka þætti úr menningararfleifð þeirra. Þórir og grislingarnir Þórir Baldursson hammond- meistari smalaði saman nokkrum „grislingum“ til tón- leikahalds á efri hæð Sólons ís- landusar á mánudagskvöldið. Grislingar þessir eru reyndar allt útskrifaðir og reyndir tón- listarmenn þótt allir séu þeir vel innan við þrítugt, en þeir reyndust vera Veigar Margeirs- son trompetleikari, Jóel Pálsson tenórsaxisti, Róbert Þórhallsson bassaleikari og Einar Valur Scheving trommuleikari. Efhis- skráin var einstaklega vel sam- ansett af frumsömdum lögum allra meðlima og þekktum stöðl- um djassbókmenntanna frá ýmsum tímum. Hammondleik- ur Þóris gaf lögunum oft eins konar soul-funk yfirbragð sem hefur löngum verið heimavöll- ur Róberts en hann lék jöfhum höndum á rafbassa og kontra- bassa. Jafhvel hefðbundnir bí- boppópusar fóru ekki varhluta af þessu og úr varð skemmtileg blanda. Frumsömdu lögin voru hvert öðru betra, „E.S.Opus 1“ var hið frumlega nafn sem Ein- ar Scheving valdi sínu lagi þótt þetta sé reynd- ar ekki hans fyrsta, einhvers konar mollblús. Lög Jóels (í hita leiksins) og Veigars (Dear Old Deadline) voru hratt bibopp, frábær lög, og lag Veigars hlaut reyndar fyrstu verðlaun í sam- keppni á vegum hins virta tímarits DownBeat. Róbert átti snoturt, rólegt lag byggt á spönskum tónstiga en höfuð- paurinn Þórir lagði til „Glens“ í fönkstíl. Með flutu t.d. „Sister Sadie", „So What“, „Mercy, Mercy“ og „Body and Soul“, svo að eitthvað sé nefnt. Veigar Margeirsson er langfremstur þeirra trompetista íslenskra sem spila djass og eru þeir reynd- ar ekki margir sem það gera. Hann er í námi í tónsmíðum og útsetningum erlendis og því er það ekki oft sem til hans hefur heyrst undanfarið en hann blés oft á tíðum gull- fallega, bæði í trompet og flygilhorn. Að öðru leyti er valinn maður í hverju rúmi í þessari hljómsveit og heilluðu þeir troðfullan sal áheyrenda. Er óhætt að segja að þetta hafi verið með albestu tón- leikum sem haldnir hafa ver- ið hér í sumar. Akureyringar eru svo heppnir að fá þá til sín í dag en norðanmenn fá einnig aðra úrvalshljómsveit til sín eftir versl- unarmannahelgi, Brunahanana, sem trylltu gesti Þjóðleikhússkjallarans á síðustu RúRek- hátíð. Þórir Baldursson hammondmeistari ásamt nokkrum „grislingum" spilaöi á efri hæö Sólons fslandusar á mánudagskvöldiö. Djass Ársæll Másson Ný mynd eftir Hrafn Gunnlaugsson: Myrkrahöfðinginn Hrafn Gunnlaugsson vinnur um þessar að mundir að nýrri kvikmynd í samstarfi við íslensku kvikmyndasamsteypuna. Myndin ber heitið Myrkrahöfðinginn og byggist á sögu séra Jóns Magnússonar sem vígðist árið 1643 að afskekktri sóknarkirkju á Vestfjörðum. Séra Jón þessi veiktist er frá leið af ókennilegum sjúkdómi og er það upphaf kunnustu galdramála íslenskrar sögu. í myndinni er galdrafári miðalda lýst, öðruvisi en áður hefur verið gert í kvikmyndum; út frá sjónarhóli þess er verður fyrir galdri og er sannfærður um að hann sé þjónn sannleikans en ekki eingöngu út frá þeim sem er ásakaður fyrir galdur og dreginn fyrir dóm. Bo Jonsson, Hrafn Gunnlaugsson og Þórarinn Eldjám eru höfundar handrits. Framleiðandi er Friðrik Þór Friðriksson-íslenska kvikmynda- samsteypan og kvikmyndataka er í höndum Ara Kristinssonar. -ST Sumri hallar Senn líður að hausti og lækk- andi sól fylgir aukin virkni í menningarkimum landsmanna. Ekki þar fyrir að listin hafi ekki blómstrað á þessu sumri, ótal uppákomur, leiksýningar, tónlistarraðir og málverkasýn- ingar hafa notið sín um allt land og virðist vart lát á fram- boði listviðburða hvers konar. Samt er það nú svo að með haustinu eykst framboðið til mikilla muna, leikhúsin hefja starfsemi sína, Sinfóníuhljóm- sveit íslands fer að stilla saman strengina og öll möguleg önnur starfsemi haslar sér á ný völl í hvunndagsleik landsmanna. í Þjóðleikhúsinu verður fyrsta frumsýning haustsins á Stóra sviðinu Þrjár systur Mergrét eftir Vilhjálms- dóttir !í/ ' Tsjekhov eins og áður hefur verið greint frá á menningar- síðu DV. Þá verður Listaverkið með Ingvari, Hilmi Snæ og Baltasar Kormáki sýnt eitt- hvað fram eftir hausti en það hlaut frábæra dóma gagn- rýnenda þegar það var frurn- sýnt í vor. Einnig hafa borist af því fregnir að Baltasar áður- nefndur ætli að leikstýra Hamlet eftir William nokkurn Sheakspeare sem verður jóla- sýning Þjóðleikhússins. Smá- fúglamir í heitu pottunum hafa hnýtt aftan við þá frétt að Margrét Vilhjálmsdóttir muni verða þar í hlutverki Ófelíu og hver ætli verði þá Hamlet eftir þessa kynningu: Jú, hver nema Hilmir Snær! Þríeykið Baltas- ar, Margrét og Hilmir Snær fengu frábærar móttökur fyrir leikstjóm og leik í Skækjunni á liðnum vetri og það verður spennandi að sjá hvort aftur takist jafnvel til í samstarfmu. Nýtt verk fyrir kór og orgel Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar stefnir að fmmflutningi á nýju, íslensku tónverki fyrir kór og orgel eftir Hróðmar Inga Sigur- björnsson tónskáld. Frumflutn- ingurinn verður norðan heiða, nánar tiltekið í Akureyrar- kirkju. Verkið heitir Pera De ramis cu dunt folia, væntanlega upp á latínu, en orgelleikari með Fóstbræðrum verður Björn Steinar Sólbergsson, org- anisti kirkjunnar. Textílþríæring- ur í Belgíu Um þessar mundir eiga 20 ís- lenskar textíllistakonur verk á sýningu textíllistar og textíl- hönnunar 10. áratugarins alls staðar af Norðurlöndum í mið- borg Toumai í Belgíu. Þetta ku vera þriðji alþjóðlegi textílþrí- æringurinn sem haldinn er í borginni frá 1990 og i þetta sinn var augunum beint til norðurs Dómnefnd Textílfélagsins á ís landi valdi 60 verk til fararinn ar eftir íslensku listakonumar Sýningin verður opin til 28 september. -ST

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.