Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1997
lil hamingju með afmælið 7. september
85 ára
Guðmundur Einarsson, Veðramóti, Skarðshreppi. Guðrún Sigurðardóttir, Hraunbúðum, Vestm.eyjum. Kristín Gunnlaugsdóttir, Geldingaholti I, Seyluhreppi. Jóhanna Þorsteinsdóttir, Baldursgötu 12, Reykjavík.
80 ára
Guðmundur S. Hjálmarsson, Suðurhvammi 4, Hafnarfirði. Elín Kristjánsdóttir, Vesturbrún 10, Hrunam.hr. Guðrún Sigurðardóttir, Hróarsstöðum, Hálshreppi.
75 ára
Hekla Árnadóttir, Laugarásvegi 51, Reykjavík. Jófríður Helgadóttir, Smáratúni 25, Keflavík. Gunnlaugur Guðlaugsson, Mosabarði 14, Hafnarfirði. Margrét Jónsdóttir, Austurbrún 6, Reykjavík.
70 ára
Eva Sturludóttir, Búlandi 13, Reykjavík. Hún er að heiman.
60 ára
Reynir Albertsson, Klettagötu 4, Hafnarfirði. Þórir Ásgeirsson, Hálsaseli 5, Reykjavik. Vignir Einarsson, Brekkubyggð 34, Blönduósi. Steingrímur Kristjánsson, Fjólugötu 13, Reykjavik.
50 ára
Guðrún Sigurðardóttir, Brekkuhlíð 10, Hafnarfirði. Bjarney Njálsdóttir, Hverafold 134, Reykjavík. Bragi Guðjónsson, Melhaga 15, Reykjavík. Sigrún Ármanns Reynisdóttir, Hraunbæ 38, Reykjavík. Ragnhildur Andrésdóttir, Ystu-Görðum, Kolbeinsstaðahreppi. Jón Erlingsson, Miðstræti 6, Neskaupstað.
40 ára
Soffía Guðjónsdóttir, Ásgarði 2, Garðabæ. Rannveig Tómasdóttir, Melgerði 37, Kópavogi. Halla Arnardóttir, Öldugranda 5, Reykjavík. Guðjón Jónsson, Kolbeinsmýri 10, Seltjarnamesi. Gerður Þórisdóttir, Hesthömrum 6, Reykjavík. Hong Mjöll Lu, Hvassaleiti 12, Reykjavík. Þorleifur Hauksson, Hrauntungu 81, Kópavogi. Bjarni Jón Finnsson, Sigtúni 6, Mýrdalshreppi. Ægir Þorsteinsson, Snorrabraut 35, Reykjavík. Kjartan Steingrimsson, Litluvöllum 10, Grindavík. Tryggvi Ingvason, Heiðarvegi 25, Keflavík. Stefán Ragnar Ólafsson, Hjallalundi 7 F, Akureyri. Þorbjörn Oddsson, Háafelli, Hvítársíðuhreppi. Sigurður Þorsteinsson, Bollasmára 8, Kópavogi. Páll Sigurður Kristjánsson, Stekkjarhvammi 50, Hafnarfirði.
___________________í afmæli d
Kristín Jóhannsdóttir
Ása Kristín Jóhannsdóttir, að-
stoðarskólastjóri, Reykjafold 11,
Reykjavík, er fimmtug á morgun.
Starfsferill
Ása Kristín er fædd og uppalin í
Miðbænum í Reykjavík. Hún stun-
daði ýmis skriftofustörf t.d. í Lands-
banka íslands og víðar og lauk síðan
prófi frá KHÍ 1988.
Ása Kristín hefur kennt við Rétt-
arholtsskóla frá þvi hún lauk prófi.
Hún var sl. ár í leyfi frá kennslu og
stundaði nám við Danmarks Læare-
rhojskole, Emdrup í Kaupmanna-
höfn en þaðan lauk hún
exam.pæd. prófi í Med-
ie- og In-
formationsteknik. Hún
er nú aðstoðarskóla-
stjóra í Réttarholtsskóla
frá því í ágúst sl..
Ása Kristín situr í
stjórn Félags dönsku-
kennara og sat í rit-
stjórn Málfríðar, blaðs
tungumálakennara um
árabil fh. félagsins. Hú
hefur einnig verið í rit-
stjórn Hollefni og
Asa Kristín
Jóhannsdóttir.
Heilsurækt, blaðs Heilsuhringsins í 1980, nemi
nokkur ár og gengdi
þar formannsstöðu í
eitt ár.
Fjölskylda
Ása Kristín giftist
25.12. 1966, Bimi
Björnssyni, rafverk-
taka. Foreldrar Björns
eru Björn Bjarnason,
fv. hafnarvörður í Hafn-
arfirði og Velgerður
Björgvinsdóttir.
Barn: Áslaug Birna
Björnsdóttir, f. 13.7.
í MS.
Systkini Ásu Kristínar eru Jón
Jóhannsson, frkv.stj. Reykjavík;
Gunnar Jóhannsson, forstöðumaður
í Reykjavík; Laufey Jóhannsdóttir,
húsmóðir í Reykjavík; Kolbrún Jó-
hannsdóttir, bankafulltrúi í Reykja-
vík; Jóhann Svavar Jóhannsson
byggingamaöur í Reykjavík; Sess
elja Á. Jóhannsdóttir, förðunarfræð
ingur i Reykjavík.
Foreldrar Ásu Kristínar var Jó
hann Jónsson, f. 7.5. 1926 d. 21.1
1991, lögfræðingur og skrifstofu
stjóri hjá íslenskum Aðalverktök
um, og Sólveig Gunnarsdóttir, f
10.9. 1923, húsmóðir í Reykjavík.
Uandlát
Sesselja Sigurðardóttir
Sesselja Sigurðardóttir húsmóðir,
Sunnuvegi 23, Reykjavík, lést í
Reykjavík 26.7. sl. Jarðarfor hennar
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Starfsferill
Sesselja fæddist 30.6. 1912, í Deild
á Eyrarbakka og ólst þar upp til tutt-
ugu ára aldurs, er hún flutti til
Reykjavíkur. Hún var í vist eins og
kallað var á mörgum heimilum
bæði í Reykjavik og Eyrarbakka allt
frá tíu ára aldri. Einnig vann hún
landbúnaðarstörf á heimili sínu og á
sveitabæjum í nágrenninu. Hún
stundaði nám á húsmæðraskóla í
Húsinu á Eyrarbakka í átta mánuði.
í Reykjavík starfaði hún sem hús-
móðir og einnig i kvenfélagi Slysa-
varnafélags íslands. Ullarprjón og
hannyrðir voru einnig stór hluti af
lífi hennar.
Fjölskylda
Sesselja giftist 11. júni 1932 Berg-
steini Ármanni Bergsteinssyni
mótorista, síðar fiskmatsstjóra Rík-
isins frá Tjörnum í Vestur-Eyja-
QaUahreppi, f. 16.10. 1907, d.-19.1.
1976. Foreldrar hans voru Berg-
steinn Bergsteinsson bóndi á Tjöm-
um og formaður í Vestmannaeyjum
og Sigríður Tómasdóttir húsmóðir.
Sesselja og Bergsteinn eignuðust
(jögur börn. Þau eru Hafþóra, f.
28.10. 1932, húsmóðir og starfsstúlka
á EUiheimUinu Grund; Sigurður, f.
4.6. 1941, húsgagnasmiður; Sigur-
berg Bragi, f. 23.10.1943, kennari; Al-
bert Ebenezer, f. 5.2. 1952, guðfræð-
ingur.
Barnabörn Sesselju og Bergsteins
em níu og barnabarnabörnin eru
þrettán talsins.
Systur Sesselju eru:
Klara f. 2.3. 1914, d. 18.4. 1991.
Fyrri maður hennar var Jóhann
Friðriksson skipstjóri, sem nú er
látinn,' og eignuðust þau eina dóttur,
Margréti Ágústu. Seinni maður
hennar var Þorsteinn Bjamason og
kennari við VÍ, nú látinn og eignuð-
ust þau einn son, Jóhann Bjarnason,
bónda á Auðólfsstöðum í Langadal í
Húnavatnssýslu.
Þorbjörg f. 4.1.1919, d. 2.3. 1991.
Maður hennar var Einar Ólafsson
bifvélavirki, sem nú er látinn. Börn
þeirra eru Sesselja Ólafia f. 21.8.
1938, sjúkraliði, starfsstúlka hjá
Sjálfsbjörg, Katrín Særún, f. 6.5.
1941, húsmóðir, Ágústa, f. 14.11.1943,
húsmóðir í Keflavík, Sigrún, f. 10.6.
1949, húsmóðir, Gróa Sigríður, f.
31.12. 1950, húsmóðir í Reykajvík,
Þórey, f. 1.1.1954, starfs-
stúlka hjá Sjálfsbjörg,
Lind, f. 11.7.1956, ritari,
Ólafur Brynjólfur, f.
16.1. 1967, líffræðingur.
Foreldrar Sesselju
voru Sigurður
Daníelsson og Ágústa
Ebenezardóttir.
Ætt
Meðal systkina Sig-
uröar má nefna Daníel
Guttormshaga, föður
Guðmundar rithöfundar
og Ágústínus í Steinskoti á Eyrar-
bakka föður Daníels fv. bæjarstjóra
á Akranesi og Eyjólf. Sigurður var
sonur Daníels í Kaldárholti í Holt-
um Þorsteinssonar, b. þar Árnason-
ar, b. þar Þorsteinssonar. Móðir
Daníels var Guðrún Daníelsdóttir.
Móðir Sigurðar gullsmiös var Guð-
rún Sigurðardóttir. b. á Gaddastöð-
um, Guðbrandssonar, bróður Sæ-
munda á Lækjarbotnum, ættföður
Lækjarbotnaættarinnar og langafa
Guðrúnar Erlendsdóttur, hæstarétt-
ardómara
. Meðal systkyna Ágústu má
nefna Jóhönnu móður Ólafs lögfræð-
ings og Ebenezer sagnfræðings Páls-
sona. Ágústa var dóttir Ebenezers
gullsmiðs á Eyrarbakka,
hálfbróðir Guðmundar
bóksala á Eyrarbakka,
langafa Þorsteins Páls-
sonar ráðherra, Ebenez-
er var sonur Guðmundr
ar b. á Minna- Hofi Pét-
urssonar, þó talinn
launsonur Páls skálda,
prests í Vestmannaeyj-
um. Móðir Ebenezar var
Guðrún dóttir Sæmund-
ar, langafa Kristmanns
Guðmundssonar rithöf-
undar. Guðrún var dótt-
ir Sæmundar ölgerðarmanns í
Stóra-Nýjabæ í Krýsuvík, Friðriks-
sonar, prests á Borg á Mýrum, Ólafs-
sonar djákna, Kárssonar, ættföður^
Kársættarinnar og bróður Jóns,
langafa Þorgríms, gullsmiðs á Bessa-
stöðum, föður Grims Thomsens
skálds. Móðir Ágústu var Sesselja
Ólafsdóttir, b. í Geldingaholti, bróð-
ur Margrétar, móður Brynjólfs Jóns-
sonar, fræðimanns á Minna- Núpi.
Ólafur var sonur Jóns, b. á Baugs-
stöðum Einarssonar, og Sesselju
Ámundadóttur, snikkara í Vatnsdal
og Langholti Jónssonar. Móðir Sess-
elju var Gróa, systir Þórðar, afa Þor-
móðs Ögmundssonar, fv. banka-
stjóra Útvegsbankans.
Sesselja Sigurðardóttir.
__________________________________fréttir
Svokallaðir gegnumlýsingabílar vinsælir í Bandaríkjunum:
Öflugt tæki í baráttu
gegn fíkniefnum
- segir Baldvin Þórisson tollvöröur sem vill fá slíkan bíl til íslands
en hinn skynjar efni og plöntur. Ef námskeið til að læra á bílinn.
t.d. fram kemur skær, hvítur litur á „Ef ein slík bifreíð væri hér á
skjánum er kókaín þar á ferðinni. landi gæti bæði tollgæsla og lög-
Svokallaður gegnumlýsingabíll en slík tæki eru mikiö notuö í Bandríkjunum
í baráttunni gegn fiknlefnum.
„Ég tel að ef löggæsluyflrvöld
fengju svona bíl þá væri það mjög
stórt skref fram á við í baráttunni
gegn flkniefnum. Þetta er mjög mik-
ilvægt og öflugt tæki í þessari erfiðu
baráttu," segir Baldvin Þórisson
tollvörður sem er mjög áhugasamur
að fá svokallaðan gegnumlýsingabil
til landsins.
Að sögn Baldvins kostar bíllinn
um 14-15 milljónir króna. Baldvin
fór í starfsþjálfun til Bandaríkjanna
á síðasta ári og þar kynntist hann
slíkri bifreið.
„Mörgum finnst bíllinn of dýr en
mér finnst það ekki miðað við mik-
ilvægi hans. Þessir bílar eru vinsæl-
ir í Bandaríkjunum en þar eru um
150 bílar í notkun og það er alltaf
verið að fjölga þeim þar. Þeir hafa
reynst löggæsluyfirvöldum þar mik-
ilvægur liðsauki. Ég hef verið að
kynna bílinn að undanfömu, m.a.
hjá Kiwanisklúbbi, og þar var tekið
vel í þessa hugmynd.
Baldvin segir að gegnumlýsinga-
bíll sé búinn tækjabúnaði sem lýsir
vöruna og sýnir hana á tveimur
sjónvarpsskjám. Annar skjárinn
skynjar máhn, t.d. byssur og hnífa,
Hægt er að prenta allt út sem kem-
ur á skjáinn. í bílnum em færibönd
sem hægt er að renna niður ef skoða
þarf marga kassa eða töskur. Að
sögn Baldins þarf tveggja vikna
regla nýtt hana. Hægt væri að senda
bílinn út á land með litlum fyrir-
vara, t.d. ef togari, gámaskip eða
flugvél væm að koma erlendis frá,“
segir Baldvin. -RR
Hún vcildi
skartgripi
frá Silfurbúðinni
-----8--I—..._______■
&) SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12‘511111568 9066
- Þarfœrðu gjöfina -
í Fnönskunámskeiö >
Alliance Francaise.
Haustnámskeið verða
haldin 15. sept. —12. des.
Innritun fer fram alla
virka daga kl. 15-19 í
Austurstræti 3,
sími 552 3870.
,pp_ Alliance Francaise