Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1997, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997
Fréttir
DV
Ríkissaksóknari taki upp Súðavíkurmál:
Verður að rann-
saka alla þætti
- segir Ragna Aðalsteinsdóttir
„Það er nauðsynlegt að ríkissak-
sóknari fari að tilmaeliun umboðs-
manns Alþingis. Þetta mál verður
að rannsaka til hlítar. Það er þess
eðlis að nauðsyn er að rannsókn
fari fram,“ segir Ragna Aðalsteins-
dóttir, vegna þeirra tilmæla um-
boðsmanns Alþingis til ríkissak-
sóknara að hann taki á ný upp
kærumál 7 Súðvíkinga vegna að-
draganda og eftirmála snjóflóðanna
í Súðavík. Áöur hafði Hallvarður
Einarsson ríkissaksóknari hafnað
því að rannsaka málið.
Ragna missti dóttur og barnabarn
Ragna Aöalsteinsdóttir.
í slysinu og segist ekki munu gefast
upp í baráttunni við að eðlileg rann-
sókn fari fram.
„Þetta mál snýst um þrjá ólíka
þætti sem allir snerta sama málið.
Okkur aðstandendum, sem barist
höfum fyrir réttlæti í tvö ár, fmnst
að það verði að ná niðurstöðu í
þetta mál. Meðan ég dreg andann
mun ég halda áfram að berjast fyrir
því að óháðir aðilar rannsaki hvað
raunverulega gerðist hvað varðar
bæði aðdraganda og eftirmála þessa
hörmulega slyss,“ segir Ragna.
-rt
Veöurklúbbur aldraðra í Dalbæ á Dalvík:
Spáir róman-
tísku
haustveðri
DV, Dalvík:
Veðurklúbbur aldraðra á Dalbæ
á Dalvík hefur nú opinberað fram-
tíðarspá sína og gildir hún út sept-
ember. Hundadagamir enduðu 22.
ágúst og þá gæti farið að kólna
eitthvað i bili með norðlægum átt-
um en sá kuldakafli stendur ekki
lengi yfir. En spáin er á þessa leið:
„Veðrið í september verður í
heildina þokkalegt en nokkuð
kaflaskipt. Við munum sjá nokkuð
vindasama daga og þá sérstaklega
vestlægar eða suðvestlægar gusur.
Inni á milli munum við svo fá dá-
samlega, rómantíska haustdaga og
við biðjum alla að njóta þeirra tO
fulls.
Þá teljum við að hinn 17. sept-
ember verði kaflaskil í veðrátt-
unni. Við teljum líkur á að það
gráni eða snjói aðeins í lok sept-
ember. En það þarf ekki að hafa
neinar áhyggjur af því, því upp úr
því koma góðviðriskaflar en nánar
um það í októberspánni okkar síð-
ar.
Margir segja að haustið fari eft-
ir því hvemig veðrið er á höfuð-
daginn, þann 29. ágúst, og vOjum
við minna fólk á að taka eftir veðr-
inu þann dag.“
Klúbbfélagar segjast nokkuð
ánægðir með sumarspá sína, nema
rétt byrjunina, en veðurspáin fyr-
ir hundadagana hefur staðist
nokkuð vel. -HÍÁ
Smávægileg bilun í Gylli ÍS:
Fengsæll bjarg-
aði málunum
DV.Vík:
Það fór í sundur rör hjá okkur
við skiptinguna á skrúfunni og þá
misstum við niður glussann af
henni,“ sagði Hjálmar Guðmunds-
son, skipstjóri á GyUi ÍS 261. GyUir
er 180 tonna línubátur frá Flateyri,
en hann kom inn á Vík í Mýrdal á
dögunum og fékk glussa út í bátinn
með hjólabátnum Fengsæli frá Vík.
„Ég mundi aUt í einu eftir hjóla-
bátnum áður en við lögðum af stað
tU Vestmannaeyja og það sparaði
okkur 70-80 mílna siglingu þangað
að geta fengið þetta héma út tU okk-
ar frá Vík. Við vorum á keiluveið-
um, ekki langt héðan, þegar þetta
henti þannig að þetta óhapp tafði
okkur mun minna heldur en við
héldum í fyrstu að það myndu
gera.“ -NH
Mikil þátttaka
í Króksmóti
Kampakátir skipverjar með glussabrúsann.
DV-mynd NH
DV, Eskifirði:
Nýlega fór hópur barna frá Eski-
firði norður til Sauðárkróks tU að
taka þátt í hinu árlega Króksmóti.
Króksmótin hafa verið haldin í 11
ár og koma böm víðs vegar að af
landinu og spUa fótbolta.
Grundarfjörður:
Samdráttur
í húsbygg-
ingum
DV, Vesturlandi:
tbúum í Gmndarfiröi hefur
fjölgað mikið undanfarin ár. Hef-
ur íbúafjölgun þar veriö ein sú
mesta á landinu og mikiö verið
byggt af húsnæði á staðnum. Þann
1. desember 1996 vom íbúar í
Grundarfirði 944 talsins.
Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri
var spurö að því hvort þessi upp-
sveiUa væri enn hvað varöaði
íbúafjöldann og hvort eins mikiö
væri byggt af húsnæði og hefur
verið undanfarin ár.
„Viö erum ekki að fara niður á
viö, en þáð hefur þó verið ákveðin
stöðnum I húsbyggingum,“ sagði
hún. „Það mátti alveg búast við að
tU slíkrar stöðnunar kæmi þar
sem geysUega mikiö var byggt hér
á síðustu ámm. Menn vissu að
það kæmi að því að markaðurinn
mettaöist.
Þrátt fyrir þetta hafa iönaðar-
mennirnir haft nóg verkefni. Það
hefur ekki komið niður á þeim þótt
húsbyggingar dragist saman í eitt
til tvö ár hér því þeir hafa þá farið
i verkefni utar á nesinu." -DVÓ
Þátttakendur vora 640 á þessu
móti auk foreldra og annarra fylgd-
armanna. AUs spUuðu 71 lið u.þ.b.
290 leiki. Skipulag mótsins þótti til
mikiUar fyrirmyndar og fengu aUir
keppendur, og þeir fylgdarmenn
sem vUdu, að borða í grunnskólan-
um. Kostnaður við fæði aUa helgina
var aðeins 1.900 kr. og frítt var á
tjaldstæðið. Keppendur og margir
fylgdarmenn gátu gist í skólanum.
AUir skemmtu sér vel í íþrótta-
húsi bæjarins að kvöldi laugardags-
ins þegar hinn eini sanni Ómar
Ragnarsson fór á kostum á kvöld-
vökunni sem haldin var fyrir hóp-
inn. Það væri óskandi að aUir aðrir,
sem boða tU slíkra samkoma eins og
hér um ræðir, stiUtu verði í hóf,
eins og gert var á Sauöárkróki. Þá
gætu fjölskyldur fjölmennt í ríkari
mæli á svona almennar samkomur.
Regína
Framkvæmdastjóri Markaös- og atvinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar:
Einokun í flugmálum úrelt
DV Suðurnesjum:
„í skjóli einokunar geta Flugleið-
ir misnotað aðstöðu sína á kostnað
annarra í ferðaþjónustu á íslandi.
Stefnuleysi stjórnvalda veldur því
að rekstrarumhverfið á Keflavíkur-
flugveUi er óvinsamlegt öUum nýj-
ungum og gerir Flugleiðum kleift að
stýra starfsumhverflnu þar og
breyta áætlunum eftir sinni henti-
semi án tiUits tfl annarra," segir
Friðjón Einarsson, framkvæmda-
stjóri Markaðs- og atvinnumála-
skrifstofu Reykjanesbæjar, við DV.
Nefndin hefur fjaUað um sam-
starfssamning Flugfélags íslands
við Grænlandsflug og mun það fyrr-
stefnuleysi stjórnvalda einkennist
nefnda annast aUt flug mflli íslands
og Grænlands. ÖU farþegaþjónusta
Grænlandsflugs mun verða hjá
Flugfélagi íslands á Reykjavíkur-
flugvelli. Hefur nefndin áhyggjur af
minnkandi starfsemi á Suðurnesj-
um.
Friðjón segir að sú einokun sem
er við lýði á KeflavíkurflugveUi á
sviði flugvélaafgreiðslu, flugaf-
greiðslu, flugumsjónar og flutninga
frá Leifsstöð eigi ekki lengur viö og
hamli eðlUegum vexti atvinnuflór-
unnar.
„En málið snýst ekki um Flug-
leiðir. Það er vel rekið fyrirtæki
sem auðvitað hugsar um sinn hag
og er það gott. Staðreyndin er að
af sinnuleysi
önnur fyrirtæki með aðstöðu á
KeflavíkurflugveUi eru ekki í sam-
keppnishæfu rekstrarumhverfi og
því hafa þessi fyrirtæki ekki mögu-
leika á að keppa við Flugleiðir á
jafnréttisgrundveUi. Vandamálið er
stefnuleysi stjórnvalda sem ein-
kennist af sinnuleysi gagnvart innri
málefnum Keflavikurflugvallar og
þeirri einokun sem þar er við lýði.
Einokun á sviði flugmála á ekki við
lengur hér á landi eins og komið
hefur berlega í ljós upp á síðkastið
þar sem hagsbætur neytenda hafa
orðið umtalsverðar með auknu
frelsi í innanlandsflugi," sagði Frið-
jón Einarsson.
-ÆMK
Ál
1750 1700 17,13 72
i Mark 1
116,63 /x 1 42 41,5 39,99
0,64 °.6“1 -
Þing. hlutabréfa
Eimskip
Flugleiðir
Skeljungur
Stig M
30 22,3 _______
Tæknival
stig M J J Á
Síldarvinnslan