Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Page 6
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1997
X w
stuttar fréttir
Motzfeldt í forystuna
Jonathan Motzfeldt tekur við
formennsku grænlensku heima-
stjórnarinnar af Lars-Emil Jo-
hansen sem ætlar að snúa sér að
öðrum verkefnum síðar í mán-
uðinum.
Óhæfir til vinnu
Um fimmtíu þúsund manns,
eða fjórðungur atvinnuleysingja
í Danmörku, eru talin óhæf til
vinnu.
Týndar sprengjur
Alexander Lebed, fyrrum
þjóðarörygg-
isráðgjafi
Jeltsíns
Rússlandsfor-
seta, segir að
meira en 100
litlar kjam-
orkusprengj-
ur rússneska
hersins séu
týndar. Hver
um sig getur grandað 100 þúsund
manns.
Frekari mótmæli
Grænfriðungar boða frekari
mótmæli gegn aukinni olíu-
vinnslu í Alaska.
Banaslys á leikvangi
Að minnsta kosti 36 fórust og
meira en 100 slösuðust þegar fár-
viðri jafnaöi íþróttaleikvang í
Paragvæ við jörðu á fimmtu-
dagskvöld.
Þurrt í Los Angeles
Úrkoma hefur ekki verið mæl-
anleg í Los Angeles frá því 17.
febrúar. Sjötíu ára gamalt
þurrkamet hefur þar með verið
slegið.
Kosið í Bosníu
Alþjóðlegir sáttasemjarar
sögðu í gær að bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningar í Bosníu færu
fram í næstu viku, þrátt fyrir
hótanir Serba um að sniðganga
þær.
Neita aðstoð
Frönsk stjórnvöld höfnuðu í
gær beiðni stjómar Kómoreyja
um aðstoð við að kveða niður
uppreisn á eyjunni Anjouan.
Löggur rannsakaðar
Saksóknari í Króatiu hefur
fyrirskipað rannsókn á fjórum
fyrram löggum sem sagðir eru
hafa myrt óbreytta Serba í upp-
hafi borgarastríðsins í landinu.
ÓL til Aþenu 2004
Sumarólympíuleikamir árið
2004 verða haldnir í Aþenu á
Grikklandi. Alþjóöa ólympíu-
nefndin tilkynnti það í gær.
Stokkhólmur, Buenos Aires,
Höfðaborg og Róm sóttu líka
um.
Moskva á afmæli
Moskva á 850 ára afmæli um
þessar mundir og era þar mikil
veisluhöld. Reuter
Elísabet Englandsdrottning:
Dáði og virti
Díönu prinsessu
Elísabet Englandsdrottning fór
lofsamlegum orðum um Díönu
prinsessu í sjónvarpsávarpi til
bresku þjóðarinnar í gær og kallaði
hana „óvenjulega og hæfileikaríka"
manneskju. Hún hvatti Breta til að
sameinast í sorg og virðingu.
Drottning sagði í ávarpinu, sem
var sýnt beint, að enginn sem hefði
þekkt prinsessuna mundi gleyma
henni.
„Ég vona að á morgun getum við
öll, hvar sem við erum niður komin,
sameinast í að tjá sorg okkar yfir að
missa Díönu og þakklæti okkar fyr-
ir líf hennar sem var allt of stutt.
Þetta er tækifæri til að sýna um-
heiminum bresku þjóðina samein-
aða í sorg og virðingu," sagði
drottning.
Drottning var í svörtum kjól og
með perlufesti um hálsinn. Hún
sagði: „Það sem ég segi við ykkur
sem drottning og amma segi ég af
öllu hjarta.
í fyrsta lagi langar mig til að
votta Díönu virðingu mína. Hún var
óvenjuleg og hæfileikarík mann-
eskja. Hún glataði aldrei hæfileik-
anum til að brosa og hlæja og veita
öðram uppörvun með hlýju sinni og
gæsku, hvort sem blés með eða á
móti. Ég dáði hana og virti fyrir at-
orku hennar og trúmennsku hennar
við aðra, einkum þó tryggð hennar
við synina tvo,“ sagði Elísabet.
Drottningin, Filipus drottningar-
maður, Karl ríkisarfi og synirnir
tveir, Vilhjálmur og Harrý, komu til
Lundúna i gær frá Skotlandi og
blönduðu geði við syrgjendur fyrir
utan Kensingtonhöll.
Útför Díönu verður gerð frá West-
minster Abbey nú fyrir hádegi og er
búist við milljónum manna á götum
bresku höfuðborgarinnar. Jarðsett
verður á ættaróðali Spencer fjöl-
skyldunnar í Althorp. Reuter
yTHÍ k T''mmú/m*i wm i
- i liyg
Vilhjálmur prins leggur blómvönd til minningar um móöur sína, Díönu prinsessu, fyrir utan Kensingtonhöll í
Lundúnum. Talið er ein milljón blómvanda hafi veriö lagöir fyrir utan bústaöi konungsfjölskyldunnar til minningar
um Díönu. Karl ríkisarfi og synir hans og Díönu blönduöu geöi viö almenning í gær. Símamynd Reuter
Dodi orti ástarljóð og
lét grafa á silfurskjöld
Dodi A1 Fayed orti ástarljóð til
Díönu prinsessu, lét grafa það á silf-
urskjöld og laumaði þvi undir kodd-
ann hennar í íbúðinni sinni í París.
Faðir hans, Mohammed A1 Fayed,
viU nú að skjöldurinn fari í gröfina
með Díönu í dag.
Það var talsmaður A1 Fayeds sem
skýrði fréttamönnum í gær frá gjöf-
unum sem þau Díana og Dodi skipt-
ust á skömmu fyrir andlátið. Auk
þess sýndi hann myndir sem teknar
vora af öryggismyndavélum Ritz
Þessi mynd af Díönu var tekin af
öryggismyndavél Ritz hótelsins.
hótelsins skömmu áður en þau
lögðu upp í hinstu ökuferðina.
Aðeins nokkrum klukkustundum
fyrir bílslysið gaf Dodi Díönu dýr-
indis hring. Díana hafði áður gefið
Dodi vindlaskera úr gulli sem á var
letrað: „Með ástarkveðjum frá
Díönu“. Einnig gaf hún honum
ermahnappa sem faðir hennar,
Spencer jarl, hafði gefið henni.
„Við fáum aldrei að vita hvað
hringurinn táknaði," sagði talsmað-
urinn, Michael Cole. Reuter
Vörubíl-
stjórar í
vanda
Danskir flutningabílstjórar á ferð
í Suður- og Austur-Evrópu, sem
verða vitni að umferðarslysum eða
stansa þar sem slys hafa orðið til að
veita slösuðum aðstoð, lenda oftar
en ekki í vanda. Þeir eru þá gerðir
meðsekir í slysunum og dregnir inn
í langvarandi málaferli og jafnvel
fangelsaðir.
Ástæða þess að reynt er að koma
sökum á dönsku bílstjórana er sú að
danskir flutningabílar og -bílstjórar
eru mjög vel tryggðir og tryggin-
gamar ætíð í fuöu gildi, gagnstætt
því sem raunin er um fjölmörg far-
artæki í umferðinni á þessum slóð-
um. Af þessum sökum sjá þeir sem
i slysum lenda hagnaðarvon í góð-
um tryggingum Dananna. -SÁ
Kauphallir og vöruverð erlendis
Ní?w York London
8200 DowJone/\ 8000 m ftseioo — 4800
/b00 ,. ' rm í 7200 4600 4400
7000 4200
6S00 _ 7622,42 J ' J Á S 4870.2 J J Á S
350
325
300
275
250
*/t j j
327,0
Á S
2500 .
2000 ,
1500 S
1000
$/t j j
1580
Á S
Frankfurt
4500 DAX-40
4000
3500
3000
3989,96
J J Á S
Bensin 95 okt. fB Bensín 98 okt.
21000 20500 20000 19500 19000 Nikkel |g j
18500 18000 17974,3
J J A S ;j
Hong Kong
Hráolía
25 £
151
$/
18,13
tunnaj J Á S
ÍHl
Norskir sjó-
menn reknir af
fiskimiðunum
DV, Ósló:
Norski íslandsvinurinn og
sjómannaleiðtoginn Oddmund
Bye er æfur eftir að fréttist að
hefja ætti olíuvinnslu í Barents-
hafi. Það er ríkisfyrirtækið
Norsk Hydro sem ætlar á næsta
ári að byrja að dæla upp olíu á
svokölluðum Fugleyjarmiðum,
norður af Tromsö. Fiskveiðar
verða þá bannaðar á svæðinu
og það veldur Oddmundi mestri
gremju að hann og aörir sjó-
menn voru ekki látnir vita.
„Ég skfl ekki hvemig rnenn-
imir geta hugsað sér að loka
miðunum án þess að spyrja
kóng eða prest," segir Odd-
mund.
Bye er vel studdur af nátt-
úraverndarmönnum sem segja
að olíuvinnsla á norðurslóðum
hafi mikla hættu í fór með sér
og að slys þar hafi alvarlegri af-
leiðingar en annars staðar á
jörðinni. -GK
Móöir Teresa lést á Indiandi í
gær. Símamynd Reuter
Móðir Teresa
lést úr hjarta-
slagi í gær
Móðir Teresa lést úr
hjartaslagi í aðalstöðvum trúar-
hreyfingar sinnar á Indlandi í
gær. Hún var 87 ára.
Á Móðir Teresa, sem gekk und-
ir nafninu „EngiU göturæsis-
ins“ helgaði líf sitt aðstoð við
fátæka og minnimáttar og fékk
: fyrir það friðarverðlaun nóbels
Á árið 1979.
Norsku þiiigkosningarnar:
Bitist um fylg-
ið til hægri
DV.Ósló:
KjeU Magne Bondevik fermd-
í ist fyrir 36 árum. Hann gengur
enn í femiingarfótunum og hár-
*: greiðslan er enn sú sama. Þetta
er stíU sem hrífur æ fleiri kjós-
endur á hægri væng norksra
stjórnmála og svo er komið að
/ „fermingardrengurinn" og leið-
I togi Kristilega þjóðarflokksins
| er að ná Carli I. Hagen að vin-
1 sældum.
Kristilegi þjóðarflokkurinn
og Framfaraflokkurinn bítast
nú hart um fylgið tfl hægri við
miðju. Þeir sem tapa eru Hægri
S flokkurinn og Miðflokkurinn. Á
vinstri vængnum styrkir
Verkamannaflokkurinn jafnt
I og þétt stööu sína og kosninga-
jj spár gærdagsins gerðu ráð fyrir
að Verkamannaflokkurinn
I haldi öUum 67 þingsætum sín-
um og að kristilegir og Fram-
S faraflokksmenn vinni 12 tU 14
í", sæti hvorir um sig.
Verði þetta niðurstaða þing-
kosninganna 15. september sit-
ur minnihlutastjórn Verka-
mannaflokksins áft-am við völd.
TU að feUa stjómina þurfa sjö
flokkar að koma sér á einn eða
annan hátt saman um að taka
við stjómartaumunum og það
gerist varla. -GK