Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1997, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997
Utlönd
Verjendur bresku barnfóstrunnar vilja sýknu:
Urskurður kannski
væntanlegur í dag
Verjendur bresku bamfóstrunnar
Louise Woodward sögöu fyrir rétti í
gær að ógilda ætti úrskurð kvið-
dóms þar sem mikilvæg gögn
ákæruvaldsins hefðu verið lögð of
seint fram í réttarhaldinu. Kvið-
dómur úrskurðaði Louise seka í síð-
ustu viku um að hafa myrt níu mán-
aða gamlan dreng, Matthew
Eappen, sem hún var að gæta.
Barry Scheck, einn verjenda
barnfóstrunnar, sagði í gær að Hill-
er Zobel dómari gæti ekki verið
sannfærður um að réttlætinu hefði
verið fullnægt í máli þessu.
Tugir stuðningsmanna Louise
efndu til mótmæla fyrir utan dóm-
húsið í gær og kröfðust margir
þeirra að hún yrði látin laus. Louise
var dæmd í lífstíðarfangelsi.
Búist er við að Zobel dómari
sendi úrskurð sinn um kröfu verj-
endanna til fréttastofa með rafþósti.
Hugsanlegt er talið að úrskurðurinn
liggi fyrir í dag.
Samkvæmt lögum Massachusetts-
ríkis hefur dómari vald til að
hnekkja úrskurði kviðdóms, þótt
það sé sárasjaldan gert. Hann getur
einnig fyrirskipað ný réttarhöld,
mildað ákæruna í manndráp af gá-
leysi eða líkamsárás og loks getur
Barry Scheck, verjandi Louise
Woodward, bresku barnfóstrunnar.
hann látið úrskurð kviðdómsins
standa óhaggaðan. Zobel dómari
hefur að minnsta kosti þrisvar
breytt úrskurði kviðdóms á löngum
ferli sínum.
Verjandi Louise dró í gær upp
myndir frá krufningu líks litla
drengsins. Myndirnar sýndu að höf-
uðkúpa drengsins brotnaði fyrir 4.
febrúar á þessu ári, daginn sem
hann var fluttur á sjúkrahús. Brotið
leiddi til dauða drengsins. Foreldrar
drengsins hafa verið gagnrýndir
fyrir að ráða unga og óreynda
stúlku til að gæta hans. Þau hafa
vísað slíkri gagnrýni á bug. Reuter
Njósnað um
kommúnista í
Svíþjóð þrátt
fyrir bann
Leyniþjónusta sænska hersins,
IB, hélt áfram að njósna um
kommúnista í Svíþjóð eftir bann
sem sett var við njósnunum árið
1969. Hélt leyniþjónustan áfram
að skrá þá sem hún taldi ógna ör-
yggi landsins að minnsta kosti til
ársins 1975 og jafnvel nokkrum
árum lengur. Sænska blaðið Dag-
ens Nyheter segir þetta koma
fram í prófverkefni sænsks há-
skóianema. Á fyrrgreindum ár-
um voru deilur milli lögreglunn-
ar og hersins í Svíþjóð um hvor
stofnunin ætti að bera ábyrgð á
eftirliti með kommúnistum í
landinu.
90 þúsund
Norðmenn með
spilafíkn
Tvö prósent norsku þjóðarinn-
ar, eða um 90 þúsund manns, eru
haldin spilaflkn. Þetta kemur
fram í fyrstu rannsókninni um
spilafíkn í Noregi. Sex prósent til
viðbótar eiga í erfiðleikum vegna
spilaáhuga en þó ekki svo mikl-
um að hægt sé að tala um
spilaflkn. Rannsóknin var fram-
kvæmd á vegum sálfræðideildar
háskólans I Þrándheimi.
Mikhail Gorbatsjov, fyrrum
forseti Sovétrfkjanna.
Slmamynd Reuter
Gorbatsjov
á sjúkrahús
í Sviss
Fyrrum leiötogi Sovétríkjanna,
Mikhail Gorbatsjov, hefur verið
lagður inn á sjúkrahús í Bem I
Sviss til rannsóknar. Gorbatsjov
var I Sviss á vegum umhverfls-
verndarsamtaka sem hann er for-
seti fyrir. Samtökin tilkynntu að
líklega myndi Gorbatsjov taka
þátt I fjáröflunarsamkomum
þeirra I Basel á morgun og í
Zúrich á föstudaginn. Reuter
Feögarnir Matatai Joe og Jason búa sig undir að stíga um borö í flugvél á Cookseyjum þar sem hvirfilbylur gekk
yfir og skildi eftir sig slóö eyöileggingar. Lík fimm manna hafa fundist og 21 er saknaö. Sfmamynd Reuter
írakar eru enn við sama heygarðshornið:
Bandaríkjamenn reknir
í burtu 3. daginn í röö
Sameinuðu þjóðirnar stöðvuðu
eftirlit starfsmanna sinna með gjör-
eyðingarvopnum íraka I morgun
þegar stjómvöld I Bagdad meinuðu
bandarískum fulltrúum I vopnaeft-
irlitsnefridinni að taka þátt í störf-
um hennar, þriðja daginn I röð.
„írösku embættismennir, sem
vom á eftirlitsstöðunum, sögðu yfir-
mönnum nefndarinnar að þeir gætu
haldið eftirliti sínu áfram en ekki
starfsmenn af bandarísku þjóðerni,"
sagði Alan Dacey, starfsmaður eftir-
litsmiðstöðvarinnar I Bagdad, við
fréttamann Reuters I morgun.
Eftirlitsmenn tilkynntu þá að
þeir gætu ekki sinnt störfum sínum
við þessar aðstæður.
írakar meinuðu bandariskum
starfsmönnum eftirlitsnefndarinnar
aðgang að vopnabúmm sínum á
mánudag og þriðjudag. Það varð til
þess að SÞ hættu við allt eftirlit þá
daga.
Sameinuðu þjóðirnar hafa aflýst
öllu eftirlitsflugi U-2 njósnaflugvéla
Sendifulltrúar Sameinuöu þjóöanna, Lakhdar Brahimi, Emilio Cardenas og
Jan Eliasson, koma til Bagdad í dag til aö reyna aö fá Saddam Hussein fraks-
forseta til aö leyfa vopnaeftirlitsmönnum SÞ að stunda störf sín.
yfir írak tiFað auðvelda sendimönn- stjórnvöld á að vinna með vopnaeft-
um samtakanna að telja írösk irlitsmönnum. Reuter
Stuttar fréttir i>v
Réttað yfir Nichols
Réttarhöld eru hafln yflr Terry
Nichols, sem ákærður var fyrir að
hafa sprengt upp alríkisbygging-
una I Oklahomaborg fyrir hálfu
þriöja ári ásamt Timothy
McVeigh.
Dæmdur í Texas
Aöskilnaðarsinninn Richard
McLaren I Texas var dæmdur 199
ára fangelsi I gær fyrir að fyrir-
skipa áhangendum sínum að
ræna hjónum við upphaf sjö daga
vopnaðs umsáturs lögreglu.
Giuliani vann
Rudolph Giuliani, borgarstjóri
I New York, var endurkjörinn í
embættið með
miklum mun
atkvæða I gær.
Hann sigraði
demókratann
Ruth Messin-
ger. Giuliani
hefur tekist á
fjögurra ára
borgarstjóraferli sínu að draga
umtalsvert úr alvarlegum glæp-
um I borginni. Hann þykir líka
hai-ður I hom að taka, enda fyrr-
um saksóknari.
Marsrannsókn lokið
Vísindamenn lýstu þvi opinber-
lega yfir I gær að visindaleiðangri
Marsfarsins Pathfinder væri lok-
iö. Þá voru fjórir mánuðir frá því
farið lenti á rauðu plánetunni.
Síminn í samkeppni
Fi-amkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins undirbýr málarekst-
ur gegn sjö aðildarlöndum sem
hafa ekki staðið sig sem skyldi I
að auka samkeppni I símamálum.
4000 saknað
Fjögur þúsund manns er sakn-
aö I Víetnam eftir að hvirfilvind-
urinn Linda gekk þar yfir um
helgina. Á annað hundrað sjó-
menn fórust I Víetnam. í Taíjandi
fórust yfir áttatíu sjómenn I
óveðrinu.
Keisari rannsakaður
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
fyrirskipaði í gær að líkamsleifar
síðustu keisarafjölskyldunnar
skyldu rannsakaðar á ný I
Moskvu.
Refsar
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
seti tilkynnti I
gær um refsiað-
gerðir gegn
Súdan vegna
meintra hryðju-
verka yfirvalda
og mannrétt-
indabrota.
ítalir öskureiðir
Um átta þúsund ítalir, sem
höfðu safnast saman I Róm í gær,
urðu öskureiðir er Róttæki flokk-
urinn sveik loforð um peninga-
gjafir tU almennings. Hætt var
við peningagjöfma eftir að slags-
mál brutust út í kjölfar þess að
girðing lögreglu brast.
Barnaníðingur
Nær fertugur Óslóarbúi viður-
kenndi I gær að hafa nauðgað tíu
drengjum. Sjö voru á aldrinum
7-10 ára en þrír undir 7 ára aldri.
Súdan
Talaði um Díönu
Karl Bretaprins skoðaði I gær
fátækrahverfi i Höfðaborg I Suð-
ur-Afríku.
Minntist prins-
inn á baráttu
fyrrverandi eig-
inkonu sinnar,
Díönu
prinsessu, gegn
fátækt. í kvöld-
verði hjá Nel-
son forseta þakkaði Karl samúð-
ina sem Suður-Afríkumenn sýndu
vegna andláts prinsessunnar.
Rekinn
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
rak í gær Borís Berezovsky úr
embætti yfirmanns öryggisráðsins.