Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1998, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1998, Síða 21
JL> x J' LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 Ólyginn sagði... ... aö forseti Sovétríkjanna sál- ugu, Mfkhaíl Gorbatsjov, hefði á dögunum tekið þátt í sjónvarps- auglýsingu fyrir Pizza Hut. Auglýs- ingin var tek- in upp í Moskvu þar sem Gorbi sést gæða sér á flat- bökunum. Auglýsingin fer í loft- ið fljótlega en ekki fylgir sög- unni hvað Gorbi fékk fyrir sinn snúö, eða öllu heldur sína sneið. ... aö hin 31 árs gamla söng- kona, Janet Jackson, heföi í hyggju aö leggja hljóðnemann á hilluna og fara aö læra eitthvað af viti. Hana langar að verða lög- fræðingur. „Mig langar aftur í skóla,“ á hún að hafa sagt. Stóra bróður, Michael, veitti kannski ekki af lögmanni í ættinni ef fleiri klögumál gegn honum eiga eftir að koma upp á yfirborðið. ... aö hjartaknúsarinn og leikar- inn, Don Johnson, væri búinn að segja upp 18 ára gamalii kærustu sinni aö nafni Jodi O’Keefe. Donni var ekkert að skipta fyrir eina 30, 40 eða 50 ára heldur tók saman við Den- ise Hale, 72 ára gamla ekkju milljaröamærings. Hvort það var nú peninganna vegna eða ekki skal ósagt látið. Rappari í ráni Rapparinn góðkunni, Coolio, var á ferð í Þýskalandi á dögunum. Það er varla í frásögur færandi nema fyrir þá sök að hann komst í kast við lögin þar í landi. Það var ekki fyrir einhverjar stöðumælasektir heldur fyrir stuld og stimpingar í tískuvöruverslun. Coolio og nokkrir félagar hans fóru í verslunina og mátuðu ýmsan fatnað. Þegar þeim fannst þeir hafa fundið réttu fötin ætluðu þeir að ganga út án þess að borga. Þetta míslíkaði verslunareigandanum að sjálfsögðu og kom til handalögmála á staðnum. Coolio og félagar hurfu á braut en að kvöldi dags gaf hann sig fram á lögreglustöð og játaði syndir félaga sinna. Sagðist sjálfur hafa ætlað að borga og væri því alsak- laus. Þeir þýsku áttu víst erfitt með að trúa því þannig að málið er enn í rannsókn. Rapparinn Coolio komst í hann krappan. Brjóstakrabbi Bítlakonunnar Lindu McCartney: Paul hiálpar henni í baráttunni Eins og komið hefúr fram er Linda McCartney með krabbamein í öðru brjóstinu. Eiginmaðurinn og Bítill- inn Paul ræddi opinskátt um þessi mál í breskum sjónvarpsþætti ný- lega, nánar tiltekið hjá David Frost. Paul og Linda McCartney. Læknast hún af krabbanum? Þar sagði Paul að þau Linda stæðu saman i baráttunni og gerðu allt til þess að hún fengi bót meina sinna. „Það er að sjálfsögðu hræðilegt áfall þegar þú ert greindur með ban- vænan sjúkdóm. Þú veist varla í fyrstu hvað á til bragðs að taka. Síð- an ferðu að breyta forgangsröðinni í lífinu," sagði Paul en þau Linda hafa gengið saman í gegnum lækn- ingaprógramm sem hjálpar þeim að taka eitt skref í einu. Prógrammið er upphaflega komið frá AA-samtök- unum. Innbrot á heimili Stevens Spielbergs: Barnaræningi handtekinn Brotist var inn á ------—Ræninginn ráða- heimili Stevens Spiel- bjfj lausi, hinn 31 árs gamli bergs í Hollywood í ný- J Jónatan Norman, var liðnum mánuði. Þar var "'yJM gripinn glóðvolgur af ekki um venjulegan Ls -- lögreglu inni á húslóð- innbrotsþjóf að ræða w inni eftir að rammhelt heldur barnaræningja. ^H öryggiskerfi hafði farið Hann hafði í hyggju að ^HíHH—I gang með tilheyrandi ræna einu barna þeirra Spielberg og Cap- hávaða. Ekki fylgir sög- Stevens og Kötu Cap- shaw veröa aö gæta unni hvort Kasper og shaw og krefjast himin- barna sinna vel og Jesper hafi verið með í hárra lausnargjalda. vandlega hér eftir. fór! ... og bætti við... ... að breska ofurfyrirsætan Kate Moss væri tekin saman við plötusnúðinn Jeremy Healy. Pau eru sögð hafa hist fyrst fyrir tveimur árum en ekki er langt um liðið síð- an þau sögðu upp sambýlisfólki sínu. Kata var sem kunnugt er með leikar- anum Johnny Depp en Jeremy var meö fyrirsætunni Philippu Lett. Hann heldur sér því viö snoppufríöu fyrirsæturnar. ... að poppstjarnan Seal yrðl faö- ir innan skamms. Fyrirsætan Tatjana Patitz er sögð ganga með barn hans en þau hafa staö- fastlega lýst því yfir að þau væru ekki á leið- inni í hnapp- helduna. Þau væru bara góðir vinir. Hvað um það, vin- skapurinn hefur gefið af sér ávöxt sem vonandi verður eitt- hvað laglegri en pabbinn! ... að leikarinn góökunni, Ralph Fiennes, væri fluttur út frá kær- ustu sinni, Francescu Annis. Kunningjar þeirra og vinir neita þó harðlega þeim flugu- fregnum að parið sé skil- iö fyrir fullt og allt. Petta sé svona milliblls- ástand. Ekki er svo langt síðan Ralph skildi við eiginkonuna, Alex Kingston, þannig að svo er að sjá að enski sjúklingurinn gangi með ein- hvern kvensjúkdóm! Þú fœrð bœkling með pöntunarseðli í nœstu verslun! Leiknum lýkur 31. janúar 1998. setur brag á sérhvern dag!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.