Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 IjV
ftéttir
21 árs brennuvargur iðinn við kolann:
Slóð af íkveikjum um árabil
- valdur að fjölmörgum íkveikjum en hefur sloppið vægt frá dómskerfinu
21 árs Austfirðingur var í fyrra-
dag úrskurðaður í gæsluvarðhald
vegna íkveikju í húsi í Sandgerði á
miðvikudagsmorgun.
Maðurinn hefur ítrekað á und-
anfömum áram verið valdur að
íkveikjum um allt land en virðist
hafa sloppið með vægar refsingar í
dómskerflnu. Samkvæmt heimild-
um DV er maðurinn á reynslu-
lausn en hann er iðinn við kolann
og er grunaður um alla vega þrjár
íkvekjur á þessu ári.
Vægir dómar
Maðurinn hefur hlotið væga
dóma fyrir íkveikjur í raftækja-
verslun á Höfn í Hornafirði og í
tveimur húsum við Önundarfjörð
árið 1993. Honum var siðan veitt
reynslulausn eftir að hafa afplán-
að hluta dómsins.
Maðurinn er grunaður um að
hafa kveikt í bíl í Hafnarfirði fyrr
á þessu ári. Það mál er í dómskerf-
inu en verður samkvæmt heimild-
um DV tekið fyrir í þessum mán-
uði.
Maðurinn er ennfremur grunað-
ur um að hafa kveikt í einni
kennslustofu Sjómannaskólans í
Brennuvargurinn sem situr f gæsluvaröhaldi vegna brunans í Sandgeröi hefur ástundaö íkveikjur árum saman.
Myndin er frá því 1993 þegar hann kveikti í tveimur húsum í Önundarfirði. DV-mynd -rt
Verösamanburður Neytendasamtakanna og verkalýðsfélaga:
Dregur á milli ódýrustu
matvöruverslananna
Samkvæmt nýjustu verðkönnun
NS, ASÍ og BSRB frá 30. september er
sem verð í verslunum KEA Nettó á
Akureyri og verslana Bónuss sé svip-
aðra nú en i síðustu könnun sem fram
fór í maí. Þá munaði 6% á verði versl-
ananna en nú er munurinn aðeins
4%. Bónus er áfram ódýrasta mat-
vöruverslun landsins.
Það viröist sem verð í Hagkaup og
Skagfirðingabúð hafi hækkað miðað
við vöruverð í öðrum sambærilegum
verslunum og litlar verslanir á lands-
byggðinni ná frekar að bjóöa ágætis-
vöruverð en sambærilegar verslanir í
Reykjavík.
! verðsamanburði NS og verkalýðs-
félaganna var miðað við meðalstuðul-
inn 100 í vöruverði. Verslununum var
skipt í þrjá flokka. í fyrsta flokknum
eru lágvöruverðsverslanimar Bónus
og KEA Nettó. í öðrum og stærsta
flokknum eru stórmarkaðir, keðju-
verslanir og þær sem eiga í innkaupa-
samstarfi en í þriðja flokknum er
kaupmaðurinn á hominu.
Verðstuðlamir sem sýndir em á
grafinu í DV sýna hvaða verslanir
reyndust með hæsta og lægsta verð-
stuðul í hverjum flokki, auk þess sem
140
120
ÍOO
80
60
40
20
Verðsamanburður
123,65
119,64
96,36
107,88
- Neytendasamtakanna, ASI og BSRB -
ViBmiðunarstuðull
1
*o
3
(B
(0
a
3
(0
(0
g
X
73,71 76,84
X
'>
<s
2“
>>
e
x
'O
w
o>
X
S
ra
2
>>
e
x
Stórmarkaöir, keðjuverslanir
og þeir sem eiga i innkaupasamstarfi
Kaupmaðurinn
á hornlnu
Lágvöruverðs-
verslanir t »Jkfjl
ein verslun úr flokki tvö og þrjú er
tekin af handahófi úr með miðlungs-
verðstuðul.
Ein verslun neitaði að vera með í
verðsamanburðinum, Straumnes í
Reykjavík. Samkvæmt verðkönnun
Reykjavík í síðasta mánuði. Sam-
kvæmt heimildum DV hafði mað-
urinn, sem var nemandi í skólan-
um, lent upp á kant við stjórnend-
ur skólans.
Líf fólks í hættu
Nú situr brennuvargurinn í
gæsluvarðhaldi, grunaður um að
hafa kveikt í bílskúrnum í Sand-
gerði á miðvikudagsmorgun. Bíl-
skúrinn er við hlið íbúðarhúss þar
sem fjölskylda svaf. Maðurinn er
talinn hafa stofnað lífi fólksins í
hættu. Hann er jafnframt grunað-
ur um að hafa lagt eld að bíl
skömmu áður en hann kveikti í
bílskúmum auk þess að gera til-
raun til að kveikja í öðrum bíl.
RR/Ótt
Akureyri:
Skólastjór-
ar áhyggju-
fullir
DV, Akureyri
DV frá 8. ágúst í níu verslunum á
Reykjavíkursvæðinu reyndist Straum-
nes með hæsta vöruverðið. -ST
Skólastjórar við grunnskól-
ana á Akureyri hafa lýst
áhyggjum sínum með seina-
gang í samningaviðræðum
grunnskólakennara og samn-
inganefndar sveitarfélaganna.
„í ljósi atkvæðagreiðslu
kennara um boðun verkfalls
væntum við þess að samninga-
nefnd sveitarfélaga sýni nú
þegar við samningaborðið
margyfh-lýstan vilja sveitar-
stjórnarmanna til að bæta kjör
kennara og stuðli þannig að
bættu skólastarfi. Nokkrir
kennarar við skóla bæjarins
hafa sagt upp störfúm og vitað
er af fleiri sem eru að leita sér
að annarri vinnu,“ segir í yfir-
lýsingu skólastjóranna. -gk
Lýst eftir
stúlkum
I
ILögreglan i Hafnarfirði lýsir
eftir tveimur stúlkum sem að-
I faranótt fimmtudagsins 2.
! október sl. tóku tvo pilta upp í
| bifreið sína á nýju Reykjanes-
f brautinni á milli Vífilstaðaveg-
ar og Hafnarfjarðar.
Stúlkurnar voru á lítilli
hvítri fólksbifreið, sennilega
tveggja dyra. Talið er aö um
japanska bifreið sé að ræða.
Stúlkumar óku piltunum að
leigubílastöð við Vesturgötu í
Hafnarfirði þar sem þeir fóru
úr bifreiðinni. Þessar tvær
stúlkur eru beðnar um að gefa
sig fram við lögregluna í Hafn-
arfirði. -RR
Eftirsóttir eiginleikar íslenska hestsins:
Lundgæði og tölt
- segja niðurstöður markaðskönnunar
Meirihluti erlendra hesta-
manna vill kaupa hesta sína
beint af ræktanda á íslandi. Þá
leggja langflestir mesta
áherslu á lundgæði og tölt. At-
riði eins og verð, litur og ætt-
ir skipta minna máli.
Þetta eru m.a. niðurstöður
markaðskönnunar sem Félag
hrossabænda lét gera i 23 þjóð-
löndum. Flest svörin bárust
frá Þýskalandi, en hæsta svar-
prósenta miðað við útsend
gögn var í Bretlandi.
í niðurstööum könnunar-
innar kom m.a. fram að mikill
meirihluti svarenda hneigist
til frístundahestamennsku en
ekki keppni. 72% svarenda
sögðust myndu kaupa ein-
göngu tamin hross og 35 sögð-
ust kjósa hross sem fædd
væru á íslandi. Mikill meiri-
hluti er nokkuð sáttur við
verð á hrossum og fylgni verðs
og gæða. Hins vegar sögðu
41% að innflutningsgjöld væru
of há.
Rúm 70% töldu stefnu
hrossaræktarinnar á Islandi
vera á réttri leiö. Margir bættu
við athugasemdum um að
hrossin væru að verða of fin-
gerð, fótagerðin ekki nógu góð
o.sirv.
Þegar spurt var um reynslu
af íslandi fengu hestamir og
náttúran hæstu einkunn. Fólk-
ið kom þar á eftir en íslensk
matargerð fékk lægstu ein-
kunn.
Sumarexem var nefht í mikl-
um meirihluta þegar menn
voru beðnir um að nefna
vandamál sem þeir ættu við að
glíma með íslenska hesta sína.
-JSS
Lundgæöi og tölt eru helstu eiginleikar sem útlendingar sækjast eftir hjá íslenska hestinum-