Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1997, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1997, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 9 Utlönd Verkfall vörubílstjóra í Frakklandi: Frjálsi háskólinn í Berlín: 6AND Iocht) jjj/GES (bruooc) TOURCOING - BCUCNCONTRC * PONT 01 NCUVIUC • L* bourooonc Viðræður milli deiluaðila Deiluaöilar í verkfalli vörubíl- stjóra í Frakklandi samþykktu að heQa viðræður í dag í samgöngu- ráðuneytinu í París. Um 350 þúsund vörubílstjórar hafa verið í verkfalli frá þvl á miðnætti aðfaranótt mánudags. Hafa þeir sett upp um 150 vegatálma víðs vegar um Frakkland. Nokkur frönsk fyr- irtæki, þar á meðal RenauIt-bUa- verksmiðjan, hafa lagt niður starf- semi tímabundið eða hægt á starf- seminni vegna skorts á varahlut- um. Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands, er undir miklum þrýst- ingi frá starfsbræðrum sínum í ná- grannalöndum Frakklands. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hringdi í Jospin í gær og bað hann um hjálp við að aðstoða breska vörubílstjóra sem eru innlyksa í Frakklandi. Ráðamenn í Hollandi, Þýskalandi og Spáni hafa vakið at- hygli á þvl hversu alvarlegar afleið- ingar verkfallið í Frakklandi hefur á vöruflutninga í Evrópu. í gær kom yfirlýsing frá Jacques Chirac, forseta Frakklands. í henni segir að stjóminni beri skylda til að grípa tfl nauðsynlegra aðgerða tU að tryggja umferð. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins gagnrýndi harkalega hindrun umferðar um frönsku hafnarborgina Calais. Segir fram- kvæmdastjómin að ástandið hafi slæm áhrif á innri markað sam- bandsins. Krefst framkvæmda- stjómin þess að vegatálmamir verði fjarlægðir. Ferjuumferðinni hefur verið beint tU Zeebrúgge í Belgíu en hundruð breskra og írskra bUstjóra em enn í Calais. Framkvæmdastjórnin íhugar nú möguleikann á lagalegum aðgerð- um gegn Frakklandi. Reuter Namskeið um Dionu - franska lögreglan leitar að Fiat Uno Díana prinsessa er orðin að við- fangsefni stúdenta við Frjálsa há- skólann í Berlín, aðeins tveimur mánuðum eftir andlát sitt. í síðustu viku hófst röð fjórtán fyrirlestra við stjórnmála- fræðiskor skólans undir yfir- skriftinni: „Goðsagnir og stjóm- mál: Díana - prinsessan af Wales sem varð hjartadrottningin". „Háskólinn er kjörinn vettvang- ur tU að rannsaka goösögnina sem hér er á ferðinni,“ sagði Sabine Berghahn aðstoðarprófessor. Franska lögreglan hóf í gær umfangsmikla leit að hvítri Fiat Uno bifreið sem kann að hafa lent í árekstri viö Mercedes Benz bif- reiðina sem Díana var í skömmu áður en hún rakst á súlu í jarð- göngum í París. Eigendur 40 þúsund þess konar bifreiða í París og nágrenni verða kaUaðir á fund lögreglunnar. Ef leitin ber ekki árangur verður leitað víöar í Frakklandi. Reuter Starfsfólk okkar og makar ætla að gera sér; tilefni 25 ára afmælis fyrirtækisins. Því verður lokað hjá okkur 6. og 7. nóvember n.k. Við opnum aftur mánudaginn 10. nóvember, hress og endumærð. Með bestu kveðjum GLERBORG Dalshrauni 5, 220 Hafnarfirði, sími: 565 0000, fax: 555 3332 Vegatálmi vörubílstjóra við Roncq í Frakklandi í gær. Símamynd Reuter Palmemoröið: Prestur vitni lögreglu Prestur er eitt af vitnum sænsku lögreglunnar í rannsókninni á meintri aðild Christers Petterssons að morðinu á Olof Palme, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar. Árið 1989 greindi presturinn lögreglunni frá samtali við konu sem hann átti. Hann hefur hins vegar ekki greint frá nafni hennar. Lögreglan hefur þvi beðið konuna að gefa sig fram, að því er segir í frétt sænska blaðsins Aftonbladet. Konan sagði prestinum frá íbúð sem hún hefði verið í og atriðum sem hún hefði tekið eftir. Bað konan prestinn um að hafa samband við lögregluna. Nú þegar lögreglan kannar hvort rétta skuli aftur í málinu gegn Pettersson er lýst eftir konunni. Nýr stjórnandi lögreglurannsóknarinnar telur að hægt verði að leysa morðmálið. Kosið um ESB á tilsettun tíma Bæði Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, og Niels Helveg Petersen utan- ríkisráðherra fúllvissuðu danska kjós- endur og fé- laga sína í Evrópusam- bandinu að þjóðarat- kvæðagreiðslan um Amsterdam- sáttmálann yrði í maí á næsta ári, eins og ákveðið haföi verið. Hæstiréttur Danmerkur úr- skurðaði á mánudag að andstæð- ingar aðildar að ESB ættu að fá aðgang að leyniskjölum allt aftur til þess tíma áður en landið gekki í forvera ESB. Reuter RAGNAR BJÖRNSSON ehf. Dalshrauni6 • 220 Hafiiarfirði Símar 555 0397 & 565 1740 • Fax 565 1740 Fimmtíu ár í fararbroddi. Þekking og reynsla tvinnast saman í gæðaframleiðslu rúma og dýna frá Ragnari Bjömssyni. Þér líður vel írúmifrá Ragnari Bjömssyni. Viðskiptavinir, athuqið. Höfum hafið sölu á Fiesta vínqerðarefnunum. Marqar qerðir- qott verð. Verð frá 66-210 kr. flaskan 750 ml. 12%alc. Startsptt: 2KÚTAR SYKURMÆLIR VATNSLÁS SÓTTHREINSIEFNI HEVERT Tilboðsverð: kr. 2990 Suðurlandsbraut 22, sími 553-1080 Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 461-3707 Opið laugardaga frá kl. 10-14.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.