Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1997 DV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Fróttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLT111, 105
RVÍK, SIML550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: httpJ/www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverö á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Stjarnan og kóngafólkið
Almannaharmur er meiri í Bretlandi og víöar en hann
var við andlát og jaröarfarir Viktoríu Bretlandsdrottn-
ingar og Winstons Churchills. Díana prinsessa var
stjama, sem stendur nær hjarta almennings en frægustu
og merkustu persónur aldarinnar í Bretlandi.
Viktoría var um aldamótin talin helzta þjóðargersemi
Breta og Churchill hélt uppi brezkri sjálfsvirðingu í síð-
ari heimsstyrjöldinni. Hún var vinsælust kóngafólks og
hann var vinsælastur mikilmenna. í gamla daga var
fræga fólkið af öðrum hvorum þessara toga.
Nútíminn hefur búið til nýja tegund frægðarfólks,
stjörnurnar. Fyrstar voru kvikmyndirnar og hljómplöt-
urnar og síðan tók sjónvarpið við. Af þessum toga frægð-
arfólks voru Marilyn Monroe og Elvis Presley, sem
gerðu það merkast um ævina að höfða til almennings.
Fólk sér sig og speglar sig miklu fremur í Öskubusk-
um, sem verða prinsessur heldur en í kóngafólki og mik-
ilmennum. Viktoría og Churchill voru talin til hinna,
það er að segja yfirstéttarinnar, en Díana er talin hafa
verið ein af okkur, það er að segja almennings.
Staðreyndin er að vísu sú, að Díana fæddist með silf-
urskeið í munni og lifði alla tíð fjarri veruleika almenn-
ings. Hún var ung dregin úr heimi auðbarna inn í möl-
étinn kóngaheim Windsoranna og flúði síðan þaðan inn
í heim glaumgosanna eins og Jacqueline Kennedy.
Windsoramir voru berskjaldaðir fyrir sjónvarpstækni
Díönu. Karl prins reyndi að vísu að feta í fótspor henn-
ar með opinskáu persónuviðtali í sjónvarpi, en var of
grunnmúraður í formfastri, stilltri og allt að því dauf-
legri framgöngu til að halda til jafns við stjörnuna.
Nú kvartar almenningur um, að kóngafólkið sé svo
harðbrjósta, að því vökni ekki um auga við andlát og út-
för prinsessunnar. Þetta er þó fólk, sem hefur verið
kennt að gráta ekki undir neinum kringumstæðum,
heldur bera höfuðið hátt með stífri efri vör að brezkum
hætti.
Á skammri ævi tókst prinsessunni að rústa virðingu
brezku Windsoranna. Vinsældir konungdæmisins hröp-
uðu í sama mæli og vinsældir hennar jukust. Áður vildu
þrír af hverjum fjórum Bretum varðveita konungdæmið,
en núna vill það tæpast annnar hver Breti.
Af reynslunni má ráða, að það sé í senn of freistandi
og of hættulegt fyrir kóngafólk að tengjast stjörnudómi
nútímans. Bezt er fyrir það að halda sig til hefðbundins
hlés, svo sem gert hefur verið í Hollandi, Noregi og Sví-
þjóð, en fara ekki að taka þátt í að leika stjörnur.
Við höfum séð hvernig fór fyrir Grimaldi-ættinni í
Mónakó, þegar það fékk stjörnu í sínar raðir. Við sjáum
hvernig dönsku prinsarnir eru að sökkva í glaumgosalíf,
sem veldur vinsældum til skamms tíma, en býður hætt-
unni heim. Stjörnustand hentar ekki kóngafólki.
Brezkur almenningur bar virðingu fyrir Viktoríu og
Churchill, en dýrkaði þau ekki. Fólk dýrkar hins vegar
prinsessuna og grætur fögrum tárum við fráfall hennar.
Þrátt fyrir uppruna sinn og ævi var hún talin vera ein
af fjölskyldunni og raunar einn nánasti ættingi íjöldans.
Stjörnudómur er merkilegt og lítt rannsakað fyrir-
bæri. Það er nánast ævintýralegt, að óhamingjusamur
glaumgosi skuli geta fengið eftirmæli, sem fela í sér, að
hún hafi verið John Fitzgerald Kennedy, Iknaton faraó
og heilög Jóhanna af Örk í einni og sömu persónu.
Ef til vill var það hin augljósa óhamingja prinsessunn-
ár, sem olli því, að almenningur sá hana í spegli sápu-
óperanna og saknar hennar sem spegils síns.
Jónas Kristjánsson
Minningin lifir í goðsögn
í dag fylgjast milljónir manna
um heim allan með útfór Díönu
prinsessu. Minning hennar lifir í
goðsögn. Hafi hún verið yndi fjöl-
miðla og almennings í lifanda lífi,
sameinar fráfall hennar og ein-
stæð útfór heiminn í einstæðri
sorg. Enn tekur nokkum tíma að
jafna sig eftir höggið vegna and-
láts Díönu. Á stundum sem þess-
ari breytist veröldin i þorp.
í öllum miðlum og þar á meðal
á Internetinu hefur Díönu verið
minnst með veglegum hætti. Háir
sem lágir fara hlýlegum orðum
um hana. Flestir reyna að bægja
frá sér þeirri óttalegu mynd, þeg-
ar hún og Dodi al-Fayed, vinur
hennar, kvöddu þennan heim á
flótta undan áköfum ljósmyndur-
um með dmkkinn bílstjóra undir
stýri á 196 km hraða í þröngum
undirgöngum um miðnæturskeið
við Signubakka í París.
Konungsfjölskyldan
Skýrar hefur komið fram en
áður, hvað það var, sem olli því að
Díana átti ekki samleið með
bresku konungsfjölskyldunni.
Hún hafl ekki sætt sig við hinn
gamla Windsor-aga sem ríkir við
hirðina. Henni hafi verið það sér-
stakt kappsmál að kynna sonum
sínum Vilhjálmi og Haraldi lifið
utan hallarmúranna. Spurning sé,
hvort ótímabær dauði hennar
verði til þess að konungsfjölskyld-
an lagi sig fyrr en ella að breytt-
um kröfum, eða hún stígi jafnvel
skref til baka.
Fjölmiðlarnir
Diana var mest ljósmyndaða
kona í heimi. Vegna áhuga fjöl-
miðla á henni hafði hún sérstakt
aðdráftarafl fyrir alla, sem vildu
efla fylgi við góðan málstað. Hún
kunni einnig að nýta sér fjölmiðla
í eigin þágu, þegar hún þurfti að
styrkja stöðu sina gagnvart kon-
ungsfjölskyldunni og fyrrverandi
eiginmanni sínum. Þess vegna gat
hún hvorki án fjölmiðlanna verið
né þeir án hennar. Oft var erfitt
að draga mörkin milli þess, sem
þótti við hæfi, og hins óhæfilega.
Erlend tíðindi
Björn Bjarnason
Aðsúgur ljósmyndara átti að lok-
um sinn þátt i atburðarásinni,
sem leiddi til dauða hennar, og
hafa þeir verið dregnir fyrir rétt.
Góð mynd af Ðíönu við óvenju-
legar aðstæður gat gert ljósmynd-
ara að milljónamæringi vegna
hins mikla áhuga fjölmiðla á
henni. Kröftug forsíðúmynd af
Díönu jók sölu blaðs eða tímarits
og þess vegna var lítil fjárhagsleg
áhætta í því fólgin að festa mikið
fé í mynd af henni. Á hinn bóginn
er hæpið að draga þá ályktun af
voðaatburðinum á Signubökkum,
að nauðsynlegt sé að lögfesta á
Bretlandi eða annars staðar
strangar reglur um starfshætti
ljósmyndara eða blaðamanna.
Raunar er á það bent, að hvergi
séu slíkar reglur strangari af til-
litssemi við friðhelgi einkalífsins
en einmitt i Frakklandi.
Fólkið
Að kvöldi mánudagsins 1. sept-
ember sagði fréttamaður Sky
News frá því, að þeir, sem vildu
skrifa í minningarbók um Díönu í
St. James-höll í London þyrftu að
biða í sjö klukkustundir eftir að
röðin kæmi að þeim. Um heim all-
an fóru menn að sendiráði Bret-
lands eða á aðra staði, sem tengd-
ust minningunni um Díönu á ein-
hvern hátt og létu tilfinningu sína
i ljós. Bylgja samúðarkveðja á
Internetinu hefur verið með ólík-
indum. Þar er bæði unnt að koma
boðum til bresku konungsfjöl-
skyldunnar og einnig skilja eftir
sig boð fyrir aðra til að lesa. Þarf
ekki lengi að líta á þessar síður til
að átta sig á því, hve nærri Díana
stóð hjarta fólks hvarvetna í heim-
inum. „Megi þú loks finna sæluna
sem þú aldrei fannst á jörðu" stóð
á íslensku á einni alþjóðlegu
Intemetsíðunni og var kveðjan frá
Ásgeiri á Akureyri.
Hvað sem líður bresku kon-
ungsfjölskyldunni og fjölmiðlum
mun þessi nálægð prinsessunnar
og skírskotun til hins almenna
borgara um víða veröld vega
þyngst að lokum, þegar minningin
um hana breytist í goðsögn. Á tím-
um hraða og upplýsingabyltingar
tókst henni með einstæðum hætti
að brúa bilið milli hinna vellauð-
ugu við hirðir konunga, viðskipta
og skemmtana og þeirra, sem ekk-
ert eiga nema lífsandann. Verður
þess lengi leitað, hvað það var í
fari þessarar hlédrægu stúlku,
sem vakti svo djúpar og einlægar
tilfinningar.
f- M ■
r ' 1) ' :: ggaii JfcpHSkX
> i ■ - M1 flfehriÉ jm 1—fr.
. 111 J
.
i t i ÍBk. í*4fýi tníSI
UÉ 1 1 sSSÉai
Díana í faðmi fjölskyldunnar þegar allt virtist leika í lyndi, a.m.k. á yfirboröinu. Símamynd Reuter
skoðanir annarra
Þrándur í götu í Kongó
„Ný stjórn Laurents Kabila í Kongó hefur svo
mánuðum skiptir reynt að torvelda rannsókn SÞ á
þjóðflokkamorðum og öðrum mannréttindabrotum
í nýafstaðinni borgarastyrjöld í landinu. Öryggis-
ráðið verður að gera það ljóst nú að þolinmæði þess
: gagnvart þessum töfum sé á þrotum. Ef það verður
: ekki til að bæta samvinnuna, ættu stjórnvöld í Was-
hington að hætta við öll áform um rausnarlega að-
stoð til að byggja upp efnahag Kongós. Trúverðug
rannsókn er mikilvæg vegna þess að ættflokkaerjur
voru að baki bardaganna í Kongó sem áður gekk
; undir nafninu Saír.“
Úr forystugrein New York Times 3. september.
Góður gestur í Noregi
„Aðalíramkvæmdastjórinn (Kofi Annan hjá SÞ)
er vel þekktur á Norðurlöndum og meðal norrænna
stjómmálamanna. Það hlýtur að vera notalegt að
ferðast um aðildarland sem hefur ætíð stutt starf-
semi SÞ ötullega, hvort sem um er að ræða friðar-
gæslu eða mannúðaraðstoð. Auk þess sem það hef-
ur greitt iðgjöld sín til fulls. Vonandi er það ekki
þess vegna sem hann gefur svo sterklega í skyn að
Gro Harlem Brundtland, fyrram forsætisráðherra,
eigi mikla möguleika á að verða næsti yfirmaður
Aljij óðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). “
Úr forystugrein Aftenposten 3. september.
Að meta venjulegt líf
„Hún (Díana prinsessa) lagði mikið upp úr því að
synir hennar lærðu að meta eitthvað sem nálgaðist
það að vera venjulegt líf. Og hún var fræg fyrir
hæfileika sína til að tengjast fólki, sem ekki lifir og
hrærist í heimi fallega fólksins eins og hún, á eðli-
legan og einlægan hátt. Það var þetta sem aðgreindi
hana frá öðrum í konungsfjölskyldunni og ávann
henni þessar miklu vinsældir."
Úr forystugrein Washington Post 2. september.