Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1997, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997 9 DV i i Díana prinsessa í viðtali: Utlönd jy ** Útsalan hefst í dag % Fer ekki úr landi sona minna vegna Díana prinsessa sagði í blaðavið- tali, sem birtist í gær, að hún væri fyrir löngu flutt frá Bretlandi ef ekki væri vegna sona sinna. „Fjölmiðlarnir eru grimmúðlegir. Þeir svífast einskis og leita aðeins eftir því sem miður fer,“ sagði Díana í viðtali við franska dagblað- ið Le Monde. „Annars staðar er þetta öðruvisi. Þar er mér vel tekið, fólk tekur mér eins og ég er og samþykkir mig. í Bretlandi er þessu öfugt farið. Ég held að í mínum sponrni væri mann- eskja með einhverju viti löngu farin úr landi. Ég get það hins vegar ekki sona minna vegna,“ sagði Díana. „Prinsessan með stóra hjartað" var fyrirsögnin á viðtalinu. Díana sagði að hún hefði í gegnum árin lært að leiða gagnrýni hjá sér og að gagnrýnin hefði á vissan hátt sýnt sér að hún byggi yfir styrk sem hún vissi ekki að væri til staðar. Prinsessan hefúr mikið verið í fjölmiðlum síðustu vikur vegna ástarsambands síns við kvik- myndaframleiðandann Dodi A1 Fayed. Fjölmiðlar hafa verið iðnir undanfarið við að birta myndir af þeim léttklæddum í innilegum faðmlögum en þau hafa verið í fríi saman á skútu í eigu foður Dodis, Mohamed A1 Fayed. Hann er eig- andi Harrods verslunarinnar í London. „Ég finn hve vel mér gengur að nálgast fólk, hverjir svo sem það eru. Nálægðin er meiri við fólk sem er nær botninum en toppnum. Þess vegna eiga hinir síðarnefndu erfitt með að fyrirgefa mér. Vegna þess að mér er eðlislægt að finna til nálægðar við þá lítillátu," sagði prinsessan og bætti því við að faðir hennar hefði ávallt kennt henni að koma eins fram við alla, hver svo sem staða þeirra væri, og að hún væri viss um að synir hennar, Willi- am og Harry, myndu fylgja þessu fordæmi. Reuter Börn á Sophia-sjúkrahúsinu í Rotterdam í Hollandi gefa indverskum fii ávexti og annaö góögæti. Fílarnir, sem voru fjórir, tilheyrðu þýskum sirkus sem lagöi iykkju á leið sína í gær til að kæta börnin sem mörg hver hafa oröiö aö vera lengi á sjúkrahúsinu. Símamynd Reuter Arafat segir öryggismál í góðu lagi: Albright er alveg óhætt að koma Yasser Arafat, forseti Palestínu- manna, sagði í gær að samvinnan við ísraela um öryggismál hefði skánað svo að undanfórnu að alveg óhætt væri fyrir Madeleine Al- bright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, að koma i heimsókn. ísraelsk sljómvöld voru þó ekki sama sinnis og Arafat. Þau sögðu að hann hefði ekki enn orðið við kröf- um þeirra um að ganga milli bols og höfuðs á skæruliðum harð- línumúslíma. Jafnframt sökuðu ísraelar palestínsku heimastjórnina um að hvetja til ofbeldisfullra götu- mótmæla gegn ísraelum á Vestur- bakkanum. Albright hefur sett þau skilyrði fyrir fyrstu heimsókn sinni til land- anna fyrir botni Miðjarðarhafs að Palestínumenn og ísraelar hefji að nýju samvinnu um öryggismál. Sú samvinna rann út í sandinn þegar ísraelar hófu byggingaframkvæmd- ir í arabíska hluta Jerúsalem og of- beldisverk fylgdu í kjölfarið. Útsendarar bandarísku leyniþjón- ustunnar CIA hafa tekið þátt í ör- yggisviðræðum ísraela og Palest- Yasser Arafat vill fá Madeleine Albright í heimsókn til sín. ínumanna sem hófust að undirlagi Dennis Ross, sendimanns Banda- ríkjastjórnar. í Betlehem, fæðingarborg Jesú, særðust fjórir Palestínumenn litil- lega i mótmælaaðgerðum i gær, þriðja daginn í röð. Reuter Norður-Kórea vill fá sendiherra sinn aftur heim Norður-kóresk stjórnvöld kröfðust þess í gær að fá sendi- herra sinn i Egyptalandi og bróð- ur hans senda heim frá Banda- ríkjunum þar sem þeir hafa leitað hælis. Norður-Kóreumenn sögðu að sendiherrann og bróðirinn hefðu flúið til að komast hjá refs- ingu fyrir að hafa dregið sér al- mannafé og kjaftað frá ríkisleynd- armálum. Bandaríkjastjórn skýrði frá því í gær að sendiherra Norður- Kóreu í Egyptalandi, eiginkona hans og bróðir, sem væri sendi- fulltrúi í París, hefðu fengið hæli í Bandaríkjunum. Stuðningur við nýtt ESB fer vax- andi í Danmörku Þeim Dönum fer fjölgandi sem styðja Amsterdamsáttmála Evr- ópusambandsins. Margir eru þó enn óákveðnir. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun. Fjörutíu prósent aðspurðra sögðust mundu greiða sáttmálan- um atkvæði sitt og 29 prósent voru á móti en 22 prósent voru óákveðin. Reuter Allir í rjölskyldunni eru gla‘sih*gir í skóin frá (ihesiskómim StMiduni í jióslkröf ii sanidægurs. Ó, X oS° NÝJAR HAUSTVÖRUR Á SÚPER TIIBOOI Teg. nr. 926402 Svart eða brúnt leður Stærðir: 36-42 kr. 4.990."1 Teg. nr. 927402 Brúnir leðurskór Stærðir: 36-42 Verí kr. 4.990.- .Skóverslun ÞÓRÐAR GÆÐI & ÞjÓNUSTA Viö opnum kl 9.00 Laugavegi 40 *s. 551 4181 StyrkSr til bifreiöakaupa Tryggingastofnun ríkisins veitir viötöku umsóknum vegna styrkja sem veittir eru hreyfihömluðum til bifreiðakaupa. Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræð. Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1998 fást hjá afgreiðsludeild og lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114, og hjá umboðsmönnum hennar um land allt. Umsóknarfrestur er til 1. október. Tryggingastofnun ríkisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.