Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1997, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 27. AGUST 1997
DV
Fréttir
Tennishöllin skipti um eigendur á hluthafafundi:
Stjórnarformaður keypti
og hærra tilboði hafnað
- máliö fyrir dómstóla, segir Guömundur Oddsson hluthafi
FULLOR'DNA!
HEFUREKKIWSTADUR
■S- 0056
live show on the net/HH
http://www.chacaltaya.com/liye3
Átök urðu á hluthafafundi i Tenn-
ishöllinni sl. þriðjudagskvöld þegar
gengið var frá sölu fyrirtækisins til
Haralds ísaksen stjómarformanns
fyrirtækisins. Fyrir fundinum lá til-
boð í eignina upp á 147 milljónir
króna. Hjörleifur Hringsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður Tennis-
hallarinnar, lagði það fram þann 15.
júlí. Á fundinum var lagt fram til-
boð frá stjórnarformanninum sem
var einni milljón krónum hærra.
Þegar það lá fyrir óskaði Hjörleifur
Hringsson eftir að hækka sitt tilboð
í 150 milljónir króna en það fékkst
ekki tekið á dagskrá þrátt fyrir mót-
mæli. Guðmundur Oddsson, bæjar-
fulltrúi í Kópavogi og einn hluthafa
í Tennishöllinni, segir það vera sitt
mat að gjörðir stjómarinnar séu
kolólöglegar.
Gerræöisleg vinnubrögö
„Það var ekki auglýst í dagskrá
fundarins að selja ætti fyrirtækið;
aðeins tilgreint að taka ætti afstöðu
til sölu hússins. Þarna voru á ferð-
inni gerræðisleg vinnubrögð og ég
hef aldrei upplifað annað eins,“ seg-
ir Guðmundur Oddsson um fram-
kvæmd sölunnar.
Hann segir engan vafa leika á því
að þama hafi verið um skipulagt
mál að ræða þar sem nokkrir hlut-
hafa hafi tekið sig saman um að ná
til sín fyrirtækinu með bolabrögð-
um.
„í einföldu máli þá ákvað formað-
urinn að selja sjálfum sér Tennis-
höllina. Þetta þýðir fyrir mig og
nokkra sameignarmenn að hlutur
okkar uppá 3,2 milljónir króna er
þurrkaður út á svipstundu. Það
vakti athygli mína að á fundinum
fór formaðurinn með umboð aðila á
borð við Klæðningu hf. sem er að
stórum hluta í eigu Gunnars Birgis-
sonar, formanns bæjarráðs Kópa-
vogs. Þetta mál lyktar af samsæri
um að ná undir sig fyrirtækinu og
ég mun kanna möguleika á máls-
sókn,“ segir Guðmundur.
Hann segir Kópavogs-
bæ vera með
„Það er spurning hvemig þessi
mál standa eftir að þessi sala hefur
farið fram. Þarna eru miklir fjár-
munir í húfi,“ segir hann.
Brotiö á hluthöfum
Hjörleifur Hringsson, sem óskaði
á fundinum eftir að hækka sitt til-
boð í 150 milljónir króna, segir mál-
ið allt vera með eindæmum og
greinilegt sé að stjómin hafi ekki
verið að gæta hagsmuna hluthaf-
anna.
„Þarna var freklega brotið á
hluthöfum og það
Hann segir erfltt fyrir sig að
keppa við stjórnarmenn um eign-
ina þar sem þeir hafi aðgang að öll-
um upplýsingum um forsendur sín-
ar.
„Þeir fengu allar upplýsingar
mínar og óskuðu meira að segja í
bréfi eftir viðbótarupplýsingum.
Þeir fengu að vita hverjir stóðu að
tilboðinu ásamt mér en Harald
neitaði að gefa upp hverjir stæðu
að hans tilboði," segir Hjörleifur.
-rt
H
Áhugaverður valkostur fyrir fólk á
öllum aldri til að koma scr í toppform
og öðlast aukinn lifskraft. Æfingar
sem styrkja ónæmiskerfið, virkja
orkustöðvar likamans, losa um spennu
og ráða bót á ýmsum kvillum.
Sameina mýkt, einbeitingu og öndun.
Kínversk leikfimi
. lEmHMHNn • VEUW/B
I húsi sundlaugar Seltjarnarness
LEjeHOlT • iMÆjAflHYIRfl
Danshöllin Drafnarfelli 2
Æfingast. Háttur langarima 21-23
Harðar deilur geisa um Tennishöllina í Kópavogi eftir að húsið var selt nýjum aðilum á hluthafafundi. DV-mynd E.ói
ábyrgð á 70 milljóna króna láni á
öðrum veðrétti en í raun nái
ábyrgðin til 132 milljóna króna þar
sem 62 milljónir séu á fyrsta veð-
rétti.
mátti augljóst vera að einhverjir
aðrir hagsmunir réðu ferðinni.
Mér finnst það vera með ólíkindum
að þeir skuli ekki gefa færi á að
ræða hærra tilboð.
Nýr eigandi Tennishallarinnar:
Vilji mikils meiri
hluta hluthafa
- segir Harald H. ísaksen
Harald Isaksen, stjórnarformaður
Tennishallarinnar sem keypti eign-
ina á hluthafafundi, hafnar því al-
farið að um hafl verið að ræða ger-
ræðisleg vinnubrögð af hans hendi
eða stjómarinnar er salan fór fram.
„Þetta er ekki meira gerræði en
svo að um 70 prósent hluthafa sam-
þykktu mitt tilboð. Alls voru um 82
prósent allra hluthafa á fundinum
þegar tekið er tillit til umboða. Það
var ákveðinn þrýstingur frá bæjar-
stjórn Kópavogs að ljúka þessu máli
og það varð að gera sem fyrst því
annars blasti ekkert annað við en
gjaldþrot,“ segir Harald.
Hann segir rangt að tilboð hans
hafi ekki verið lagt fyrir áður en til
hluthafafundarins kom.
„Mönnum var kunnugt um mitt
tilboð áður en til fundarins kom. Það
var lagt fyrir stjórn Tennishallarinn-
ar hf. án þess að ég kæmi þar nokk-
uð nærri. Það er þvi ekkert óeðlilegt
við þessa sölu og ég bendi á að sam-
kvæmt hlutafjárlögum var stjórn-
inni heimilt að selja. Það var þó talið
réttara að kynna hluthöfum málið og
gefa þeim kost á því að greiða um
það atkvæði," segir Harald. -rt
Eiríkur Sigurösson hjá 10-11 búðunum:
Lágverðsmarkaöur
inni í myndinni
- höfum allt sem þarf til að opna slíka verslun
„Slíkur markaður er vissulega
inni í myndinni hjá okkur en það
Kona Ulfars
rangnefnd
Þau mistök urðu í
myndatexta að með mynd af
ÚÍfari Eysteinssyni og
eiginkonu hans á bls. 26 í gær
var hún sögð heita Sigríður
Sörensen. Hið rétta er að hún
heitir Þuríður Jörgensen. Beðist
er velvirðingar á þessum
mistökum.
er ekkert að gerast í málinu á þess-
ari stundu. Við erum með þessa teg-
und rekstrar þar sem búðir okkar
eru opnar frá 10 á morgnana til 11 á
kvöldin. Við leggjum áherslu á að
vera með gott vöruverð sem liggur
á milli þess sem er í Hagkaupi og
Bónus. Um tvö rekstrarform er að
ræða, stórmarkað eins og Hagkaup
rekur og svo lágvörumarkað eins
og Bónus er með, þar sem lagt er
upp með fáar vörutegundir og stutt-
an opnunartíma. Ég skal viður-
kenna það að þessi tvö rekstrar-
form hafa verið í skoðun hjá okkur
og eru enn,“ sagði Eiríkur Sigurðs-
son, forstjóri 10-11 verslunarkeðj-
unnar.
Hann bendir á að þegar menn
eru með verslunarkéðju eins og 10-
11 séu menn með augun opin fyrir
öllum möguleikum.
„Við erum í dag með fullmótaðan
rekstur til að fara út í verslunar-
rekstur af þessari tegund en við er-
um ekki búnir að festa okkur neitt
húsnæði eða annað því um líkt. Við
skoðum að sjálfsögðu alla mögu-
leika og erum á verði á markaðnum
og fylgjumst grannt með öllu sem er
að gerast. Og við höfum allt til þess
að stökkva á svona rekstur hvenær
sem okkur sýnist svo. Þar á ég við
rekstrarumhverfi okkar innkaupa-
lega og svo höfum við kunnáttuna
til að reka verslun af þessari teg-
und,“ sagði Eiríkur Sigurðsson.
-S.dór
• •
GLOS
MARGAR GERÐIR
meiriháttar tilboð -
"0NDA"
Verðdæmi;
" ONDA" frá Bohemia Crystal:
Líkjörsglas kr. 395.
Kampavín kr. 450.
Ölglas stórt kr. 400.
(6 stk. Kr. 2.370.-)
(6stk. Kr. 2.700.-)
(6 stk. Kr. 2.400.-)
* Kynntu Jþér önnur ótrúlegri tilboð.
* Falleg glös fyrir heimilið J)itt.
Fallegt fyrir heimilið
KRINGLUNNI og FAXAFENI