Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Page 33
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997
kvótakóngar
41
;
/00
íílilljóilfi*
Ágúst H.
Einarsson
000
milljóiiií'
■m
íililljóílí(,
Slgurður
Einarsson
Guðrun
Lárusdóttir
Aðaisteinn
Jónsson
Sameign þjóðarinnar
200 milljarðar
Fjórir kvótakóngar eiga
um 11 milljarða
Jafnt hlutdeild 14.600
íslendinga í auðlindinni
- eða allra Akureyringa
Samherja-
frændur
V
IMIMðl
- Samherjafrændur og Sigurður í Isfálagi Vestmannaeyja eiga 2,7 milljarða hver um sig
Þeir fjórir menn sem mestan fisk-
veiðikvóta eiga innan íslensku land-
helginnar ráða yfír verðmæti sem
samtals nemur um 11 milljörðum
króna. Hver þeirra um sig á kvóta að
verðmæti 2,7 milljarðar króna. Þessir
íslensku milljarðamæringar eru Sam-
herjafrændumir þrír, Þorsteinn Már
Baldvinsson og bræðumir Kristján
Vilhelmsson og Þorsteinn Vilhelms-
son. Fjórði maðurinn sem stendur
þeim frændum jafnfætis í kvótaeign
er Sigurður Einarsson, framkvæmda-
stjóri og aðaleigandi Isfélags Vest-
mannaeyja.
Sjávarútvegsfyrirtæki hafa verið að
sameinast undanfarin misseri og þró-
unin hefur verið í átt til fæmi og
stærri fyrirtækja, gjaman skráð á
Veröbréfaþingi og þvi almennings-
hlutafélög með vaxandi fjölda hlut-
hafa sem skipta orðið tugum þúsunda.
Til marks um hversu stóran hlut 20
öflugustu sjávarútvegsfyrirtækin eiga
í auðlindinni þá eiga þau um það bil
50% af öllum heildarkvóta fiskveiði-
ársins. Engu að síður er það svo að
nokkur hópur einstaklinga er mjög
stórir hluthafar í fyrirtækjunum.
Samherjafrændumir þrír eru lang-
stærstu einstakir hluthafar í Samherj-
afélaginu og séu hlutir þeirra hvers
um sig reiknaðir inn í þann kvóta
sem Samherji ræður er hlutur hvers
um sig í krónum talinn 2,7 milljarðar
sem fyrr segir. Á sama hátt er Sigurð-
ur Einarsson langstærsti einstaki
hluthafi ísfélagsins hf. í Eyjum og er
kvótaeign hans jöfn eign Samherjaf-
rændanna.
Þjóðareignin 740 þúsund
á hvert mannsbarn
Verðmæti þess heildarkvóta sem
veiða má á nýbyrjuðu fiskveiöiári
eru nokkum veginn 200 milljarðar
króna. Upphæðin er fundin út frá
markaðsverði á fóstum kvóta ein-
stakra fiskitegunda innan fiskveiði-
lögsögunnar.
í lögum em auðlindir sjávar innan
lögsögunnar skilgreindar sem sam-
eign þjóðarinnar allrar. Yrði þessari
200 milljarða eign skipt upp milli
allra íslendinga kæmu um 740 þús-
und krónur í hlut sérhvers manns-
bams á íslandi. Út frá þessum for-
sendum er eign hvers kvótakónganna
fjögurra um sig því jafngild eign 3.650
íslendinga eða jafnmargra og búa á
ísafirði.
25 menn eiga 20
milljarða
Kvótakóngamir fjórir, sem hér hafa
verið nefndir, eru langstærstu eigend-
ur fiskveiðikvóta á íslandi og einu
milljarðamæringamir á landinu. En
það era fleiri kvótasterkir þótt þeir
komist ekki með tæmar þar sem fjór-
menningarnir hafa hælana og því vart
hægt að kalla þá kónga heldur fremur
kvótagreifa.
Meðal kvótagreifa má nefna Pétur
Stefánsson sem gerir út Pétur Jónsson
en kvótaeign hans er trúlega nálægt
800 milljónum króna. Kvótaeign hjón-
anna Guðrúnar Lárasdóttur og
Ágústs Sigurðssonar er svipuð og Pét-
urs. Bróðir Sigurðar, kvótakóngs i Is-
félaginu, Ágúst H. Einarsson alþingis-
maður, á stóran hlut í Granda hf. og
sé sá hlutur umreiknaður í kvóta þá
er eign Ágústs trúlega um 700 milljón-
ir króna. Aðrir stórir era Aðalsteinn
Jónsson á Eskifirði með 650 milljónir
og Þórkötlustaðasystkinin Eiríkur,
Gunnar, Stefán og Gerður Tómasar-
börn sem eiga hvert um sig í kringum
550 milljónir.
Þeir 25 menn sem mestan kvóta
eiga eiga kvóta fyrir um 20 milljarða
króna. Það jafngildir því að gefin hafi
verið út 270 þúsund hlutabréf i auð-
lindinni á hvert mannsbarn í landinu,
hvert upp á 740 þúsund krónur og þá
eigi 25-menningarnir jafn mikið og all-
ir íbúar á svæðinu frá Akranesi til
Borgamess, á Snæfellsnesi, Vestfjörð-
um, Norðurlandi vestra og Norður-
landi eystra til og með Dalvík. Á
þessu svæði búa alls um 27 þúsund
manns.
-SÁ
Hús Sigurðar Einarssonar i Vestmannaeyjum.
DV-mynd Ómar
Sigurður Einarsson í Vestmannaeyjum:
Berst ekki á
DV, Vestmarmaeyjuro:
Það verður aldrei sagt um Sig-
urð Einarsson, forstjóra og aðai-
eiganda ísfélagsins í Vestmanna-
eyjum, að hann berist mikið á.
Hann býr reyndar í stóm húsi
sem byggt var upp úr 1950. Það er
kannski ekki svo stórt þegar fjöl-
skyldu-
stærðin
er höfð í
huga.
Hann
er kvænt-
ur Guð-
björgu
Mattías-
dóttur,
kennara
við
Barna-
skólann í
Eyjum.
Þau eiga fjóra drengi og er sá elsti
20 ára en sá yngsi átta ára. Þá á
Sigurður, eins og reyndar fjöldi
Eyjamanna, íbúð í Reykjavík.
Hún er þriggja herbergja á þriðju
hæð í blokk.
Sigurður ekur um á VW-Golf,
árgerð 1997, sem hann keypti í
sumar þegar hann endurnýjaði
gamlan bíl sem kominn var að
fótum fram. Einnig á hann gaml-
an BMW, árgerð 1986, sem Guð-
björg notar yfirleitt.
Sigurður hefur tekið virkan
þátt í félagsstarfi og er meðlimur
í Akógesfélaginu í Eyjum og mjög
virkur í starfi Sjálfstæðisflokks-
ins. Sat m.a. i bæjarstjórn Vest-
mannaneyja fyrir flokkinn í tvö
kjörtímabil á ámnum 1986 til
1994.
Sigurður er bindindismaður á
vin og tóbak. Hann stundar lík-
amsrækt af miklum krafti, mætir
fyrir allar aldir í leikfimi og
hleypur um helgar. Ann-
að áhugamál á Sigurður,
sem er söfnun bóka.
Starfs síns vegna þarf
Sigurður oft að fara til
Reykjavíkur en hann er
heimakær. Fer ekki fleiri
ferðir en hann nauðsyn-
lega þarf og reynir alltaf
að komast heim um leið
og hann hefur lokið er-
indum sínum.
Það þykir mjög gott að
leita til Sigurðar og
þeirra hjóna beggja. Þau
hafa t.d. ekki talið eftir
sér að taka næturvaktir á
gististöðum bama sem koma til
Eyja í tengslum við íþróttamót,
eins og Shell-mót og Pæjumót.
Drengimir hafa fengið hefðbund-
ið uppeldi barna og ungs fólks í
Vestmannaeyjum. Til dæmis hafa
eldri drengirnir stundaö sjó í
sumarfríum sinum.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu sker fjölskyldan sig á
engan hátt úr enda er stíll Sigurð-
ar Einarssonar síst af öllu sá aö
berast á. Því minni athygli því
betra.
Ómar
Siguröur endurnýjaði nýlega gamlan bíl
sinn og fékk sér nýjan VW Golf.
Siguröur Einarsson.
Samherjafrændurnir moldríku:
DV, Akureyri:
„Það þarf ekki mörg orö til að lýsa
Samherjafrændunum. Þeir em nán-
ast alltaf í vinnunni og það má segja
að þeir séu vinnufíklar," segir mað-
ur sem
þekkir vel
til Sam-
herjafrænd-
anna lands-
kunnu á Ak-
ureyri, Þor-
steins Más
Baldvins-
sonar og
frænda
hans, þeirra
Þorsteins og
Kristjáns
Vilhelms-
sona. Þre-
Þorsteinn Már Bald
vinsson
menningamir, sem eru
taldir vera „kvótakóng-
ar“ íslands ásamt Sig-
urði Einarssyni í Vest-
mannaeyjum, era taldir
eiga kvóta að verðmæti
2,7 milljarða króna hver,
samkvæmt upplýsingum
sérrits Frjálsrar Verslun-
ar sem ber heitið „100
stærstu".
Veldi Samherjafrænd-
anna má rekja aftur til
þess tíma þegar þeir
keyptu ryðkláfinn Guð-
stein frá Suöurnesjum
snemma á síðasta áratug, gamlan
síðutogara sem lengi hafði legið við
bryggju og safnað ryði. Þeir sigldu
skipinu til Akureyrar og það hefur
oft verið haft í flimtingum að það
var hlegiö að þeim frændum þegar
ryðkláfurinn lagðist að
bryggju á Akureyri.
En þeir vissu hvað þeir
voru að gera. Skipið var
tekið á land og því gjör-
breytt svo úr varð frysti-
togarinn Akureyrin sem
hefur verið eitt almesta
happafley íslenska flski-
skipaflotans og er enn i
fullum rekstri og malar
eigendum sínum gull.
Þorsteinn Vilhelmsson
hafði verið skipstjóri hjá
Útgerðarfélagi Akureyr-
inga og hann stýrði Ak-
ureyrinni í hátt í áratug og síðar
Baldvin Þorsteinssyni, sem er flagg-
skip Samherja í dag, en Þorsteinn
kom svo í land og fór að vinna við
fyrirtækið í landi eins og Kristján
bróðir hans og Þorsteinn Már höfðu
Kristján Vilhelmsson.
gert frá upphafi.
Ýmislegt hefur hjálpast að hjá
þeim frændum. Menn ræða mjög
gjaman um að „samsetning" þeirra
hafi frá upphafi verið frábær, einn
ótrúlegur „bisnessmaður", annar
skipstjóri með geysilega veiði-
reynslu og
sá þriðji
vélstjóri
með við-
tæka
reynslu
sem nýst
hafi til fulls
við útgerð-
ina. Saman
hafi þeir
myndað lið
sem ekkert
stóð fyrir.
Mönnum Þorsteinn Vilhelmsson.
Samherjafrændurnir þrír eiga allir sams konar bíla. Þeir eru af geröinni Toyota
Land Cruiser.
Einbýlishús Þorsteins Más Baldvinssonar.
DV-mynd GK
sem þekkja þá frændur ber saman
um að það sem einkenni þá fyrst og
fremst sé dugnaður þeirra og vinnu-
semi, þeim falli nánast aldrei verk
úr hendi og skipti þá ekki máli hvort
dagurinn heiti þriðjudagur eða laug-
ardagur og klukkan sé 12 á hádegi
eða 10 að kvöldi.
Það má að vissu leyti segja að þeir
séu fjölmiðlafælnir, þeir hafa ávallt
verið mjög lítið fyrir að halda sínum
málum ffarn í fjölmiðlum og lítið
gefhir fyrir viðtöl viö fjölmiðla.
„Þetta er alveg rétt. Samt eru þetta
léttir og hressir menn og ákaflega
skemmtilegir í vinahópi. Þeir eru að
ég best veit ekki i neinum félagsskap
nema KA og eru aldeilis sérlega
miklir KA-menn. Þeir gefa sér yfir-
leitt tíma til að fara á handboltaleiki
hjá KA,“ segir góður kunningi
þeirra frænda.
Samherjafrændumir berast ekki
mikiö á. Þeir hafa vissulega komið
sér vel fyrir með fjölskyldum sínum
í góðum einbýlishúsum í bænum og
þeir aka um á Toyota Land Craiser
jeppum sem eru þriggja til fimm ára
gamlir. „Þegar þeir fara í sumarfrí
liggur leiðin oft í skíðabrekkur í
Austurríki en þeir eru með algjöra
skíðadellu. Gjaman með GSM-sím-
ana í vösunum. Tveir þeirra eiga
lika böm sem hafa verið í fremstu
röö afreksfólks okkar í alpagrein-
um,“ segir viðmælandi okkar. -gk
Einbýlishús Kristjáns Vilhelmssonar.
DV- mynd GK.
Einbýlishús Þorsteins Vilheimssonar.
DV-mynd GK