Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Side 25
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1997 25 y Sjónvarpsstjarnan Jón Logi kominn aftur: I Beinni útsendingu í Loftkastalanum Hann er kominn fram á sjónar- sviðið á ný. Sjónvarpsmaðurinn frægi, Jón Logi, sem fyrir margt löngu hvarf skyndilega af sjónar- sviðinu og enginn vissi hvað um hann varð. Nú er hann kominn tví- efldur til leiks og verður í Beinni út- sendingu í Loftkastalanum í vetur. menn þjóðarinnar leita til mín svo og leiðandi öfl á ýmsum sviðum þjóðlífsins. Menn spyrja: „Jón Logi, hvað segir fólkið? Hvernig er stemn- ingin í þjóðfélaginu?" Ég er tengilið- urinn sem allir reiða sig á. Það er erfltt en mér er það ljúf skylda." - Svo við snúum okkur að þættin- skyggnast undir yfirborðið og kryfla það mál til mergjar. Þetta er mál sem legið hefur í þagnargildi árum saman en nú verður flett ofan af því. Ég er alls staðar þar sem eitthvað er að gerast, þar sem vandamál eru á ferðinni, þar sem fólk á um sárt að binda. Margir hafa misskilið hlutverk mitt og ég hef þurft að sitja undir ýmsum athuga- semdum sem hafa sært mig en ég held ótrauð- ur áfram. Ég trúi á sannleikann." - Hvernig lífi lifir þú fyrir utan flölmiðlana? „Það er engin spurn- ing að ég fell inn í flöldann. Ég er bara venjulegur maður. Ég vinn á miklu dýpi og það er enginn sem vinnur eins og ég. Þjóðin fól mér verkefni sem ég hef tekið mjög alvarlega. Þjóðin veit ekki hver ég er því ég er í rauninni bara skoðun meirihluta þjóðarinnar. Ég þekki alla og er alls staðar en samt hvergi." Umbrot-hönnun-útkeyrsla ísafoldarprentsmiðja er ein af stærstu prentsmiðjum landsins. Vegna aukinna verkefna vantar okkur prentsmiði sem hafa góða þekkingu á tölvuvinnslu, útkeyrslu og hönnun, eru tilbúnir að tileinka sér nýjungar og hafa áhuga á þróun grafískrar vinnslu. Upplýsingar hjá verkstjóra ísíma: 5505982 r Er í banastuði Jón Logi er samnefnari ails þess sem er skemmtilegt og áhugavert. DV-mynd Hilmar Þór Margir bíða spenntir eftir fyrstu út- sendingunni sem verður þann 14. september nk. Jón Logi hefur haldið sig til hlés um tíma og segist í dag nýr og breyttur maður. Hann segir ákveðin mál hafa valdið því að honum þótti réttast að láta sig hverfa um stund en nú sé hans tími kominn. „Það er engin spuming að þjóðin tekur mér opnum örmum. Það gamla er nú gleymt og grafið og mér hefur verið fyrirgefið. Það kom upp leiðindamál á sínum tíma sem ég vU ekkert ræða um. Það er óþarfi að ýfa upp gömul sár. Nú er ég kominn aftur, nýr og breyttur maður.“ - Hvar hefurðu haldið þig? „Ég hef undanfarin ár haldið mig til hlés. Ég hef notað tímann til að horfa, hlusta og hugsa málin. Ég hef fylgst vel með þróun mála hér og annars staðar og verið með fing- urna á púlsi þjóðarinnar. Og nú er ég tilbúinn að grípa inn í.“ - Nú eru Hemmi Gunn og Gísli Rúnar báðir hættir með sinn þátt. Er það hugsanleg ástæða fyrir því að þú lætur til skarar skríða núna? " „Auðvitað hefur plássið á mark- aðnum rýmkað en það er ekki hægt að líkja mér við þá. Bakgrunnur minn er allt annar. Mér gekk t.d. aldrei vel í íþróttum. Það kom hins vegar strax i æsku í ljós hvert hlut- verk mitt í lífinu yrði. Ég er könn- uður og það má segja að ég sé sam- nefnari og brennipunktur þessarar þjóðar að ógleymdri samvisku hennar. Ég er samnefnari alls þess sem er vinsælt, skemmtilegt og áhugavert, hvort sem það varðar listir, menningu, pólitík eða hvað sem nöfnum tjáir að nefna. Allt þetta endurspeglast í mér.“ - Varstu svona strax sem barn? „Já, ég fæddist með þessum ósköpum. Ég var t.d. týpan í bama- skóla sem kom upp um prófsvindl og aðra pretti. Ég þoli ekki svik og lævísi. Ég vil ekki nokkrum manni illt en undirferli get ég ekki þolað. Ég vil að fólk geri sér grein fyrir því að hlutverk mitt er mjög erfitt. Það er ekki auðvelt að vera þetta safn- gler skoðana og hugmynda. Það er t.d. engin tilviljun að margir ráða- um þínum: Hvemig þáttur er Bein útsending? „Þetta er spjallþáttur sem er ólík- ur öllum öðrum þáttum af því tagi. Ég reyni að kryfla málin til mergj- ar. I fyrsta þættinum fæ ég t.d. til mín listamann sem hefur getið sér gott orð á erlendri grund og á eftir að gera stóra hluti í framtíðinni. Hann hrökklaðist úr landi á sínum tíma og ég mun af mikilli festu Þorvaldur Þorsteins- son, umboðsmaður Jóns Loga, sagði að áhorfendur yrðu ekki fyrir vonbrigðum með karlinn. Hann væri í banastuði. „Jón Logi hefur þróað ákaflega snarpan viðtalsstil sem er búið að stæla ótrúlega mikið. Hver setning er stutt.og í stjörnuflokki - eins og fitusneytt kjöt. Stíll hans er til í mörgum útgáfum en núna fá menn að heyra „originalinn" og þá skilja menn muninn.“ -gdt Vissir þú. • • □ að fyrri tíma og nútímasálarrannsóknir hafa sýnt fram á með yfir- gnæfandi llkum að líf sé eftir líkamsdauðann? Og að í öðrum heimi bíði framhaldslíf allra lífvera, jafnt manna, dýra og plantna? □ að hluti af niðurstöðum rannsókna spíritismans var og er að ALLIR látnir ástvinir okkar og aðrir eru NÚNA staddir í þessum maka- lausa framhaldsheimi? Og að langflestir þeirra fari strax í „fallega staðinn” þótt sumir þeirra þurfi stundum að taka á sig nokkurn krók áður en það gerist eftir misjafna hegðun þeirra hér á jörðu, að þvi er virðist að mati þessara sömu upplýsinga? □ að hér á jörðinni er allstaðgóð þekking til um þessi mál eftir meira en 150 ára rannsóknir spíritismans á þessum hlutum þótt aldrei sé minnst einu orði á þá í opinbera menntakerfinu sem kostar skatt- greiðendur yfir 20 milljarða á ári hér á landi? □ að á íslandi er vandaður Sálarrannsóknarskóli sem fræðir al- menning um öll þessi handanheimamál og hversu raunverulega mikið er vitað um þessa heima og samband okkar viö þá, sem og um starf- semi miöla, álfa og huldufólk og hin ólíkustu dulræn mál önnur? Fyrstu bekkir haustsins byrja bráðum. Námið er í formi fræðslu- erinda og kennslu um starfsemi miðla eitt kvöld (viku eöa eitt laugardagssíödegi f viku fyrir hófleg skólagjöld - fyrir alla sem áhuga hafa. - Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um skemmtilegasta skólann sem f boöi er í dag. - Yfir skráningar- dagana er svaraö í síma skólans alla daga vikunnar kl. 14 til 19. Sálarrannsóknarskólinn, - mest spennandi skólinn í bænum - Vegmúla 2, s. 561 9015 & 5886050 Fullkomin tækjasalur - Smiðjuvegur 1 - 200 Kópavogi O SPINNING-hjólatímar Smiðjuvegi 1-200 Kópavogi Sími. 5543040 TRYGGIÐ YKKUR PLASS SEM FYRST Lokað fitubrennslunámskeið Strangt aðhald, hefst þann 11. september. Einkaþjálfun Einar Vilhjálmsson • GSM: 896 7080 ^ Frjáls mæting *Spinning (hjólatímar)* *Pallatímar*Þolfimi* * Mjúk leikfimi* JOGA Joga námskeið fyrir alla 1 KARATESKÓLI 14 ára og eldri MORGUNKLUBBUR G U F A - LJOS - BARNAGÆSLA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.