Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Qupperneq 37
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 [%'iðsljós « Ulrika Jonsson, sænskættuð og vinsæl sjónvarpskona í Bretlandi: Yfir sig ástfangin af Stan Collymore Ástin 1 lífí knattspymukappans Stans Collymores hjá Aston Villa (áður Liverpool og Nottingham For- est) er sænskættaða sjónvarpskon- an Ulrika Jonsson. Hún stjómar vinsælum þáttum á sjónvarpsstöð- inni ITV á borð við Gladiators og Shooting Stars. Stan er þriðji maðurinn í lífi Ul- riku, sem nýlega varð þrítug. Hún var fyrst gift sjónvarpstökumanni og eignaðist með honum son fyrir þremur áram. Hún skildi við eigin- manninn og tók saman við annan sjónvarpsmann sem var sex árum yngri en hún. Ulrika var enn með þeim manni þegar hún kynntist hin- um 26 ára Stan, sem oft er kallaður „Stan the Man“ í Bretlandi. Þau hittust fyrst á kaffihúsi í Birming- ham í sumar og segir hún það hafa verið ást við fyrstu sýn. „Mér líður eitthvað svo vel í ná- vist hans,“ segir Ulrika um nýju ást- ina. „Það er að mörgu leyti þægilegt að fora út með manni sem er jafn þekktur og hann. Hann hefur reynslu af því að vera i kastljósi fjölmiðlanna. Þær fáu vikur sem við vorum saman áður en fregnin breiddist út um samband okkar vom frábærar. Þá gátum viö virki- lega kynnst hvort öðm náið. Þetta breyttist um leið og slúðurblöðin komust að sambandi okkar. Það setti okkur ákveðnar skorður," seg- ir Ulrika en þau skötuhjúin hafa verið vinsælt myndefni fjölmiðla í Bretlandi að undanfórnu. Hún segist hafa fengið mikinn áhuga á fótbolta að nýju. Hún hefði sem krakki haft mikinn áhuga á íþróttinni í Svíþjóð og m.a. spilað þar í ónefndu liði. Hún segist ætla að halda með Aston Villa í vetur, nema þegar kærastinn leikur gegn MEmchester United! Ulrika Jonsson, kærasta Stans Collymore hjá Aston Villa. Myndar- kona sem piltur hefur nælt sér í! «r Natasha Henstridge. Uma Thurman neitaði nektinni Uma Thurman. Leikkonan snoppufríða, Uma Thurman, hefur uppgötvað hógværðina í sjálfri sér. Hún þoldi ekki þá miklu nekt sem hún varð að sýna í hlutverki sem henni bauðst i kvik- myndinni Modesty Blaise, Hógværa Blaise. Myndin er byggð á samnefndri, kynþokka- fullri teiknimyndapersónu. Mörgum þótti þessi ákvörðun Umu undarleg í ljósi þess að hún hefur oft áður berað sig í kvikmyndum. Hver man t.d. ekki eftir henni í Dangerous Liaisons? Nú horfir hún á eftir hlutverkinu til hinnar ungu og kynþokkafullu Natasha Henstridge sem m.a. hefur leikið í Species. Natasha á þann sérstaka feril í kvikmynd- um að hafa varla sést öðmvísi en í Evu- klæðum! Courtney Love fataþjófur? , * Stjömu- «. rnar geta verið haldnar stelsýki eins og annað fóik. Leikkonan Courtney Love virðist a.m.k. ekki vera betur launuð en það að hún greip með sér fatnað að verðmæti um 1 milljón krónur eftir að hafa klæðst honum í tísku- myndatökum að kvöldlagi á hóteli einu í New York nýlega. Sagan segir að hún hafi beðið stilistann að koma daginn eftir til að ná í fotin. Þegar hann I kom var Courtney búin • að yfirgefa hótelið - með ! tískufotin 1 töskunum. U Fatahönnuðurinn fékk 'ú klæðnaðinn ekki til ^ Courtney Love í fínu baka fyrr en mán- »;• dressi, spurning hvort uði síðar. Á þeim 'Mg. þaa sé stoliö? " tíma sást til stelpunnar á op- inbemm vettvangi í fmu fotunum, bros- andi út að eyrum! Rosanne neitaði kleinuhringjunum Rosanne, kjaftfor sem fyrr. Það er engin lognmolla í kringum í hina sveru sjónvarpsstjörnu, Ros- anne. Hún kom fram sem gestaleik- ari í grínþættinum 3rd Rock from the Sun á sjónvarpsstöð einni í Bandaríkjunum nýlega. Þar var hún varla fyrr komin á tökustað þegar hún heimtaði kleinuhringi. Tökuliðið varð við þeirri beiðni án tafar. En þegar sykursætu hringirn- ir bárust setti Rosanne á sig snúð og neitaði bakkelsinu. Sagði hringina bölvað ruslfæði! Þegar tökur hófust kom síðan í ljós að Rosanne hafði ekki æft hlut- verkið í þættinum betur en svo að hún mundi ekki línurnar. Hún varð að hafa þær á spjöldum við hlið tökuvélanna! Sagan segir í Hollywood að framleiðendur ann- arra grínþátta, sem samið hafa við Rosanne um gestahlutverk, geti nú vart beðið eftir að fá hana til starfa! Grínistinn Carrey: Gerði samning við kennarann Þeir sem hafa séð grínleikarann Jim Carrey, t.d. í myndinni Mask, hafa kannski velt því fyrir sér hvernig náunginn skyldi hafa verið í æsku. Hann var víst ekkert lamb að leika sér við, allt af þvi ofvirkur. Sítalandi, flissandi, geiflandi og hermandi eftir hinum og þessum. Bekkjarkennari hans í grunnskóla mun hafa geflst upp á þessu, gert samning við Carrey um að hann fengi að halda 15 mínútna leiksýn- ingu í lok hvers skóladags gegn því að hann héldi kjafti í kennslustund- unum! Þetta mun hafa gengið upp og var líklega vísir að leikaraferli kappans. Jim Carrey, geiflandi sem fyrr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.