Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1997, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997
Fréttir
Aron Ágústsson skrifar úr fangelsinu:
Hroðalegt að vera hér
- segist saklaus
Aron Ágústsson, 14 ára Islending-
ur sem situr í fangelsi í Texas, hefur
skrifað móður sinni og fósturfóður
bréf úr fangelsinu. Af bréfinu að
dæma virðist ljóst að Aron unir sér
illa þar sem hann er. í bréflnu segir:
„Það er hroðalegt að vera hér. Við
fáum að fara á klósett tvisvar á dag
og megum bara vera í fimm mínutur
í hvort skipti. Ég er í klefa með 20
strákum, ég er krúnurakaður eins og
allir hinir. Þegar við fórum fram á
gang eigum við að ganga í einfaldri
beinni röð og við verðum að horfa
niður, okkur er bannað að horfa
upp. Okkur er bannað að tala saman.
Sama er í matsalnum, þar má ekki
tala saman og viö fáum aðeins fimm
mínútur til að borða. Ég heyrði að
tveir strákar hefðu svipt sig lífi. Á
kvöldin þegar við eigum að fara að
sofa er okkur bannað að tala saman.
Við verðum að liggja þegjandi þar til
við sofnum. Mamma og pabbi, ég
elska ykkur. Ég gerði þetta ekki.“
Móðursystir Arons segir að ekki
hafi tekist að fá endurrit af dómn-
um þar sem það kosti 4.500 dollara,
sem eru nærri 300 þúsund krónur.
-sme
Tvö mikilvæg vitni í Vegasmálinu í héraðsdómi:
Segja ákærðu hafa
slegið og sparkað
- í höfuð Sigurðar Sigurmundssonar sem lést af völdum áverka
Sigurbjörn Arnarson mætir í dómsalinn f gær. DV-mynd E.ÓI.
Sverrir Þór Einarsson á leið í dómsalinn í fylgd fangavarðar. DV-mynd E.ÓI.
í gær lauk aðalyflrheyrslum og
málflutningi i Héraðsdómi Reykja-
víkur í hinu svokallaða Vegasmáli.
Sakborningarnir tveir, Sverrir
Þór Einarsson, 35 ára, og Sigurþór
Arnarson, 25 ára, hafa verið ákærð-
ir fyrir stórfeUda likamsárás sem
leiddi tU dauða Sigurðar Sigur-
mundssonar, 26 ára Eyrbekkings, á
skemmtistaðnum Vegas aðfaranótt
þriðjudagsins 13. maí sl.
Sverrir er ákærður fyrir að hafa
veitt Sigurði þungt högg aftanvert á
höfuðið þannig að hann féU í gólfið
og rotaðist. Sigurþóri er geflð að sök
að hafa sparkað í höfuð Sigurðar
þar sem hann lá á gólfmu. Sakborn-
ingamir neita báðir sakargiftum og
bera sakir hvor á annan.
Aðalyfirheyrslur í málinu fóru
fram 15. ágúst sl. en ekki gátu öU
vitnin mætt þá. Því var framhald í
gær og fimm vitni voru þá leidd fyr-
ir dóminn. Tvö mikUvæg vitni fyrir
saksóknara komu fram. Bæði vitnin
tóku þátt í átökum þeim sem urðu á
Vegas umrædda nótt.
Sá Sigurþór sparka
Annað vitnið, vinur Sigurðar
heitins, segist hafa séð Sigurþór
sparka í höfuð Sigurðar sem lá þá á
gólfinu. Björn Helgason saksóknari
spurði vitnið hvort hann væri 100
prósent öruggur að það hefði verið
Sigurþór sem sparkaði og vitnið
svaraði því játandi. Vitnið sagði
enn fremur að Sigurður hefði legið í
hnipri á hliðinni þegar hann fékk
sparkið í aftanvert höfuðið. Vitnið
sagðist síðan hafa tekið þátt í átök-
um, m.a. við Sverri. Vitnið sagðist
ekki hafa séð Sverri ráðast á Sigurð.
Hilmar Ingimundarson, verjandi
Sigurþórs, spurði vitnið hvort það
hefði verið ölvað og það svaraði:
„Já, dálítið, en ekki mikið.“
Sá Sverri slá
Annað mikilvægt vitni, sem var
með sakbomingum á Vegas um-
rædda nótt, virtist hafa misst minn-
ið í upphafi yfirheyrslna í gærmorg-
un. Vitnið sagðist lítið sem ekkert
muna eftir atburðum. „Ég efast um
að vitnið sé að segja satt,“ sagði
Bjöm saksóknari og las vitnisburð
þess í lögregluskýrslu sem tekin var
daginn eftir atburðinn.
Þar lýsti vitnið því yfir að Svem-
ir hefði slegið Sigurð þannig að
hann féll i gólfið og rotaðist. Þá fékk
vitnið dálítið af minninu aftur,
jánkaði og sagði þetta rétt. Aðspurð-
ur um hvar höggið hefði komið á
líkama Sigurðar svaraði vitnið:
„Það kom ofarlega á Sigurð en ná-
kvæmlega hvar man ég ekki.“
Nýtt vitni, fangi á Litla-Hrauni,
kom fyrir dóminn þrátt fyrir mót-
mæli Hilmars Ingimundarsonar,
verjanda Sigurþórs. Vitnið sagði að
Sigurþór hefði sagt sér fyrir hálfum
mánuði á íþróttavelli fangelsisins
að hann hefði sparkað í höfuð Sig-
urðar á Vegas umrædda nótt.
Ekki kallaö á Danann
Danskur ríkisborgari, sem var
gestur á Vegas umrædda nótt, hefur
ekki borið vitni fyrir dómi. Hilmar,
verjandi Sigurþórs, krafðist þess að
Daninn yrði fenginn til landsins til
að bera vitni.
Björn saksókn-
ari og Páll Arn-
ór Pálsson mót-
mæltu því og
töldu ekki
ástæðu til þar
sem Daninn
hefði ekki getað
greint frá því í
lögregluskýrslu
hver réðst á Sig-
urð. Hilmar
minnti þó á að
Daninn hefði
lýst því yfir í skýrslunni að Sigurð-
ur hefði fallið og skollið harkalega
með hnakkann í gólfið. „Þetta er
mjög mikilvægt atriði í málinu,“
sagði Hilmar. Dómarar tóku sér
stutt hlé en ákváðu síðan að ekki
væri þörf á að kalla Danann fyrir og
því gat málflutningur hafist.
Sakborningum var boðið að tala.
Sverrir sagði: „Ég held algerlega
fram sakleysi mínu. Ég sló ekki Sig-
urð.“ Sigurþór sagðist aldrei hafa
talað við fangann sem bar vitni.
Bera hvor á annan
Björn saksóknari sagði í mál-
flutningi sínum að sakborningar
bæru sakir hvor á annan. Hann
rakti framburð Sverris sem sagðist
hafa séð Sigurþór sparka í höfuð
Sigurðar, sem lá á gólfinu, og siðan
séð leikræna tilburði Sigurþórs þar
sem hann sýndi sparkið. Björn lýsti
framburði Sigurþórs sem segist
hafa heyrt Sverri tjá sig um hvem-
ig hann steinrotaði manninn.
Björn minnti á framburð fjögurra
vitna sem sögðust hafa séð Sverri
slá Sigurð í gólfið og eitt vitni, auk
Sverris, sem séð hefði Sigurþór
sparka í höfuð Sigurðar. Bjöm sagði
að ljóst væri að i krufningarskýrslu
kæmi fram að heilaskúmsblæðing
hefði valdið dauða Sigurðar og
áverkar vegna höggs væm langlík-
legasta skýringin á því. Bjöm sagði
að högg og spörk ákærðu hefðu
valdið dauða Sigurðar og því yrði
að sakfella báða.
Margt gagnrýnt
Verjendur sakbominganna kröfð-
ust að sjálfsögðu báðir sýknu. Páll
Arnór, verjandi Sverris, gagnrýndi
rannsóknina sem hann taldi hafa
verið ábótavant. Fyrsta lögreglu-
skýrsla, sem tekin hafi verið af vitn-
um á staðnum, hafi t.d. verið mjög
röng. Páll Amór sagði að einn
áverki væri nefndur í krufningar-
skýrslu en samt stæði í ákæm að
annar sakbominga hefði slegið Sig-
urð í höfuðið og hinn sparkað í höf-
uð hans. Páll Amór sagði að ákær-
an stæðist ekki því engar öruggar
sannanir væru fyrir því hver og
hvað olli áverk-
anum sem dró
Sigurð til dauða.
Hilmar, verj-
andi Sigurþórs,
sagðist ekki
skilja hvernig
ákæravaldið ætl-
aði að sanna sök
á skjólstæðing
sinn. Ekkert
hefði fundist á
skóm Sigurþórs
eftir rannsókn,
hvorki blóð eða
hár. Hann sagði einnig að krufning-
arskýrsla gæti ekki leitt augljóslega
í ljós hvað olli áverkanum á Sig-
urði.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
og meðdómarar hans eiga allerfitt
verkefni fyrir höndum að kveða upp
dóm í málinu. Þrátt fyrir að vitnin
tvö í gær hafi styrkt mál ákæra-
valdsins þá er málið að mörgu leyti
þvælið og ýmis atriði frekar óljós.
Stuttar fréttir
Biðst afsókunar
Gunnlaugur M. Sigmundsson, al-
þingismaður Framsóknarflokks á
Vestfjörðum, ætlar að biðja kjósend-
ur sina afsökunar á hlutafélagavæð-
ingu ríkisbankanna. Hún sé slæm
því menn með litla rekstrarþekkingu
hafi staðið að málum. RÚV sagði frá.
TRÍF kyrrsett
Super Puma þyrla Landhelgis-
gæslunnar hefur verið kyrrsett með-
an kannaðar eru orsakir nýlegs slyss
á norskri þyrlu sömu gerðar. Stöð 2
sagði frá.
Kvótí á hreyfingu
Fiskikvóti fyrir 15 milljarða hefúr
flust til Norðlendinga undanfarinn
áratug. Minnst af þessum kvóta hef-
ur komið frá Vestfjörðum. Sjónvarp-
ið sagði frá.
600 milljóna virði
Sementsverksmiðja ríkisins er tal-
in 600 milijóna króna virði. Heimild
er til að selja fiórðungshlut 1 verk-
smiðjunni. RÚV sagði frá.
Guggunni flaggað út
Togaranum Guðbjörgu frá ísa-
firði, nýjasta togara íslendinga, hef-
ur verið flaggað út. Skipið er nú gert
út frá Bremerhaven í Þýskalandi.
RÚV sagði frá
12% upp í útgjöldin
Tekjur Sinfóniuhljómsveitar ís-
lands standa undir aðeins 12% af
rekstrarútgjöldum hljómsveitai'inn-
ar þótt fóstum áskrifendum hafi
fjölgað verulega. Sjónvarpið sagði
frá. -SÁ
Róbert Róbertsson