Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Blaðsíða 58
 «i myndbönd LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 Leonardo DiCaprio og Claire Danes í hlutverkum frægustu elskenda heimsbókmenntanna, Rómeós og Júlíu. Leonardo Di Caprio og Ciaire Danes: Reynslumikil þrátt fyrir ungan aldur l Hin áhrifamikla kvikmynd, ' Romeo + Juliet, sem er nú í 1 fimmta sæti á myndbandalistan- ■ um, er byggö klassísku leikriti ■ eftir William Shakespeare, ein- ' hverju frægasta leikriti sem skrif- ! aö hefur verið. Sviðið er fært til j nútímans, nánar tiltekið til Mi- / ami í Flórída þar sem mikið er ; um glæpagengi. Romeo + Julie hefur alls staðar fengið afbragðs- dóma og þykir meðal betri kvik- myndaúttekta á klassíkinni eftir Shakespeare. Þá er hún sú kvik- mynd sem mesta aðsókn hefur fengið af kvikmyndum sem gerð- ar hafa verið eftir leikriti Shakespeares. Gæði myndarinnar liggja ekki síst í frábærum leik aðalleikaranna, Leonardos Di Caprios og Claire Danes. Það hef- ur oft loðað við Rómeó og Júlíu að leikarar séu orðnir fullgamlir í hlutverkin en ekki er hægt að ásaka DiCaprio og Danes um að þau séu of gömul (þótt vissulega hafi Shakespeare skrifað yngri persónur) því þau voru bæði und- ir tvítugu þegar þau léku i mynd- inni. Lék á móti DeNiro í sinni fyrstu mynd - Leonardo DiCaprio fékk tilnefn- ingu til óskarsverðlauna aðeins átján ára gamall. Var það fyrir hlutverk vanþroska unglings í What’s Eating Gilbert Grape? Þetta var önnur kvikmyndin sem hann lék í. Hann fékk einnig til- nefningu til Golden Globe verð- launanna og var valinn besti leik- arinn í aukahlutverki af gagn- rýnendum í Chicago og Los Ang- eles. Fyrsta kvikmyndin sem DiCaprio lék í var This Boy’s Life þar sem mótleikarar hans voru Robert De Niro og Ellen Barkin. Hann hefur síðan leikið í The Quick and the Dead á móti Shar- on Stone og Gene Hackman, The Basketball Diaries, rómaðri kvik- mynd þar sem hann lék ungan pilt sem verður heróíninu að bráð og Total Eclipse þar sem mótleik- ari hans var David Thewlis. Næst fáum við að sjá Leonardo DiCaprio í Marvin’s Room sem gerð er eftir vinsælu leikriti. Mót- leikarar hans þar eru Diane Keaton og Meryl Streep. Um jólin verður síðan frumsýnd í Banda- ríkjunum dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið, Titanic, sem James Cameron leikstýrir. í Titanic leikur Leonardo DiCaprio aðalhlutverkið, ungan mann sem er farþegi um borð í hinni örlaga- ríku ferð Titanic árið 1912. Mót- leikari hans í henni er Kate Winslet. Leonardo DiCaprio er fæddur og uppalinn í Los Angeles og byij- aði leikferil sinn þrettán ára gam- all með því að leika í auglýsinga- myndum og kennslumyndum. Fljótt eftir það fékk hann hlut- verk i ýmsum sjónvarpsseríum, meðal annars seríunni Growing Pains sem nýtur mikilla vin- sælda. Byrjaði í ballett fjögurra ára Claire Danes vakti mikla at- hygli fyrir leik sinn í hlutverki táningsins Angelu í sjónvarpsser- íunni My So Called Life sem sýnd var í Sjónvarpinu. Leikur hennar þótti einstaklega þroskaður og fékk hún bæði Emmy-verðlaun og Golden Globe verðlaun. Strax og sjónvarpsseríunni lauk fór Claire Danes að leika í kvikmyndum og var fyrsta hlutverk hennar í Little Women. Þar lék hún hina veikbyggðu Beth og fékk glimr- andi dóma fyrir túlkun sína. Hún hefur síðan leikið í Home for the Holidays, How to Make an Amer- ican Quilt og To Gillian on Her 37th Birthday. Claire Danes er fædd og uppal- in í New York. Hún var aðeins fjögurra ára gömul þegar hún var sett í ballettnám og tíu ára gömul settist hún á skólabekk í leiklist í þeim fræga skóla, Lee Strasberg Theatre and the Professional Per- forming Arts Scliool. Um sama leyti fór hún að koma fram sem dansmær í ýmsum leikhúsum í New York og var þátttakandi í sýningunum Kids on the Stage og Punk Ballet. Næsta mynd Clare Danes er Polish Wedding þar sem mótleik- arar hennar eru Gabriel Byrne og Lena Olin. Þá mun hún leika í W Attundi dagurinn Áttundi dagurinn (Le huitieme Jour) er gefm út í myndaflokknum Perlur sem inniheldur listrænar gæða- myndir. Þessi mannlega fransk- belgíska kvik- mynd hefur ails staðar fengið góða dóma hjá gagnrýnendn- um enda um einstaklega gefandi mynd að ræða. Aðal- persónur myndarinnar eru tvær, Ge- orge, sem er þroskaheftur og hefúr undanfarin ár verið vistaður á stofhun eftir að móðir hans féll frá, og Harry, sölumaður og mikill vinnu- fíkiil. Eiginkonan hefúr yfirgefíð hann ásamt bömum þeirra. Dag einn þegar Harry er úti að aka keyrir hann nærri þvi yfir George sem strokið hefur af stofnun sem hann dvelur á. George er á leiðinni að hitta móður sina (búinn að gleyma því að hún er látin). Lög- reglan neitar að taka við George og Harry er því nauðugur einn kostur að skjóta yfir hann skjólshúsi. Harry er ákveðinn í að koma George til síns heima en við stutt kynni þeirra mynd- ast á milli þessara ólíku manna ákveð- ið samband sem á eftir að hafa afdrifa- ríkar afleiðingar á líf þeirra beggja. í aðalhiutverkum eru Daniel Auteuil og Pascal Duquenne. Leik- stjóri er Jaco van Dormael. Háskólabfó gefur út Áttunda daginn og er hún leyfð öllum aldurshópum. Út- gáfudagur er 14. október. Straw Dogs sem Oliver Stone mun leikastýra og The Rainmaker sem Francis Ford Coppola leikstýrir. Dóttir D'Artagnans Hver kannast ekki við hina klass- ísku sögu Alexandre Dumas, Skytt- urnar, þar sem hinn ungi D’Artagn- an tróð sér upp á sér eldri og reynd- ari vopna- bræður með eftirminni- legum hætti og saman háðu þeir baráttu gegn illræmdum kardínála í nafni kon- ungs. Dóttir D’Artagnans segir frá af- komanda hins hug- prúða riddara og lendir hún ekki í minni ævintýrum en faðir hennar. í myndinni eru Skytturnar famar að eldast og hafa takmarkaðann áhuga á því þegar Elois D’Artagnan segir þeim að verið sé aö undirbúa valda- rán í Frakkalandi. Það er því ekki fyrir hana annað en að fara sjálf á stúfana og berjast fyrir réttlætinu. Þegar þeir félagar komast að því að Elois er komin í mikla lífshættu vakna þeir loks til lífsins og grafa upp vopn sín. í hlutverki Elois er Sophie Marce- au og Philipe Noiret leikur fóður hennar. Leikstjóri er einn frægasti leikstjóri Frakka í dag, Bertrant Ta- vernier. Myndform gefur út Dóttur D'Artagnans og er hún bönnuð börnum innan 12 ára. Útgáfudag- ur er 14. október. -HK Áttuncli "**«• dagurlnn r > Guðfaðírinn - heildarútgáfa Thev- I fyrstu mynd- The rv4, Goðiaíher Þann 14. október ráðast ClC-myndbönd út í það stór- virki að gefa út allar þrjár Guð- foður-myndirn- ar á myndbandi. Er mikill fengur af þessari út- gáfu, enda er um aö æða ein- hveija frægustu tríólógiu kvik- myndanna. Leikstjóri þeirra allra er Francis Ford Coppola. I fy inni, sem gerö var 1972, átti Marlon Brando eftirminnilega endurkomu inn I kvikmyndirn- ar og ófáar kvik- myndastjömur fengu sína eld- skím í þessum myndum og varð mikill stökkpallur fyr- ir þær allar. Má þar nefna A1 Pacino, Robert De Niro, Diane Keaton, Robert Duvall, James Caan og Andy Garcia. í fyrstu myndinni er Brando i hlutverki ætt- fóður Corleone- fiölskyldimnar. Coppola dregirn upp einstaklega skýra og beitta mynd af þessari maflufjölskyldu sem á uppruna sinn á Sikiley en hefur haslað sér völl í Banda- rikjunum í skjóli ofbeldis. Sú mynd endar þegar hinn ungi Michael Corleone (A1 Pacino) er tek- inn við stjóm. I annarri myndinni, sem gerð var 1974, er haldið áfram að segja frá Michael Corleone og fjölskyldu en einnig farið aftm- í timann til Sikil- eyjar þegar hinn ungi Vito Corleone (Robert De Niro) var að koma fótum undir sig. Þriðja myndin var síðan ekki gerð fyrr en 1990. Michael Corleone er orðinn aldraður maður og er að missa tökin á fjölskyldunni en þeir sem vilja koma honum írá vanmeta styrk hans. Guðfóðurmyndirnar þrjár eru mjög langar. Guðfaðirinn I er 168 mínútur, Guðfaðirinn II, 190 mínútur og Guðfaðirinn III, 163 mínútur. -HK Fools Rush in Fools Rush in er gamanmynd um afleiðingar einnar nætur gamans. Alex Whitman hittir hina glæsilegu Isabel Fuentas þegar hann gerir sér dagamun i glingur- borginni Las Veg- as. Þau hrífast hvort af öðru og eyða nótt- inni sam- an. Morg- uninn eft- ir skilja leiðir og fara þau hvort í sína átt- ina. Alex heldur til New York þar sem hann tekur þátt í kapphlaupi um lifskjörin af miklum eldmóði. Alex getur samt ekki gleymt Isabel og þegar hún birtist á þröskuldin- um hjá honum er hann hinn ánægð- asti. Hún tilkynnir honum að hún sé ófrísk og að hann sé faðirinn og Alex verður bara enn hamingjusam- ari. Þau ákveða að gifta sig í hvelli enda efast þau ekki um ást sina hvort til annars. En það er eitt að elska og að búa með eins og væntan- legir áhorfendur fá að sjá. í aðalhlutverkum eru Matthew Perry, sem margir kannast við úr „Vinahópnum" á Stöð 2, og þokka- dísin Salma Haek sem lék illræmda blóðsugu í From Dusk till Dawn. Skífan gefur Fools Rush in út og er hún leyfð öllum aldurshópum. Útgáfudagur er 15. október.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.