Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1998, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1998, Page 20
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 3Ö"V o fréttaljós_______________________ Breytt bankakerfi: Lognið á undan storminum - fjárfestar eiga annasama tíð fram undan Það verður breytt bankakerfi sem mætir landsmönnum á nýju ári. Ríkisbankarnir tóku formlega til starfa sem hlutafélög þann 1. janúar sl., rétt eins og Fjárfesting- arbanki atvinnulífsins og Nýsköp- unarsjóður atvinnulífsins. Á sama tima lögðust atvinnuvegasjóðimir formlega af, Fiskveiðasjóður, Iðn- lánasjóður og Iðnþróimarsjóður. Á næstu misserum er síðan fyrirsjá- anleg enn frekari uppstokkun eða öllu heldur samruni banka í enn stærri og sterkari einingar. Hvern- ig þau mál snúast mun síðan hafa afgerandi áhrif á íslenskt atvinnu- lif næstu ára. í þessum efnum beina menn sjónum sínum fyrst og fremst að Finni Ingólfssyni við- skiptaráðherra en hann heldur flestum þráðum í höndum sér. Það er hann sem formlega fer með vald til að ákveða hvernig samruna þessara bankastofnana verður hátt- að. Bankarnir á Verðbréfa- þing Sala á hlutabréfum í Búnaðar- banka hf. og Landsbanka hf. mun þó fara frekar hægt af stað. í lög- um er heimild til að selja ný hluta- bréf sem nemur 35% af stofnhluta- fé bankanna á komandi ári en í at- hugasemdum við lagafrumvarpið er tekið fram að ekki skuli selja hluti af stofnhlutafé bankanna fyrr en að fjórum árum liðnum og að samþykki Alþingis þurfi til að svo megi verða. Það er hins vegar ljóst að tímasetningin er ekki bundin í lög og þvi gæti ráðherra, ef honum sýnist svo, flýtt þeirri sölu. Stefán Pálsson, aðalbanka- stjóri Búnaðarbankans, segir að það eigi að fara hægt í sakirnar og að ákveðið hafi verið að selja ekki nema 5-10% af nýju hlutafé á Rfkisbankarnir tóku formlega til starfa sem hlutafélög þann 1. janúar sl., rétt eins og Fjárfestingarbanki atvinnulífsins og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins. Á sama tíma lögðust atvinnuvegasjóðirnir formlega af. Stefán Pálsson, aðalbankastjóri Búnaðarbankans, segir að það eigi að fara hægt í sakirnar og að ákveðið hafi verið að selja ekki nema 5-10% af nýju hlutafé á þessu ári. þessu ári. Stofnhlutafé Búnaðar- bankans er um 3,5 milljarðar króna og gæti sú sala því numið um 350 milljónum króna, eftir því hvert gengi bréfanna verður. Reiknað er með að sama hlutfall bréfa Landsbankans hf. verði sett I sölu á svipuðum tíma. Stefán tek- ur það fram að þessi sala gegni fyrst og fremst því hlutverki að ná fram dreifðri eignaraðild og í framhaldi af því verði bankinn skráður á Verðbréfaþing íslands. Sagðist bankastjórinn gera ráð fyr- ir að bréfin yrðu boðin út fyrri hluta árs, eftir að Verðbréfadeild Búnaðarbankans hefði metið upp- haflegt markaðsvirði bréfanna. 4.2 milljarðar til sölu Hins vegar er tekið fram í lögum um Fjárfestingarbanka atvinnulífs- ins að selja skuli 49% af bókfærðu hlutafé bankans upp á 8,4 milljarða króna og er sú sala ekki háð tíma- takmörkunum. Reyndar gerir ríkið ráð fyrir að ná inn rúmlega 4 millj- örðum króna vegna þeirrar sölu þegar á næsta ári. Vegna uppruna Fjárfestingarbankans eru þaö iðn- aðar- og sjávarútvegsráðherra sem fara með forræði í sölu bankans, þ.e. Finnur og Þorsteinn Pálsson. Bjarni Ármannsson, forstjóri bankans, segir að hlutabréf í bank- anum verði seld eins hratt og kost- ur er en gerir þó ekki ráð fyrir að það verði fyrr en seinni hluta árs. Það er hins vegar í höndum ráð- herranna tveggja að ákveða tíma- setningar og aðrar áherslur varð- andi söluna. Á þessu stigi máls er ákaflega erfitt að spá í hvemig uppstokkun- in í bankakerfinu muni fara fram. Halldór Guðbjarnason, bankastjóri Landsbankans, hefur lýst því yfir að viðskiptaráðherra sé nánast að bregðast skyldum sínum sameini hann ekki Lands- og Búnaðar- banka því annars verði ríkissjóður af söluhagnaði af verðmætari eign sem nemur milljörðum króna. Finnur hefur svarað með að sam- eining þessara banka hafi ekki ver- ið rædd og líta þurfi tfl þeirrar samkeppnisstöðu sem upp komi þegar ákveðið er hvaða bönkum skuli slengt saman. Það er þó óvar- legt að túlka þetta svar ráðherrans sem afsvar við sameiningu ríkis- bankanna fyrrverandi. Það er vit- að að íslandsbankamenn hafa mik- inn hug á að sameinast Búnaðar- bankanum og ráðherra getur illa gefið upp afstöðu sína á þessu stigi, liggi hún á annað borð fyrir. Salan á hluta- bréfum í Fjár- festingarbankan- um gæti einnig ráðið miklu um framhaldið. Sá banki mun vænt- anlega starfa sem heildsölubanki sem einbeitir sér að stærri viðskiptavinum, með hlutfallslega fáliðuðu en sérhæfðu starfsliði. Það er ljóst að slík við- skipti geta verið ábatasöm og höfða eðlilega til allra viðskipta- bankanna. Hver þeirra sem er gæti því gert tilboð í hluti Fjárfestingar- bankans og hvernig þeim verður ágengt í því máli mun svo aftur hafa áhrif á aðrar sameiningarhug- myndir. Ganga gömlu blokkirnar fyrir? En það er fleiri fjárfestum til að dreifa en bönkunum. Tryggingarfé- lögin og lífeyrissjóðimir eru ávallt vakandi í þessum efnum, auk þess sem líkur á erlendum fjárfesting- um hafa aukist. Sala hlutabréfa Landssímans hf. getur því hæglega haft áhrif á þessa atburðarás, enda er fjárfestingargeta innlendra aðila takmörkuð. Auk þess má álykta sem svo að fiárfestingarvilji ákveð- inna aðila sé þegar skilyrtur af fyrri fiárfestingum þessara sömu aðila. Landsbankinn á helming í VÍS, Lífeyrissjóðurinn Framsýn 10% hlut í íslandsbanka, sem og Lífeyrissjóður verslunarmanna. Heimildarmenn DV innan þessara sjóða telja eðlilegt að hugsanlegar fiárfestingar sjóðanna í hluta- bréfum um- ræddra banka stýrist af þeim hagsmunum sem þeir hafa þegar að gæta í íslandsbanka. Þorgeir Eyjólfs- son, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, sagði í samtali við DV að nú væru mikil tækifæri til að koma fram nauðsynlegri hag- ræðingu í bankakerfinu. „Það er engin launung að hluthafar í ís- landsbanka hafa áhuga á að bank- inn eigi hlut í þessari hagræðingu. Við teljum þýðingarmikið að Bún- aðarbankinn verði skoðaður sér- staklega sem fiárfesting sem traust og vel rekin stofnun, skipuð hæfu starfsfólki, með samvinnu eða samruna í huga. En Fjárfestingar- bankinn verður líklega áhugaverð- ur kostur fyrir fiárfesta en það ræðst auðvitað af verðinu,“ sagði Þorgeir Eyjólfsson. Innlent fréttaljós Páll H. Hannesson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.