Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Side 30
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
38
V-
Stáltaugar
Skakka turnsins
Ég vissi alltaf að hann hallaði,
enda frægur fyrir það. Hafði ein-
hvern tímann séð myndir af honum
án þess þó að gaumgæfa þær að
ráði. Samt var ég á leiðinni þangað
einmitt vegna þess að þessi blessaði
tum var gallaður. Skakkur. En að
hann væri svona dásamlega skakk-
ur var nokkuð sem ég bjóst ekki við.
Draumkennd tilvist turnsins
Himinninn yfir Pisa var bjartur
og blár og túrhestarnir spókuðu sig
á dómkirkjutorginu í marglitum
stuttbuxum og pilsum. Fagurgræn
flötin umhverfis dómkirkjuna var
eins og nýhreinsað gólfteppi sem
státaði af hvítum, flúruðum hús-
gögnum; skírnarkapellunni, dóm-
kirkjunni, klukkuturninum.
Á þessum sólríka degi leiftruðu
allir litir að undanskildum þeim
rauða sem nýtur sín best á kvöldin
þegar hin helgu hús em böðuð
bjarmanum frá blóðrauðu sólarlagi.
Kona, sem stödd var í Pisa að kvöld-
lagi, sagði seinna svo frá að henni
hefði þótt sem blóð rynni niður eft-
ir hvolfþaki skírnarkapellunnar við
sólsetur, svo sterkur var roðinn.
Hversu draumkennd sem lýsing
frá stað þessum kann að hljóma er
hún dagsönn. Jafnsönn og tilvist
Skakka tumsins sem þó er draum-
kenndastur af öllu sem fyrir augu
ber á torginu.
Það var þessi margfrægi turn sem
fyrstur fangaði athygli mína þegar
ég tók niður rykug ferðasólgleraug-
un á götuhorni í Pisa. Ég stóð and-
spænis þessum forna turni og dáðist
að úthaldi hans. Hneigði mig fyrir
Karatefélag Reykjavíkur
Sundlaugarhúsinu í Laugardal
KARATE - KARATE - KARATE
Æfiö karate hjá elsta karatefélagi landsins, þar sem kennsla fer fram hjá ábyrgum aðilum
Karate er frábær alhliða íþrótt sem hentar fólki á öllum aldri! - Nýir félagar ávallt velkomnir!
Innritun er hafin á staðnum eftir kl. 17:00 (einnig í síma 553 5025).
Nýtt æfingatímabil er hafið skv. eftirfarandi æfingatöflu:
Kl. Mánudagur Kl. Þrið|udagur Kl. Mlðvlkudagur Kl Flmmtudagur Kl. Föstudagur Kl. Laugardagur
17:00 17:00 17:00 17:00 17:00 Framhald börn 14:00 Kumite/frjálsl
18:00 Framhald börn 18:00 Byrjendur bðm 18:00 Framhald bóm 18:00 Byrjendur börn 18:00 Byrjendur fullorðnir
19:00 Framhald fullorðnir 19:00 Byrjendur fullorðnir 19.00 Framhald fullorðnir 19:00 Byrjandur fullorðnir 19:00 Framhald fuilorðnir
Æfingagjöld verða eftirfarandi fyrir þrjá mánuði: Fullorðnir kr. 8.500 og börn 6.800.
Innifalin í verði er karateþjálfun, aðgangur að lyftingaherbergi, sundlaug og pottum.
Jafnframt er innifalin í verði gráðun o.fl. í lok tímabilsins. Komi til landsins erlendir
þjálfarar, þá þarf að greiða sérstaklega fyrir aðgang að námskeiðum þeirra, svo og
gráðun á þeirra vegum.
ATH.iYfirþjálfari félagsins sensei George Andrews 6. dan shihan
Skakki turninn stendur á Torgi kraftaverkanna (Piazza dei Miracoli) en þar
eru margar merkar byggingar.
þessari dásamlegu byggingu sem er
talin meistaraverk á sínu sviði arki-
tektúrs - turninum sem væri full-
kominn ef hann hallaði ekki en er
fullkominn einmitt vegna þess að
hann hallar en hrynur ekki.
Torg kraftaverkanna
Árið 1063 hófst bygging dómkirkj-
unnar í Pisa og var hún fyrsti visir-
inn að þeim fræga garði sem í dag
nefnist Torg kraftaverkanna (Piazza
dei Miracoli). Og vissulega þótti hin
mikla kirkja kraftaverk í sjálfri sér
á sínum tíma og þykir enn. Henni
hefur verið lýst sem „meistaraverki
hugar og handa“ og virðist engu lík-
ara en almættið sjálft hafi tekið þátt
í sköpun hennar.
Gegnt dómkirkjunni stendur
skímarkapellan, hringlaga bygging
skreytt i gotneskum stíl. Eins og titt
er um allar byggingamar á Torgi
kraftaverkanna liðu aldir frá
„fyrstu skóílustungunni" þar til
verkinu var lokið vegna tafa af ýms-
um orsökum. Bygging skýrnarka-
pellunnar hófst árið 1153 undir
stjórn arkitektsins Diotisalvi og
lauk á ofanverðri 15. öld.
Aragrúi listaverka prýða skírn-
arkapelluna, eins og aðrar bygging-
ar á Torgi kraftaverkanna. Meðal
muna sem enn eru á sínum stað er
hin svonefnda „ljósakróna Galí-
leós“. Um er að ræða ljósakrónu úr
bronsi frá 1587. Eftir að hafa fylgst
með ljósakrónu þessari sveiflast
eiga hinum mikla hugsuði, Galileó
Galílei, að hafa vitrast reglur um
jafna tímalengd milli pendúl-
sveiflna.
Fleiri þjóðsögur era til um eðlis-
fræðinginn Galíleó Galílei í Pisa
enda var hann innfæddur Pisabúi.
Hermt er að af þaki Skakka turnsins
hafi hann framkvæmt hinar frægu
tilraunir sínar um fall hluta sem
urðu til þess að hann skráði lögmál
þar að lútandi.
Frægur að endemum
í dag fengi Galíleó þó ekki að
príla upp á efstu hæð til þess að
sinna visindatilraunum ... nema
þær miðuðu að því að koma í veg
fyrir hran turnsins. Aðgangur að
tuminum er nú bannaður vegna
viðkvæms ástands hans. Áður biðu
ferðamenn í röðum eftir að fá að
þramma upp 294 tröppur i dimmum
hringstiga þessa skakka sívalnings.
Af efstu hæðinni er víðsýnt yfir
fjalllendi og frjósamar sléttur
Toskaníuhéraðs en turninn er átta
hæðir og tæplega 56 metra hár.
Klukkuturn dómkirkjunnar var
þriðji minnisvarðinn sem hafist var
handa við að reisa á torginu og varð
með tímanum þeirra frægastur.
Frægur að endemum, má segja, því
þvert á áætlanir byggingameistar-
anna víkur tuminn nú tæpa 5 metra
frá lóðlínu og er þess vegna þekktur
sem „Skakki turninn í Pisa“.
Það var listamaðurinn og arki-
tektinn Bonanno Pisano sem hleypti
byggingu turnsins af stokkunum
árið 1174. Þegar þrjár hæðir höfðu
verið reistar voru framkvæmdir
stöðvaðar. Hermt er að ástæðan hafi
verið skekkjan í byggingunni sem
þá þegar var komin í ljós. Enn í dag
ber mönnum ekki saman um hvort
hún sé til þess komin vegna land-
sigs eða hreinlega vegna galla í
hönnuninni. í dag er ferðamönnum
tjáð að turninn halli vegna „lélegrar
undirstöðu" og getur þá hver túlkað
það á þann veg sem hann kýs.
Eftir 90 ára „kaffihlé" bygginga-
verkamannanna var loks ráðist í að
reisa þær hæðir sem á vantaði. Árið
1350 kórónaði Tommaso Pisano stór-
virkið með byggingu klukknahvelf-
ingarinnar.
Hættuástand
í tímans rás hefur sig sívalnings-
ins haldið áfram og hallar hann nú
verulega undir flatt. Vegna hættuá-
standsins er turninn undir stöðugu