Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1998, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 3. JANUAR 1998
★ *
iðsljós
23
Elton John
heiðraður
Poppstjaman Elton John hef-
ur nú verið sleginn til riddara í
heimalandi sínu. Aðalstignin
kemur í kjölfar þess árs er fólk
minnist hans helst fyrir það er
hann snart hjörtu syrgjandi
heimsbyggðarinnar með því að
syngja Candle in the Wind við
jarðarfor Diönu prinsessu.
Á myndinni klæðist hann
einni flikinni úr klæðaskáp
þeim sem hann hefur ákveðið
að selja úr til styrktar alnæmis-
sjúkum.
Héðan í frá verður líklega talað
um Sir Elton John.
John Travolta.
John Travolta:
Dómari rak
hann út
John Travolta gekk inn í
ónefhdan dómsal í Bandaríkj-
unum á dögunum, ekki til að
láta rétta yfir sér heldur til að
búa sig undir kvikmynd sem
hann á að fara að leika í. í
mesta sakleysi hélt hann að
hann gæti fylgst með réttar-
höldum í morðmáli án þess að
eftir því yrði tekið. En öðruvísi
fór en ætlað var.
I miðjum réttarhöldum bað
dómarinn um orðið, kallaði
Travolta til sín og bað hann vin-
samlegast að yfirgefa salinn.
Ástæðan? Jú, dómaranum
fannst nærvera kvikmynda-
stjörnunnar trufla réttarhaldið.
í hvert skipti sem Travolta
bærði á sér festust augu kvið-
dómenda á honum í staðinn íyr-
ir að fylgjast með málflutningi
lögmanna og frásögnum vitna.
Travolta varð kurteislega við
þessari ósk dómarans og yfirgaf
salinn með bros á vör. Já, það
er ekki tekið út með sældinni
að vera frægur!
Gítarleikarinn Jón Páll Bjarnason heldur
þessa dagana tónleika á Sóloni fslandusi.
Þrennir eru búnir og tvennir eftir, annað
kvöld og á mánudagskvöldið. Jón Páll fór til
Bandaríkjanna árið 1983 og hefur búið þar síð-
an. Hann vakti snemma á sér athygli fyrir frá-
bæran djassgítarleik. Vestanhafs hefur hann
leikið með hinum og þessum, m.a. á timabili
hinni þekktu stórsveit, Buddy Rich, sem marg-
ir töldu þá bestu fyrir utan Basie, Herman og
Ellington.
Jón Páll er hér á landi aðeins í jólafríi og nýt-
ur aðstoðar Tríós Ólafs Stephensens sem skipað
er, auk Ólafs, þeim Guðmundi R. Einarssyni og
Tómasi R. Einarssyni. Ólafur og Jón PáÚ léku
síðast saman með tríói ásamt Sigurbirni Ing-
þórssyni í Evrópufor Hauks Morthens fyrir um
fjörutíu árum.
Jón Páll Bjarnason á Sóloni íslandusi:
Skemmtileg sveifla
Jón Páll Bjarnason í ham á Sóloni íslandusi í vik-
unni. Hann spilar aftur annað kvöld og á mánudags-
kvöld. DV-mynd Hilmar Þór
Tilda long grain hrísgijón, 1 kg
Hertoginn af Jaðri, 2 kg hvítar kartöflur
200 Mílur, ýsa roðlaus og beinlaus
Brazzi appelsínusafi 1 l
Kavli hrökkbrauð, 3 tegundir 150 g
R.TC-E
HAGKAUP
mm
sprengia
kr./pokinn
kr./pokinn
Allai verslánir opnar 1 d.tg laugardag og matvðruverslun
okk.u i kringlu er opin a morgun sunnudag.
Aði.u \erslanii lokaðai vegna \ ói utalningar.