Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Blaðsíða 24
 * 24 * * m LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 JLlV Allt starf í kringum golfvöllinn hefur vaxiö gríöarlega og í raun langt fram úr því sem þau geröu sér í hugarlund í upphafi. Þau hafa unnið höröum höndum við völlinn og Halldór sér um framkvæmd- ir þar. Halldór Guönason og Ástríður Guöný Daníelsdóttir búa á bænum Efra-Seli við Flúöir. DV-myndir BG „Það hefur hjálpað okkur hversu áhugamál okkar hafa farið saman. Við erum bæði bjartsýn og óhrædd við að prófa eitthvað nýtt. Við vor- um búin að vera þetta lengi í bú- skapnum og þess vegna kannski allt í lagi að breyta til. Það eru eflaust margir sem vilja hætta í búskapn- um en hafa ekki tækifæri til þess. Við vorum því heppnari en margur að því leyti að við höfðum að öðru að hverfa," segja hjónin Ástríður Guðný Daníelsdóttir og Halldór Guðnason sem búa á bænum Efra- Seli á Flúðum. Óhætt er að segja að búskapurinn hafi tekið töluverðum breytingum frá því að þau tóku við fyrir 30 árum. Kötturinn er eitt fárra heim- ilisdýra sem eftir er og í stað mjalta er komin pitsugerð í golfskálanum. í stað þess að heyja á túnunum hef- ur verið gerður níu holu golfvöllur á jörðinni. Við setjumst niður með þeim hjónum í golfskálanum. „Það stóð í raun aldrei til að við færum í búskap en ákváöum að slá til þegar okkur bauðst að taka við búi foreldra minna. Við kynntumst í Reykjavík þegar við vorum tvítug. Halldór var rétt að ljúka námi í hús- gagnasmíði og ég hafði verið á hjónin Halldór og Ástríður á Flúðum ákváðu að venda sínu kvæði í kross Laugarvatni og i Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Þá var uppgangur í landbúnaði og við byrjuðum hér, ásamt bróður mínum, með 18 kýr og hátt í 200 kindur," segir Ástríður um upphafið að búskapnum. Hættu með kýrnar Smám saman fækkaði kindunum og nokkrir bjartsýnismenn fóru að gera golfvöll á jörðinni, því fleiri holur sem þörfin fyrir nýtingu jarð- arinnar til heyja minnkaði. Árið 1989 var tekin fyrsta skóflustungan að golfskálanum og síðan byggt við hann 1995. „Golfvöllurinn var hugsjón til að byrja með. Við vorum í raun bara að þessu fyrir okkur og okkur óraði alls ekki fyrir því hversu hratt allt þetta dæmi myndi vinda upp á sig. Á tólf árum hafa umsvifin orðið geysimikil. Ég vann hjá golfklúbbn- um við að byggja skálann og er enn að vinna að því að betrumbæta að- stöðuna og halda vellinum við. í sameiningu höfum við hjónin síðan séð um veitingasöluna og meðfram búinu hefur Ástriður unnið á garð- yrkjustöð á veturna," segir Halldór og bætir við að ofan á þetta hafi komið mjaltirnar, um 60 þúsund lítrar af mjólk á ári. Vinnan hafi verið orðin allt of mikil fyrir þau tvö en búið hafi þó ekki borið það aöstoðarfólk sem þau hefðu þurft. „Þetta var bara orðið allt of mik- ið, jafnvel þótt heilsan væri í lagi. Hún bilaði reyndar hjá mér og það flýtti eiginlega fyrir því að við ákváðum að hætta með kýmar. Það gerðum við loks í vor sem leið,“ seg- ir Halldór. Prófuðu pitsurnar Hann segir að það hafi ekki verið svo erfið ákvörðun, í raun komið nokkurn veginn af sjálfu sér. Kostn- aðurinn við mjólkina hafi aukist jafnt og þétt en ekkert meira fengist fyrir hana. Til þess að eitthvert vit hefði átt að vera i þessu hefði þurft að stækka búið. Þeim hafi fundist þau vera orðin of gömul til þess. Þau ákváðu að einbeita sér að ferða- bransanum. „Á vordögum fyrir rúmu ári barst veitingasalan í skálanum eitt- hvað í tal heima. Brauðsalan var orðin heldur dræm en dóttir okkar skoraði á okkur að prófa að bjóða upp á pitsur í staðinn. Ég spurði fyrst hvort hún væri eitthvað verri en við ákváðum að prófa og ætli við höfum ekki selt um 1.100 pitsur í fyrrasumar," segir frúin og bóndinn bætir við að pitsumar hafi ger- breytt rekstrinum á sjoppunni. Jafnvel þótt dagurinn hafi verið ró- legur hafi gjama komið toppur í pitsunum á kvöldin. Hjónin segja mikinn tíma hafa farið í að þjálfa sig upp í pitsugerð- inni og fyrstu dagana hafi Ástríður og dóttir þeirra séð um matreiðsl- una en karlamir, Halldór og tilvon- andi tengdasonur, verið í smökkun- ardeildinni. Auk dótturinnar eiga þau einn son. „Ég hugsa að þeir hafi verið orðn- ir býsna leiðir á pitsunum á þessum tíma en þetta hefur svo sem gengið vel frá byrjun. Við höfum fengið deig frá Selfossi og verið með pitsur seinni part vikunnar og um helgar. Skálinn er lokaður á vetuma en hver veit nema við höfum einn og einn pitsudag í vetur. Sveitungar okkar og ferðamenn í sumarbústöð- um hafa sem betur fer kunnað að meta þjónustuna," segir Ástríður. Kúrekar í línudansi Það eru eflaust ekki margir bændur sem fara beint úr fjósi í pitsugerð en Ástriður og Halldór hafa haft kjark til að fara sína leið. Og þau gera fleira en að baka flat- bökur ofan í sveitunga sína. Þau eru líka að kenna dans en vilja ekki tala mikið um það. „Við erum ekki lærðir kennarar en höfum þó kennt gömlu dansana í þessi 30 ár sem við höfum verið saman. Það er á vitorði og í þökk Þjóðdansafélagsins," segir Halldór. Konan er hógvær og segir þetta hálfgert fusk. Engu að síður hafa þau ítrekað verið beðin aö kenna, bæði sveitungum sínum og öðram. „Núna emm við með einn hóp í Aratungu og höfum mikið verið að vinna með gamla fólkinu, kenna því og dansa við það. Þetta er voða gam- an,“ segir Halldór og Ástríður bætir við: „Þetta er hugsjón, rétt eins og golfvölliu-inn.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.