Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1997
• 6o kvikmyndir
Matthew
gRODERlCK
„FullkoffiSr'
fyrir stenWmót"
Prevue <®nnel
leg Ryan og Ma«l
Iroderick leika ’
s|sjúka einstaklinj
ein hittast er þaui
eyná £ð spilla fy*
ástartómbandi si
fyrrvejrandi.
fitórskemmtileg,
l&mantísk gamd
nK'er það mál m
DPCMOACIMki
a'9í;\,
Sýnd kl. 5 og 9 .
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
rayFLTO Wi^dLD
Sýnd kl. 5, 9 og 11. B.i. 16ára.
Hörkuspennandi samsæristryllir
Hörkuspennandi sakamálamynd meö toppleikurum.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 5, 7 og 9. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 11. B.i. 16 ára.
m
Í'MX
whí
’ f
LIVING IN
PERIL
Hárbeíltur’sáirænn tryllir af bestu gerb.
Abalhlutverlc Rob Lowe (Bad Intluence. Tommy Boy), James Belushi
(K 9. The Principal) og Dean SiockweM (Stephen King s, The
Langoliers, Quantum Leap).
DOUBLE
TEAM
Sýnd kl. 7 og 11.
ONt FINE DAY
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15.
vbuggim
Sjónvarpsþáttur um Hróa hött tekinn upp í Litháen:
Kostnaðurinn miklu minni
Vel gæti farið svo að kvikmynda-
framleiðendur sneru sér í vaxandi
mæli til fjarlægra landa til að fram-
leiða kvikmyndir eða sjónvarps-
þætti. Vísi að þróun í þá átt má nú
þegar sjá í Litháen. í Vilnius- kvik-
myndaverinu hafa framleiðendur á
vegum TNT í Bandaríkjunum und-
anfarin tvö ár tekið upp sjónvarps-
myndaröð um Hróa hött. Það er
engin tilviljun að tökur skuli fara
fram í Vilnius.
Á staðnum er upptökuver sem áður
var notað til að framleiða kvik-
myndir fyrir Sovétmenn. Þar voru
^ framleiddar að meðaltali 10 kvik-
myndir á ári á meðan ráðstjórnar-
ríkin voru við lýði. Eftir að þau liðu
undir lok féll starfsemin að mestu
niður og upptökuverið stóð fyrir
framleiðslu á örfáum myndum á ári,
aðallega fyrir litlar sjónvarpsstöðv-
ar í Litháen. En þá datt snjöllum
markaðsmönnum hjá fyrirtækinu í
hug að freista bandarískra kaup-
sýslumanna með ódýrum tilboðum.
Upptökuverið er ágætlega búið tækj-
um og hefur á að skipa ódýru starfs-
liði sem er tilbúið að vinna fyrir
meira en helmingi lægri laun en
kollegamir í Bandaríkjunum. Fram-
leiðslukostnaðurinn skiptir ávallt
miklu máli enda er þess krafist að
framleiðslan standi undir sér og
áfc skili helst umtalsverðum hagnaði.
Helmingun kostnaðar getur riðið
baggamuninn í framleiðslunni.
Von bráðar tóku bandarískir fram-
leiðendur við sér og fóru að kíkja á
aðstæðumar í Vilnius-verinu. Einn
framleiðendanna var fljótur að sjá
að staðurinn var tilvalinn fyrir upp-
tökur á þáttum um Hróa hött sem í
bígerð voru. Þarna er mikið skóg-
lendi og kastalar á hverju strái. Þeg-
ar Bandaríkjamenn komu til sög-
unnar í Vilnius var starfsliðið kom-
ið niður í 90 manns en um helmings
fjölgun hefur orðið síðan byrjað var
að taka upp þættina um Hróa hött.
Fjölmörg önnur verkefni era í sigti
hjá Vilnius-kvikmyndaverinu og
flest eru þau fyrir erlenda aðila.
Sjónvarpsþættirnir um Hróa eru
sýndir bæði í Bandaríkjunum og í
Frakklandi og það er ágæt auglýs-
ing fyrir sjónvarpsverið. Miklar lík-
ur eru taldar á því að Warner
Brothers muni taka upp viðamikla
kvikmynd um vampírur í Vilnius-
kvikmyndaverinu á næsta ári. Að-
stæður allar á staðnum þykja góðar
fyrir þess háttar kvikmynd. Spurn-
ingin er nú bara sú hvort framleið-
endur í Bandaríkjunum muni í
auknum mæli snúa sér til erlendra
aðila þar sem hægt er að framleiða
kvikmyndir eða sjónvarpsþætti -fyr-
ir minna fé. -ÍS
Það er mun minni kostnaður því samfara að gera sjónvarpsþátt um Hróa hött í Litháen heldur en í Hollywood,
John Cusack er vinsæll:
Vandi flugumferðarstjóra
Leikarinn John Cusack er um þess-
ar mundir að ganga frá nýjum kvik-
myndasamningi og mun hann taka
að sér aðaðlhlutverkið í myndinni
Pushing Tin. Leikstjóri þeirrar
myndar verður ekki af verri endan-
- •* um en það er Mike Newell. Handrit-
ið er skrifað af bræðmnum Glen og
Les Charles. Þeir hafa helst unnið
það sér til frægðar að skrifa hand-
ritið að þáttunum um Staupastein.
Myndin Pushing Tin fjallar um tvo
flugumferðarstjóra sem láta per-
sónuleg metnaðarmál hafa áhrif á
störf sín og hefur það alvarlegar af-
leiðingar í för meö sér. Mikil um-
ræða hefur verið um öryggisgæslu á
flugvöllum og því er það talinn álit-
legur kostur að gera mynd um
þannig efni.
Cusack hefur haft óvenjumikið að
gera að undanfórnu og hefur nýlok-
ið við leik í tveimur myndum, Con
Air og Crosse Point Blank. Hann
hefur úr svo mörgum tilboðum að
moða um þessar mundir að honum
veitir ekki af flugumferðarstjóra til
að greiða úr flækjunni. -ÍS
John Cusack lék nýveriö
í myndinni
Con Air.
Leikkonan Jodie
Foster er um þessar
mundir stödd í Tokyo
í Japan þar sem hún
vinnur aö kynningu á
nýjustu mynd sinni,
Contact. Foster er þar
í hlutverki vísinda-
manns sem nær
hljóömerkjum utan úr
geimnum sem aug-
Ijóslega eru frá vits-
munaverum. Jodi
Foster var spurö af
þessu tilefni hvort
hún hefði orðið fyrir
ónæöi af hálfu „pap-
arazzi“-ljósmyndara,
en hún sagöist ekki
vilja blanda sér í þá
umræöu.
DV-mynd Reuter