Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Qupperneq 23
>
I
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997
Hjálparstofnun kirkjunnar aðstoðar börn á Endlandi:
>
>
>
>
>
I
>
i
>
>
i
>
>
>
>
>
>
i
i
i
i
i
i
i
vitum hvert peningamir fara
- segir Anna Úlafsdóttir fræðslufulltrúi
„Þaö sem okkur finnst skipta
mestu i þessu er að Indverjar stofn-
uðu bæði samtökin sem við vinnum
með. Þeir skilgreina sjálfir vandann
og benda á lausnir. Bæði samtökin
vinna fyrir fátækasta fólkið og þeir
peningar sem við söfnum nú renna
til þess að mennta ákveðinn hóp
barna,“ segir Anna Ólafsdóttir,
fræðslufulltrúi Hjálparstofnunar
kirkjunnar.
Hjálparstofnunin gerði nú nýlega
samning við Mylluna um að þrjár
krónur af hverju seldu Heimilis-
brauði rynni til hjálparstarfsins á
Indlandi og segir Anna að samning-
ur eins og þessi sé stofnuninni mjög
mikilvægur.
Anna segir samtök indversku
kirkjunnar vera með heimavistar-
skóla þar sem bömin búi og fái
fæöi, klæði, húsnæði og í raun allt
sem þau þurfi. Hin samtökin, Social
Action Movement, reki eigin for-
skóla til þess að búa bömin undir
skólagöngu í almenna kerfinu. Hún
segir foreldrana ólæsa, þeir vinni
mikið og því þurfi börnin á hjálp að
halda til þess að komast inn í al-
menna skólakerfið.
Styrkja börn til mennta
„Samtökin vinna mjög mikið ann-
að félagslegt starf, styrkja fólkið t.d.
til þess að leita réttar síns og kenna
því að stofna verkalýðsfélag til að
auka samtakamátt sinn. Þau styrkja
bæði foreldra og börn en peningam-
ir frá okkur fara fyrst og fremst í
það að mennta böm og unglinga til
starfs- eða iönnáms," segir Anna.
Hún segir að þau fylgist vel með
þeim peningum sem frá þeim fari.
Þeir fari í ákveðið afmarkað og
viðráðanlegt verkefni sem tekur
mið af einstaklingum en ekki í hít-
ina til ríkisstjóma eins og í mörgu
öðru hjálparstarfi. Hún segir að í
skóla Samtaka indversku kirkjunn-
ar séu um þúsund böm en íslend-
ingar styrki 260 þeirra.
„Markmiðið er að skapa einstakl-
ingum í litlu þorpunum einhverjar
þær aðstæður að þeir eigi mögu-
leika í lífinu. Stéttaskipting er mik-
il og fátækir eru eiginlega dæmdir
til þess að vera fátækir áfram. Það
er mikilvægt að fólk geri sér grein
fyrir því hversu litlir fjármunir geta
hjálpað okkur mikið. Sem dæmi get
ég nefnt að það kostar aðeins 1.390
kr. að dekka allan kostnað við
skólagöngu eins barns á þessu
svæði í heilan mánuð, fot, mat og
allan aðbúnað í skólanum.“
Hentar íslendingum
Fyrir utan fjárframlög Myllunnar
nú segir Anna að fósturforeldrar á
íslandi styðji ákveðin böm, borgi
framfærslu þeirra.
„íslenskt dagsverk, framhalds-
skólanemar, BÍSN, Stúdentaráð, iðn-
skólanemar og fleiri, lagði í vetur
peninga til beggja þessara félaga.
Þeir peningar fara eingöngu til þess
að byggja upp iðnnám og við einbeit-
um okkur að ööru,“ segir Anna og
bætir við að þessi leið sem nú er
farin, í samstarfi við Mylluna henti
almenningi á íslandi. Fólk vilji
yfirleitt láta eitthvað af hendi rakna
og svona þurfi fólk lítið fyrir því að
hafa. Anna vonast til þess að geta átt
samstarf af þessu tagi við fleiri fyr-
irtæki á íslandi á næstunni. -sv
Börnin í skólanum þvo sjálf föt sín og matarílát. Dotiö geyma þau hvert í sín-
um kistli, allt í röð og reglu.
Anna Ólafsdóttir er fræðslufulltrúi Hjálparstofnunar kirkjunnar. Hún segir stofnunina fylgjast vel með því f hvað það
fé fer sem héðan kemur. DV-mynd E.ÓI.
Kostnaðurinn við að hafa þessi indversku börn í skóla er aðeins 1.390
krónur á mánuði. Inni í því er matur, föt og allur aðbúnaður í skólanum.
ALTERNATORAR
0G STARTARAR
fyrir vöruhíla, rútur og vinnuvélar.
VALEO alternatorar fyrir M. Benz, Man,
Scania, Volvo, Ivaco, Daf o.fl.
'Nýtt’ Ný gerð CHALLENGER
alternatora eru kolalausir, hlaða
helmingi meira, miklu meira í
haegagangi, sterkbyggðari og endast
miklu lengur. Fáanlegir fyrir M. Benz,
Man, Scania, Volvo, Ivaco, Daf o.fl.
EFEL startarar í alla vörubíla, rútur og
vinnuvélar. Einnig allir varahlutir fyrir
Bosch vörubíla- og rútubílastartara.
EFEL varahlutir eru staðalbúnaður í
mörgum vélum. Mjög hagstætt verð.
Yfir 30 ára reynsla hér á landi.
Einnig TRUMATIC gasmiðstöðvar,
bukkamótorar og lyftumótorar.
VALEO, EFEL og CHALLENGER umboðið
BÍLAKAF HF.
Borgartún 19 - Sími 552-4700 - Fax 562-4090
41ut
"S 533 2000
Miðstærð af
Mexíkópizzu
Meö öörurn pizzum
kosta Nachos eða
kjúklingavængir
aðeins 300 kr.
Kórónaöu svo
góöa máltíö með
mexíkóskum
eðaldrykk.
QJbrona