Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1997, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997
ComSort
Suites
í beinu sambandi
allan sólarhringinn
•• 903 « 5670 •• [Œ
Aöeins 25 kr. mlnútan. Sama verö fyrir alla landsmenn.
Svarþjónusta DV leiöir þig áfrarn
Þú hrtngir I slma 99-56-70 og velur eftlrfarandi: !j
1 i til þess aö svara auglýsingu
2 : til þess aö hlusta á svar auglýsandans
(ath.l ð eingöngu viö um atvinnuauglýsingar) ij
3 i ef þú ert auglýsandl og vilt ná i svör Jj
; eöa tala Inn á skilaboöahólflö þltt
sýnishorn af svari
tll þess aö fara til baka, áfram
- eöa hætta aögerö
Fréttir
Sólgaröaskóli i Fljótum:
Aðeins fjórir nemendur í vetur
DV, Fljótum:
Aðeins verða fjórir nemendm' í
Sólgarðaskóla í Fljótum í vetur og
hafa þeir aldrei verið svo fáir síðan
skólinn tók til starfa fyrir liðlega 50
árum. Síðasta vetur voru tíu nem-
endur við skólann en fækkunin
kemur að mestu leyti til vegna
brottflutnings fólks.
Guðrún Hanna Halldórsdóttir
hefur tekið við sem skólastjóri Sól-
garðaskóla. Hún tekur við stöðunni
af Guðnýju Láru Petersen sem flutti
brott í sumar. Guðný hafði verið
skólastjóri í eitt ár.
Guðrún Hanna hefur kennt við
skólann um árabil en auk hennar
verður einn kennari í hlutastarfi.
-ÖÞ
Trygging fyrir gœðum
KISSIMMEE/ORLANDO
Sputningar:
1. Hverpr eru 4 ófongastaðír Úrvals-Útsýnar á Flórída? Svan
2. Neffnið 2 vinsæla skemmtigarða i Orlando. Svan
3. Neffnið 2 gististaði Úrvals-Útsýnar á Flórída. Svan
Svarseðill afhendist i bás Úrvals-Útsýnar á Americana '97
í Kringlunni 11.-14. september.
Þátttakendur á landsbyggðinni verða að hafa póstlagt þátttökuseðil
fyrir laugardaginn 13. sept. merkt Úrval-Útsýn, Lágmúla 4,104 Rvk. Dregið verður 15. september.
Hagstœö kjör
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
afsláttur
af annarri auglýsingunni.
aWtmll llhinfa'
Smáauglýsingar
550 5000
ÆNBVAL-ÚTSÝN
ÓlafsQöröur:
Uppstokkun i kjol-
far rekstrartaps
DV, Olaísfirði:
Gagnger uppstokkun hefur verið
gerð á Sparisjóði Ólafsfjarðar í kjöl-
far mikilla fundahalda alla helgina.
Staða sjóðsins var mjög slæm og
kom í ljós að 289 milijóna kr. tap
var á rekstrinum fyrri hluta ársins.
Tapið er rakið til umfangsmikilla
útlána undanfarin ár. Þar með upp-
fyllti sparisjóðurinn ekki lagaá-
kvæði um eiginfjárstöðu sjóðsins.
Tryggingasjóður og aðrir bankar
hafa lagt 200 milljónir til sparisjóðs-
ins og er eiginfjárhlutfallið því orð-
ið 10% en má ekki vera minna en
8%. Stjórn sparisjóðsins sagði af sér
og tók ný við. Hana skipa Gunnar
Þór Sigvaldason, Ásgeir L. Ásgeirs-
son, Gunnar L. Jóhannsson og Ósk-
ar Þór Sigurbjörnsson, allir frá
Ólafsfirði, auk Jóns Péturssonar frá
Akureyri. Þorvaldur Hreinsson hef-
ur gegnt stöðu sparisjóðsstjóra síð-
an í júní en hann var staðgengill
sparisjóðsstjóra. Blaðamaður DV
hefur fyrir því heimildir að trúnað-
armál við rannsókn málsins hafi
lekið út. Til að mynda fengu fulltrú-
ar í bæjarstjóm Ólafsfjarðar ekki að
sjá skýrslu sem unnin var vegna
málsins en hlutar af henni komu
engu að síður fram í fréttatíma
Sjónvarpsins fyrir nokkru.
-HJ
Hvalfjarðar-
gangamódelið
notaö í Færeyjum
DV, Akranesi:
Fjármögnun og fyrirkomulag
jarögangagerðar í Hvalfirði hefur
vakið athygli utan landstein-
anna. Þannig komu fyrr á árinu
þingmenn og samgönguráðherra
Færeyja til að kynna sér málið á
vettvangi. Gísli Gíslason bæjar-
stjóri hefur og sagt frá Hvalfjarö-
argöngum í máli og myndum á
fundum í Færeyjum. Færeyingar
hafa áhuga á að nota „Hvalfjarð-
armódelið" við gerð ganga undir
Vestmannasund, á milli Voga og
Straumeyjar. Byrjað var á göng-
um þar fyrir nokkrum áram en
hætt við. Þar verður þráðurinn
tekinn upp að nýju áður en langt
um líður. -DVÓ
/"7
'œsii
í tiiefni Americana '97 í
Kringlunni dagana
11.-14. september efna
Úrval-Útsýn og DV til létts
spurningaleiks meðal les-
enda DV. Svara þarf eftir-
farandi spurningum,
klippa út seðilinn og koma
honum í sýningarbás Úr-
vals-Útsýnar í Kringlunni á
meðan á sýningu stendur.
Heppinn þátttakandi mun
síðan hreppa sex daga
ferð fyrir tvo til Orlando.
Flogib verbur meb
Flugleibum, gist í
glæsilegri mini-svítu á
Comfort Suites Hotel í
Kissimmee/<Orlando,
ab auki fær vinnings-
hafi bílaleigubíl frá Int-
erAmerican bílaleig-
unni til afnota meban
á dvöl stendur.
Tvítugur Selfyssingur, Sveinn Erlingsson, hreppti titilinn herra Suöurland 1997
í samnefndri keppni sem haldin var um helgina. DV-mynd Sigrún Lovísa
Herra Suöurland:
Tvítugur Selfyssingur
hreppti titilinn
DV, Hveragerði
Tvítugur Selfyssingur, Sveinn Er-
lingsson, hreppti titilinn herra Suð-
urland 1997 í samnefndri keppni
sem haldin var um helgina á Hótel
Örk í Hveragerði. ívar Ámi Hauks-
son, 19 ára Hvergerðingur, lenti í
öðru sæti og Seinn Gislason, 22 ára
Hvergerðingur, varð í þriðja sæti.
Hinn 18 ára Halldór Bjarki Einars-
son frá Hveragerði var kosinn vin-
sælasti herrann meðal keppenda.
Sama kvöldið og keppnin fór
fram var einnig valin blómadrottn-
ing. Þar varð Berglind Sveinsdóttir
frá Seltjamamesi hlutskörpust en
svo skemmtilega viil til að hún er
trúlofuð Sveini Gíslasyni sem varð í
þriðja sæti í keppninni um herra
Suðurland.
Hljómsveitin Skítamórall hélt
uppi fjörinu fram eftir kvöldi við
góðar undirtektir gesta. -SL
InterAmerican
CarRenta!