Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1997, Síða 19
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997
-fc
27
Sviðsljós
Kynþokkadísin ætlar að ganga í það heilaga en skapið er enn á sínum stað:
yfir bílstjórann
Kynþokkadísin Sharon Stone er í
giftingarhugleiðingum. Já, hún er
búin að finna sér karlmann. Sá heit-
ir Phil Bronstein og er ritstjóri virts
dagblaðs í San Francisco. Þau hafa
þekkst í aðeins tvo mánuði. í
Hollywood þykir það hæfilegur
reynslutími. Sharon vill þó ganga frá
kaupmála við karlinn áður en hring-
arnir verða settir upp.
Sharon hefur átt í mörgu ástar-
sambandinu um dagana, að minnsta
kosti síðan hún skildi við sjónvarps-
framleiðandann Michael Greenburg
árið 1987. Flest hafa þessi sambönd
verið skammlíf. Stúlkan hefur ein-
hvern tíma látið þau orð falla að
karlmenn hafi óttast hana, sér í lagi
eftir að hún lék óargakvendið í Ógn-
areðli.
Frá þvi Sharon skildi við eigin-
manninn fyrir tíu árum hefur hún
sankað að sér um sjö milljörðum
króna. Hún vill greinilega passa aur-
ana vel og tryggja að nýi kærastinn
kvænist henni af ástinni á henni
einni saman en ekki af budduást.
Nú svo verður leikkonan líka að
eiga slatta af peningum til að eyða í
hitt og þetta skemmtilegt. Eins og
Sharon Stone og nýi unnustinn hennar, ritstjórinn Phil Bronstein, voru
greinilega ástfangin vestur í Kaliforníu um daginn, leiddust ægilega sætt.
Þau eru nú aö búa sig undir hjónaband en hún vill fyrst gera kaupmála.
Sharon hellti
sér
sinn
hún gerði um daginn, þegar hún
hafði unnið sér inn nokkrar milljón-
ir fyrir að leika í áfengisauglýsingu.
Hún gerði sér lítið fyrir og bauð 22
starfsmönnum við kvikmyndatök-
urnar út að borða á veitingahúsi í
San Francisco. Á eftir gátu gestírnir
valið um hvort þeir vildu fá hótel-
herbergi til að hvíla sig á eða leigu-
bíl til að komast heim.
En peningarnir voru ekki búnir.
Þvi bauð Sharon Mimi vinkonu
sinni út í búð. Þær stöllurnar fóru
vítt og breitt um borgina og áður en
varði var Sharon búin að eyða hálfri
annarri milljón íslenskra króna.
Kvikmyndastjarnan er ekki ein-
asta eyðslukló mikil, heldrn- hefur
hún skapið í finu lagi. Bílstjórin sem
ók Sharon og Mimi milli verslan-
anna fékk aldeilis að kenna á því.
Einhverju sinni varð honum á að
opna ekki dyrnar fyrir stjörnuna.
Hún brást þá hin versta við og húð-
skammaði aumingja manninn.
En Phil lætur það sjálfsagt ekki á
sig fá, sjálfsagt skapmaður sjálfur,
eins og blaðamenn oft eru. Sharon er
nú flutt inn til hans og ekki vitað
annað en að allt gangi vel.
Eiginkona
Carreys heimt-
ar hundinn
Eiginkona grínleikarans Jims
Carreys, Lauren Holly, vill ekki
bara væna fúlgu peninga viö
skilnað þeirra heldur vill hún
líka fá hundinn.
Samkvæmt frásögnum er-
lendra slúðurblaða vill Carrey
heldur láta frúna fá húsið en
hundinn George. Carrey gaf
Holly hundinn á sínum tíma þeg-
ar þau byrjuðu að vera saman.
Það var hins vegar hann sem
tengdist hundinum meir en hún.
„Þeir eru með sömu skapgerð,"
er haft eftir vini Carreys. Hund-
urinn fylgir leikaranum eftir
hvert fótmál og sefúr til fóta hjá
honum.
Það eru ekki fötin sem þessar kínversku fyrirsætur eru að sýna, heldur hár-
greiðslan. Hún er líka verk ekki ómerkari manns en hárgreiðslusnillingsins
Vidals Sassoons. Vidal var í Shanghaí um daginn að kynna hárþvottaefni sín
og aðrar vörur til hárprýði. Símamynd Reuter
Michael Jackson reynir að
selja búgarðinn sinn
I októberhefti tímaritsins Pent-
house er því haldið fram að söngv-
arinn Michael Jackson sé að reyna
að selja búgarðinn sinn Neverland.
Samkvæmt frásögn tímaritsins er
farið að verða þröngt í búi hjá
söngvaranum vegna minnkandi
plötusölu. Jackson er einnig sagður
hafa selt helming af útgáfurétti sín-
um til Sony. Hinn helminginn ætli
hann að láta ganga upp í greiðslu af
bankaláni.
Sennilegt þykir að ásakanir á
hendur Jackson um kynferðislega
áreitni gegn drengjum hafi haft nei-
kvæð áhrif á ferO hans.
GBTT ÚTVARPl
I Fjörkáltinum í DV á föstudögum /
Á Bylgjunni á limmtudögum kl. 20
og endurflulturá
laugardögum kl. 16